Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 26
26 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/LAUGARÁSBÍÓ sýnir nýjustu mynd leikstjórans Renny Harlin,
The Long Kiss Goodnight, með þeim Geena Davis og Samuel L. Jackson í aðalhlut-
verkum. I þessum spennutrylli leikur Geena húsmóður sem misst hefur minnið en
kemst að því að hún var áður útsendari og morðingi á vegum leyniþjónustunnar.
I leit að
fortíðinni
AMANTHA Caine (Geena
Davis) er bamaskólakenn-
ari í úthverfí og þjáist hún
af minnisleysi. Þegar dularfullir
atburðir tengdir fortíð hennar
byrja að gera vart
við sig og trufla
vanafast líf hennar
hefur hún ákafa
leit að vitneskj-
unni um það hver
hún raunverulega
sé. Sér til aðstoðar
fær hún einka-
spæjarann Mitch
Hennessey
(Samuel L.
Jackson) og í sam-
einingu rekja þau
slóð sem leiðir þau
inn í miðja hring-
iðu samsæris illra
afla innan leyni-
þjónustunnar og
alræmds alþjóð-
legs vopnasala.
Smátt og smátt
kemur í ljós að Caine er ekki
venjulegur barnaskólakennari og
móðir átta ára telpu, heldur
þrautþjálfaður fyrrum starfs-
maður leyniþjónustunnar að
nafni Charly Baltimore, sem
hafði það að sérgrein að ryðja úr
vegi óvinum ríkisstjómarinnar.
A meðan þessi fortíð hennar er
hægt og rólega að koma upp á yf-
irborðið togast á í henni móður-
hlutverkið og tilfinningar þess
kaldrifjaða morðingja sem hún
áður var. I leit sinni að hinni
gleymdu fortíð ógna þau Caine
og Mitch áætlunum illmennanna
og grípa þeir þá til sinna ráða til
að ryðja þeim skötuhjúunum úr
vegi.
Höfundur kvikmyndahandrits-
RENNY Harlin leikstjóri
The Long Kiss Goodnight.
ins að The Long Kiss Goodnight
er Shane Black, sem áður hefur
meðal annars skrifað handritin
að The Last Boy Scout og Lethal
Weapon, en leikstjóri myndar-
innar er Renny
Harlin. Hann
komst í hóp eftir-
sóttustu leikstjór-
anna í Hollywood
með myndinni Die
Hard 2, en vestan-
hafs sló hann fyrst
í gegn með mynd
úr flokknum um
Freddie Kmger.
Sú hét Nightmare
on Elm Street IV:
The Dream Mast-
er, ogvar Harlin
öðrum fremur
þakkað það að
myndin varð tekju-
hæsta mynd sálf-
stæðs framleið-
anda. Lenny Harl-
in heitir reyndar
réttu nafni Lauri Harjola og
fæddist hann 15. mars 1959 í Rii-
himaeki í Finnlandi. Hann er
þekktur fyrir að koma föðurlandi
sínu að með einhverjum hætti í
þeim myndum sem hann gerir,
og í byrjun The Long Kiss
Goodnight sést veggjakrotið Hell
Sink, sem þykir vísa til Helsinki,
og Charly drekkur að sjálfsögðu
Finlandia Vodka.
Harlin byrjaði ungur að aldri
að gera átta millimetra kvik-
myndir og engum kom á óvart
þótt hann legði nám í kvikmynd-
gerð fyrir sig. Að því námi loknu
stofnsetti hann eigið kvikmynda-
fyrirtæki sem gerði nokkrar
fræðslumyndir og stuttmyndir.
Harlin reyndi að fá fjármagn til
BARNAKENNARINN reynist vera fyrrum morðingi í þjónustu leyniþjónustunnar. ÞAU Cain og
Mitch rata inn í miðja hringiðu samsærisafla við leit sfna að fortíð Cain.
að gera kvikmynd í fullri lengd í
heimalandi sínu en án árangurs
og hélt hann þá til Hollywood.
Þar tókst honum að skrapa sam-
an það sem upp á vantaði fyrir
fyrstu mynd seinni, Jaatava pol-
te, sem frumsýnd var 1986, og
fjallar um þrjá unga Bandaríkja-
menn sem á ferðalagi í Finnlandi
á kaldastríðsárunum fara fyrir
tilviljun yfir landamærin inn í
Sovétríkin. Tveimur árum síðar
gerði hann svo hryllingsmyndirn-
ar Prison og fjórðu Freddy Kru-
ger myndina, og 1990 gerði hann
The Adventures of Ford Fairlane
og Die Hard 2 sem kom honum á
þann stall þar sem hann trónir
nú. Síðan hefur hann gert mynd-
imar Cliffhanger (1993) með
Sylvester Stallone í aðalhlutverki
og hina miður heppnuðu Cutt-
hroat Island (1995) með eigin-
konunni Geena Davis í aðalhlut-
verki, og næstu myndir Harlins
verða Exit Zero og U.S. Mars-
hals.
í fremstu röð
SAMUEL L. Jackson skaut upp á
stjömuhimininn í Hollywood
þegar hann fór efdrminnilega á
kostum í hlutverki leigumorð-
ingjans Jules f Pulp Fiction.
Hann uppskar í kjölfarið ósk-
arsverðlaunatilnefningu og fjöl-
da annarra viðurkenninga og
hefur siðan verið talinn í röð
þeirra leikara í Hollywood sem
mikils megi vænta af.
Samuel Leroy Jackson var þó
alls enginn nýliði í greininni, og
raunar hafði hann vakið verð-
skuldaða heimsathygli í hlut-
verki eiturlyfjaneytandans Gator
í mynd Spike Lee, Jungle Fever.
