Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 28

Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ f MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 29 < STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR TILLÖGUR stjómar Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins um breytingar á fyrirkomulagi á sölu áfengis eru að mörgu leyti skynsam- legt og raunsætt innlegg í umræður um áfengismál hér á landi. Stjórn ÁTVR leggur í fyrsta lagi til að verð á léttu víni og bjór verði lækkað. Stjórnarmenn benda á, að þetta muni stuðla að bættri vín- menningu og draga úr sölu og drykkju landa og heimabruggs. Þótt auðvitað sé ekki hægt að full- yrða, að neyzla aukist ekki er lík- legra að hún flytjist til; minna verði drukkið af sterkum drykkjum og auk þess dragi úr bruggi, smygli og annarri ólöglegri starfsemi, sem hátt verð og hömlur á viðskiptum með áfengi hafa stuðlað að. Um leið verður neyzlan sýnilegri, auð- veldara að hafa með henni eftirlit og tryggt að opinber gjöld séu greidd af því, sem drukkið er. í öðru lagi vill stjórnin að vínbúð- um verði fjölgað og rekstur þeirra boðinn út til einkaaðila. Þetta mun ekki sízt koma neytendum á lands- byggðinni til góða. Einnig má gera ráð fyrir, að einkareknar vínbúðir í þéttbýli keppi sín á milli í verði, ef gerðar verða breytingar sem leyfa breytilega álagningu, og í þjónustu. í þriðja lagi leggur stjórn ÁTVR til að vínbúðir verði staðsettar ná- Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. lægt matvörubúðum og jafnvel ihn- an þeirra, auk þess sem afgreiðslu- tími þeirra verði samræmdur því, sem gerist hjá öðrum verzlunum. Þetta verður sjálfsagt umdeildasta atriði þessara tillagna. Með því er komið til móts við þarfir neytenda og að þeir geti sameinað matarinn- kaup og kaup á léttum vínum eða bjór, sem yngri kynslóðirtelja sjálf- sagt en hinir eldri setja meira spurningarmerki við. í Morgunblaðinu í gær lýstu tals- menn bindindissamtaka og Áfengi- svarnaráðs andstöðu við þessar hugmyndir. Sr. Björn Jónsson, stór- templar, segir m.a.: „Ég tel, að ekki dragi úr áfengisneyzlu og því heilsufarslega og siðferðilega böli, sem er fylgifiskur áfengisneyzlunn- ar ... Mín skoðun er sú, að hvert ár án áfengis í lífi mannsins sé stór ávinningur." Og Ólafur Haukur Árnason áfengisvarnaráðunautur segir: „Það er ekkert, sem bendir til þess annars staðar í veröldinni að dragi úr neyzlunni og yfirleitt kemur í ljós, að hún eykst, þegar felldar eru niður einkasölur." Undir þau orð sr. Björns Jónsson- ar má taka, að hvert ár í lífi manns án áfengis sé mikill ávinningur. En spurning er, hvort bindindismenn kunni að vera á rangri leið í bar- áttu gegn áfengisbölinu með því að berjast gegn því að nútímalegir viðskiptahættir verði teknir upp með þessa vöru. Þær eru ófáar íslenzkar fjöl- skyldur, sem hafa orðið illa úti vegna ofnotkunar áfengis. Það hef- ur hins vegar gerzt, þótt hér hafi verið fáar vínbúðir og áfengi óað- gengilegt. Þeir, sem haldnir eru áfengissýki eða hafa tilhneigingu til hennar, verða sér alltaf úti um áfengi, hversu fáar sem vínbúðirnar eru og hversu langar sem biðraðirn- ar eru. Kannski eiga vísindin eftir að upplýsa okkur um hveijir eru í hættu staddir m.a. vegna arfleifðar hvers einstaklings, þannig að þeir hinir sömu viti, að þeir eiga aldrei að bragða áfengi. Á síðustu tveimur til þremur ára- tugum hafa farið fram stórmerkar rannsóknir á áhrifum og afleiðing- um ofneyzlu áfengis