Morgunblaðið - 19.01.1997, Síða 6
J
6 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997
i
MORGUNBLAÐIÐ
_________________ERLENT
Einangrastheitti’ú-
armenn í Israel?
ísraelum og Palestínumönnum tókst í vik-
unni að ná samkomulagi um Hebron eftir
mikið þref. Ekki eru allir sáttir við samkomu-
lagið og er óánægjan sennilega mest meðal
strangtrúaðra gyðinga. Sumir ísraelar eru
orðnir langþreyttir á kröfum strangtrúaðra
gyðinga og teljatímabært að ræða hvort
þeir eigi að fá sérstakt heimaland svo þeir
geti verið út af fyrir sig.
STRANGTRÚAÐUR gyðingur á gangi í Jerúsalem. Á veggnum
stendur letrað á hebresku: „Bibi er svikari." Bibi er gælunafn
Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra Israels.
Raddir um að
strangtrúaðir
gyðingar fái
heimaland í Júdeu
YFIRBORÐINU kann
samkomulagið um að ísra-
elar afhendi Palestínu-
mönnum borgina Hebron að fjór-
um fimmtu hlutum ekki að virðast
ýkja merkilegt. Það hafði verið
samið um brottflutninginn 1995
og hann hafði tafist um tíu_ mán-
uði vegna stjórnarskipta í ísrael.
Þegar þar að kom tók það ísraela
aðeins nokkra tíma að víkja fyrir
Palestínumönnum. Þetta sam-
komulag markar hins vegar tíma-
mót í ísraelskum stjórnmálum.
Hægri vængurinn hefur nú viður-
kennt það, sem miðju- og vinstri-
menn hafa vitað um nokkurt skeið.
Friður mun ekki nást nema með
einum hætti og hann er settur
fram í Óslóarsamkomulaginu. Um
leið blasir emangrun við heittrúar-
mönnum í ísrael, sem eru farnir
að fara svo í taugarnar á öðrum
ísraelum að kröfur heyrast um
aðskilnað — þeir fái sitt eigið hei-
maland.
Yitzhak Rabin kom Óslóarferl-
inu af stað, Shimon Peres þokaði
því áleiðis og nú hefur Benjamin
Netanyahu viðurkennt það. Leið-
togar ísraelska Verkamanna-
flokksins segja að samkomulagið
um Hebron sé aðeins frábrugðið
því samkomulagi, sem þeir gerðu,
í smáatriðum. Thomas L. Fried-
man, blaðamaður dagblaðsins The
New York Times, segir að þeim
skjátlist: „Þessi samningur er
miklu betri af einni ástæðu: Net-
anyahu undirritaði hann. Þar með
gerði hann hinn helming ísraela
(eða að minnsta kosti helming hins
helmingsins sem gerir allt í allt
75% þjóðarinnar) að þátttakendum
í Óslóarsamkomulaginu."
Netanyahu verður talsmaður
Óslóarsamkomulagsins
Netanyahu hefur hingað til lagt
allt kapp á að draga fram galla
Óslóarsamkomulagsins. Sjö mán-
uðum eftir að hann tók við emb-
ætti hefur hann ákveðið að fylgja
stefnu andstæðinga sinna. Hans
þöglu samheijar voru áður þeir
Israelar, bandarísku gyðingar og
arabar, sem vildu Óslóarsam-
komulagið feigt. Nú eru þeir ein-
angraðir. Héðan i frá má búa:
við að Netanyahu hampi sam-
komulaginu, sem flokkur hans,
Likud-bandalagið, lét í þijú ár eins
og hefði aldrei verið gert.
Likud-bandalagið skiptist nú í
tvennt. Annars vegar
eru þeir, sem ekki vilja
semja frið, og hins
vegar þeir, sem eru
ómissandi, eigi að
semja frið, svo aftur
sé vitnað í Friedman.
