Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 2

Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 2
2 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sól hækk- ar á lofti SÓLIN er smátt og smátt að hækka á lofti. Samspil sólar og skýjabakka skiiuðu sér í mikilli litadýrð á himni í gær á sunnan- verðu landinu. Menn og dýr nutu sköpunarverksins í veður- blíðunni i miðborg Reykjavíkur. Sólarupprás í Reylgavík var kl. 10.45 í gær og sól settist kl. 16.29. Þegar sól var lægst á lofti í desember kom hún upp í borginni kl. 11.19 og settist kl. 15.30. Dagurinn hefur því lengst um eina klukkustund og 33 mínútur á tæpum einum mánuði. Sól er skemur á lofti um norð- anvert landið. Þannig kemur sól upp við ísafjörð kl. 11.16 ogkl. 10.58 á Siglufirði. Mál skipstjórans á TIA tekið fyrir í rétti á írlandi Trygging lækkuð o g slak- að á skilyrðum réttarins ÍSLENSKUR skipstjóri skipsins TIA, sem írsk yfirvöld hafa ákært fyrir ráðagerðir um að flytja kókaín inn til landsins, kom fyrir rétt í bænum Bandon í Cork á föstudag. í réttarhaldinu var frestur ákæru- valdsins til þess að leggja fram gögn í málinu framlengdur til 7. mars næstkomandi. Jafnframt var trygg- ing sú sem skipstjóranum hefur ver- ið gert að leggja fram lækkuð úr 20 þúsund írskum pundum í 5 þús- und írsk pund. Tryggingin er tekin með veði í skipinu. Ennfremur var slakað á öðrum skilyrðum sem rétt- urinn setti þegar maðurinn var leyst- ur úr haldi. Þannig þarf hann fram til 7. mars nk. að gefa sig fram við lögregiu einu sinni í viku en ekki þrisvar í viku eins og verið hefur frá því rétt- að var í máli mannsins síðast, þann 27. nóvember. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins verður endanieg dagsetning réttarhalda ákveðin þann 7. mars og er þess vænst að þau hefjist inn- an fárra vikna frá þeim tíma. Skipið TIA, sem er skráð í Belize, var fært til hafnar af toll- og strand- gæslu á írlandi þann 6. nóvember og næstu daga var gerð ítarleg en árangurslaus leit að flkniefnum í skipinu, sem er í eigu skipstjórans. Aðrir úr fjögurra manna áhöfn skipsins voru síðan látnir lausir en skipstjórinn, sem er 65 ára gamall íslenskur ríkisborgari, búsettur í Svíþjóð, var hafður í haldi og síðan ákærður fyrir að hafa sammælst við nafngreindan mann um að hafa ætlað að flytja inn verulegt magn af kókaíni til írlands. Skipstjórinn, sem kom fyrir rétt í gær, hefur neit- að öllum ákærum. Fram kom í réttin- um í gær að hann býr í Dublin fram að réttarhöldunum, í um 200 mílna fjarlægð frá Bandon. Skipið TIA er hins vegar sem fyrr bundið við bryggju í bænum Cast- letownbere þar sem það er tii sölu. ■............................-.........................................................................:............:......................... Morgunblaðið/RAX Metumferð á íslenska út- hafsflugsljómarsvæðinu FLUGUMFERÐ um íslenska út- hafsflustjómarsvæðið jókst um 8,1% prósent á síðasta ári og er það 1,1% yfir meðaltalsaukningu á flugumferðinni yfir Norður-Atl- antshaf árið 1996. 71.631 flugvél fór um flugstjórnarsvæðið en það meira en nokkru sinni fyrr. Áætlað er að á yfirstandandi ári verði gjaldeyristekjur íslend- Knattspyrnu- samband Islands Geir fram- kvæmdastjóri STJÓRN Knattspymusambands ís- lands ákvað á fundi í gærmorgun að ráða Geir Þorsteinsson sem framkvæmdastjóra. Geir hefur verið skrifstofustjóri sambandsins sl. 5 ár. Hann tekur við af Snorra Finnlaugssyni, sem verið hefur framkvæmdastjóri KSÍ sl. 6 ár. inga af flugumferðinni um 800 milljónir króna en íslendingar þjóna henni samkvæmt sérstökum samningi við Alþjóðaflugmála- stofnunina (ICAO). Aukin umferð á íslenska svæð- inu á síðasta ári skýrist fyrst og fremst af aukinni flugumferð í kjölfar batnandi efnahagsástands í heiminum og stefnu háloftavinda yfír Norður-Atlantshafi. Flugleiðir stærsti viðskiptavinurinn íslenska úthafsflugstjórnar- svæðið er það næststærsta í heim- inum, samtals 5,2 milljónir ferkíló- metra, en það svarar til helmings- ins af meginlandi Norður-Amer- íku. Svæðið