Ur þessu aukahlutverki skyggði
Jackson algerlega á Wesley
Snipes og aðra leikara myndar-
innar enda fór það svo að á kvik-
myndahátíðinni í Cannes var bú-
inn til nýr verðlaunaflokkur fyr-
ir aukahlutverk til þess að
heiöra frammistöðu hans. Jungle
Fever gaf Jackson færi á auka-
hlutverkum í t.d. Jurassic Park
og Patriot Games með Harrison
Ford, en eftir fárið sem fór um
kvikmyndaheiminn í kjölfar
Pulp Fiction hefur Jackson get-
að valið úr aðalhlutverkum.
Hann lék á móti Bruce Willis í
Die Hard with a Vengeance; með
Nicolas Cage og David Caruso í
Kiss of Death, með Jessica
Lange og Halle Berry í Losing
Isaiah, og skemmst er að minn-
ast hans í The Great White Hype
og A Time to Kill.
Jackson er úr Suðurríkjunum,
fæddur og uppalinn í Tennessee
á tímum aðskilnaðarstefnunnar.
Hann tók próf í leiklist við Mor-
ehouse-háskólann í Atlanta í Ge-
orgia, og á skólaárunum Iék
hann í fyrsta skipti smáhlutverk
í kvikmynd. Að loknu námi fór
Jackson til New York um miðjan
áttunda áratuginn, og þar kynnt-
ist hann m.a. þeim Morgan
Freeman og Denzel Washington,
sem ásamt honum standa nú
fremstir svartra kvikmyndaleik-
ara vestanhafs. Jackson var ekk-
ert að flýta sér að komast að í
kvikmyndum og sem sviðsleikari
í New York vegnaði honum dá-
vel. Þess var þó ekki langt að
bíða að hann sæist á hvíta tjald-
inu. Hann fékk hlutverk í
Ragtime eftir Milos Forman og
honum sást bregða fyrir í Com-
ing to America og GoodFellas og
í White Sands lék hann á móti
Micky Rourke. Áður en hlutverk
Gators í Jungle Fever kom til
hafði Jackson ávallt getað geng-
ið að vísum hlutverkum í mynd-
um Spike Lee, t.d. School Daze,
MoÖ Better Blues og Do the
Right Thing, en vinskapur ríkti
með þeim félögum á þessum
árum. Þeim sinnaðist hins vegar
þegar Jackson taldi það móðgun
við sig að eiga að mæta í prufu-
upptöku vegna hlutverks í
Malcolm X. Ótalin eru m.a. hlut-
verk Jacksons í Fathers and
Sons, National LampoonÖs Loa-
ded Weapon, Amos and Andrew
og í True Romance.
Gáfuð og
GEENA Davis, sem stundum hef-
ur verið kölluð kynbomba tiunda
áratugarins, heitir réttu nafni
Virginia Davis og er hún fædd
21. janúar 1957 í Wareham í
Massachussetts. Eftir að hún
lauk námi í Iistgreinum frá
Boston-háskóla gerði hún samn-
ing við fyrirsætuskrifstofu f New
York. Hún vann einnig um skeið
sem gengilbeina, en leiklistará-
huginn blundaði f henni og svo
fór að hún fékk smáhlutverk í
Tootsie (1982). Það leiddi til þess
að hún fékk hlutverk í sjónvarps-
þáttunum Familie Ties og
Buffalo Bill. Greindarvfsitala
leikkonunnar þykir í hærra lagi
og skipaði það henni ákveðinn
sess í Hollywood, og sömuleiðis
líkamshæð hennar, en hún er
183 sentimetrar.
Ferill Davis í sjónvarpi varð þó
ekki Iangur og svo fór að hún
fékk hlutverk í Fletch sem
Chevy Chase lék aðalhlutverkið
í. Það var hins vegar í The Fly
(1986) sem hún sló í gegn, en
við gerð þeirrar myndar
kynntist
hún Jeff
Goldblum
sem fór
með aðal-
hlutverkið í
myndinni og
gengu þau í
skammvinnt hjóna-
band, en það var
annað hjónaband
hennar. í Beetlejuise
(1988) sýndi Davis að hún
var jafnvíg á gamanhlutverk
og alvarlegri hlutverk, og fyrir
aukahlutverk í The Accidental
Tourist sem gerð var sama ár
hlaut hún óskarsverðlaunin
og var þar með komin í úr-
valsliðið í Hollywood. Hún
hlaut mikið lof fyrir hlut-
verk sitt sem Thelma í
Thelma & Louise, en íþeirri
mynd samrekkti hún þá
nánast óþekktum Brad Pitt.
Aðalhlutverk í myndunum
A League of Their Own
(1992), Hero (1992),
Speechless (1994) og Angie
(1994) komu svo í kjölfarið
og því næst Cutthroat Island
(1995).
Árið 1993 gengu þau Davis og
Renny Harlin í hjónaband og litu
margir á það sem upphafið að
rómantísku viðskiptasambandi
og stofnuðu þau fyrirtækið The
Forge sem virtist hins vegar
ætla að verða endasleppt þegar
fyrsta mynd þeirra, Cutthroat
Island, kolféll í kvikmyndahús-
unum. Þau gerðu hins vegar
aðra tilraun með The Long Kiss
Goodnight og þykir hún hafa
tekist með miklum ágætum.
Meðal verkefna sem þau hjónin
eru með í smíðum eru vísinda-
tryllirinn Exit Zero sem Harlin
leikstýrir, The PoliticianÖs Wife,
sem gerð verður eftir breskum
sjónvarpsþáttum með sama
nafni, og fer Davis með aðalhlut-
verk í þeirri mynd, og loks má
nefna spennu-
myndina
..... ........' GodÖs Teeth
sem gerist á
miðöldum.