Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 25 í að á skurðstofunni hefði mátt glöggt sjá að Margrét væri vanur og snjall skurðlæknir og vel kunn- ug kviðsjárspeglunaraðgerðum og það hjálpaði henni að ná skjótum tökum á umræddri aðgerð. Kostir og gallar í fyrirlestri sem Dan Smith flutti daginn áður en hann „skar upp“ með Margréti kom fram að þótt margt megi telja kviðsjár- speglunaraðgerðum til tekna, séu þeir til sem fyndu tækninni ýmis- legt til forráttu og héldu á lofti gömlum gildum í skurðlækning- um. En hveijir eru helstu kostir þess að, í þessu tilviki, nema brott sýktar nýrnahettur með þessari tækni í stað þeirrar gömlu? Dan svarar og undirstrikar að svarið gildi fyrir allar aðgerðir með kviðsjárspeglun, að sjúklingar sleppi við holskurði, aðgerðirnar væru fljótlegri og þar með þægi- legri, þeir eyði mun skemmri tíma á spítala eftir aðgerðina, eru þar af leiðandi fljótarí að ná fullri heilsu á ný og taka upp þráðinn þar sem frá var horfíð. Þá þyrftu þeir mun minna af kvalastillandi lyfjum sem væri ótvírætt af hinu góða. Margrét bætir við, að hér sé um að ræða nokkrar vikur hjá hveijum manni og því augljóst að það sé ekki einungis sjúklingurinn sem hagnist á aðgerðinni heldur og þjóðfélagið sem fái starfskraft- inn mun fyrr til sín á ný. Margrét bætir við: „Það má ekki gleyma því, tækjakosturinn er mjög dýr, en hann er fljótur að borga sig þegar dæmjð er skoðað frá þessari hlið. Þá má telja með einhveijar aðgerð- ir þar sem sjúklingar hefðu jafn- vel þurft að fara utan til skurðað- gerða. Slíkt kostar mikla pen- inga.“ Dan tekur orðið: „Þessar að- gerðir eru mjög tæknilega krefj- MARGRÉT Og Dan að afloknu dagsverki. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins. NÝRNAHETTAN með æxlinu var heldur stærri en búist var við. andi og eru mjög svo nýjar af nálinni. Það segir sig sjálft að yngri kynslóð lækna mun standa betur að vígi að tileinka sér hana. Þið getið ímyndað ykkur hvort Nintendo-kynslóðin verði _ ekki snjöll í þessum lækningum! Ýmsir eldri skurðlæknar hafa náð góðum árangri með kviðsjárspeglun, en öðrum _gengur verr að tileinka sér hana. I því kann að liggja ein af ástæðum þeirrar gagnrýni sem heyrst hefur í garð þessarar tækni." Margrét bætir við: „Þetta eru fjarri því endalok holskurða í skurðlækningum. í mörgum tilvik- um munu þeir eiga rétt á sér og vera það eina í stöðunni. Þessi nýja tækni er hins vegar afar kærkomin aukning á valkostum og margar aðgerðir er hægt að gera með miklu minni óþægindum frá sjónarhóli sjúklinga. Eg hef því engar áhyggjur af hvað fram- tíðin muni bera í skauti sér. Það verða menn sem kunna þessa tækni, aðrir hina. Sumir báðar. Hvernig sem á það er litið er útlit- ið betra en það hefur verið.“ Kemur að krabbameini? Miðað við lýsingar á kviðsjár- speglun vaknar sú spuming hvort henni megi beita í baráttunni við krabbamein? Þau Margrét og Dan eru bæði þeirrar skoðunar að á þessu stigi sé ekki tímabært að ræða slíkar aðgerðir á krabba- meini, því þótt tækninni fleygi fram, sé hún ekki enn komin á slíkt stig. Margrét segir: „Ýmis afbrigði krabbameins eins og til dæmis lifrarkrabbamein, em það erfið viðureignar að þessi tækni breytir þar litlu. í sambandi við krabbamein er kviðsjárspeglun enn sem komið er helst notuð til að kanna ástand sjúkdómsins “ Og Dan bætir skjótt við þetta: „Þetta er rétt, það eru nú þegar ýmsir ljósir punktar, eins og t.d. að