Það hefur kostað miklar
blóðsúthellingar undanfarna átat-
ugi og þrotlausa samninga að
koma á friðarferlinu og sætta
flesta ísraela og Palestínumenn
við skiptingu landsins helga í
tvennt.
Vilja aðskilnað við hina
strangtrúuðu
Nú er hins vegar kominn fram
hópur ísraela, sem krefst þess að
landinu _ verði skipt í
þrennt. ísraelar, sem ekki
leggja áherslu á trú,
fengju eitt ríki, strangtrú-
aðir gyðingar annað og
Palestínumenn það þriðja.
Þess hugmynd kann að virðast
langsótt, en um hana eru hafnar
alvarlegar umræður. Það hefur
meira að segja verið bent á for-
dæmi úr Biblíunni. Þegar erfingjar
Davíðs og Salómons gátu ekki
komist að samkomulagi árið 993
fyrir Krist stofnuðu þeir ríki gyð-
inga í ísrael og Júdeu og deildu
landinu helga með Filisteum.
Það eru hins vegar ekki trúaðir
gyðingar, sem nú hefja upp raust
sína af rómantískri þrá eftir löngu
liðinni tíð, heldur hinir, sem hafa
fengið nóg af ofbeldi og skorti
rétttrúnaðarmanna á umburðar-
lyndi. Helstu talsmenn aðskilnaðar
við strangtrúaða gyðinga koma
af vinstri væng ísraelskra stjórn-
mála.
Rithöfundurinn Yoram Kaniuk
og dálkahöfundurinn Zeev Chafets
halda því fram að trúarofstækis-
mönnum í ísrael hafi tekist að
móta stefnu landsins þannig að
hún gangi á skjön við hagsmuni
Israels og vilja þorra íbúa og sé
beinlínis hættuleg.
Að þeirra hyggju er aðeins um
eitt svar að ræða. Skilnað og skipt-
ingu eigna. Gyðingar, sem séu
veraldlega þenkjandi, geti búið í
ísrael og hinir strangtrúuðu verði
í Júdeu. „Þeir neita að borða með
ÚTSALA
10-70%
afsláttur
Ljós og lampar
Rafkaup
Ármúla 24 - sími 568 1518
Ég veit ekki
hvor er að
sigra . ..
Reuter
RABBINI hjálpar manni úr gyðingabyggðunum á Vesturbakkanum
að rífa skyrtu hans til merkis um að hann harmi að ísraelar af-
hentu Palestínumönnum yfirráð í borginni Hebron að fjórum
fimmtu hlutum. íbúar úr gyðingabyggðunum mótmæltu í Hebron
mér, þeir vilja ekki giftast mér,“
sagði Kaniuk. „Þegar bókstafstrú-
armennirnir eru annars vegar
koma málamiðlanir ekki til greina.
Leyfum þeim því að fá hinar fögru
hæðir, búa í Jerúsalem og Hebron
og gera það, sem þeim sýnist, á
meðan við höldum áfram að reisa
okkar gyðingaríki í Ashdod og Tel
Aviv og Galíleu."
Dauðasök að aka bíl
á hvíldardeginum
Þetta mál er nú rætt af meiri
alvöru vegna þess að hinir strang-
trúuðu eru orðnir herskárri. Heit-
trúaðir gyðingar stóðu að baki
morðinu á Yitzhak Rabin, morði
29 manna í mosku í Hebron árið
1994 og árás á Palestínumenn á
markaði í Hebron fyrr í þessum
mánuði þegar sex Palestínumenn
særðust. Ovadia Yosef,
andlegur leiðtogi heit-
trúarflokksins Shas,
sem situr í samsteypu-
stjórn Netanyahus,
lýsti til dæmis yfir því
að gyðingar, sem ekki héldu hvíld-
ardaginn heilagan, yrðu drepnir.
í huga Yosefs er það dauðasök
að aka bifreið á hvíldardeginum.
