Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Aldarfjórðungur frá voðaverkum breska hersins á Norður-írlandi ÖFGAMENN beggja vegna víglínunnar koma í veg fyrir að ákall almennings á Norður-írlandi um frið verði að veruleika. Reuter Iskugga Sunnudagsins blóðuga Fyrir 25 árum fylltist heimsbyggðin hryll- inffl er þær fréttir bárust að breskir her- menn hefðu skotið 13 óbreytta borgara til bana á N-írlandi. Davíð Logi Sigurðs- son, fréttaritari Morgunblaðsins í Belfast, rifjar þennan atburð upp og fjallar um ástand og horfur á Norður-írlandi. ÞAÐ var sunnudag einn fyr- ir 25 árum sem fallhlífa- liðssveitir breska hersins skutu 13 saklausa borgara til bana á götum Derry/London- derry-borgar á Norður-írlandi. 30. janúar 1972 er því jafnan minnst sem Sunnudagsins blóð- uga og nú um stundir riíja menn upp atburði þessa sem vöktu skelfmgu um heim allan. í því stormsama ástandi sem nú ein- kennir deiluna á Norður-írlandi gefur afmæli sem þetta litla von um bjarta framtíð heldur skerpir andstæðurnar enn frekar og boðar róstusama daga. Þennan dag hafði farið fram mótmælaganga en þær voru al- gengar meða kaþólskra íbúa Norður-írlands undir lok sjöunda áratugarins og í upphafi þess átt- unda. Þeir fóru fram á aukin mannréttindi en heimastjórn sam- bandssinna hafði allt frá stofnun Norður-írlands árið 1920 haldið fast um valdataumana og van- treyst öllum kaþólikkum sem áttu til að mynda erfitt með að fá at- vinnu og úthlutað húsnæði frá hinu opinbera auk þess sem stjórnmálakerfið tryggði að raddir sambandssinnaðra mótmælenda yfirgnæfðu ávallt raddir kaþól- ikka. Mótmælin fóru stigvaxandi frá 1969 og írski lýðveldisherinn IRA kom fram á sjónarsviðið á ný eftir nokkurra ára svefn. I augum sambandssinna var sama- semmerki milli IRA annarsvegar og þess stóra hóps fólks sem krafðist mannréttinda hinsvegar og yfirvöld höfðu árið áður tekið á það ráð að banna allar göngur en baráttumenn fyrir mannrétt- indum höfðu hundsað bannið mánuðina á undan og gerði það einnig í þetta skipti. Að þeirra mati var mótmælabannið enn ein sönnunin um mannréttindabrot á kaþólikkum á Norður-írlandi og að sönnu átti enginn von á því að þurfa að gjalda fyrir slíkt lög- brot með lífi sínu. Mótmælagangan sem farin var 30. janúar endaði með ósköpum. Því var haldið fram á sínum tíma að skotið hefði verið á hermenn- ina og jafnframt að flestir göngu- manna hefði verið verið meðlimir IRA, þ.m.t. margir hinna látnu. Þær ásakanir áttu ekki við rök að styðjast en þrátt fyrir áratuga baráttu fjölskyldna hinna látnu hefur gengið erfiðlega að fá bresk yfirvöld til að viðurkenna glæpinn og enginn hefur nokkurn tíma þurft að svara til saka. Nú á þessum tímamótum hafa marg- ir hins vegar hvatt bresku ríkis- stjórnina að viðurkenna opinber- lega sakleysi þeirra látnu og tók John Bruton, forsætisráðherra írlands, undir þessar kröfur í vik- unni. Undir niðri kraumar óánægja með þá vansæmd sem hinum látnu er sýnd og boðar það ekki gott í þvi eldfima ástandi sem einkennir Norður-írland nú um stundir. Atburðir Sunnudags- ins blóðuga vöktu líka andstyggð hvarvetna á sínum tíma og svo sterk urðu viðbrögðin á írlandi að 2. febrúar 1972 var breska sendiráðið í Dublin brennt til kaldra kola. Stuttu seinna ákvað síðan breska ríkisstjórnin að taka í taumana. Hún afnam heima- stjórn sambandssinna, sendi norður-írska þingið heim og allar götur síðan hefur Norður-Irlandi verið stjórnað beint frá Lundún- um. Aldarfjórðungur ofbeldis og manndrápa Saga þeirra 25 ára sem liðin eru er blóðug saga hryðjuverka og manndrápa. Fjölmargir sak- lausir borgarar hafa fallið í val- inn. Um það verður ekki deilt að ástandið nú er fjarri því að geta talist