Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 26

Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 26
26 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga bresku kvikmyndina Leynd- armál og lygar („Secrets and lies“) eftir kvikmyndagerðarmanninn og leikskáldið Mike Leigh. Myndin var valin besta myndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes sl. ár. Hreinsað úr skúma- skotum CYNTHIA fær óvænt símtal sem breytir lífi hennar og fjölskyldu hennar. SAMBAND Maurice og Cynthiu var náið en LEIKSTJÓRINN Mike Leigh við tökur lijónaband Maurice og Monicu er þvingað. 4 „Secrets and Lies“. HORTENSE (Marianne Je- an-Baptiste) er ung svört kona sem býr í London og starfar sem sjóntækjafræðingur. Hún brotnar saman í jarðarför móður sinnar. Faðir hennar er einnig látinn. Hún var ættleidd, þau voru fósturfor- eldrar hennar. Fyrst nú finnur Hort- ense sig knúna til að hafa upp á kynmóður sinni. Henni er bent á að leita til félags- ráðgjafa (Lesley Manville) sem reynist henni vinsamleg og gefur almennar góðfúslegar ráðleggingar og lætur Hortense hafa þær opin- beru skýrslur sem til eru um fæð- ingu hennar og ættleiðingu. I skýrslunni kemst Hortense að því sér til undrunar og skelfingar að hún er dóttir hvítrar konu. Móðir hennar heitir Cynthia (Brenda Blethyn) og er lífsleið, ein- hleyp iðnverkakona sem býr í niður- níddu húsi ásamt dóttur sinni, Rox- anne (Claire Rushbrook). Roxanne er götusópari hjá bænum. Þeim mæðgunum semur ekki. Það er hróplegt ósamræmi í að- stæðum Cynthiu og bróður hennar, Maurice (Timothy Spall), en hann nýtur velgengni í starfi sem ljós- myndari. Hann rekur ljósmynda- stofu, tekur myndir af velstæðu millistéttarfólki og býr í glæsilegu, ríkulega innréttuðu húsi sem Monica (Phylis Logan), eiginkona Maurice, sér um af miklum metnaði. Monica og Maurice eru vansæl I hjónabandi. Ófijósemi hennar er þeim þungur kross sem þau bera full af skömm. Það kemur þeim einn- ig úr jafnvægi að óvænt snýr fyrr- verandi eigandi fyrirtækis þeirra heim til Bretlands en hann var flutt- ur til Ástralíu. Þetta er ámátleg heimkoma manns sem er aðfram- kominn af alkóhólisma. Móðir þeirra Maurice og Cynthiu dó þegar þau voru böm að aldri og í raun var það Cynthia sem ól bróð- ur sinn upp. Samband þeirra systkin- anna er náið en þau hafa þó ekki sést eða talast við í nokkum tíma og sakna hvort annars. Maurice er fullur sektarkenndar og fínnst hann vanrækja bágstadda systur sína en það eru litlir kærleik- ar með mágkonunum Cynthiu og Monicu. Maurice lætur því verða af því að heimsækja systur sína og þeir endurfundir verða tilfínninga- þrungnir. Maurice lýsir því yfir að hann og Monica muni halda grill- veislu til heiðurs Roxanne á 21 árs afmæli hennar. Meðan þessu vindur fram hefur Hortense haft mikið fyrir því að hafa uppi á samastað Cynthiu og er búin að telja í sig kjark til þess að hringja i móður sína. Cynthia kemst í mikið uppnám þegar hún heyrir í Hortense og hún fellst hik- andi á að hitta hana nokkrum dög- um síðar. Mæðgurnar hittast í fyrsta skipti í miðborg Lundúna en þegar Cynthia sér að Hortense er svört hrekkur hún í kút g lýsir því yfir að hér séu einhver mistök á ferð- inni. Það er ekki fyrr en Hortense hefur talið hana á að fara með sér á kaffíhús að Cynthia sleppir takinu og leyfír endurminningu sem hún hafði bælt niður árum saman að koma upp' á yfirborðið. Hún viðurkennir fyrir sjálfri sér að Cynthia sé eldri dóttir sín. Kon- urnar tvær taka nú upp samskipti sín á milli og fara saman út á með- al fólks og samband þeirra sem var f upphafi þvingað og fullt af tor- tryggni verður smám saman ástríkt samband milli móður og dóttur, sem einkennist af hlýju og gagnkvæmri væntumþykju. Roxanne og kærastinn hennar, byggingarverkamaðurinn Paul (Lee Ross) eiga ekki orð til þess að tjá undrun sína yfir þeim stakkaskiptum sem verða nánast eins og hendi sé veifað á fasi og líðan Cynthiu. Þegar grillveislan til heiðurs Rox- anne nálgast hringir Cynthia í Maurice og spyr hvort hún megi taka með sér gest. Hann fellst á það en treglega og fullur tortryggni og Monica deilir þeim tilfinningum þeg- ar hún fréttir af samtalinu. Þeim þjónum þykja óvæntar fréttir sjaldn- ast boða gott. Hortense er líka tortryggin og treg að fara í veisluna en lætur það eftir