Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ TSJETSJENI á hestakerru í miðborg Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju. Stór hluti borgarinnar var lagður í rúst í stríðinu við Rússa. TSJETSJENI með grímu sem líkist Borís Jeltsín Rússlandsforseta. Á spjaldinu stendur: „Tsjetsjenar! Kjósið mig! Ég lofa að stjórnarskránni verði hlítt í Rúss- landi! Eg lofa að drekka ekki!“ Tsjetsjníja enn í greip- um Rússa Aslan Maskhadov, sigurvegarí forsetakosn- inganna í Tsjetsjníju, á erííða baráttu fyrir höndum haldi hann kröfunni um sjálfstæði lýðveldisins til streitu. Tsjetsjníja er enn háð efnahagstengslunum við Rússa sem hafa mörg tromp á hendi og hóta að rjúfa stjóm- málatengsl sín við ríki sem viðurkenna sjálf- stæði lýðveldisins. Rússneskum ráðamönnum létti þegar ljóst var að Aslan Maskhadov hafði borið sig- urorð af öflugasta keppinaut sínum, harðlínumanninum Shamil Basajev, í forsetakosningunum í Tsjetsjníju á mánudag. Þá óaði við að þurfa að kljást við Basajev, „hermdarverka- manninn" sem stóð fyrir árás Tsjetsjena á rússneskt sjúkrahús í Búdjonnovsk sem kostaði rúmlega 100 manns lífið í júní 1995. Þótt Maskhadov hafí leikið rúss- neska herinn grátt þegar hann fór fyrir tsjetsjenskum skæruliðum í stríðinu í Tsjetsjníju litu Rússar á hann sem það forsetaefni sem auð- veldast yrði að semja við um stöðu tsjetsjenska lýðveldisins. Maskhadov fór fyrir samninga- nefnd tsjetsjenskra aðskilnaðar- sinna, sem náði friðarsamkomulagi við Rússa í ágúst í fyrra, og ráða- menn í Moskvu líta á hann sem hófsaman raunsæismann þótt hann hafi hvergi hvikað frá kröfunni um fullt sjálfstæði Tsjetsjníju. Segist ekki „maður málamiðlana" Friðarsamningurinn við Rússa kvað á um að því yrði frestað um fimm ár að ákveða fram- ________ tíðarstöðu Tsjetsjníju en Maskhadov sagði eftir kosningarnar að hann vildi heíja samningavið- ræður um deiluna þegar í stað. „Ég vil finna málamiðlun, en aðeins innan sanngjarnra marka,“ sagði hann á þriðjudag og áréttaði daginn eftir að hann yrði Rússum ekki leiðitamur. „Margir líta á mig sem mann málamiðlana, að ég ljái máls á hvaða samningum sem er, Búast má við efnahagsleg- um þrýstingi frá Rússum en svo er ekki,“ hafði fréttastofan Interfax eftir honum á miðvikudag. „Vesturlönd munu ekki viðurkenna sjálfstæði okkar strax en við ætlum að fara með sigur af hólmi með sama hugrekki og færði okkur sig- ur í stríðinu." Rússneska stjórnin segir ekki koma til greina að semja um sjálf- stæði Tsjetsjníju, enda óttast hún að slíkt yrði til þess að fleiri lýð- veldi innan rússneska sambandsrík- isins lýstu yfir sjálfstæði. Ólíklegt er að Rússar vilji heyja nýtt stríð við Tsjetsjena en þeir hafa mörg tromp á hendi. Líklegt er að þeir beiti Tsjetsjena pólitískum og efna- hagslegum þrýstingi haldi þeir kröf- unni um fullt sjálfstæði til streitu. Vill ekki styggja harðlínumennina Maskhadov má búast við hörðum viðbrögðum Rússa reyni hann að rjúfa tengslin við Rússland og fá önnur ríki til að viðurkenna sjálf- stæði Tsjetsjníju. Líklegt þykir því að hann reyni að semja um mála- miðlun við Rússa, þótt ljóst sé að