Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ROBERTO Mancini leikur æ betur eftir þwí sem hann eldist. Hér að ofan er hann í leik með landslfðinu gegn Þjóðverjum fyrir nokkrum árum - varnarjaxlinn Jiirgen Kohler eltir hann - en til hægri er Mancini í leik með Sampdoria í vetur. MANCINI hefur verið nær stans- laust í fréttum í allan vetur, bæði fyrir frammistöðu sína á knatt- spymuvellinum og eins fyrir hugs- anleg félagaskipti en bæði Inter í Mílanó og Lazio í Rómaborg hafa boðið honum ævintýralegar fjár- hæðir fyrir að ijúka ferlinum innan sinna herbúða. Mancini hefur skor- að flest mörk á ferlinum af þeim leikmönnum sem eru nú að leika á Ítalíu. Tryggðatröll Roberto Maneini er ekki bara fyrirliði Genúaliðsins Sampdoria, heldur heilinn og sálin í liðinu. Öfugt við flestar stórstjörnurnar í dag hefur hann haldið tryggð við sitt félag allt frá því að hann kom til Samp 1982 frá Bologna, aðeins 17 ára gamall. Hann er að leika fimmtánda tímabil sitt með liðinu og á nær öll met hjá félaginu, flesta leiki og mörk í 1. deild (Serie A), flesta Evrópuleiki og flesta titla. Aðdáendur félagsins elska hann útaf lífinu og þegar til stóð að hann færi til Inter fyrr í vetur greip um sig mikil móðursýki í Genúa og forseti félagsins, Manto- vani, þorði hreinlega ekki að selja leikmanninn. Enda eins gott fyrir liðið því Mancini hefur leikið alveg eins og engill og stefnir í að hann skori fleiri mörk á þessu tímabili en nokkru sinni fyrr. Mancini vildi fara, Inter bauð honum andvirði 340 milljónir króna fyrir þriggja ára samning auk aukagreiðslna en hjá Samp hefur hann um 100 mil- jónir á ári. Þess ber þó að geta að samningurinn við Samp gildir til 2001 þegar kappinn verður orðinn 38 ára svo að vart telst það siæm- ur samningur! Mancini hefur enda lagt áherslu á að peningar skipti ekki sköpum heldur skipti gæði knattspyrnunnar hann miklu máli, hann vilji vera í toppbaráttunni og geta unnið titla. Eins og staðan er í dag ætti hann því að una glaður við sitt. Eftir Inter-málið fékk Mancini lof- orð forseta félagsins fyrir því að hann mætti fara fyrir ekki neitt til annars félags næsta sumar og Lazio gerir nú hosur sínar grænar fýrir kappanum og hefur boðið honum 225 miljónir á ári í 3 ár. Hvort Mancini breytir um er óljóst, hann hefur margsagt að það verði mjög erfitt fyrir hann að yfirgefa liðið eftir öll þessi ár; „mér þykir ekki bara vænt um þetta félag, ég er Sampdoria,“ segir Mancini. Kjaftfor og umdeildur Mancini hafði slegið í gegn hjá Bologna, var jafnvel talað um að táningurinn yrði í landsliðshópnum á Spáni 1982 og byijunin var góð hjá Sampdoria. Hann skoraði þó ekki mikið fyrstu árin og átti í sam- skiptaörðugleikum við þjálfarann Bersellini og grátbað um að fá að fara heim til Bologna. Landsliðsfer- illinn byrjaði heldur ekki vel, hann lék fyrsta leikinn gegn Kanada í keppnisferðalagi um Ameríku 1984 en í New York var hinn tvítugi Mancini spenntur fyrir iðandi næt- urlífinu og brá sér í bæjarferð seint um kvöld ásamt tveimur eldri leik- mönnum. Landsliðsþjálfaranum Enzo Be- arzot mislíkaði þetta svo að Manc- ini fékk ekki leik næstu tvö árin. ítalski knattspymu- maðurinn Roberto Mancini hefur löngum verið umdeildur en flestum ber saman um að hann hafí verið einn besti leikmaðurinn á