Morgunblaðið - 19.01.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 43
ÍDAG
BRIDS
Dmsjún Guðmundur l’áll
Arnarson
GOÐAR hugmyndir eru
ekki alltaf verðlaunaðar við
spilaborðið. Tveir „vel lesn-
ir“ keppendur í Reykjavík-
urmótinu fundu skemmti-
lega „bókarvörn“ gegn
þremur gröndum suðurs.
En auðvitað skipti snilldin
engu máli:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♦ Á852
¥ Á876
♦ G105
♦ K9
Vestur Austur
♦ KDG963 ♦ 7
¥ 10 IIHII ¥ DG9432
♦ 432 11,111 ♦ K8
♦ Á84 * 10763
Suður
♦ 104
¥ K5
♦ ÁD976
♦ DG52
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 19.
janúar, er áttræð Björg
Sigurjónsdóttir. Þann 29.
desember sl. varð systir
hennar Guðbjörg Sig-
uijónsdóttir sjötíu og fimm
ára. Þær taka á móti gest-
um á heimili sínu Dúfna-
hólum 4, Reykjavík í dag
frá kl. 15.30 til 19.
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 19.
janúar, er sjötug Agnes
Jóhannsdóttir, Sigluvogi
11, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Haraldur
Sveinsson. Þau eru stödd á
Palace Hotel í Kaupmanna-
höfn á afmælisdaginn.
Spilið er frá 8-liða úrslit-
um sl. fimmtudag. Á fimm
borðum reyndu NS þrjú
grönd. Fjórir sagnhafar
fóru einn niður eftir spað-
aútspil, en einn fékk tíu
slagi þegar austur átti út
og valdi hjarta. Reyndar
átti austur út á tveimur
borðum þar sem spilið tap-
aðist, en þar dobluðu vest-
urspilararnir til að biðja um
spaðaútspil.
Snillingarnir tveir sem
ofan er getið sátu í austur
og horðu á makker sinn
spila út spaðakóng og síðan
gosa, þegar sagnhafi gaf
fyrsta slaginn. Gosinn var
drepinn með ás og nú hentu
þeir félagar tígulkóng!!
Hugmyndin var sú að
tryggja rr.akker innkomu á
hugsanlega Dx í tígli, ef
sagnhafi er með ásinn
sjötta. Sé kóngnum ekki
fórnað, getur sagnhafi
þvingað austur til að taka
tígulslaginn. Hann fer inn
i borð á hjartaás og spilar
tígli. Ef austur lætur lítinn
tígul, tekur suður á ásinn
og spilar litnum áfram. Og
ef austur hoppar upp með
kónginn, fær hann að eiga
slaginn.
Góð tilraun, en engin
verðlaun í þetta sinn.
Pennavinir
ÞÝSKUR karlmaður sem
getur ekki um aldur, en er
trúlega á þrítugsaldri, vill
eignast íslenskar pennavin-
konur:
Markus Hafner,
Waldkirchenstrasse 45,
79106 Freiburg,
Germany.
ÞRJÁTÍU og þriggja ára
Ástrali með áhuga á ferða-
lögum, fjallgöngum, listum,
kvikmyndum og tónlist
Bjarkar:
Owen F. Loney,
79 Sproule Street,
Lakemba NSW 2195,
Sydney,
Australia.:
SEXTÁN ára japönsk stúlka
með margvísleg áhugamál:
Sachiko Hirohata,
2-7-30 Hongou,
Niihama-shi,
Ehime 792,
Japan.
SJÖTÍU og eins árs breskur
sagnfræðikennari, sérfræð-
ingur í sögu Evrópu, sem
kominn er á eftirlaun,
íhaldsmaður, áhugamaður
um jazz og klassíska tónlist,
stjörnufræði, norðurljós,
fornleifafræði, bókmenntir,
víkingasögur o.fl.
Desmond Hartrey,
aka Captain Bligh II,
Churchill House,
Chelmsford Road,
South Woodford,
E18 2PP,
England.
ÁRA afmæli. Sex-
tugur er í dag
Heimir Ingimarsson,
framkvæmdasljóri og
bæjarfulltrúi, Brekku-
götu 45, Akureyri. Hann
og kona hans Rósa Sigur-
jónsdóttir, eru stödd í Ha-
vana á Kúbu.
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudag-
inn 20. janúar, verður
fimmtug Margrét G.
Skúladóttir, starfsmaður
VIS, Blönduósi. Eiginmað-
ur hennar er Sigurður
Hjálmarsson. Þau eru að
heiman á afmælisdaginn.