það taki langan tínna, án þess að hætta á að styggja harðlínumenn- ina heima fyrir. Á meðan gætu _________ báðir aðilar borið höfuðið hátt; rússneska stjómin gæti hamrað á því að Tsjetsjníja væri enn hluti af Rússlandi og Mask- hadov gæti sagt að lýð- ““ veldi hans hefði þegar öðlast frelsi og brotist undan yfir- ráðum Rússa. Maskhadov segist ætla að gera Tsjetsjníju að íslömsku ríki en líklegt er að jafnvel ríki múslima veigri sér við því að ljá Tsjetsjenum stuðning þar sem rússneska stjómin hefur Reuter ASLAN Maskhadov, sigurvegari forsetakosninganna í Tsjetsjníju, ræðir við stuðningsmenn sína á kosningafundi. hótað að ijúfa stjórnmálatengsl við ríki, sem viðurkenna sjálfstæði þeirra. Efnahagurinn í rúst Maskhadov sagði í viðtali á fimmtudag að mikilvægt væri að leysa deiluna um sjálfstæði Tsjetsjníju sem fyrst, en hann bætti við að forgangsverkefni sitt væri að rétta efnahaginn við og „heyja vægðariaust stríð gegn glæpum" í lýðveldi sínu. Hann viðurkenndi að Tsjetsjenar væru háðir efnahags- tengslunum við Rússland og þau gætu reynst öflugasta vopn Rússa í deilunni. „Efnahagsástandið er hörmulegt, nánast allt hefur verið eyðilagt," sagði hann á blaða- mannafundi eftir kosningamar. Þetta eru orð að sönnu því efna- hagur Tsjetsjníju er í rúst eftir stríð- ið við Rússa. Atvinnuleysið er nú allt að 90%, að sögn tsjetsjenskra embættismanna, og margir opinber- ir starfsmenn, svo sem kennarar og læknar, hafa engar launagreiðslur fengið frá þvi í ágúst, þegar aðskiln- aðarsinnar tóku við stjóm lýðveldisins af bandamönnum Moskvustjómar. Tugir þúsunda manna misstu heimili sín í stríðinu og tsjetsjenska stjórnin þarf fjármagn til að gera við vegi og endurreisa byggingar og verksmiðjur sem eyðilögðust. Eyðileggingin í Grosní þykir minna á Hiroshima og Nagasaki eftir kjamorkuárásir Bandaríkjamanna og nokkur þorpanna í Tsjetsjníju voru bókstaflega jöfnuð við jörðu. Tsjetsjenar þurfa því á miklu fjármagni að halda vegna uppbygg- ingarinnar og ljóst er að þeir verða að snúa sér til Rússa. Maskhadov þarf því að halda nánum tengslum við Rússland án þess að hætta á að ergja aðskilnaðarsinnana, sem komu honum til valda. Maskhadov krefst þess að Rússar greiði Tsjetsjenum skaðabætur vegna stríðsins og vonast til að geta samið um að Tsjetsjenar fái hluta teknanna af rússneskum olíu- leiðslum sem liggja um landsvæði þeirra. Olíuhagsmunir Rússa á svæðinu áttu reyndar stóran þátt í því að Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti ákvað að beita hervaldi til að freista þess að bijóta aðskilnaðar- sinnana í Tsjetsjníju á bak aftur í desember 1994. Rússar hafa lofað að fjármagna uppbygginguna í Tsjetsjníju eftir kosningarnar og Borís Berezovskí, varaformaður rússneska öryggis- ráðsins, hefur óspart veifað „olíu- trompinu" með því að bjóða Tsjetsj- enum hlutdeild í olíuhagnaðinum til að sýna að þeir séu betur settir innan Rússlands. Þess á milli hefur hann haft í hótunum við þá og sagði t.a.m nýlega að til greina kæmi að vígbúa forna fjendur þeirra, kós- akka í suðurhluta Rússlands. Rússar bjartsýnir Rússar fluttu síðustu hermenn sína