Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 9

Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRUAR 1997 FRÉTTIR BSRB hafnar launa- stefnu ríkis o g borgar BSRB hafnar alfarið stefnu þeirri sem ríki og Reykjavíkurborg kynntu forystu samtakanna í fundi fyrir skömmu, í tengslum við breytingar á launakerfinu, samkvæmt yfirlýs- ingum sem samþykkt var á sameig- inlegum fundi stjórnar BSRB og formanna aðildarfélaga bandalags- ins_ á föstudag. { yfírlýsingunni segir m.a. að grundvallarskilyrði og forsenda fyr- ir viðræðum um breytt launakerfí, sé sú að samið verði um laun og önnur starfskjör á félagslegum Prófessorar bíða eftir úrskurði kjaranefndar Kjara- samningar hafa ekki dugað GUÐMUNDUR Magnússon, for- maður Félags prófessora í Háskóla íslands, segir að viðræður standi yfir milli prófessora, Félags háskóla- kennara og yfírstjórnar Háskólans um ýmsa þætti kjaramála háskóla- kennara. Hann segir að kjarasamn- ingar hafí dugað prófessorum illa undanfarna áratugi og þeir fagni því almennt að laun þeirra skuli vera ákveðin af kjaranefnd. í Morgunblaðinu nýlega lýsti Hjalti Hugason, prófessor í guð- fræði, efasemdum um að rétt hefði verið af prófessorum að afsala sér samningsrétti og fela kjaranefnd að ákveða laun sín. Guðmundur Magn- ússon sagði að meirihluti prófessora væri annarrar skoðunar. „Félag pófessora í Háskóla fs- lands var stofnað fyrir hartnær 10 árum í því skyni að vinna að bættum kjörum og öðrum hagsmunamálum prófessora. Allur þorri félagsmanna vildi þá að laun þeirra yrðu ákveðin af kjaradómi. Eigi að síður féllust þeir á að bíða átekta til þess að gefa skoðanabræðrum Hjalta tæki- færi til þess að sanna mál sitt. Nær allir prófessorar telja að kjarasamningar hafí dugað þeim illa undanfarna áratugi og samþykktu að óska eftir að laun þeirra yrðu ákveðin af kjaranefnd. Starfsskyldur prófessora eru margvíslegar og launakerfi þeirra flókið. Þeir rekast því illa í hóp með öðrum í kjarasamn- ingum,“ sagði Guðmundur. Siðferðisbrot að fara í verkfall Guðmundur sagði að flestum pró- fessorum þætti það siðferðisbrot að fara í verkfall. Það gæti eyðilagt námsár fyrir fjölda nemenda og jafn- vel framtíð þeirra, t.d. þegar það bitnaði á nemendum sem ætla í framhaldsnám erlendis en yrðu að sitja heima vegna prófleysis. Guðmundur sagði að Félag pró- fessora sæi fyrir sér að allir háskóla- kennarar gætu átt samleið í banda- lagi háskólamanna um akademísk málefni o.fl. þótt leiðir skildi í kjara- málum. Guðmundur sagði að kjaranefnd hefði óskað eftir greinargerð frá Félagi prófessora um kjaramál þeirra. Verið væri að taka hana sam- an. Jafnframt stæðu yfir viðræður milli félagsins, Félags háskólakenn- ara og yfirstjórnar Háskólans. Fram að þessu hefði háskólaráð tekið ákvörðun um ýmis atriði sem vörð- uðu kjör prófessora. Það þyrfti að ræða hvaða svigrúm skólanum yrði í framtíðinni búið til að taka ákvarð- anir um mál sem snertu kjör prófess- ora. Þetta væru mál sem þyrfti að ræða innan Háskólans. grunni. „BSRB og aðildarfélög þess hafa ítrekað lýst sig reiðubúin til að ræða breytingar á launakerfinu. Þær viðræður verða að gerast á jafnræðisgrundvelli og fá þann tíma sem svo viðamiklar breytingar kalla á,“ segir í yfírlýsingunni. Reynt að veikja stéttarfélögin Ennfremur segir að ljóst sé að fjölmennar stéttir muni fara var- hluta af hugsanlegum ávinningi þess kerfis sem þama um ræðir og greiði þær þess í stað dýru verði, þar sem viðbótargreiðslur til ein- staklinga séu á kostnað grunnlauns- hækkana. „Til þess að veikja stétt- arfélögin og grafa undan samstöðu innan þeirra, er þegar byijað að greiða álag á laun, sem tengt er einstökum fyrirtækjum, og hjá opin- berum stofnunum er gefíð í skyn að álagsgreiðslur hjá stofnunum sem hafa rúman fjárhag, sé vísbend- ing um það sem koma skal, einnig í starfsemi sem að jafnaði býr við hallarekstur," segir þar. LÆKNASTOFA HAUKS JÓNASSONAR Ath. Breyttir viðtalstlmar Frá og með 3. feb. næstkomandi verður læknastofa mín opin sem hér segir: Mánud.-fimmtud. kl. 10.00-16.00 Par af er símatími frá kl. 10.00-12.00. Haukur Jónasson, læknir Laugavegi 43 Sérfr. lyflækningar, meltingarsjúkdómar og sjúkdómsgreiningar Sími 562 1225 Lagersala Laugardag frá kl. 11-18, sunnud. frá kl. 13-17. AÐEINS ÞESSA HELGI Dæmi um verð: Mahóní dragkista (ca. 1800), áður 128.000 kr., nú 84.000 kr. Eikarskápur, áður 68.000 kr„ nú 38.000 kr. Franskt rúm (ca. 1860), áður 86.000 kr., nú 54.000 kr. Afltik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977 TILBOÐSDAGAR LOPI OG BAND Værðarvoðir og peysur Opið: virka daga kl. 10-18, laugardaga og sunnudaga kl. 12-17. Sendum í póstkröfu, sími 566 6303 ÁLAFOSS VERKSMIÐJUSALAN Mosfellsbæ Opið í dag sunnudag milli kl. 13 -17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.