COSPER
FYRIRGEFÐU elskan, ég gleymdi
vasaklútnum mínum.
HÖGNIHREKKVISI
nGxtuÍ f>ii rí/rnt fifrir fátínum l&kmönrujm.?/*
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þú
vilt ráða ferðinni oggetur
náð langt í eigin rekstri.
Hrútur (21. mars - 19. apríl) Gerðu ekki of mikið úr smá heimilisvanda í dag. Fjol- skyldan stendur vel saman og á auðvelt með að fínna lausnina.
Naut (20. apríl - 20. maí) Fjárhagurinn fer batnandi og þú hefur ástæðu til að fagna góðu gengi í vinn- unni. Þú ættir að bjóða ást- vini út í kvöid.
Tvíburar (21. maí- 20. júní) Þér tekst að ljúka gömlu verkefni heima í dag með góðri aðstoð fjölskyldunnar. I kvöld mátt þú eiga von á góðum gestum.
Krabbi (21. júní — 22. júli) Vertu ekki með óþarfa áhyggjur út af atviki úr vinn- unni, sem leysist fljótlega eftir helgi. Reyndu að njóta dagsins heima.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) kgjlf Þú tekur til hendi við lausn á gömlu verkefni heima, sem hefur lengi beðið afgreiðslu. Varastu deilur ástvina um fjármálin.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú ættir frekar að heim- sækja vini í dag en að bjóða heim gestum. Sýndu þolin- mæði og varastu deilur við náinn ættingja.
V<* ^ (23. sept. - 22. október) Þú kemur ekki miklu í verk heima í dag, en félagslífið hefur upp á margt að bjóða. Njóttu fristundanna með góðum vinum.
Sþorddreki (23. okt. - 21. nóvember) Ljúktu því, sem gera þarf í dag, áður en þú ferð út að skemmta þér. Þú eignast áhugaverða vini í mannfagn- aði dagsins.
Bogmadur (22. nóv. - 21. desember) Þú ert að undirbúa umbætur á heimilinu í dag. Hafðu gott samráð við fjölskylduna, og láttu ekki smámuni valda ágreiningi.
Steingeit (22. des. - 19.janúar) Láttu ekki óþarfa gagnrýni í garð þinna nánustu spilla ánægjulegum degi með fjöl- skyldunni í dag. Reyndu að slaka á.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þér tekst að leysa smá fjöl- skyldumál í dag, sem hefur valdið_ þér nokkrum áhyggj- um. Ástvinum verður boðið út í kvöld.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 'S* Vinur getur valdið þér von- brigðum í dag, en einhugur ríkir hjá ástvinum, sem njóta frístundanna og fara út sam- an í kvöld.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TILBOÐSDAGAR
Allt að 50% afsláttur
Grensásvegi 16 • Sími 588 4646
Opið mán. - fös. 12-18, lau. 11-14
--------Á
Útsala
skóhöllinII 11
BÆJARHRAUNI 16 - 555 4420
HAFNARFIRÐI
Styrkur til
tónlistarnáms
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar mun á þessu
ári veita íslenskum söngvurum styrki til framhalds-
náms erlendis. Einn eða fleiri styrkir verða veittir.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og farm-
tíðaráform, sendist fyrir 10. febrúar nk. til:
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar,
c/o Haukur Björnsson,
íslensku óperunni,
Ingólfsstræti 101,
Reykjavík.
Umsókninni fylgi hljóðritarnir og/eða önnur gögn sem
sýna hæfni umsækjenda. Endurnýja skal eldri
umsóknir.
NAMSKEIÐ
í SJÁLFSSTYRKINGU
FYRIR KONUR
Að lifa lífi sínu í samræmi við eigin hugmyndir
um innihaldsríkt líf krefst bæði sjálfsþekkingar og
hæfíleikans til að tjá tilfinningar sínar og
skoðanir. Á námskeiðinu er m.a.fjallað um að:
Efla sjálfstraust og treysta á eigin dómgreind.
Njóta sín til fulls í félagsskap annarra.
Svara fyrir sig og halda uppi samræðum.
Koma frarn málum sínum af festu og kurteisi.
Hafa hemil á kvíða og sektarkennd.
Upplýsingar og innritun í síma 551 23 03 virka daga
og 5612224 um helgar.
ANNA
VALDIMARSDÓTTIR
Sálfræðingur
Bræðraborgarstíg 7