Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 19
LISTIR
Yfirskrift
Listahátíðar
1998
„Þar sem
straumar
mætast“
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Listahátíðar í Reykjavík 1998
hefur valið hátíðinni yfirskrift-
ina „Þar sem straumar mæt-
ast“. Að sögn Þórunnar Sig-
urðardóttur, formanns stjórn-
arinnar, hefur oft verið rætt
um að velja Listahátíð í
Reykjavík yfirskrift sem gæti
orðið regnhlíf yfír þau atriði
sem í boði eru, þó ekki hafi
orðið af því fyrr en nú.
Yfirskriftina segir hún vísa
í senn til atriða frá fjarlægum
heimshlutum og atriða sem
skerpa andstæður í stíl og
tíma. „Þarna verða bæði
splunkuný atriði og atriði
tengd miðöldum, svo dæmi sé
tekið, auk þess sem gera má
ráð fyrir að atriði frá öðrum
menningarsvæðum muni lita
hátíðina talsvert mikið. Þetta
er því tilraun sem ég held að
allir séu mjög spenntir fyrir.“
Þórður
Hall í
Leifsstöð
NÚ stendur yfir kynning á mál-
verkum eftir Þórð Hall myndlist-
armann í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, Keflavíkurflugvelli. Félag
íslenskra myndlistarmanna og
Leifsstöð standa saman að þess-
ari listkynningu. 011 verkin eru
unnin í olíu á striga og er við-
fangsefnið eins og oft í verkum
Þórðar, náttúran, birtan og mis-
munandi tímaskeið í landslagi.
Áður hafa verið kynnt á sama
stað verk eftir myndlistarmenn-
ina Kristján Davíðsson, Björn
Birni og Kristínu Jónsdóttur frá
Munkaþverá.
Þórður Hall stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík,
Myndlista- og handiðaskóla ís-
lands og framhaldsnám við Kon-
unglega Listaháskólann í Stokk-
hólmi. Þórður Hall hefur haldið
sex einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga hér heima,
á Norðurlöndunum, víða í Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Mörg
listasöfn og stofnanir hérlendis
og erlendis eiga verk eftir Þórð.
Kynningin á verkum Þórðar
Hall í Leifsstöð stendur til 16.
mars næstkomandi.
ÞÓRÐUR Hall í Leifsstöð.
Tilboösdagar!
Glös - Matarstell
20 - 50% afsláttur
A
iittala
FINLAND
Karel
Laugavegi 24,
sími 562 4525
Langar þig...
að vita flestallt sem vitað er um líf eftir dauðann og
hvernig þessir handanheimar líklegast eru, í
skemmtilegum skóla eitt kvöld í viku eða eitt
laugardagssíðdegi í viku?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 500
ánægðum nemendum SáJarrannsóknarskólans undanfarin
3 ár. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um
langskemmtilegasta skólann í bænum sem í boði er í dag.
Svarað er í síma skólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19.
Kynningarfundir eru í skólanum í dag sunnudag kl.
14.00 og á þriðjudag kl. 20.30. Allir velkomnir.
A
Sálarrannsóknarskólinn
- „Skemmtilegasti skólinn í bænum" -
Vegmúla 2,
símar 561 9015 og 588 6050.
ww
líldTjra ára uerkur horfinn
16 ára reynsla í innleggjagerð - leiðandi á sínu sviði
Margra ára verkur horfinn
„Ég hef þjáðst af miklum verkjum íhægra fæti vegna gamalla
meiðsla í táberginu - og hefþurft að nota spelku á vinstra ökkla.
í hlaupagreiningu hjá Stoðtækni sást mjög greinilega hvað var að
hrjá mig - mislangir fætur og skekkja út á jarkann. Eftir að ég fékk
sérsmíðuð íþróttainnlegg frá þeim eru þessir leiðindaverkir
horfnir."
Qsíðasta ári var tekinn í notkun fullkomnasti
fótagreiningarbúnaður sem völ er á frá NOVEL
Búnaðurinn er algjör bylting í að greina
göngulag fólks, álagsdreifingu og stöðu
fóta og auðveldar alla greiningu fyrir
sérsmíðaða skó, innlegg og spelkur.
Hentugt fyrir greiningu á liða-
gigtarsjúklingum, sykur-
sjúkum, íþróttamönnum
auk annarra sem hafa
átt við fótavandamál
að stríða.
mm 10 11
r B 13
■11 1S % 1«
■m sniBnfs 1? 13 ' 13
i? 1S m £4