Stuðningur við skoðanir af
þessu tagi er undarlega víðtækur.
Skoðanasystkini Baruchs Gold-
steins, sem var barinn til bana
eftir að hann framdi fjöldamorðið
í moskunni í Hebron, fara í viku
hverri að leiði hans. í hugum
þeirra er hann píslarvottur. Stofn-
aðir hafa verið óformlegir aðdá-
endaklúbbar Goldsteins og Yigals
Amirs, launmorðingja Rabins, í
guðfræðiskólum. Kennari í einum
slíkum skóla kallaði saman nem-
endur sína eftir skotárásina á
markaðinum í Hebron til að for-
dæma athæfið. Hann sagði að
maðurinn væri skapaður í ímynd
Guðs og það ætti einnig við um
araba. Hálfur bekkurinn gekk út í
mótmælaskyni.
Gyðingur eða
ekki gyðingur
Gyðingar, sem ekki leggja
áherslu á trúarbrögðin, er uppsig-
að við hina trúræknari af mörgum
öðrum ástæðum. Sumir rabbínar
hafa neitað að grafa rússneska
innflytjendur í kirkjugörðum gyð-
inga vegna þess að ekki sé opin-
berlega viðurkennt að mæður
þeirra séu gyðingar, en í lögum
gyðinga er það skilyrði fyrir því
að fá inngöngu í trúfélag þeirra.
Það hefur vakið reiði margra
ísraela að innflytjandi, sem var
hermaður og lét lífið í átökum á
Vesturbakkanum 1993, var graf-
inn utan veggja kirkjugarðsins
heima hjá honum af þessari
ástæðu. Shimon Shitrit, lagapró-
fessor og fyrirverandi ráðherra
trúmála, sagði að 150 þúsund ísra-
elar, sem héldu því fram að þeir
væru gyðingar, væru ekki nógu
miklir gyðingar til að ganga í
hjónaband. í ísrael er ekki gert
ráð fyrir borgaralegum hjóna-
böndum og hefur borið á því að
ísraelskir borgarar hafí gert með
sér lagalegan sáttmála í stað trú-
arlegs hjónabands. Fólk, sem binst
með þeim hætti, fer hins
vegar á mis við ýmis
hlunnindi, sem ríkið veitir
giftum hjónum.
Ýmsir trúaðir gyðingar
hafa reyndar samúð með
þeim meðborgurum sínum, sem
ekki eru jafn trúræknir. Michael
Melchior, sem er frálslyndur rétt-
trúnaðarrabbíni, segir að aðskiln-
aður væri „fráleitur", en viður-
kennir að oft sé fótur fyrir þeirri
gagnrýni, sem hefur komið fram.
Sem dæmi má nefna að hægrisinn-
aðir rabbínar hafa ráðlagt her-
mönnum að hlýða ekki skipunum
um að hverfa brott frá Vestur-
bakkanum. „Að segja að trúrækn-
ir hermenn eigi ekki að gera það,
sem yfirmenn þeirra segja þeim
heldur hlýða rabbínum þeirra,
grefur undan undirstöðu sameig-
inlegrar tilveru trúaðra gyðinga
og hinna, sem eru veraldlega
þenkjandi," sagði Melchior.
Þeir eru einnig til, sem segja
að hinir veraldlega þenkjandi séu
að ná yfirhöndinni í ísrael. Avra-
ham B. Yehoshua rithöfundur er
einn þeirra. Hann bendir á að
verslunum, kvikmyndahúsum,
veitingastöðum og krám, sem hafí
opið á laugardögum, hvíldardegin-
um, íjölgi stöðugt, máli sínu til
stuðnings.
„Ég veit ekki hvor er að sigra,“
segir Yoram Kaniuk. „En ég veit
að það ríkir styrjöld."
IiyPKt á The New York Times og Time.
en ég veit
að það ríkir
styrjöld
;
I
I
I
I
:
þ
I
I
f