nær frá norðurpól suður undir Skotland og frá ströndum Kanada í vestri að Nor- egsströndum í austri. Það tekur Boeing 747 risaþotu rúmar þijár klukkustundir að meðaltali að fljúga þvert yfir svæðið frá austri til vesturs. Árið 1996 voru Flugleiðir hf. stærsti viðskiptavinurinn á úthafs- flugstjórnarsvæðinu með um 12% umferðarinnar en næst koma SAS, British Airways, NATO, þýska félagið Lufthansa og bandarísku flugfélögin American Airlines og United Airlines. Tíu algengustu flugleiðir flug- véla sem fóru um svæðið á árinu voru í eftirfarandi röð: London - Los Angeles, London - San Franc- isco, Keflavík - Kaupmannahöfn, Los Agneles - London, Kaup- mannahöfn - Keflavík, Frankfurt - Los Angeles, London - Vancou- ver, Vancouver - London og Vog- ar í Færeyjum - Kaupmannahöfn. Árið 1996 var hver flugvél að meðaltali tæpar tvær klukku- stundir á lofti á úthafsflugstjórn- arsvæðinu og 88% flugvélanna voru þotur. Tveggja hreyfla þotur af gerðinni Boeing 767 voru tíð- ustu gestirnir eða 22% allra flug- véla. I kjölfarið fylgdu Boeing 747 risaþotur, eða 21%, og tveggja hreyfla Boeing 757 þotur lentu í þriðja sæti en umferð flugvéla af þeirri gerð var 8% af heildarum- ferð ársins. Hermann til Crystal Palace HERMANN Hreiðarsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu hjá ÍBV, fer til enska félagsins Crystal Palace á mánudag og æfír hjá því a.m.k. út vikuna en félagið hefur sýnt áhuga á að kaupa miðvörðinn. Að sögn Jóhannesar Ólafssonar, formanns ÍBV, hafa mörg félög haft samband vegna Hermanns en formaður Palace hringdi á föstu- dag og sagðist vilja fá Hermann út með kaup í huga. Liðið er í hópi þeirra efstu í 1. deild og stefnir að sæti í úrvalsdeildinni en þarf að styrkja vömina. Jóhannes sagði að ekki væri beint búið að bjóða i Hermann en formaður Palace hefði talað laus- lega um hugmyndir félagsins og nánari viðræður færu fram innan skamms stæði Hermann undir væntingum ytra. Eyjamaðurinn Bjarnólfur Lárus- son er einnig á leiðinni út í næstu viku en hann fer til Hibernian í Skotlandi í sama tilgangi. Her- mann ogJBjarnólfur eru samnings- bundnir ÍBV. ► 1-56 Gálgahraun í lífshættu ►Tiilögur að nýju aðalskipulagi Garðabæjar hafa valdið nokkrum deilum og m.a. er fullyrt að nýr þjóðvegur út á Álftanes valdi veru- legum spjöllum á þeim náttúru- minjum sem hraunið er. /10 Prófessorinn breyttist pólitískt kameljón ► Zoran Djindjic, sem hefur verið í fylkingarbijósti í mótmælunum i Belgrad, á sér talsvert skrautlega fortíð. /12 Geðsjúkdóma og hellabilun þarf að finna fyrr ► Fjórðungur aldraðra þjáist af þunglyndi á einhveiju stigi, en lít- ið brot fær viðhlítandi meðferð. /20 Skammt stórra högga á milli ►í Viðskiptum/Atvinnulífí á sunnudegi er rætt við Einar Sig- fússon kaupmann í Sportkringl- unni. /24 B ►l-32 IMepal - Mekka straumsiglinganna ►Fjallalandið í Himalaya er okkur æði framandi. Þar hefur þó Har- aldurÞórmundsson síðan 1994 verið í bátaleiðöngrum með ferða- fólk niður ámar. /1-4 Grátfóstra mín ►Guðmundur Páll Ólafsson segir það skyldu okkar að skila landinu óspilitu til komandi kynslóða. /10 Að undirstrika per- sónuleikann ►Danski skartgripahönnuðurinn Gerda Lynggaard nýtur stöðugt aukinna vinsælda meðal kvenna hér á landi - sem erlendis. /14 C FERÐALÖG ► 1-4 Kanaríeyjar ►Um þrönga dali og pínulítil þorp. /2 Heimilisleg ferðaskrifstofa ►I grænni ferðamennsku felst ákveðin siðfræði sem á erindi við alla. /4 D BÍLAR ► 1-4 Bylting í bílamálum ►Því er spáð að unnt verði að smíða bíla sem eru 1.000% spar- neytnari en hefðbundnir bílar era í dag. /1 Reynsluakstur ►Snarpur Suzuki Vitara með dís- ilvél. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Skák 42 Leiðari 28 Fðlk í fréttum 44 Heigispjall 28 Bió/dans 45 Reykjavikurbréf 28 Útvarp/sjónvarp 50 Minningar 30 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Dægurtónl. 6b Bréf til blaðsins 40 Gárur 8b ídag 42 Mannlifsstr. 8b Brids 42 Skoðun 10bog31b Stjömuspá 42 Kvikmyndir 12b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.