Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 8

Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 8
8 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nefnd um endurskoðun LÍN leyst upp „Ljóst að nefndin næði ekki lengra“ NEFND sem Björn Bjarnason menntamálaráðherra setti á lagg- imar í ágúst 1995 til að endurskoða lög og reglur um Lánasjóð íslenskra námsmanna var leyst frá störfum 6. janúar sl. Ráðherrann segir það hafa verið orðið ljóst að nefndin myndi ekki ná lengra í störfum sín- um og því hefði hún verið leyst upp. Bjöm segist hafa mælst til þess, að ósk fulltrúa námsmanna í nefnd- inni, að námsmannasamtökin sendu honum skriflega hugmyndir sínar um breytingar á núgildandi lögum um LÍN fyrir 6. febrúar nk. „Um það hefur verið deilt hvernig breyta beri ákvæðum núgildandi laga um út- og endurgreiðslu lánanna. Tel ég að það mál sé komið í höfn eftir viðræður forystumanna stjómar- flokkanna, sem eðlilegt er að taki af skarið um pólitísk ágreiningsmál af þessu tagi,“ segir hann. Ráðherrann kveðst einkum vilja leggja áhersju á tvö atriði í þessu sambandi. „í fyrsta lagi má aukið fjárstreymi til LÍN ekki verða til þess að draga úr fjárveitingum til annarra þátta fræðslumálanna. Aukið ráðstöfunarfé námsmanna má ekki verða til þess að veikja stofnanir sem veita þeim fræðslu, slíkt væri óviðunandi. í öðru lagi tel ég af og frá að umræðu um stuðning ríkisvaldsins við lánasjóðinn ljúki þótt nú takist samkomulag um málefni hans. Er nauðsynlegt í framhaldinu að beina umræðunni í nýjan farveg, þar sem hugað verði að gjörbreyttri skipan lánakerfisins. Skilið verði á milli háskóla- og framhaldsskólanema og skilgreint hvar mörkin skuli vera milli námsaðstoðar annars vegar og félagslegrar aðstoðar hinsvegar." 3V2árs fangelsi fyrir amfet- amínsmygl ÞRÍTUGUR maður, Jón Kristján Jacobsen, hefur verið dæmdur í fangelsi í þijú ár og sex mánuði fyrir að flytja inn til landsins 955 grömm af amfetamíni í september 1995. Málið komst upp þegar tollverð- ir á Tollpóststofunni í Reykjavík tóku pakka frá Rotterdam til skoð- unar og fundu þar tréstyttu í líki mörgæsar og í henni fyrrgreint magn af amfetamíni. Efnið var tekið úr og í þess stað sett óvirkt efni og búnaður til þess að fylgjast með sendingunni. Síðan sótti maður pakkann í pósthús og til hans sótti Jón Kristján Jacobsen síðan pakkann og gróf hann í Rauðhólum. Þar lagði lögregla hald á styttuna og handtók síðan Jón Kristján, sem viðurkenndi að hafa keypt efnið og látið senda sér það í styttunni og hafi innflutning- urinn verið í hagnaðarskyni. Hann hafði að sögn greitt 3.000 hollensk gyllini, um 110 þús krón- ur, fyrir efnið í Hollandi, en vonað- ist til að fá fyrir það 3-3,5 m.kr. hér á landi. í gögnum lögreglunnar kom hins vegar fram að götuverð á amfetamíni sé 4.-5.000 krónur þannig að selja hefði mátt efnið á allt að því tæplega 4,8 m.kr. Efnið var frekar veikt við efna- greiningu og sagðist maðurinn e.t.v. mundu hafa selt það í einu lagi fyrir hagnað á bilinu 1-1,5 milljón króna. Hann sagðist hafa skipulagt brotið til að koma undir sig fótunum fjárhaglega. Maðurinn hafði áður hlotið nokkra dóma, m.a. fyrir að hafa í fórum sínum amfetamín og e-töfl- ur sem hann hugðist selja til að fjármagna eigin fíkniefnaneyslu. Meirihluti Hæstaréttar stað- festi á fimmtudag ákvörðun hér- aðsdómara um fangelsi í 3 ár og sex mánuði fyrir brotið en tveir dómendur töldu 3 ára fangelsi hæfilegt. Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á: ► þök ► þaksvalir ► steyptar rennur ► ný og gömul hús - unnið við öll veðurskilyrði FAGTÚN Brautarholti 8 • sími 562 1370 • fax 562 1365 Lækir lifandi vatns Ráðstefna um tákn og undur Lækir lifandi vatns er heitið á alþjóð- legri ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík 14.