Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 12

Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 12
12 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Prófessorinn breyttíst í pólitískt kameljón Zoran Djindjic, sem hefur veríð í fylk- ingarbrjósti í mótmælunum í Belgrad, var anarkisti á á námsárum sínum á áttunda áratugnum, andstæðingur rót- tækrar þjóðernishyggju á síðasta ára- tug og síðan útsmoginn þjóðemissinni þar til í september þegar hann sneri við blaðinu og gerðist einn af atkvæða- mestu talsmönnum lýðræðis í Serbíu. Zoran Djindjic fær orð í eyra frá öðum helsta leiðtoga sljórnar- andstöðunnar í Serbíu, Vuk Drascovic. Zoran Djindjic er 44 ára, var prófessor í heimspeki og síðan kaupsýslumaður þar til hann gerðist stjórn- málamaður. Hann er nú í fylkingar- bijósti í fjölmennustu og langvinn- ustu mótmælunum í Belgrad frá því kommúnistar komust til valda árið 1945. Fyrir tæpum þremur árum, 21. febrúar árið 1994, var Djindjic í Pale, höfuðvígi Bosníu-Serba, og heimsótti leiðtoga serbneskra þjóð- ernissinna. Þann dag rann út fyrsti fresturinn sem Atlantshafsbanda- lagið gaf Bosníu-Serbum til að flytja þungavopn sín frá Sarajevo; ef þeir gerðu það ekki áttu þeir yfir höfði sér loftárásir. Nokkru áður höfðu 68 manns beðið bana í sprengjuárás Serba á miðborg Sarajevo. Djindjic kvaðst hafa farið til Pale í því skyni að láta í ljós „samstöðu með íbúum serbneska lýðveldisins í Bosníu“. Hann eyddi þar átta klukkustundum í félags- skap Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba. „Samviskulaus lýðskrumari" Nú er Djindjic hins vegar hampað sem þeim lýðræðissinna, sem mestar vonir eru bundnar við í Serbíu. Hann flytur fágaðar ræður um ágæti lýð- ræðisins, mannréttindi og efnahags- umbætur og stjómmálamenn í hvaða Evrópulandi sem er væru fullsæmd- ir af málflutningi hans. Vinir hans og andstæðingar lýsa honum hins vegar sem raunsæjum hentistefnumanni. Á námsárum sínum á áttunda áratugnum var hann stjórnleysingi og síðan ftjáls- lyndur menntamaður, sem lagðist gegn þjóðernishyggju. Hann sneri hins vegar við blaðinu og gerðist útsmoginn þjóðernissinni, sem gekk erinda flokks Karadzic þar til í sept- ember þegar hann söðlaði um. Djindjic stofnaði Lýðræðisflokk- inn árið 1990 ásamt Desimir Tosic og tíu öðrum mönnum. Tosic sagði sig úr flokknum vegna stefnubreyt- ingar hans og lýsir Djindjic sem „samviskulausum lýðskrumara". „Það þarf þó ekki að vera svo slæmt,“ bætir hann við. „Hann er algjör hentistefnumaður. Ef til er hann það sem við þurfum." „Heillandi“ stjórnmálamaður Með hliðsjón af kúvendingum Djindjic mætti halda að auðvelt yrði að fínna fólk sem hefur óbeit á honum. Svo er þó ekki því eitt af því merkilega við Djindjic er að jafn- vel pólitískir andstæðingar hans segjast kunna vel við hann. „Líkar mér vel við hann? Já, svo sannarlega," sagði Ljubisa Ristic, leiðtogi flokks, sem er í nánum FRÉTTIR sem berast frá Alsír eru á eina lund að því er virðist; ofbeldis- verk, hryðjuverk og hörmungar af því tagi ætla ekki að taka neinn enda. Eftir að stjórn- völd knúðu í gegn þjóðaratkvæða- greiðslu um stjórnarskrábreytingar þar sem islamskir öfgaflokkar voru bannaðir, skánaði ástandið um hríð en hefur fyrir löngu fallið í sama farið. Samhliða