Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRÚARFOSS í Rotterdam. Ljósm./Lárus Karl Ingason SVIPTINGAR í S J ÓFLUTNIN GUM Sjóflutningamarkaðurínn hefur veríð í sviðsljósinu að undanfömu, bæði vegna hins nýja samstarfs skipafélag- anna í Ameríkusiglingum og nýrra þjónustugjalda. Urg- ur er í mörgum innflytjendum og þeir óttast mjög að samkeppni farí nú minnkandi í kjölfaríð, en skipafélögin segja á móti að einungis sé veríð að hag- ræða og mæta hækkandi tilkostnaði við flutningana. Hörð samkeppni muni ríkja áfram, eins og veríð hafí. Kristinn Bríem kynnti sér þau viðhorf sem uppi em á meðal beggja aðila. SAMNINGUR um að Eimskipafélagið taki að sér flutninga fyrir Samskip milli íslands og Bandaríkjanna sem tilkynnt var um í síðustu viku hefur orðið tilefni töluverðrar gagnrýni á skipafé- lögin. Er það ekki síst vegna þess að samning- ur félaganna kemur í beinu framhaldi af upptöku nýrra þjónustugjalda þeirra um ára- mótin. Gjöldin hafa vakið mikla óánægju á flutningamarkaðnum og innflytjendur segja að einfaldlega sé verið að hækka flutnings- gjöldin enn frekar til viðbótar við 2,9% hækk- un flutningstaxta sem varð í nóvembermán- uði hjá Eimskip og 3% hækkun Samskipa um áramótin. Dæmi eru um að fyrirtæki hyggist neita að greiða gjöldin. í samtölum við Morgunblaðið lýstu sumir þessara aðila afdráttarlaust þeirri skoðun sinni að enginn vafí léki á því að félögin hefðu haft samráð um þessa gjaldtöku og samkeppni færi nú minnkandi. En auk þessara breytinga á flutningamark- aðnum hefur Eimskip nýlega gengið frá kaup- um á frystiskipinu Hofsjökli af Jöklum hf., dótturfélagi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna og samið um fiutninga á frystum sjávar- afurðum fyrir SH til Bandaríkjanna. Hefur Félag íslenskra stórkaupmanna túlkað allt þetta á þann veg að Eimskip sé þar með komið með nær 100% markaðshlutdeild í Ameríkuflutningum. Rætt er um í röðum stór- kaupmanna að mæta þessu með því að bjóða út hluta af flutningum eða jafnvel alla flutn- inga félagsmanna á þessari leið. Nýjasta innleggið í umræðuna um flutn- ingamarkaðinn kom síðan fram í vikunni þegar Morgunblaðið birti útdrátt úr greinar- gerð Ragnars Aðalsteinssonar, hæstaréttar- lögmanns, sem telur Eimskip hafa náð ráð- andi stöðu á landflutningamarkaðnum, en það er hins vegar ekki til umfjöllunar hér. Öllum fullyrðingum um minnkandi sam- keppni eða samráð skipafélaganna hefur ver- ið vísað á bug af hálfu forráðamanna þeirra. Þannig hefur Eimskip m.a. bent á að dregið hafí úr flutningum til Bandaríkjanna og nýt- ing skipa verið léleg. Því sé rökrétt að félög- in reyni að hagræða á þessari leið, eins og nú sé að gerast, en skipum á henni hefur nú verið fækkað úr fímm í þijú. Jafnframt hafa Samskip bent á að félagið muni bjóða áfram upp á flutninga til Bandaríkjanna í gegnum Evrópu svo og flutninga með skipa- félaginu Van Ommeren, eins og verið hafi undanfarin misseri. Fullyrt er að samkeppnin hafí síður en svo minnkað, heldur þvert á móti harðnað á nýliðnu ári og flutningsgjöld heldur lækkað. Það þyki ekki tíðindum sæta erlendis þótt skipafélög kaupi rými hvert í annars skipum, enda þótt þau séu í hörkusam- keppni. Þá segja skipafélögin að ný þjónustugjöld hafí einfaldlega verið lögð á til að mæta auknum kostnaði við hveija sendingu, en alls