rnóður sinni og mætir á stað- inn. í fyrstu veit enginn hver hún er, en þar kemur að Cynthia segir sannleikann. Það er tilfmninga- þrungin stund sem veldur mörgum áfalli og kemur róti á alla viðstadda. Verst koma fréttirnar við Roxanne, sem er ekki lengur miðpunktur at- hyglinnar í eigin afmælisveislu. Nú fer fjölskyldan að ræða út um hlutina og leiðin liggur í gegnum afhjúpanir þar sem flett er ofan af leyndarmálum og ósannindum sem hafa skekkt mynd fólksins af veru- leikanum. Þegar upp er staðið er ýmsum alvarlegum spumingum ósvarað en andrúmsloftið í samskipt- um fólksins er afslappaðra en nokkru sinni og einkennist af skiln- ingi og fyrirgefningu. Hlutimir hafa breyst til batnaðar. Höfundur handritsins og leikstjóri myndarinnar, hinn breski Mike Leigh, lýsir þessu hugarfóstri sínu svo: „Secrets and Lies“ fjallar um rætur manna og sjálfsmynd; þær síbreytilegu hugmyndir sem við höf- um um okkur sjálf og hvert annað og þráhyggjukennda þörf okkar til þess að leita stöðugt ytri staðfesting- ar á því hver við erum, hvað við erum og hvaðan við komum. Hún fjallar líka um kærleika, umhyggju og um ógnvænlegt vægðarleysi tímans.“ Mike Leigh er virtur kvikmynda- leikstjóri og rithöfundur sem hefur m.a. skrifað meira en 20 leikrit, sem leikfélög á borð við konunglega Sha- kespeare-félagið hafa sett upp. Leigh er 53 ára gamall Breti, útskrif- aður frá RADA í leiklist og London Film School í kvikmyndagerð. Hann nýtur mikillar virðingar í heimalandi sínu og hlaut m.a. orðu breska heimsveldisins árið 1993 fyrir störf að kvikmyndum og leiklist. Leigh hefur gert einar 14 kvik- myndir í fullri lengd, ýmist fýrir sjón- varp eða breiðtjald auk fjölda stutt- mynda. Auk þess að leikstýra skrifar hann handrit eigin mynda. Fyrsta kvikmynd hans var gerð árið 1971. Hún hét „Bleak Mo- ments" og hlaut verðlaun á kvik- myndahátíðunum í Chicago og Loc- arno. Nýjustu kvikmyndir hans, „High Hopes" frá 1988, „Life is Sweet“ frá 1990 og „Naked“ frá 1992 hafa átt miklu gengi að fagna á alþjóðavettvangi og hafa aflað Mike Leigh alþjóðlegs orðstírs meðal gagmýnenda og kvikmyndahúsa- gesta, að ekki sé minnst á verðlaun á kvikmyndahátíðum en fyrir „Naked“ hlaut hann t.a.m. verðlaun sem besti leikstjóri á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes árið 1993. „High Hopes“ hlaut t.d. verðlaun gagnrýn- enda í Feneyjum árið 1988 og hlaut evrópsku kvikmyndaverðlaunin sem besta mynd ársins. Secrets and Lies hefur ekki síður notið velgengni. Til marks um það er m.a. að myndin var valin besta mynd ársins 1996 á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes og hún hlaut einnig viðurkenningar samtaka bandarí- skra kvikmyndagagnrýnenda, auk Golden Globe tilnefningar. Mike Leigh hefur um sig hirð leik- ara og kvikmyndagerðarmanna. Flestir samstarfsmanna hans í „Secrets and Lies“ hafa margoft áður unnið við myndir hans en aldr- ei slíku vant er eiginkona leikstjór- ans, leikkonan Alison Steadman, þó aðeins í litlu aukahlutverki; hún kemur fram sem hundeigandi. í aðalhlutverkum eru kunnir breskir leikarar. Marianne Jean- Baptiste, sem leikur Hortense, hefur unnið undir stjóm Leigh á sviði, en hún hefur lítið látið að sér kveða í kvikmyndum. Timothy Spall, sem leikur Maurice, hefur Qórum sinnum leikið fyrir Leigh, þar á meðal í „Life is sweet". Honum brá fyrir í myndum á borð við „The Sheltering Sky“ eft- ir Bertolucci, „White Hunter, Black Heart“ eftir Clint Eastwood og „Got- hic“ eftir Ken Russel en er landsfræg- ur sviðs- og sjónvarpsleikari í Bret- landi og meðlimur í Konunglega Sha- kespeare-leikhópnum. Brenda Blethyn, sem leikur Cynthiu, er einnig í hópi þekktustu sviðs- og sjónvarpsleikara Bret- lands, og er margverðlaunuð fyrir sviðsleik en „Secrets and Lies“ er aðeins hennar þriðja hlutverk í kvik- mynd. Hinar fyrri voru „The Witc- hes“ eftir Nicolas Roeg og „A River Runs Through It“ eftir Robert Red- ford en þar lék hún móður Brad Pitts. Phyllis Logan, sem leikur Monicu, er sú eina aðalleikendanna sem aldrei fyrr hefur unnið með Mike Leigh en er t.d. þekkt úr sjón- varpsþáttunum „Lovejoy", auk þess sem hún hefur m.a. leikið í myndum Michael Radfords, „Another Time another Place" og 1984. H* m I Cí í I ( í « ( < ( ( ( ( ( 1 1 ( 1 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.