Ítalíu í vetur. Einar Logi Vignisson segir hér frá þessum fyrrum landsliðsmanni og liði hans, Sampdoria, sem hefur gengið mjög vel á leiktíðinni, leikið stórskemmtilega sóknarknattspymu og er sem stendur í öðm sæti deildarinnar. Mancini: herra Sampdoria Roberto Mancini Fæddur: í Jesi, Ancona 27. nóvember 1964 Hæð og þyngd: l,80m - 75kg. Fyrsti leikur í 1. deild (Serie A): 13. september 1981 (Bologna - Cagliari 1:1). Leikir í Serie A: 439 Mörk í Serie A: 138 Fyrsti landsleikur: 26. maí 1984 (Kanada-Ítalía 0:2). Landsleikir: 36 Landsliðsmörk: 4 Leikir með landsliði 21 árs og yngri: 26 Mörk með þvi liði: 9 Síðasti landsleikur: 23. mars 1994 (Þýskaland-Ítalía 2:1). Titlar: ítalskur meistari 1991. Bikarmeistari: 1985, ’88, ’89, ’91, ’94. Evrópumeistari bikarhafa: 1990. Lék til úrslita með Sampdoria gegn Barcelona í Evrópukeppni meist- araliða 1992, en ítalska liðið tapaði. Mancini varð Evrópumeistari með landsliða leikmanna 21 árs og yngri 1986. „Þetta var ekki neitt, ég lét glepj- ast af stemmningunni en Bearzot hefði alveg getað séð í gegnum fingur sér við mig, ég var bara krakki," segir Mancini. Með nýjum landsliðsþjálfara, Azeglio Vicini, kom tækifæri Mancini og hann var fastamaður í liðinu næstu árin. Mörkin létu hins- vegar á sér standa og hann skor- aði ekki fyrr en í fjórtánda lands- leik sínum. Blöðin höfðu stöðugt gagnrýnt val hans og þegar fyrsta markið kom var hann líkur sjálfum sér og geystist að blaðamanna- stúkunni og steytti hnefann fram- an í virðulega blaðamennina! Hon- um tókst að komast upp á kant við Vicini og missti sæti sitt í lið- inu. Arrigo Sacchi, síðasti lands- liðsþjálfari sem er nýlega hættur, notaði hann í nokkrum fyrstu leikj- um sínum en Mancini hefur ekki leikið landsleik í tvö ár. Hann kann auðvitað skýringu á því: „Ég fékk aldrei almennilegt tækifæri, ef ég hefði verið leikmaður Juventus, Inter eða Milan hefðu blöðin staðið á bak við mig í stað þess að gagn- rýna endalaust val mitt og ég væri kominn með 100 landsleiki.“ Aldrei betri Jafnframt því að vera óhræddur við að tjá sig utanvallar hefur Manc- ini sjaldnast þagnað inni á vellinum sjálfum og fengið að líta ófá spjöld- in, gul og rauð. Síðasta vor var honum vísað af velli í leik gegn Inter eftir að hafa heimtað víti held- ur kröftuglega og hótaði hann því þá að hætta að leika á Ítalíu. Ensku félögin Arsenal og Chelsea vildu fá hann og Tottenham hefur ítrekað áhuga sinn en Mancini fór hvergi og sagðist svosum ekki mikið ætla að breyta sér. „Ef ég væri dómari myndi ég vita að Mancini gæti valdið erfið- leikum og myndi spjalla við hann fyrir leikinn. Það má vera að mér hafi orðið á i messunni stundum, en hvað get ég gert? Ég elska lið mitt og þegar við töpum verð ég bijálaður.“ Ekki hefur Mancini haft mörg tækifæri til að æsa sig í vetur, Samp hefur komið mjög á óvart og leikið framúrskarandi sóknarknatt- spyrnu sem skilað hefur liðinu flest- um mörkum allra liða í deildinni, 37 talsins. Þar af hafa Mancini og hinn ungi félagi hans í framlín- unni, Vincenzo Montella, gert bróð- urpartinn eða tvö mörk af hveijum þremur; 12 stykki hvor. Mancini varð æfur yfir sölunni á Enrico Chiesa til Parma í haust en Mont- ella sem kom frá nágrannaliðinu Genúa hefur blómstrað og sam- vinna þeirra er rómuð. „Montella hefur