Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 23
Fatnaður fyrir árshátíðir og þorrablót.
Dragtir, síð svört pils og fl.
Enn meiri afsláttur af útsölufatnaði
orraarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
Það er til mikils að
vinna að fá viðurkenn-
ingu JAA, því annars
eru menn nánast úr leik
ekki smávélum meira en raun ber
vitni?
„Svarið við því er einfalt. Það var
mikill innflutningur á árunum
1984-85, en eftir það var lagður virð-
isaukaskattur á slíkar vélar. Þær
urðu þá svo dýrar að innflutningur,
lagðist svo að segja af. Við keyptum
tvær nýjar kennsluvélar til landsins
í fyrra og það voru þær fyrstu sem
komu hingað nýjar í 15 ár! Önnur
þeirra er Katana DV-20, eins hreyf-
ils, afar skemmtileg vél sem er mun
hagkvæmari í rekstri en Cessnumar
sem floti okkar samanstendur að
mestu af. Umfram allt er Katana-vél-
in hljóðlát. Hin vélin er af gerðinni
Trinidad TB-20.
Við eru með 14 vélar, mest Cessna
152 og 172. Stefnan er að skipta
þeim hægt og rólega út fyrir Katana-
vélamar. Það má kannski nefna það
núna, en við ætlum að reyna við
nýtt heimsmet í flugtímum með Kat-
ana-vélinni ákomandi sumri. Síðasta
sumar gátum við nánast flogið upp
á hvem einasta dag og ef það verður
eitthvað viðlíka næsta sumar náum
við þessu.“
Eru þá allir þessir nýju flugmenn
flugvélalausir?
„Já, en menn þjarga sér og Flug-
tak hefur einmitt komið til móts við
þennan vaxandi hóp. Margir fljúga
auðvitað tiltölulega fáa flugtíma á
ári, kannski 10-30 tíma sér til
skemmtunar. Við höfum stofnað
flugklúbb fýrir einkaflugmenn. Þeir
borga 30.000 króna árgjald og 3.500
krónur fyrir hvem flugtíma og fjöru-
tíu em um hverja vél. Þeir láta vita
hvenær þeir vilja fljúga og bóka sig.
Þetta er eins og að sækja um veiði-
leyfi.“
Hver er saga Flugtaks og annað
... rekur þú skólann einn?
„Flugtak er gamalt fyrirtæki og
nær nokkuð langt aftur sem flug-
skóli. Ekki þekki ég alla þá sögu,
eigendur hafa verið ýmsir, en Höldur
keypti Flugtak að mig minnir 1989
og rak um tíma. Ég hef starfað við
fyrirtækið sem framkvæmda- og
skólastjóri í sjö ár. Með mér í þessu
er Baldvin Birgisson flugmaður hjá
Flugleiðum. Saman eigum við Flug-
skólann ehf. sem á þrjár vélar, en
afganginn leigjum við af eignarfélagi
íslandsflugs. Matthías Amgrímsson
er mín hægri hönd og sér mikið um
daglegan rekstur Flugtaks. Sjálfur
er ég flugmaður í fullu starfi hjá
íslandsflugi. Ég flýg mest næturflug
til Bretlands fyrir DHL, en einnig
flýg ég nokkuð í innanlandsflugi."
Hvenær er sofið?
„Bara svona þegar færi gefast."
Er tími fyrir fjölskyldu?
„Já, mér hefur nú tekist það. Eig-
inkonan mín heitir Vala Rós Ingvars-
dóttir og við eigum tvö böm, Þór-
unni Sif, sem er 8 ára, og Sigurð
Brynjar, sem er 2 ára.
Stærstir á Norðurlöndum?
Vindum okkur aðeins aftur að
Flugtaki, því hefur verið fleygt að
skólinn sé sá stærsti á Norðurlönd-
um. Er það rétt og ef svo er, hvem-
ig er það mælt?
„Já, það er rétt, þ.e.a.s. stærsti
einkarekni skólinn. Það er einn
stærri, sem er á vegum SAS í Sví-
þjóð. Síðasta sumar vomm við með
fímm fasta flugkennara og þegar
mest gengur á erum við með 11-12
kennara, en við höfum menn utan
fyrirtækisins sem við getum leitað
til. Auk þess sköpum við nokkmm
flugvirkjum vinnu. En stærð skóla
er mæld í flugvélafjölda, fjölda flug-
tíma sem flognir eru á tilteknu tíma-
bili og fjölda útskrifta á flugmönnum.
Þegar það er mælt kemur í Ijós að
við eram stærstir.
Það er þá allt eins og blómstrið
eina í rekstri Flugtaks og framtíðin
björt?
„Það hefur verið gott starfsum-
hverfí í þessari grein í seinni tíð og
það er gott að vinna hérna þótt starf-
ið sé jafnframt erfítt og krefjandi.
Það hafa margir farið á hausinn en,
sjö-níu-þrettán, okkur hefur gengið
vonum framar. Eins og ég kom að
áðan em miklar breytingar framund-
an og við þurfum að bregðast við
þeim. Það þolir enga bið, tíminn flýg-
ur. Framtíðin er að miklu leyti í okk-
ar höndum.“
Höfum opnað
afsláttur af öllu
í versluninni í dag
Opiðí dag kl. 13-18
ÖðtoUÚÍ UúfýÖýH
Fákafeni 9, sími 568 2866
í nýrri og glœsilegri
600 fm verslun í Fákafeni 9
Opnunartilboð
20%