Morgunblaðið - 19.01.1997, Side 25
MORG UNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997
að áin verði á sambærilegu verði
og sambærilegar ár þar sem miðað
er við gæði og aðbúnað. Ár á borð
við Norðurá, Þverá/Kjarrá, Vatns-
dalsá og Víðidalsá. Þá erum við
að tala um að dýrasti tíminn sé
seldur á um það bil 65.000 krónur
á stöng á dag. Sambærilegir dagar
og þú segir að hafi kostað yfir
80.000 krónur í fyrra, þ.e. 10.-
12.ágúst, munu kosta um 45.000
næsta sumar. Hvað varðar þennan
dýrasta tíma þá er það staðreynd
að íslendingar hafa lítið sótt í hann
síðustu árin. Það virðist þó vera
aðeins að breytast og ég fagna
því, enda er áin hrein perla og hún
ásamt umhverfi sínu sannkölluð
náttúruparadís. Það er óhætt að
segja að við göngum til þessa verk-
efnis með mikilli tilhlökkun þótt
stórt sé og mikil vinna blasi við
okkur.“
Hitt er svo rétt, að kaupin
eru að hluta til fjár-
mögnuð með erlendu
lánsfé
hefur þó ekki komið í veg fyrir
miklar vinsældir árinnar meðal
inniendra og erlendra stangaveiði-
manna, enda þykir hún mjög gjöf-
ul og með afbrigðum fjölbreytt og
falleg. Þar veiða m.a. á hveiju ári
lávarðar, hertogar og fleiri fýrir-
menni.
Hver er aðdragandi þess að þú
keyptir þennan hlut í Haffjarðará
og jörðunum?
„Ég hef veitt í Haffjarðará um
langt árabil og lengi þekkt vel þau
hjón Oddnýju Freyju og Pál. Þá
hef ég lengi velt fyrir mér að gam-
an væri að eignast ánna og fást
við rekstur hennar og þau hjónin
hafa vitað af þeim áhuga. Það
hafa komið þó nokkur tilboð í ánna
síðustu árin en öllum verið hafnað.
Þreifingar milli mín og þeirra hjóna
hófust fyrir alvöru síðla síðasta
sumar og um haustið fóru hlutirn-
ir að gerast hraðar. Sú staða var
einfaldlega komin upp að það hent-
aði báðum aðilum að ganga frá
málinu. Þann 15. desember var
síðan skrifað undir kaupsamning.
Lögum samkvæmt var Kolbeins-
staðahreppi, Eyja- og Miklaholts-
hreppi boðinn forkaupsréttur að
jörðunum og nú um helgina renur
út frestur þeirra til að taka afstöðu
til þess.“
Árið 1986 var það haft fyrir satt
að áin ogjarðirnarhafi kostað 118
milljónir. Núna gengur það fjöllum
hærra að þú hafi borgað 160-170
milljónir. Er það rétt?
„Það er ekki mitt að tjá mig um
kaupverðið 1986. Kaupverðið nú
er trúnaðarmál. Ef einhveijir menn
úti í bæ eru að velta fyrir sér
160-170 milljónum er ljóst að þær
tölur eru úr lausu lofti gripnar.
Þær eru ekki frá mér, Oddnýju eða
Páli komnar.
Hitt hlýtur hins vegar að vera
augljóst að um allháa fjárhæð er
að ræða . Samkvæmt okkar út-
reikningum þá mun dæmið ganga
upp ef það tekst að selja ánna
þokkalega vel. Við miðum við 85%
nýtingu. Ég er mjög bjartsýnn á
að það gangi upp. Það er vaxandi
eftirspurn eftir veiðileyfum þessi
misserin og ég hef óskoraðan að-
gang að öllum samböndum Páls
G. Jónssonar og það er ekki stutt-
ur listi, því máttu trúa.“
Það gengur einnig fjöllum hærra
að annað sé óhugsandi en að á bak
við þig standi auðugir útlendingar.