möguleiki er á því að greina krabbamein fyrr og því hægt að grípa til viðeigandi meðferðar fýrr. Það hefur augljóslega mikla kosti og ég trúi því staðfastlega að í framtíðinni verði unnt að fram- kvæma krabbameinsaðgerðir með kviðsjárspeglun og þeirri tækni sem kann að þróast út frá henni." „Hver veit nema það verði vél- menni sem geri þær aðgerðir á okkur," skýtur Margrét inn í og þau skemmta sér bæði vel yfír þeirri athugasemd. Þar með segj- um við lokið heimsókn Morgun- blaðsins á hátækniskurðstofu á Landsspítalanum og kveðjum við- mælendur vora. í/)óm(/ii7iana Fararstjórar: Ingólfur Guðbrandsson I nótt í Xew York - 2 dagar í Santo Domingo - 8 dagar í 1‘nerto Plata VIHage Heillandi nýjung á fegurstu eyju Karíbahafs. Flug um New York. með gistingu og síðan til hinnar Már Eiíson lífsglöðu höfuðborgar SANTO DOMINGO með elstu minjar um landnám Spánverja í Vesturheimi og iðandi skemmtanalíf. Gist 2 nætur á 5* hóteli. Ferð þvert yfir landið til PUERTO PLATA, hins vinsæla baðstaðar, þar sem allt er innifalið: Matur, drykkur, strandlíf, skemmtanir í heila viku og þú þarft ekki að taka upp budduna, en tært loftið, veðrið, ströndin, volgur sjórinn og glitrandi gróðurinn niður í flæðarmál leikur við þig. Flug aftur heim um New York. II DAGAK Á ÓTRÍILEGA IlAGSTÆÐlí VERÐI, BESTE KJÖR, ALLT HVNIFALIÐ Staðfesta verður pöntun. Brottför 23. mars. Kornið til íslands að rnorgni 2. apríl. Aðeins 5 vinnudagar. Þú sérð mikið af fegurð Dóminíkana á þessu ferðalagi, há fjöll og gróðursæla dali, fegursta blómagróður í bland við ávaxtatré, tóbaks-, kakó- og sykurekrur. Landið sjálft hefur lítið breyst frá dögum Kólumbusar, sem sagði: „Svofagurt land hafa augu mín aldrei litiðfyrr. “ SÍÐUSTU SÆTIN — PANTIÐ NÚNA! FERÐASKRIFSTOFAN PRIMAr HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS BANGKOK & ,KOH SAMLI I THAILANDI 16 dagar, brottför 15. mars - aðeins 8 viniiudagar. Sjáið Miss Saigon í Saigon! Hið fagra Vietnam hefur opnað dymar fyrir farþegum Heimsklúbbsins. Það besta í Vietnam og Thailandi - Bangkok 3 dagar, nýtt glæsihótel á SIGLINGAR Vikulegar brottfarir með vinsælustu skemmtiskipum heimsins, Imagination, Sensation, Fascination eða stærsta farþegaskipi heims Destiny. Páskasigling 22. mars: IMAGINATION — uppselt. Aukaferð 23. mars: FASCINATION — með 40% afslætti. Fararstjóri: Sveinn Guðjónsson. besta stað. Saigon (Ho Chi Minh) 4 dagar, nýtt lúxushótel í spennandi borg. Koh Samui - Thailandsdraumurinn á fegurstu eyju í Siamsflóa, 7 dagar - eða vika á Siam Bayview á Pattaya. SÉRTILBOÐ MEÐ FARARSTJÓRN AÐEINS KR. 189.000. GILDIR AÐEINS TIL 8. FEB. „FERÐ í ÖÐRU VELDI“ „Við hjónin erum alveg upp í skýjunum afánœgju og hamingju eftir ferð okkar í Karíbahafið nýlega á vegum Heimsklúbbs Ingólfs. Ekki aðeins stóðst allt sem lofað var, lieldur fór ferðin fram úr öllum vœntingum og höfum við þó áðurferðast mikið og vel. Sigling með Sensation var draumi líkust og giœsilegri en okkur Itafði órað fyrir. Vikudvöl í Puerto Plata á eftir kom mest á óvart, þar sem umhverfi er einn aldingarður, fólkið fallegt og yndisiegt með geislandi bros sitt. Þjónusta fararstjórans Más Elísonar var í sér flokki, hann kunni skil á öllu, en án leiðbeininga hans hefði margt farið framhjá okkur. Við munum hvetja alla vini og kunningja til að fara svonaferð, sem er eins og vítamín í lífmanns." Jón Rögvaldsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.