-16. febrúar næstkomandi. Að ráð- stefnunni standa Fríkirkj- an, Vegurinn, Hvíta- sunnukirkjan Fíladelfía og samtökin Ungt fólk með hlutverk, sem starfa innan Þjóðkirkjunnar. Friðrik Ó. Schram guðfræðingur er formaður undirbúnings- nefndar. Hvert er viðfangsefni ráðstefnunnar? „Það er að fjalla um merkilega hreyfingu Heil- ags anda sem orðið hefur vart í kirkjum víða um heim undanfarin þijú ár. Þessi hræring hófst með áhrifamiklum hætti í litlum söfn- uði, sem kemur saman í verslunar- byggingu við flugvöllinn í Toronto í Kanada, þann 20. janúar 1994. Heilagur andi féll yfir söfnuðinn og margir fengu að reyna mjög sterka nærveru Guðs með ýmsum sýnilegum táknum. Þetta gerðist fyrirvaralaust og kom öllum á óvart. Kvöldið eftir gerðist þetta aftur og hélt áfram næstu kvöld. Söfnuðurinn hefur komið saman á hverju kvöldi síðan, nema á mánu- dagskvöldum, allt til dagsins í dag. Söfnuðurinn hefur fjórfaldast að stærð auk þess sem fjöldi gesta hefur streymt alls staðar að úr heiminum. Talið er að um ein millj- ón einstaklinga hafi heimsótt þennan litla söfnuð á þriggja ára tímabili. Áhrifin hafa breiðst út og til dæmis er talið að um fimm þúsund söfnuðir og kirkjur í Bretlandi hafí orðið fyrir áhrifum af hreyf- ingunni. Margir prestar sem voru orðnir þreyttir og lúnir í starfi segjast hafa endurnýjast við það að heimsækja þessa kirkju.“ Hver eru þessi sýnilegu tákn? „Þau geta verið bæði andleg og líkamleg. Fólk finnur fyrir miklum innri friði og gleði auk þess sem margir hafa fengið líkamlega lækningu, losnað undan kvíða, vanmetakennd og ýmsum kvillum. Oft fylgir titringur og skjálfti, einkum í höndum, hlátur og grátur og margir hníga niður og verða frá sér numdir af sterkri vitund um nærveru Guðs. Margir undrast líkamleg ein- kenni sem þessi, því þau hafa ekki verið áberandi í kirkjum hin síðari ár. Þetta hefur þó fylgt kristnum vakningarhreyfmgum frá upphafi og var áberandi meðal annars í Vakningunni miklu í Bandaríkjun- um á 18. öld og í Wales um alda- mótin. Eins má nefna vakninguna í kringum John Wesley, þar sem líkamleg einkenni voru áberandi." Hefur þú sjálfur orðið fyrir slíkri reynslu? „Já, ég var í London í janúar 1995 og frétti af Biskupakirkju- söfnuði, við Brompton Road, þar sem þessara áhrifa hafði þá gætt um hálfs árs skeið. ------------- Ég fór á kynningar- fund þar sem kynna átti það sem breska pressan kallaði Tor- onto-blessunina. Á l“,"—““ fundinum var fólki boðin fyrirbæn og ég þáði hana. Þama eignaðist ég eina dýpstu trúarreynslu mína á lífsleiðinni, fann fyrir mjög sterkri snertingu Heilags anda. Ég fór úr kirkjunni sem nýr maður. Daginn eftir fór ég til Toronto og var þar í fimm daga að kynna mér söfnuðinn þar sem þessi hreyfíng hófst. Þá var verið að Friðrik O. Schram ► Friðrik Ó. Schram er fædd- ur 8. febrúar 1946 í Reykjavík. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla íslands 1966 og guðfræðiprófi (cand. theol.) frá Háskóla Islands 1985. Hann starfaði við verslunar- og skrif- stofustörf áður en hann sneri sér að þýðingu Lifandi orðs, Nýja testamentisins á daglegu máli. Friðrik var einn af stofn- endendum samtakanna Ungt fólk með hlutverk, á hvíta- sunnudag 1976, en það eru leik- mannasamtök innan þjóðkirkj- unnar. Hann hefur verið for- maður þeirra frá upphafi. Frið- rik hefur kennt við skóla sam- takanna á Eyjólfsstöðum á Völl- um og haldið námskeið innan lands og utan. Friðrik er kvænt- ur Vilborgu R. Schram leik- skólakennara og eiga þau þijú uppkomin börn. Sterk vitund um nærveru Guðs minnast þess að ár var liðið frá því að hræringin byijaði. Á sam- komunum í Toronto voru 4-5 þús- und manns. Það var beðið sérstak- lega fyrir næstum hveijum einasta sem þarna var. Mjög margir sögðu frá sterkri reynslu sinni af kær- leika og krafti Guðs. Eftir heimkomuna fór ég að biðja fyrir fólki í framhaldi af þeirri endurnýjun sem ég hafði reynt. Það sama gerðist hér og ytra, fólk varð djúpt snortið af anda Guðs, fékk að reyna lækn- ingu og losnaði við ýmsa kvilla, feimni, stam og ýmislegt fleira. I framhaldi af því buðum við fulltrú- um safnaðarins í Toronto hingað haustið 1995 og héldum ráðstefnu. Hana sóttu mörg hundruð manns og sömu einkenni fylgdu og ann- ars staðar. Mikill fögnuður, gleði, hlátur og uppörvun.“ Hvernig verður ráðstefnunni hátt- að nú. „Yfír daginn verður kennt í húsnæði Vegarins í Kópavogi og síðan verða kvöldsamkomur opnar almenningi í Fíladelfíukirkjunni meðan húsrúm leyfir. Þar verður ekki hleypt inn nema 500 manns til þess að vel fari um alla. Fyrir- lesarar verða dr. Guy Chevrau frá --------- Toronto og séra Stewe Witt frá Cleve- land í Ohio í Banda- ríkjunum. Dr. Chev- rau hefur skrifað “™"““ þijár bækur um þessa hreyfingu og ein verið þýdd á níu tungumál. Með fyrirlesurunum koma 11 manns sem sinna fyrir- bæn og sálgæslu. Von er á tæp- lega 50 þátttakendum frá Færeyj- um og fréttamanni frá Þýskalandi sem ætlar að skrifa um ráðstefn- una. Þátttaka á daginn er tak- mörkuð við 350 manns og er búist við að ráðstefnan verði fullsetin."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.