á einstaklinga og nánasta umhverfi þeirra, for- eldra, maka og börn. Með mark- vissri kynningu á niðurstöðum þessara rannsókna og að þeim verði fylgt eftir í framkvæmd með víð- tækri ráðgjöf til þeirra, sem eiga um sárt að binda, mundu bindindis- samtökin ná margfalt meiri árangri í baráttunni gegn áfengisneyzlu en með því að beijast gegn því að eðli- legir og nútímalegir verzlunarhætt- ir verði teknir upp. Með breyttum baráttuaðferðum mundu bindindissamtökin einnig fá mun meiri stuðning hins almenna borgara en þau fá nú. Málstaður þeirra er verðugur og á rétt á sér, en það er tímabært að þau taki upp nýjar vinnuaðferðir. Þeir verzlunarhættir, sem hér hafa tíðkazt með áfengi, eru leifar frá liðnum tíma. Og það er engum til góðs að ríghalda í þá. Það er líka staðreynd, að nýjar kynslóðir, sem hafa vegna náms og starfs í öðrum löndum kynnzt allt öðrum umgengnisvenjum í sambandi við áfengi, eru smátt og smátt að breyta því, sem kalla má vínmenn- ingu eða ómenningu eftir því hvern- ig á það er litið. Tillögur stjórnar ÁTVR eru raunsæjar, en það kann að vera skynsamlegt að framkvæma þær í áföngum. RAUNSÆII ÁFEN GISMÁLUM EIN ER SÚ BÓK frá kreppuárunum sem hefur fylgt manni alla tíð, en það er Gagn og gaman. Nei, þetta voru ekki endi- lega tímar Hitlers og Stalíns, ekki heldur Einars Bene- diktssonar, Tómasar eða Kiljans, nei, þetta voru tímar Litlu gulu hænunnar og Guttavísnanna og svo hennar Rönku sem var rausnarkerl- ing og rak eitt hænsnabú. Þetta voru semsagt miklir tímar mikilla tlðinda. Ég man ekki hvenær Gagn og gaman kom fyrst út en það var einhvem tíma í kreppunni. Höfund- amir vom Helgi Elíasson og ísak Jónsson og kynntist ég þeim báðum löngu síðar. Atti meðal annars sam- tal við ísak Jónsson sem var eftir- minnilegur maður og mikill skóla- stjóri. Það kunna margir ýmislegt úr Gagn og gaman og mér er sagt að Jón Helgason skáld í Kaupmanna- höfn hafi stundum lesið upphátt úr kverinu fyrir gesti. Ég er ekkert hissa á því. Ég þekki ekki einfald- ari skáldskap en þann sem er í þessu kveri: Lóa segir la, la, ja. La, la, la, segir Óli. Og: Lúlli sagði: 0 - ú - ú. Lulla sagði: U - u - u. Lúlli sagði: Sú - sú - sú. Lulla sagði: Su - su - su. Og: Einar segir: Ei - Ei - Ei. Einar segir: Sei - sei - sei, og Einar segir: Nei - nei - nei. Þetta var sú eina sanna heimsl- ist á þessum ámm og minnir einna helzt á Joyce: pick, pack, pock, puck í Mynd af listamanninum ungum; eða den men, dun men, fen men, fun men, hen men og hun men í Finnegans Wake. Og þetta kver bar sínum tíma gott vitni. Það lýsti honum ágætlega því það flutti einföld sannindi einsog kreppan sjálf, skrautlaus og mikilvæg; að það er rangt sem fullorðins- heimurinn prédikar, því ekki er allt sem sýnist. Veröldin er ævintýri einsog hún blasir við. Þess vegna er hún skemmtileg og þess vegna er gam- an að vera barn. Og eiga sér Gátta- , þef, Mjallhvít og dvergana sjö að vinum. Þau voru ekki eitthvað sem sýndist! Þau vora vemleikinn sjálf- ur eins og Gutti og Ranka. Og skáldskapurinn var ekkert holta- þokuvæl, ekkert órímað dót úr handraða innfluttrar tízku og fínna stellingu: Hæ! hæ! og hó! hó! Hlýtt er og bjart. Kem ég út í kermnni, og keyri hart. Hæ! hæ! og hó! hó! Eða: Hí! hfi og ha! ha! hvað ég er fín! Fellur aldrei fís né ryk á fötin mín. Hfl hí og Ha! ha!. Þetta var hin sanna tólg kreppu- áranna. Hin mikla heimslist bemsk- unnar, svoað ekki sé nú talað um „sjaldséða gesti": X og Z em hjón, óttalega