fréttum af of- beldi kemur einnig fram að æ fleiri Alsíringar búa við atvinnuleysi og kröpp kjör. Þetta allt bætist ofan á skelfingar fimm ára borgarastyij- alda milli stjórnarhers og íslamskra bókstafstrúarmanna. Samkvæmt nýjustu tölum sem ég hef séð minnkaði kaupgeta fólks um 7% árið 1995 og 28% atvinnubærra manna voru án vinnu á fyrri helm- ingi nýliðins árs. Fátæktin hefur nú einnig náð til millistéttarinnar þar sem störf hafa verið lögð niður svo skiptir þúsundum en verðlag heldur áfram að hækka. Verðbólg- an hefur verið um og yfir 20%. Verkalýðssamband Alsír hefur staðfest að um 350 þúsund laun- þegar hafi ekki fengið greidd laun í allt að 10 mánuði. Samdrátturinn hefur verið á flestum sviðum, samgöngur eru í lamasessi um stóran hluta lands- ins, útgáfufyrirtæki hafa lagt upp laupana hvert af öðru og nýbygg- ingar eru varla nokkrar með til- heyrandi afleiðingum. Þrátt fyrir þetta var framleiðsluaukning í Als- ír á árinu 1996 þegar á heildina er litið, m.a. var aukning í útflutn- ingi olíuvara og metár í kornrækt. En ofbeldisverkum linnir ekki, kvíði og skelfing er daglegt brauð hins venjulega borgara í landinu og sumir eru farnir að hafa orð á því að líklega hafi það verið tvíbent ráðstöfun að samþykkja fyrrnefnd- ar stjórnarskrábreytingar; meðan fylgismenn islömsku flokkanna hafa bolmagn til hryðjuverka muni þeir halda þeim áfram. Því hefðu stjórnvöld fremur átt að reyna að ná samkomulagi við islömsku for- ystummennina og reyna að virkja krafta þeirra. En sumir eru líka farnir að tjá sig um að þeir dragi í efa að stjórnarskárbreytingarnar hafí verið samþykktar svo afger- andi sem opinberar tölur segja til um. í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrárbreytingarnar voru 80% kjósenda þeim fylgjandi. Meg- intilgangurinn með henni var að kanna hug fólks til starfsemi íslömsku flokkanna, einkum Islömsku frelsisfylkingarinnar. Þeg- ar úrslitin lágu svo fyrir var starf- semi þeirra flokka sem eru grund- vallaðir á islam bannaðir. En nú eru sem sagt að heyrast raddir sem í fyrsta lagi draga úrslit- in í efa og í öðru lagi að slíkt bann standist Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna en Alsíringar hafa undirritað hann. Fyrir nokkru velti greinarhöfundurinn Waleed M. Sadi, sérfræðingur um mann- réttindamál og málefni N-Afríku- landa, ýmsum þáttum þessu lútandi upp í dagblaðinu Jordan Times. Hann bendir á að þær séu í hróp- andi mótsögn við niðurstöðu þing- kosninganna 1992 þar sem augljóst var að islömsku flokkamir unnu stórsigur. Á ótrúlega skömmum tíma virðist því þorri þjóðarinnar hafa snúist heilan hring í afstöðu sinni til islömsku flokkanna. Sadi segist ekki sjá haldbæra skýringu á afstöðubreytingu hins almenna kjósanda þó svo að mörg- um hafí ofboðið ofbeldi og ofstæki sem fýlgismenn Islömsku frelsis- fylkingarinnar hafi sýnt. Þetta geti skýrt það að hluta en ekki til fulls enda hafí IFF notið mikils stuðnings meðal fólks síðustu árin, einkum verkafólks og láglaunahópa. Á það beri að líta að IFF hafl ekki legið á því í kosningabarátt- unni 1992 að þeir stefndu að mikl- um breytingum og aðgerðir þeirra hafi því ekki þurft að koma í opna skjöldu. M.a. hafi þeir ekki dregið dul á að þeim mislíkaði stórum hve konur voru