Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Betri árangur við Kröflu en áætlað var TVÆR borholur sem boraðar voru við Kröflu á liðnu hausti gefa sam- tals um 17 kg af gufu á sekúndu og gefa þannig nægilega lágþrýsti- gufu til þess að auka afl Kröflu- virkjunar úr 30 MW í 45 MW eins og áætlað hafði verið í fyrri áfanga fynrhugaðrar aflaukningar. í seinni áfanga aflaukningarinn- Bensín hækkaði um 90 aura Sama verð hjá öllum BENSÍNLÍTRINN hækkaði um 90 aura hjá olíufélögunum þremur á miðnætti aðfaranótt laugardags. Sama verð er á bensíni hjá félögun- um þremur, þ.e. 77,90 kr. fyrir lítr- ann af 95 oktana bensíni og 82,60 fyrir 98 oktana. Þá hækkaði dísil- olíulítrinn um 60 aura hjá félögunum og kostar lítrinn nú 32,10 krónur. ar, sem hafist verður handa við í vor, verður aflið aukið í 60 MW. Þá er ætlunin að afla háþrýstigufu og til þess verða boraðar um 2.000 metra djúpar holur, en holumar frá liðnu hausti eru um 1.000 metrar að dýpt. Að sögn Þorsteins Hilmarsson- ar, upplýsingafulltrúa Landsvirkj- unar, er útkoman nokkum veginn eins og við var búist að öðru leyti en því að önnur holan er heldur lélegri en hin þeim mun betri. Reiknað var með að um 8 kg af gufu fengjust á sekúndu úr hvorri holu en þegar holunum var hleypt upp nýverið og kraftur þeirra kannaður kom í ljós að önnur þeirra gefur 5 kg á sekúndu og hin 12 kg. Samtals gefa holurnar því 17 kg, sem er einu kílói meira en gert var ráð fyrir í upphaflegu útreikn- ingunum. Þorsteinn segir það ekki koma að sök að kraftur holanna sé mis- munandi. Að vísu þurfí að aðlaga gufuveituna, pípulagnir og annað slíkt, en það sé tæknilega vel við- ráðanlegt. Skoðanakönnun Gailups Sjálfstæðisflokk- urmeð 34,8% Alþýðuflokkur með næstmest fylgi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 34,8% atkvæða ef gengið væri til þingkosninga nú, sam- kvæmt könnun, sem ÍM-Gallup gerði í desember síðastliðnum. Fylgi flokksiní hafði þá minnkað um rúmlega fímm prósentustig frá í október. Alþýðuflokkurinn bætir við sig frá könnuninni í október og mæl- ist fylgi hans 22,2% í desember. Framsóknarflokkurinn fær 19,9%, Alþýðubandalagið 17,3%, Kvenna- listinn 5,1% og Þjóðvaki 0,6%. Óákveðnir og þeir, sem neita að svara, eru 13,3% og þeir, sem myndu skila auðu eða ekki kjósa, eru 8,6%. Úrtak könnunarinnar var 1.200 manns og svarhlutfall 72,9%. Könnunin var framkvæmd 13.-20. desember. Fjórðungur býst við batnandi kjörum Rétt tæplega fjórðungur svar- enda í skoðanakönnuninni býst við batnandi kjörum á árinu 1997. í könnuninni sögðust 24,7% búast við að lífskjörin bötnuðu á árinu, tæplega 64% bjuggust við að þau yrðu svipuð og á síðasta ári og tæplega 12% töldu að kjörin myndu versna. í fyrra bjuggust 38% við betri kjörum á árinu 1996 en árið á undan og hefur bjartsýni á kjara- bót því minnkað lítið eitt. Hins vegar sögðust 85% svar- enda í könnuninni bjartsýnni fyrir nýja árið en þeir hefðu verið fyrir það gamla. Er spurt var um bjart- sýni í kringum áramótin 1995- 1996 var þetta hlutfall 89%. Gallup spurði fólk álits á brýn- ustu verkefnum stjómmálamanna á nýja árinu. Flestir (29%) nefndu kjarabætur til handa landsmönn- um og næstflestir kjarajöfnun (17%). Forsetakjör mikilvægast Spurt var um atburði iiðins árs og sögðu 51,9% að forsetakosn- ingarnar hefðu verið mikilvægast- ar. Þá sögðu 11,4% að mikilvæg- ast hefði verið að Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti. Hins vegar töldu 15,5% að það versta, sem gerðist árið 1996, hefði verið kjör Olafs Ragnars. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Húsfyllir á Gus Gus HÚSFYLLIR var á tónleikum Gus Gus í Perlunni síðastliðið föstudagskvöld. Um átta hundruð manns greiddu að- gangseyri en þar voru líka þáttagerðarmenn frá tónlist- arsjónvarpinu MTV, og fleiri erlendir fjölmiðlar. Auk þess voru á tónleikunum starfs- menn fyrirtælga frá Þýska- landi, Frakklandi, Japan og frá Warner í Bandaríkjun- um, sem eiga eftir að dreifa plötu Gus Gus. Flokkurinn er kominn á mála hjá einni virtustu útgáfu Bretlands, 4AD, og voru tónleikarnir haldnir á vegum útgáfufyrir- tækisins. LÍ A gerir samninga við Fox Sports International Islenskum akstursíþróttum sjónvarpað um allan heim Morgunblaðinu í dag fylgir blaðauki sem nefnist Fjármál fjölskyldunnar. LANDSSAMBAND íslenskra akst- ursfélaga (LÍA) hefur samið