mikil flón. Z segir eins og S. Alla kveður hún með bless. Hún er kát við karlinn sinn, kyssir hann á nefbroddinn. Karlinn X er hýr og hress, hermir eftir G og s. Þau em fín og segja satt með silkihúfu og pípuhatt. En nú er Gagn og gaman horfið einsog kreppan og þeir tímar sem mótuðu lýðveldiskynslóðina. Og það er nánast ómögulegt að fá eintak af þessari bók allra bóka, svo fágæt er hún orðin. En mér tókst það samt fyrir útsjónarsemi Braga Kris- tjónssonar fombóksala. Og það er gaman að fletta henni. Hugsa um X og Zetu sem á líklega einhvem þátt í því að kverið er komið úr tízku. Einkennilegt að það skuli vera svona erfítt að ná í það. Mér er jafnvel sagt að það megi ekki kenna þau einföldu sannindi sem standa á þessum blöðum. Ætli það sé vegna Z-unnar? Ætli það sé vegna þess að x er bæði „hýr og hress"? Kannski er það vegna þess að ærin jarmar ma - ma - ma, manna bömin segja A.? Kannski vegna þessarar setning- ar: „þú færð ekki bréf frá mömmu. Hún er að baka.?“ Hver veit. Hver þekkir hinn margslungna leyndardóm tilver- unnar? Þeir mundu ekki víla fyrir sér að hafa Gagn og gaman á boð- stólum í bókaverzlunum í Lundún- um. Þegar ég var þar á ferð í nóv- ember síðastliðnum sá ég staflana af Mein Kampf og samanborið við þetta helgirit nýnazismans er Gagn oggaman eins og hver annar lífsins elexir; þrátt fyrir z-una og lambið sem jarmar á móður sína; og jafn- vel þrátt fyrir kökubaksturinn hennar mömmu! M. HELGI spjall IGÆR, FÖSTUDAG, BIRTIST hér í Morgunblaðinu lítil frétt, sem sagði þó mikla sögu. Fyrir- sögn fréttarinnar var: „Toyota vill EMU-aðild Bretlands" og í fréttinni sagði m.a.: „Hiroshi Okuda stjórnarformaður jap- önsku bílaverksmiðjanna Toy- ota, hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bret- landi, ekki sízt innan íhaldsflokksins, með ummælum sínum um að gangi Bretland ekki í Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) árið 1999, kunni Toyota að íhuga að færa íjárfestingar sínar til meginlands- ins. „ Okuda sendi í gær frá sér yfírlýsingu til „skýringar" á ummælum sínum. Hann tekur þar fram, að frekari fjárfesting í Bretlandi sé einn af mörgum kostum, sem fyrirtækið hafí til athugunar. Framtíðar- fjárfestingar í Evrópu séu í skoðun og ekkert hafí verið ákveðið. Hins vegar ítrek- ar stjórnarformaðurinn þá skoðun sína, að aðild ríkja að EMU sé einn þáttur, sem Toyota muni taka tillit til við staðarval nýrra verksmiðja. Fyrir fyrirtæki, sem starfí í Evrópu, muni sameiginlegur gjaldmiðill draga úr gengisáhættu og verða ótvíræður kostur. Sérfræðingar í Tókýó segja, að með ummælum sínum hafí Okuda ýtt óþyrmi- lega við brezkum stjórnvöldum og opnað augu þeirra fyrir því, að japönsk stórfyrir- tæki hafí áhyggjur af núverandi stefnu stjómar íhaldsflokksins, sem er að „bíða og sjá“ í EMU-málinu. Um 40% af fjárfest- ingum japanskra fyrirtækja í Evrópu er í Bretlandi. Toyota er ekki fyrsta japanska fyrirtækið, sem varar Breta við að standa utan EMU. Svipaðar yfírlýsingar hafa komið frá Nissan." í Morgunblaðinu í dag, laugardag, birt- ist önnur frétt um sama mál. Þar segir m.a.: „Reuters-fréttastofan ræddi við stjómendur nokkurra alþjóðlegra fyrir- tækja, sem reka hluta starfsemi sinnar í Bretlandi. Margir þeirra sögðust hafa svip- aðar áhyggjur og Okuda en vildu ekki gefa opinberar yfírlýsingar um málið vegna þess, hversu pólitískt viðkvæmt það væri, nú þegar aðeins tæpir fjórir mánuð- ir eru til kosninga S Bretlandi. „Gjaldmiðilsmálið