gríðarlega tækni en er samt fýrst og fremst potari, hann hangir ekki mikið með bolt- ann, sem hentar mér vel, ég sé um þá deild. Hann er gerólíkur fyrri framlínufélugum minum, hann er dæmigerður miðheiji. [Gianluca] Vialli var alltaf vaðandi út um allan völl, Chiesa var aftar á vellinum og [Ruud] Gullit var nú eiginlega alls staðar annars staðar en í fram- linunni," segir Mancini. Sjálfur hefur hinn 32 ára Manc- ini sjaldan eða aldrei verið betri og er potturinn og pannan í leik liðsins. Sven Göran Eriksson, hinn sænski þjálfari Sampdoria, segist eiga mjög auðvelt að vinna með Mancini. „Þegar jafnreyndur og klár spilari og Mancio er inni á vellinum er lífið ljúft fyrir þjálfar- ann,“ segir Eriksson. „Hann kom í betri líkamlegri æfingu en nokkru sinni til leiks í haust og hefur leitt liðið þangað sem hann vill sjálfur vera, á toppinn. Hann er að mínu mati besti alhliða sóknarmaðurinn á Ítalíu, jafnvígur á báða fætur, sterkur í loftinu, skorar og leggur upp mörk og er nú í seinni tíð far- inn að sinna varnarskyldum vel.“ Lifir ástin? Mancini er hamingjusamur þessa dagana og það eru aðdáend- ur Sampdoria líka. Fyrir utan markahrókana í framlínunni er lið- ið með trausta miðju þar sem að Argentínumaðurinn Sebastian Veron er potturinn og pannan og Frakkinn Laigle hefur sífellt styrkst. Landi hans Christian Ka- rembeu er hinsvegar bara skugg- inn af sjálfum sér en hefur þó ver- ið að koma til í undanförnum leikj- um. Vörnin er traust með Sinisa Mihajlovic sem besta mann en hann er einnig stórhættulegur upp við mark andstæðinganna þegar hann framkvæmir aukaspyrnur. Ekkert lát virðist vera á marka- súpu Sampdoria manna og í dag þurfa hinir niðurlútu meistarar AC Milan að mæta liðinu á heimavelli sínum, San Siro í Mílanó, en fyrir jól vann Sampdoria Inter, 4:3, á sama velli með mörkum frá, jú - Montella og Mancini. Juventus er efst í ítölsku 1. deildinni og Eriksson þjálfari segir stefnuna vera setta á annað sætið, Juve sé það gott lið að ekki sé raunhæft að ætla sér ofar. En margir knattspyrnuáhugamenn eru á því að ekkert lát verði á fersk- leikanum hjá Samp og liðið gæti allt eins staðið upp sem meistari í vor. Fari svo verður enginn ánægð- ari en Roberto Mancini en hvar hann leikur á næsta tímabili er óljóst. Hann mun ekki sætta sig við að leikmenn eins og Montella eða Veron verði seldir og tilboð Lazio er girnilegt, auk peninga frá félaginu býðst Mancini auglýsinga- samningur við Cirio, fyrirtæki eig- anda Lazio, Cragnotti. Jafnvel er talað um að Eriksson rifti samn- ingi sínum við enska úrvalsdeild- arliðið Blackburn - sem hann hef- ur lofað að taka við í sumar - og fari einnig til Lazio. En bönd Mancini við Sampdoria eru sterk og ef hinn ungi forseti félagsins, Enrico Mantovani (sem tók við af föður sínum sem lengi stjórnaði félaginu), sem er aðeins tveimur árum eldri en Mancini, vill halda kappanum verður hann að gera vel við hann. Spurningin er hvort Mancini tekur ekki við einhverri toppstöðu hjá félaginu eða leysir jafnvel Eriksson af sem þjálfara og feti þar með í fótspor stjarnanna á Englandi en slíkt fyr- irkomulag hefur hingað til verið óþekkt á Ítalíu. Roberto Mancini skortir að minnsta kosti ekki kjark- inn til að ríða á vaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.