orðnar áberandi í als- írsku þjóðlífi og vildu stöðva þá þróun. Gegn mannréttíndasáttmála SÞ? Til að reyna að komast að því hvort breytingin stenst alþjóðalög eða ekki verður því að líta í Mann- réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eins og áður segir. í 18. grein sáttmálans segir að hver og einn skuli hafa frelsi til að hugsa, frelsi til að fylgja sam- visku sinni og trúarskoðun. Þetta felur og í sér frelsi til að staðfesta trú sína með bænahaldi, tilbeiðslu og boðun. í þessu er ekkert sem virðist benda til að bannað sé að stofna stjórnmálaflokka á trúarleg- um grundvelli. Eina takmörkunin í þessa veru Reuter KONUR og kosningaspjöld í Algeirsborg. Stenst bannið er að fínna í málsgrein 3 í sama kafla þar sem sagt er að frelsi til að sýna og boða trú sína og skoðan- ir verða að vera háðar þeim tak- mörkunum sem gefnar séu með lögum og séu nauðsynlegar til að vernda öryggi borgaranna, halda uppi röð og reglu, heilbrigði og sið- ferði eða grundvallarrétti og frelsi annarra. Að mati Sadis hafa stjórnvöld í Alsír ekki annað að styðja sig við en þessa málsgrein þegar stjórnar- skrárbreytingarnar voru túlkaðar svo að 80% borgara hefði verið að samþykkja þær. Hann segist hafa leitað svara og fengið þau hjá als- írskum stjórnvöldum að ekki færi milli mála hvað þær þýddu og þau hafi því haft bæði lagalegan og siðferðilegan rétt til að banna IFF strax eftir þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Það sé móðgun við dóm- greind alsírska kjósenda að ætla að þeim hafi ekki verið þetta ljóst. En fyrst og fremst styðjist stjórnvöld við 2. málsgrein 20. greinar þar sem sagt sé að heimilt sé að hafa uppi áróður sem beinist gegn einstaklingum og leitt geti til hvers kyns ofsókna með ofbeldi eftir trú, kynþáttum. Ef IFF hefði ekki beitt ofbeldi hefði það verið löglegt ákvæði Mann- réttinda- sáttmálans? ---jt--------------------- Astandið í Alsír fer hríðversnandi efbir að sæmileg kyrrð komst á um hríð eftir að stjóm- málaflokkar sem byggjast á islam vom bann- aðir. Nú heyrast einnig hljóðlegar spumingar um hvort túlkun stjómvalda á stjómarskár- breytingunum standist þegar að er gáð að því er Jóhanna Krístjónsdóttir skrifar. Waleed Sadi segir að alsírska stjórnin hafi ekki kynnt þetta sem rök fyrir því að islömsku flokkam- ir voru útlægir gerðir og bannað að starfa. Hann segir ekki berum orðum að alsírska stjórnin hafi túlkað stjórnarskrárbreytingamar eftir eigin höfði og notað þær sem átyllu til að banna IFF en hann lætur mjög sterklega að því liggja. Því hann spyr: ef IFF hefði ekki gripið til ofbeldis væri þá allt í lagi og hefði það fengið að starfa? Og síðan svarar hann sér og efast um það. Óánægja meðal millistéttar- innar og kvennasamtaka hafi vegið þyngra á metunum. „Ef stjórnmálaflokkur er stofnað- ur um trú, brýtur það ekki í bága við neinar alsírskar eða alþjóðlegar samþykktir. En ef hann hneigist til að koma stefnumálum sínum fram með ofbeldi eða því sem sumir skil- greina sem kúgun - þá er hann bannfærður," segir hann. Hann leiðir getum að því að stjóm Alsír væri því ekki stætt á því ef IFF tæki til starfa á ný svo fremi hún gerði það undir öðrum for- merkjum. Þá mundi málinu verða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.