skiptir vissulega máli - ég held að það sé óhjákvæmilegt fyrir öll fyrirtæki sem reka starfsemi víða í Evrópu," segir brezkur forstjóri alþjóð- legs bílaframleiðanda. Hann og fleiri, sem rætt var við, tóku þó fram, að gengisá- hætta, sem fylgdi því að standa utan EMU, væri aðeins einn af fleiri áhættu- þáttum. Erlend fyrirtæki fjárfestu fyrir um 1.900 milljarða íslenzkra króna í Bretlandi á árinu 1995. Síðastliðið haust sagði Wolf- gang Roetzle, stjómarformaður BMW, í ræðu á ráðstefnu í London, að Bretland yrði „mun síður aðlaðandi“ í augum er- lendra fjárfesta, ef það stæði utan EMU. Jurgen Gehrels, framkvæmdastjóri Siemens, annars þýzks fyrirtækis, sagði á blaðamannafundi fyrir hálfum mánuði að hefði fyrirtækið vitað, að Bretland hygðist standa utan EMU, hefði það ekki hafíð byggingu hálfleiðaraverksmiðju fyrir tólf milljarða króna árið 1995: „Hefði verið ljóst, að Bretland yrði utan sameiginlegs gjaldmiðils, þegar við fjárfestum á North Tyneside hefði sú ákvörðun orðið öðru vísi.“ ísland og erlend fjár- festing ÞESSAR FRÉTTIR frá Bretlandi segja mikla sögu. Þótt brezka stórveldið, sem réð heimshöf- um og ríkjum í öll- um heimsálfum á síðustu öld, sé liðið und- ir lok, er Bretland enn mikið iðnaðar- og viðskiptaveldi. Engu að síður kunna brezk- ir stjórnmálamenn að standa frammi fyrir því, að þótt þeir af pólitískum og tilfínn- ingalegum ástæðum séu andvígir aðild Bretlands að evró, hinum sameiginlega gjaldmiðli ESB-ríkja, eigi þeir ekki ann- arra kosta völ. Fjárfestingar erlendra stór- REYKJAVÍKLJRBRÉF Laugardagur 1. febrúar fyrirtækja skipta svo miklu máli fyrir af- komu fólks'a Bretlandseyjum, að þeir geta einfaldlega ekki lokað augunum fyrir sjón- armiðum forsvarsmanna fyrirtækja á borð við Toyota, Nissan, Siemens o.fl. Viðhorf stjórnenda þessara fyrirtækja er skiljan- legt. Það verður af mörgum ástæðum kostnaðarsamt að standa utan við evró og samkeppnisstaða fyrirtækjanna versnar sem því svarar gagnvart keppinautum, sem starfa innan hiiis væntanlega evró- svæðis. Fjárfestingar erlendra fyrirtækja hafa verið mjög takmarkaðar hér á íslandi, sennilega og ekki sízt vegna þess, að við höfum sjálfír takmarkað þær m.a. með því að útiloka erlendar fjárfestingar í sjávarút- vegj. Við höfum lagt megináherzlu á að laða hingað erlend fyrirtæki til þess að byggja upp iðjuver, sem nýti orku fallvatn- anna. Við höfum ekki haft erindi, sem erfiði. Á einum aldarfjórðungi hefur okkur tekizt að fá erlenda aðila til samstarfs um bygg- ingu álvers í Straumsvík, Kísiliðju við Mývatn og Járblendiverksmiðju á Grund- artanga. Nú er hugsanlegt að breyting verði á. Stækkun álversins í Straumsvík er kom- in vel á veg. Vemlegar líkur eru á því að álver rísi á Gmndartanga. Stækkun Járn- blendiverksmiðjunnar er enn til umræðu og fyrirtækin í svonefndum Atlantsál-hóp hafa ekki viljað útiloka byggingu stórs álvers á Keilisnesi. Þá er ljóst, að viðhorf til erlendrar fjár- festingar í sjávarútvegi em að breytast. Eftir að umsvif íslenzkra sjávarútvegsfyr- irtækja urðu svo mikil, sem raun ber vitni í sjávarútvegi í öðmm löndum, í Rúss- landi, Þýzkalandi, Bretlandi, Chile, Namib- íu, á Falklandseyjum, svo að dæmi séu nefnd, hefur mönnum orðið ljóst, að við getum ekki gert einhliða kröfu til að fjár- festa í sjávarútvegi í öðmm Iöndum. Við hljótum að opna sjávarútveg okkar fyrir fjárfestingum erlendis frá. Þær verða og auðveldari fyrir erlend fyrirtæki vegna þess hversu mörg stór