gott. Vart hefur liðið sá dagur í janúar-mánuði að ekki hafí borist fréttir af óhæfuverkum IRA-manna. Með síendurteknum griðarof- um IRA hefur oft munað litlu að róttækir sambandssinnar tækju upp sömu aðferðir. Eftir skotárás IRA-manna á lögreglumenn föstudag fyrir jól í Belfast hafa þeir loks látið draga sig fram á vígvöllinn á ný þótt umsvif þeirra séu, enn sem komið er, takmörk- uð og reyndar neita sambands- sinnar því að þeir hafi rofið vopnahlé sitt. Árás IRA fyrir jól átti sér stað við bamaspítala í Belfast þar sem þingmaður sambandssinnaflokks Ians Paisley (DUP) var í heim- sókn. Byssumönnum IRA tókst ekki að ógna þingmanninum en tveir lögreglumenn, sem voru þing- manninum til fylgdar, særðust í árásinni. Þessi árás vakti mikla andstyggð svo stuttu fyrir jól og ekki síst vettvangur hennar þar sem saklaus böm hefðu auðveld- lega getað orðið fómarlömb IRA. Sambandssinnar virðast eink- um hafa lagt áherslu á að vara IRA-menn við að þeir megi eiga von á hefndum ef þeir lýsa því formlega yfir að vopnahlé þeirra sé lokið. Þá mun stjórnmálaöflum þeim sem hafa tengsl við þá verða meinuð áframhaldandi þátttaka í „friðarviðræðum" á sama hátt og Sinn Fein, stjórnmálaarmi IRA, er meinað að setjast að samninga- borðinu. „Friðarviðræður" virðist hjá- kátlegt orð í ljósi nýjustu atburða og hvort slíkar viðræður em ein- hvers virði án helstu deiluaðilanna er auðvitað afar vafasamt. Sú staðreynd að enginn árangur náð- ist í viðræðum á meðan vopnahlé þó ríkti gefur að auki öfgasinnum beggja vegna víglínunnar þá rétt- lætingu sem til þarf til að halda áfram vopnaðri baráttu. „Flugeldar“ í tilefni áramóta Um áramót reyndi IRA að koma fyrir sprengju í Belfast- kastala og nýja árið hefst á líkan máta. IRA hefur aðallega gert árásir á breska herinn, lögregluna eða önnur skotmörk sem hafa táknræn gildi í deilunni en auk þess að standa fyrir fjölmörgum árásum víðsvegar um Norður- Irland hafa þeir hringt inn falskar sprengjuviðvaranir. Aukin umsvif IRA hafa reyndar enn ekki kostað mannslíf en sú huggun þykir duga skammt, sér- staklega ef sambandssinnar taka upp vopn sín á ný en heimildir innan þeirra raða herma að undir eins og aðgerðir IRA kosti manns- líf muni þeir hefja gagnárásir af fullum þunga. Við sjóndeildar- hringinn lúmir síðan vitneskjan um göngur Óraniumanna í gegn- um hverfi kaþólikka, sem ollu síð- asliðið sumar verstu óeirðum um árabil milli kaþólikka og mótmæl- enda, og verða væntanlega endur- teknar í sumar sem kemur. Eng- inn árangur hefur náðst í viðræð- um um að leysa þann vanda sem þessar árlegu göngur hafa í för með sér. Af þessum sökum eru þeir auð- fundnir sem spá því að upp úr muni sjóða sem sjaldan fyrr á allra næstu vikum eða mánuðum. Á meðan hafa bæði lögreglan og herinn aukið umsvif sín í Belfast og þyrlur sveima stanslaust yfir borgini horfandi vökulu auga á allt það sem fram fer. Norður-írland og breskar þingkosningar Bresk yfirvöld héldu því fram á sínum tíma að göngumenn þann 30. janúar 1972 hefðu flestir ver- ið handbendi IRA. Nýjar sannanir sýna enn betur hversu fjarstæðu- kennd sú kenning var því að í flestum tilfellum voru þeir sem dóu aðeins venjulegir borgarar. Tilraunir til að hylma yfir og bera í bætifláka fyrir aðgerðir her- mannanna þennan dag áttu hins vegar sjálfsagt stóran þátt í því að stuðningur við IRA jókst gífur- lega eftir Sunnudaginn blóðuga og sjaldan hafa eins margir geng- ið í samtökin eins og einmitt mánuðina þar á eftir. Og IRA hefur tekist að nota sér minninguna um „Bloody Sunday" sem vopn í baráttunni um samúð og athygli. Til að mynda stóð Sinn Fein fyrir minn- ingarathöfnum nú á afmælinu og á 20 ára afmælinu fyrir fimm árum var Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, meðal ræðumanna, mörgum til mikillar hneyslunar þar eð IRA ber vitanlega mikla ábyrgð á þvi að tala látinna hefur margfaldast á þeim 25 árum sem liðin eru auk þess sem flestir þeirra sem féllu tengdust á engan hátt IRA. Ekki er fyllilega ljóst hvaða áhrif þessi mikla umfjöllun um Sunnudaginn blóðuga mun hafa á stjórnmálaástandið hér á Norð- ur-Irlandi en í versta falli gæti hún hrundið af stað enn frekari átökum. Bjartsýnir menn eins og John Hume, leiðtogi hófsamra lýðvledissinna (SDLP), halda því reyndar statt og stöðugt fram að enn megi vonast eftir nýju IRA- vopnahléi fáist bresk yfirvöld til að lýsa því yfír að við slíkar að- stæður verði Sinn Fein hleypt að samningaborðinu að uppfylltum vissum skilyrðum. Ríkisstjórn Johns Majors, forsætisráðherra Bretlands, er nú hins vegar háð stuðningi norður-írskra sam- bandssinna í breska þinginu og því útilokað að Major taki upp stefnu nú sem myndi valda úlfúð meðal þeirra. í raun eru málefni Norður- írlands því í biðstöðu þar til eftir þingkosningar á Bretlandi þegar Ijóst verður hvers konar ríkis- stjórn tekur við völdum, og hversu mikinn styrk hún mun hafa á þingi. Á hinn bóginn má efast um að sú niðurstaða muni nokkru breyta þegar til kastanna kemur og engin trygging er fyrir því að hryðjuverkamennirnir séu tilbúnir til að bíða niðurstöðu kosning- anna. Á 25 ára afmæli Sunnu- dagsins blóðuga rambar Norður- Irland á barmi hyldýpsins og allt tal um frið virðist fjarlægt. ERLENT Reuter ANDLITSMYND Rembrandts. Dýrust mið- að við stærð New York. Reuter. MINNSTA málverk sem vitað er um eftir hollenska málarann Rembrandt var selt á uppboði hjá Sotheby’s í New York á fimmtudag. Seldist verkið, sem er á stærð við peningaveski og er andlitsmynd af gömlum manni, fyrir 2,9 milljónir dala, um 203 milljónir ísl. kr. Sögðu uppboðshaldarar að væri tillit tekið til stærðarinnar, væri þetta dýrasta mynd sögunnar, á hvern fersentimetra. Andlitsmyndin er 10,8 cm x 6,4 cm og var máluð árið 1633. Hún var hluti safns átta mynda sem milljónamæringurinn Saul Steinberg átti. Kaupandinn var evrópskur safnari. Myndirnar átta úr safni Steinbergs seldust á 10,9 milljónir dala, um 760 milljónir ísl. Var smámyndin metin á 1,5-2 milljónir dala. -----» ♦ ♦----- Oveður í Noregi og Finnlandi Helsinki, Ósló. Morgunblaðið. ÓVEÐUR gekk yfir í norðurhluta Noregs og Finnlands á föstudag með mikilli snjókomu, en ekki var vitað til að slys hefðu orðið á mönnum. í nokkrum sveitarfélög- um nyrst í Finnlandi var skila- frestur skattframtals framlengd- ur vegna veðurofsans. Víða lam- aðist umferð og í miðbæ Vadso í Noregi var aðeins fært á snjósleð- um. Almannavarnir, Rauði krossinn og lögreglan í Noregi fór um göt- ur Vadso á snjósleðum. Ýmsir bæjarbúar gerðu slíkt hið sama og voru látnir óáreittir af yfirvöld- um þótt slíkt teljist ólöglegt. Norska lögreglan þurfti sér- staklega að sækja frammámenn bæjarins til síns heima svo að þeir gætu sinnt störfum sínum. „Við höfum engar fréttir haft um slys á mönnum," sagði Karl Terje Sagen í lögregluumdæmi Vadso. „I Kjolle-fírði strandaði bátur, snjóskriða féll í Dy-firði og húsþak fauk á Vadso-eyju. Enginn hefur hins vegar slasast." Metvindhraði i Finnlandi Fannfergi var slíkt í Norður- Finnlandi að vegir lokuðust og leggja þurfti niður skólahald á nokkrum stöðum. Flugsamgöng- ur til Rovaniemi og Ivalo í Lappa- landi lágu niðri mest allan daginn. í veðurathugunarstöð einni í Lapplandi mældist vindhraði 45 metrar á sekúndu, sem samsvarar fárviðri. Er það mesti vindhraði, sem mælst hefur í Finnlandi. ► ) > í I r i i » t i i i i t

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.