frá Tsjetsjníju fyrir mánuði og þeir geta nú lítið gert til að hafa áhrif á framvind- una í lýðveldinu. Aðskiln- aðarsinnar hafa verið þar við völd frá því friðar- samningurinn tók gildi og öll merki um yfirráð Rússa - lögreglan, herinn, stjómin og dómstólamir - hafa horfíð. Rússneskir stjórnmálamenn, þeirra á meðal kommúnistar, vona að hægt verði að leiða deiluna til lykta með viðræðum við Mask- hadov. Flestir þeirra líta á hann sem raunsæjan stjómmálamann, sem skilji áhyggjur Rússa, geri sér grein fyrir því að Tsjetsjenar geti ekki komist af utan Rússlands og reyni því ekki knýja á um tafarlaust sjálf- stæði. Alexander Lebed, sem stjórn- aði friðarviðræðunum við Mask- hadov, kvaðst telja að hann myndi virða friðarsamninginn að fullu, einnig ákvæðið um að lokaákvörðun um stöðu lýðveldisins yrði frestað. Ekki hætta á klofningi Maskhadov þarf einnig að sam- eina leiðtoga aðskilnaðarsinnanna að nýju eftir harða kosningabaráttu þeirra. Hann kvaðst vilja bjóða helstu keppinautum sínum í kosn- ingunum sæti í stjórn sinni en Basajev kvaðst ekki ætla að þiggja ráðherraembætti þar sem hann hygðist segja skilið við stjórnmálin og helga sig tölvuviðskiptum. Hann sagði að ekki væri hætta á „klofn- ingi“ meðal aðskilnaðarsinna og kvaðst ekki ætla að beijast gegn stjórn verðandi forseta. Maskhadov þarf einnig að hafa hemil á tugum þúsunda skæruliða sem hafa ekki enn lagt niður vopn. Hann hefur lofað að stofna fámenn- an her, með um 10.000 menn, og það merkir að hann þarf að afvopna skæruliðana sem unnu stríðið. Þarf að stemma stigu við glæpum Tim Guldimann, yfirmaður skrif- stofu Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu (ÖSE) í Grosní, sagði að kosningabaráttan hefði í raun ekki snúist um sjálfstæði Tsjetsjníju. „Kosningarnar breyta engu um stöðu Tsjetsjníju," sagði hann og bætti við að helsti ávinn- ingurinn af kosningunum væri að sigurvegarinn fengi skýrt umboð þjóðarinnar til að stjórna og koma á lögum og reglu í lýðveldinu. Margir kjósendur kvörtuðu yfir því að tsjetsjenska stjórnin hefði ekki gert nóg til að hafa hemil á stríðandi fylkingum, sem hafa kappkostað að treysta tökin á land- svæðum sínum. Ránum, mannrán- um og morðum hefur fjölgað stór- lega frá því rússnesku hersveitirnar voru fluttar á brott. Guldimann sagði þó litla hættu á að til átaka kæmi milli skærulið- anna nú þegar sameiginlegur óvin- ur þeirra, rússneski herinn, er far- inn. „Þetta er ekki Afganistan,“ sagði hann og vísaði til borgara- styrjaldarinnar þar eftir brottför sovéska hersins. „Ég er viss um að þeir munu starfa sarnan." Tsjetsjenar öðluðust samúð um- heimsins vegna þjáninga þeirra í stríðinu við Rússa, sem kostaði tugi þúsunda manna lífið, auk þess sem hundruð þúsunda urðu að flýja heimili sín. Ólíklegt er þó að samúðin risti svo djúpt að vestræn ríki verði við beiðni Maskhadovs um að viðurkenna sjálfstæði Tsjetsjníju og hætti þannig á að stuðla að upp- lausn Rússlands. • Heimildir: The Daily Telegraph, The Washington Post og Reuter. Þarf að semja án þess að styggja harð- iínumenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.