Morgunblaðið - 02.02.1997, Side 1

Morgunblaðið - 02.02.1997, Side 1
116 SÍÐUR B/C/D/E 27. TBL. 85. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Ámi Sæberg Gengið til skógar í Elliðaárdal Efnahagskr eppan í Rússlandi Herinn sagður stefna í gjaldþrot Moskvu. The Daily Telegraph. GETA rússneska hersins til að heyja bardaga er nú aðeins einn sjötti af því sem hún var eftir hrun Sovétríkjanna árið 1991 og herinn stefnir óðfluga í gjaldþrot verði útgjöldin til varnarmála ekki aukin verulega, að sögn embættismanna varnarmálaráðuneytisins í Moskvu. Aðeins helmingur herskipaflotans og þriðj- ungur sveita landhersins er undir það búinn að leggja til bardaga ef þörf krefði og kjarn- orkuheraflinn er tveimur eða þremur kynslóð- um á eftir herafla öflugustu ríkja Vestur- landa, að því er fram kom á fundi embættis- mannanna með rússneskum blaðamönnum. Embættismennirnir telja að ef svo fer fram sem horfir verði mikilvægir þættir í varnar- kerfi Rússa gagnslausir í byijun næstu ald- ar; loftvarnirnar um aldamótin, flugherinn árið 2005 og sjóherinn og eldflaugasveitirnar árið 2010. Blaðamannafundurinn var liður í tilraunum embættismannanna til að knýja á um að stjórnin féllist á að auka útgjöldin til varnar- mála. Þeir hafa á undanförnum mánuðum varað við því að hætta sé á uppreisn innan hersins en þær viðvaranir virðast hafa haft lítil áhrif á stjórnina, sem telur að enginn hershöfðingjanna sé líklegur til að standa fyrir uppreisn. Skuldirnar hlaðast upp Skuldir hersins við hergagnaframleiðendur nema nú sem svarar 410 milljörðum króna og aukast um 22 milljarða á mánuði. Rúss- neska dagblaðið Sevodnja sagði að útgjöldin til varnannála þyrftu að nema'5% af vergri þjóðarframleiðslu. Þau nema nú 3,8%, eru ívið meiri en í stærstu ríkjum Atlantshafsbanda- lagsins, en þjóðarframleiðslan í Rússlandi er mun minni og landamærin miklu stærri. Hong Kong Tillögnr um skert réttindi samþykktar Peking, Hong Kong. Reuter. NEF’ND, sem kínversk stjórnvöld hafa skipað til að fjalla um málefni Hong Kong, sam- þykkti í gær tillögur sem eru sagðar skerða þegnréttindi íbúa bresku nýlendunnar þegar hún verður aftur hluti af Kína 1. júlí. 150 menn eiga sæti í nefndinni og aðeins einn þeirra greiddi atkvæði gegn áfonnunum, en það var Frederick Fung, formaður Lýðræð- issambands Hong Kong. Tíu menn sátu hjá. „Þeir ræddu um að afnema lög og ég gat ekki fallist á það þar sem ég fann ekkert í þeim sem gengur í berhögg við stjómlögin," sagði Fung. Kinveijar segja að stjórnlögin, sem þeir hafa samið fyrir Hong Kong, tryggi nýlendunni sjálfstjórn eftir að hún verður hluti af Kina og verndi þegnréttindi íbúanna. Kínveijar ætla að breyta 25 lögum, sem heimila m.a. starfsemi stjórnmálaflokka og friðsamleg mótmæli. Chris Patten, breski landstjórinn í Hong Kong, sagði samþykkt nefndarinnar mikið áhyggjuefni. Gert að halda meydómnum BANDARÍSKI rithöfundurinn Tara McCarthy hefur orðið við kröfu út- gáfufyrirtækis í New York um að hún skuldbindi sig til að vera hrein mey þar til bók hennar verður gefin út eftir fimm mánuði. Bókaútgáfan lagði hart að henni að undirrita samning með ákvæði um skírlífi vegna útgáfu bókarinnar, sem nefnist Endurminn- ingar jómfrúar og er ætluð ungum konum. McCarthy er 26 ára kaþólikki og skrifaði bókina til að sýna fram á að ungar konur geti notið lífsins og skemmt sér án þess að glata meydómn- um. „Bókin fjallar um stefnumót og rómantík, án þess að fólk þurfi að sænga saman,“ sagði útgáfustjóri fyr- irtækisins. „Okkur þótti því eðlilegt að hún hegðaði sér í samræmi við boðskapinn þar til bókin verður gefin út í júní.“ „Þetta er ekki mikið mál fyrir mig en ef þeir fresta útgáfunni um ár gætum við þurft að endurskoða samn- inginn,“ sagði McCarthy. Hún kvað bókina fjalla um leitina að „drauma- prinsinum" og sagðist ætla að vera hrein mey þar til hann fyndist. Makans leitað í frumskógunum BANDARÍSKI mannfræðingurinn Kenneth Good hefur ákveðið að fara með leitarsveit til frumskóga við Ama- son-fljót í Suður-Ameríku í von um að finna þar eiginkonu sína, indíána- konu af frumstæðum ættbálki sem hefur snúið aftur til æskuslóðanna. Good kynntist konunni árið 1976 þegar hann rannsakaði lífshætti ætt- bálksins í regnskógunum og hún var þá aðeins ellefu ára. Þau giftust tveim- ur árum síðar og þegar eiginkonan var 22 ára féllst hún á að fylgja manni sínum til Bandaríkjanna. Samband þeirra vakti heimsathygli og fjölmiðl- ar lýstu því sem einni mestu ástarsögu allra tíma. Mannfræðingurinn sætti þó harðri gagnrýni starfsbræðra sinna, sem sögðu hann eigingjarnan og skeyta ekki um velferð stúlkunnar. Hjónin eignuðust þijú börn, en eiginkonan átti erfitt með að laga sig að lífsháttum Bandaríkjamanna eftir að hafa alist upp í heimi lendarskýlna og spjóta. Hún náði aldrei tökum á enskunni og þoldi ekki forvitni ná- grannanna. Hún sneri því aftur í frum- skóginn árið 1993 og brasilískur ljós- myndari segist hafa séð hana þar með smábarn á bakinu, nakta með líkam- ann málaðan og hvíta pinna í nefi og kinnum að hætti ættbálksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.