við Fox Sports International, stærsta dreif- ingar- og söluaðila íþróttaefnis í heimi, um sölu og dreifingu á sjón- varpsþáttum sambandsins, sem alla um íslenskar akstursíþróttir. lafur Guðmundsson, forseti LÍA, segir samkomulagið afrakstur nokkurra mánaða viðræðna og ljóst sé að ef dreifíngar- og söluáætlanir Fox Sports gangi eftir muni um einn og hálfur milljarður sjón- varpsáhorfenda um allan heim geta notið íslenskra akstursíþrótta. Um er að ræða tvo samninga, annars vegar samning um sýningar á sjónvarpsstöðvum í eigu Fox, sem eru dreifðar um allan heim og hins vegar einkaréttarsamning til dreif- ingar og sölu fyrir Fox inn á sjón- varpsstöðvar í eigu annarra. Samn- ingarnir eru til tveggja ára og kveða á um framleiðslu á tíu klukkutímalöngum þáttum hvort ár. Efni þáttanna verður fyrst og fremst íslensk torfæra en einnig verður árlega þáttur sem helgaður er Alþjóðarallinu hér á landi auk efnis frá keppni á vélsleðum. Fyrsti þátturinn á að vera tilbúinn 1. mars næstkomandi. Fox Sports International er í eigu News Corp., sem er í eigu Ruberts Murdoch. Ólafur Guð- mundsson segir að í upphafi verði beinn fjárhagslegur ávinningur af samningunum lítill en slái efnið í gegn sé ljóst að verulegar upphæð- ir muni skila sér inn í íslenskt mótorsport á næstu árum. „Fyrir fyrrnefnda samninginn fáum við auglýsingatíma á sjónvarpsstöðv- um í eigu Fox og síðan borga þeir okkur prósentur af sölu. Við vitum ekki hvað þetta þýðir í peningum þegar upp verður staðið en erum þó mjög ánægðir. Með þessum samningum erum við búnir að ná markmiði okkar um heimsdreif- ingu efnisins," sagði Ólafur. Forseti LÍA segir hugmyndina um sölu efnisins úr landi fimm ára gamla. „Við höfum unnið að þessu í þijú ár en um þessar mundir er aðeins eitt ár síðan farið var að sýna torfæruna á Eurosport. Eitt ár í kynningu efnis á heimsmarkaði þykir hlægilega stuttur tími en við erum greinilega með réttan hlut á réttum tíma - efni sem alþjóðlegt sjónvarp vill kaupa. Torfæran er eitthvað nýtt fyrir útlendingum, þetta er íslensk uppfínning sem býður upp á hraða og spennu. Efni sem hreyfir við adrenalíninu hjá fólki án þess að um kynlíf eða blóðs- úthellingar sé að ræða,“ sagði Ólaf- ur Guðmundsson. A Isssissggjgflggl Sviptingar í sjóflutningum * ►Sjóflutningamarkaðurinn hefur verið í sviðsljósinu að undanfömu. Margir innflytjendur óttast að samkeppni þar minnki. /10 Tsjetsjnija enn í greipum Rússa ►Aslan Maskhadov, sigurvegari forsetakosninganna í Tsjetsjníju, á erfiða baráttu fyrir höndum. /12 StofnaA til að styrkja samheldni iðnaðarmanna ►iðnaðarmannafélagið í Reykja- vík fagnar á morgun 130 ára af- mæli sínu. /20 Hefur gengið vel - sjö-níu-þrettán ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Guðlaug Inga Sigurðsson, skólastjóra Flug- skólans Flugtaks. /22 Kviðsjárspeglun fjölgar valkostum skurðlækna ►Bandarískur sérfræðingur í kviðsjárspeglunaraðgerðum var hér á landi fyrir skömmu og gerði nokkrar nýstárlegar aðgerðir ásamt íslenskum skurðlækni. /24 B ► 1-32 Gunnar og gullöldin ►Gunnar Sigurðsson er nýhættur formennsku Knattspymufélags ÍA eftir aldarfjórðungs forystu. Stjómartími hans var sannkölluð gullöld Skagamanna. /1-5 Misjafnir dagar í Miðafríku ►íslenska fjölskyldansem ók frá syðsta odda Afríku áleiðis að Tröllaskaga á íslandi segir frá ferð um Miðafríkulýðveldið. /6 Gegnum tíðina ► Rætt við Magnús Eiríksson um tónlistarferilinn ogtilurð laganna sem glatt hafa eyru landans. /12 FERÐALÖG __ Istanbul ►Þær milljónir manna sem búa í þessari tyrknesku borg em ekki steyptar í sama mótið. /2 Vinnufundirá flugvellinum ►Miðstöð fyrir fólk úr viðskiptalíf- inu hefur verið opnuð á Heathrow flugvellinum í London. /4 BÍLAR_____________ ► 1-4 Gera upp 1946 árgerð Chevrolet ►Olíufélagið hf. hefur látið gera upp einn af fyrstu olíubílum félags- ins, Chevrolet af árgerð 1946. /1 Reynsluakstur ►Nýr Volvo V70 er vel búinn og ákjósanlegur ferðabíll. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42 Leiðari 28 Skák 42 Helgispjall 28 Fólk í fréttum 44 Reylqavfkurbréf 28 Bió/dans 45 Skoðun 30 Útvarp/sjónvarp 50 Minningar 32 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Gámr 8b Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. 8b ídag 42 Kvikmyndir lOb Brids 42 Dægurtónl. 12b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.