Það séu í raun þeir sem eigi ánna
en þú sért aðeins málsvari þeirra':
„Ég hef ekki farið varhluta af
slíkum vangaveltum og mér þykir
vænt um að fá tækifæri til að
svara þeim í svona viðtali því ég
ákvað það strax að elta ekki ólar
við svona kjaftasögur. Það myndi
hvorki hafa upphaf né endi. Fyrir-
tækið Akurholt er ejtt hundrað
prósent í minni eigu. í stjórn þess
er ég sjálfur. Varamaður í stjórn
er Anna konan mín. Það eru eng-
ir baksamningar. Margir þeirra
sem hafa viljað kaupa ánna síð-
ustu árin hafa verið ríkir útlend-
ingar og mér finnst það vera góð-
ur áfangi að sá aðili sem hreppti
ánna hafi verið íslendingur.
Hitt er svo rétt, að kaupin eru
að hluta til fjármögnuð með er-
lendu lánsfé og þegar ég leitaði
eftir fjármagni kom í ljós að áhug-
inn var það mikill að færri komust
að en vildu. Þeir aðilar sem lánað
hafa fé til kaupanna hafa forgang
að veiðidögum næsta sumars svo
fremi að þeir panti í síðasta lagi
fyrir árslok árið á undan. Þó er
aldrei um fleiri daga að ræða í það
heila en 21 dag hvert ár. Að öðru
leyti hafa þeir engan rétt umfram
aðra veiðimenn og verða ætíð að
greiða sín veiðileyfi fullu verði.
Fjármögnunin er enda þannig vax-
in að það er ekkert svigrúm til að
gefa veiðileyfi. Hún byggist fyrst
og síðast á góðri sölu og þá skipt-
ir besti veiðitíminn sköpum.“
Hafljarðará hefur verið mjög dýr,
dagar snemma í ágúst í fyrra voru
seldir á rúmlega 80.000 krónur á
stöng fyrir einn dag og ofan á
bættist fæði og uppihald. Er það
tilfellið að hægt sé að selja á vel
á þvílíku verðlagi?
„Ég held að hér hljóti að vera
um einhvern misskilning að ræða
hvað varðar verðið. Ég miða við
Rýmum til og lækkum verð á 40 gerðum af
Draumaland náttúruunnandans
Costa Rica er sannkallaður viskubrunnur náttúrunnar.
27% landsins heyrir undir þjóðgarða og náttúru-
verndarsvæði en landið skiptist í 12 sérstæð lífríki
þar sem finna má 5% alls lífsforms á jörðinni.
Hitabeltisregnskógar og misturskógar þekja stóran
hluta landsins þar sem lífríki er óendanlega
fjölbreytilegt. Costa Rica er lýðræðisríki og
íbúar þess friðsöm þjóð án hervæðingar.
íslendingum býðst nú í fyrsta sinn .£ .
tækifæri til að heimsækja þetta dBf.h-'SÍUh
heiliandi land í Mið Ameríku.
Hópferð í 17 daga til Costa Rica þ. 24. febrúar
Páskaferð í 13 daga þ. 27 mars
Flug og bíll til Costa Rica - vikulegar brottfarir um Orlando
í Costa Rica muntu upplifa:
• Ævintýri í frumskóginum
• Litskrúðugt fugla- og dýralíf
• Virk eldfjöll og glóandi hraun
• Böð undir heitum náttúrulegum
fossum
• Fagrar kyrrlátar strendur
• Dvöl á bestu fáanlegu
gististöðum
• íslenska leiðsögn ásamt
staðarleiðsögn vistfræðings
Leiðsögn og skipulagning
Ingiveig Gunnarsdóttir
Framkvæmdastj. Landnámu
Landnáma er ný ferðaskrifstofa sem kynnir
breytt viðhorf á ferðalögum.
• Ferðaskipulagning byggir á traustum
grunni fagmennsku og reynslu.
• Ferðum Landnámu er ætlað að kveikja
áhuga ferðamannsins á ólíkum
menningarheimum, náttúru og vísindum.
• Hámark þátttakenda í hverri hópferð er
30 manns
• Ferðaskipulagning tekur mið af vistvænni
grænni ferðamennsku þar sem fyllsta
tillit er tekið til náttúru, umhverfis og
menningar.
Ferðaáætlun og verð
fyrirliggjandi á skrifstofu
okkar á Vesturgötu 5,
Sími: 511 3050
LANDNAMA chf