Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 27

Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ) I■ \ i I I I É :í-' » £ I FRETTIR Úrskurður sýslu- manns í máli Kaffi Lefolii felldur úr gildi „Förum eft- ir því sem ráðuneytið segir“ SÝSLUMAÐURINN á Selfossi segist ekki líta svo á að dómsmálaráðuneyt- ið sé að setja ofan í við sýslumanns- embættið með því að fella úr gildi ákvörðun þess um styttri afgreiðslu- tíma veitingastaðarins Kaffi Lefolii á Eyrarbakka. Þegar endurnýja átti vínveitinga- leyfið á liðnu hausti mótmælti næsti nágranni veitingastaðarins endurnýj- uninni vegna ónæðis þess sem hann yrði fyrir út af nálægðinni við Kaffi Lefolii. Lögfræðingur nágrannans mótmælti því við hreppsnefnd og sýslumann að leyfið yrði endurnýjað og lagði til vara tii að veitingatími yrði til ki. 22 öll kvöld. Meirihluti hreppsnefndar Eyrarbakkahrepps var hlynntur endurnýjun vínveitinga- leyfísins. Fulltrúi sýslumannsins á Selfossi kvað hinsvegar upp þann úrskurð að takmarka bæri vínveit- ingaleyfið til kl. 22 á kvöldin virka daga og til kl. 23:30 um helgar. Þórir Erlingsson, veitingamaður á Kaffi Lefolii, kærði úrskurðinn til dómsmálaráðuneytisins og krafðist endurskoðunar á ákvörðun sýslu- manns. Samkvæmt úrskurði dóms- málaráðuneytisins frá 7. janúar sl. er ákvörðun sýslumanns ekki í sam- ræmi við stjórnsýslulög og því vísaði ráðuneytið málinu aftur til sýslu- mannsembættisins með þeim orðum, að almennt áfengisveitingaleyfi skuli framlengt þar til ákvörðun um end- urnýjun liggur fyrir. í úrskurði ráðuneytisins segir að sýslumanni hefði borið, með vísan til 10. greinar stjórnsýslulaga, að kanna sérstaklega hvernig reynslan hefði verið af veitingarekstri í húsinu og hvaða ónæði hefði í reynd skapast af völdum meðferðar áfengis í hús- inu. Þannig hefði átt að leggja hlut- lægt mat á hávaða, umgang og þau úrræði sem gripið hefði verið til í því skyni að minnka ónæði. Fyrst að lok- inni slíkri rannsókn ætti að vera unnt að komast að niðurstöðu um hvort ónæðið væri almennt meira en íbúar í skipulagðri íbúðarbyggð mættu vænta og teldist eðlilegt. Dómsmálaráðuneytið kemst að þeirri niðurstöðu að rannsókn sýslu- manns hafi ekki verið viðunandi og gagnrýnir sértaklega að nágrannan- um hafi verið veitt staða aðila í stjórn- sýslumáli því er laut að meðferð á umsókn kæranda, þ.e. veitinga- mannsins. Andrés Valdimarsson sýslumaður kveðst taka úrskurði ráðuneytisins með jafnaðargeði. „Við gerðum bara það sem okkur fannst réttast í þessu tilfelli. Þetta er eins og gengur og gerist, menn taka ákvarðanir og svo er þeim breytt. Það getur alltaf kom- ið fyrir og kemur iðulega fyrir. Okk- ur fannst þetta eðlileg lausn á málinu eins og við afgreiddum það en við förum auðvitað bara eftir því sem ráðuneytið segir okkur. Við höfum alltaf hlýtt ráðuneytinu og það gerum við áfram,“ segir Andrés, sem vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið en vísar til fulltráa sýslumanns, sem hafði afgreiðslu málsins með höndum. n : * - vf.’ Það má segja að MITSUBISHI LANCER skutbflamir séu alsettir skrautfjöðrum, svo ríkulega em þeir útbúnir. Þar að auki em þeir glæsilegir, rúmgóðir og kraftmiklir (113 hö). Og verðið, það er engu líkt! i,, * ■ ■■■ ’ 'X ,r 'éÆæSKSm . . LANCER framhjóladrifmn skutbíll kostar frá /.430.000 LANCER skutbíll 4x4 kostar /.603.000 -vindskeið með hemlaljósi -hreyfiltengd þjófnaðarvöm -rafhituð framsæti - toppgrindarbogar -hilla yfir farangursrými -18,5 cm veghæð (4X4) -fjarstýrðar samlæsingar SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 27 1. feb. Exó stœkkar... Við flytjum í Fókafen 9 óður Vedes leikföng 1. febrúar '97 öftMUiii kúfijöejH Suðurlandsbraut 54, sími 568 2866

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.