ekkert samráð hafí verið um þá ákvörðun. Aukin hlutdeild Samskipa í Ameríkuflutningum Til að átta sig á aðdraganda þeirra breyt- inga sem nú eru að verða á markaði fyrir Ameríkuflutninga þarf að fara aftur til ársins 1993. í júní það ár afréðu Samskip að hætta Ameríkuflutningum með eigin skipum og gengu til samninga við Eimskip um að ann- ast þá flutninga. Samskip höfðu þá sam- kvæmt lauslegum áætlunum um 10-12% hlutdeild í Ameríkuflutningum og var því haldið fram að tap félagsins af þessari leið hefði numið um 100 milljónum á árinu 1992. Samskip voru sömuleiðis að missa flutninga fyrir Varnarliðið aftur yfír til Eimskips á sama tíma og rekstur félagsins stefndi raun- ar í þrot. Að tveimur árum liðnum, í júní 1995, þeg- ar kom að því að endurnýja þennan samning skipafélaganna hljóp snurða á þráðinn. Sam- skip slitu viðræðum félaganna og lýstu því yfír að Eimskip hefði krafíst 40% hækkunar flutningsgjalda og ekki boðið fram flutninga á því magni sem félagið þyrfti á að halda. Eftir að upp úr slitnaði ákváðu Samskip að taka á leigu skip til Ameríkusiglinga með 30 þúsund tonna burðargetu og hófu í kjölfar- ið að byggja upp nýtt þjónustunet á þessari flutningsleið. í janúar 1996 tilkynnti félagið að það hygðist samhliða beinum siglingum bjóða flutninga til Bandaríkjanna í gegnum Evrópu í samstarfi við stærsta skipafélag heims, Maersk. Á þennan hátt hafa Samskip getað boðið upp á tengingar við hafnir víðs- vegar um Bandaríkin. Félagið hefur flutt allt að 40% af innflutningi frá Bandaríkjunum og um 10% af útflutningi þangað með þessum hætti. Ljóst er Samskip hafa verið í sókn á mark- aði fyrir Ameríkuflutninga undanfarin 2-3 ár og heijað jafnt á viðskiptavini Eimskips sem Jökla í innflutningi. Árið 1994 var mark- aðshlutdeild félagsins í innflutningi frá Amer- íku 11%, 1995 fór hún upp í 19% og fyrstu átta mánuðina 1996 var hlutdeildin komin í 25%. í útflutningi hefur hlutdeildin verið á bilinu 20-25% eftir því hvernig útflutningur stóru fisksölusamtakanna á Bandaríkjamark- að hefur sveiflast. Minni upplýsingar liggja fýrir um hlutdeild Eimskips en félagið hefur haft tvö skip í gámaflutningum milli íslands og Norður- Ameríku og annast Goðafoss og leiguskipið Altona nú siglingar á þessari leið. Því var spáð strax þegar upp úr samning- um slitnaði milli Eimskips og Samskipa í júní 1995 að félögin væru að sigla inn í tíma- bil taprekstrar á þessari leið. Alltof mikil flutningsgeta þýddi ekkert annað en hörku í verðlagningu og þar með tap. Þetta virðist hafa komið á daginn því samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins máttu félögin þola umtalsvert tap á þessari flutningsleið á síð- asta ári sem ekki var hægt að una við lengur. Kaupum rými af Eimskip kinnroðalaust Samningurinn sem skipafélögin tvö til- kynntu um í síðustu viku hefur verið í undir- búningi í nokkra mánuði eftir því sem næst verður komist, en forráðamenn þeirra vilja lítið tjá sig um gang viðræðna. Ólafur Olafsson, forstjóri Samskipa, rifjar upp að félagið hafi hætt tímabundið að sigla til Bandaríkjanna árið 1993 og samið við Eimskipafélagið um flutninga. „Þá óx hlut- deild okkar verulega og kannski meira en mörgum þótti eðlilegt. Það slitnaði upp úr því samstarfí vegna magntakmarkana og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.