útgerðar- og físk- vinnslufyrirtæki em nú skráð á hlutabréfa- markaði eða eru á leiðinni þangað. Þá bryddir á ijárfestingum erlendra fyr- irtækja í íslenzkum hugbúnaðarfyrirtækj- um. Á.m.k. tvö íslenzk fyrirtæki í hugbún- aðariðnaði em nú í sterkum tengslum við erlenda fjárfesta, ef ekki fleiri. Þótt lítið fari enn sem komið er fyrir erlendum fjár- festingum í ferðaþjónustu er ekki ósenni- legt að hún komi einnig til sögunnar á næstu ámm, þegar erlendum fyrirtækjum í þessari grein verður ljóst, að blómlegur ferðaiðnaður er að festa hér rætur. Tortryggni í garð útlendinga og ótti við yfírráð þeirra í íslenzku atvinnulífí er á undanhaldi, ekki sízt vegna þess, að við íslendingar höfum öðlast aukið sjálfstraust vegna þess hversu vel margvísleg atvinnu- starfsemi á okkar vegum í öðmm löndum hefur gengið. Ný kynslóð íslendinga hefur hlotið menntun í beztu háskólum hins vest- ræna heims og raunar víðar vegna þess, að æ fleiri leita nú í háskólanám til fjarlæg- ari landa á borð við Japan t.d. Þetta unga fólk stendur algerlega jafnfætis jafnöldr- um sínum í öðram löndum. Þegar á allt þetta er litið má búast við, að stóraukin áherzla verði lögð á það á næstu áram að laða erlenda fjárfesta hing- að til lands og skapa íslenzku atvinnulífí þau skilyrði, að það verði ekki verri kostur að fjárfesta hér en víða annars staðar. Raunar hefur grundvallarbreyting orðið á að þessu leyti nú þegar. Þegar samið var um byggingu álversins í Straumsvík þurfti að leggja í flókna samningagerð á fjöl- mörgum sviðum,.þar sem hið erlenda fyrir- tæki naut sérstöðu í samanburði við ís- lenzk fyrirtæki. Slíkir samningar hafa ekki farið fram vegna væntanlegs álvers á Grundartanga vegna þess, að þeirra er ekki lengur þörf. Með sama hætti má ganga út frá því sem vísu, að íslenzk fyrirtæki haldi áfram fjárfestingum og að auka umsvif sín í öðram löndum. Hér verði um gagnkvæmni ,1 að ræða. Við ijárfestum í öðrum löndum. Útlendingar fjárfesta hér. Þessari þróun fylgir hins vegar óhjá- kvæmilega, að við munum standa frammi fyrir svipuðum spurningum og nú era komnar upp á yfírborðið varðandi aðild Bretlands að sameiginlegum gjaldmiðli Evrópu. Ef og þegar Bretar standa frammi fyrir því, að erlendir fjárfestar leita til annarra Evrópuríkja vegna þess, að þeir standi utan evró munu renna tvær grímur á þá brezku stjórnmálamenn, sem nú berj- ast gegn þátttöku í evró fyrst og fremst af tilfínningaástæðum. Við eigum eftir að standa í svipuðum sporum. ísland og evró SUMT ER HÆGT að reikna út og annað ekki. Ekki er ólíklegt, að það eigi við um áhrif sam- eiginlegs gjaldmiðils í Evrópu á efnahags- og atvinnulíf þeirra ríkja, sem þátt taka í evró. Líkurnar á því, að evró verki eins og vítamínsprauta á þessi ríki era hins vegar yfírgnæfandi. Það verður svo miklu auðveldara og kostnaðarminna fyrir fyrir- tæki að stunda viðskipti, þegar um einn og sama gjaldmiðil er að ræða og það verður miklu auðveldara fyrir einstaklinga að fara ferða sinna og stunda innkaup af margvíslegu tagi, þegar gjaldmiðillinn er sá sami. Samkeppnin á eftir að stóraukast og samanburður á verðlagi að verða marg- fallt auðveldari. Fyrir okkur íslendinga er þetta mun flóknara mál. Hér hefur verið nokkuð víð- tæk samstaða um, að sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins valdi því, að við getum ekki gerzt aðilar að ESB. Að vísu era við- horfín að breytast í þessu eins og öðru. Eftir áratuga hatrömm átök um útfærslu fískveiðilögsögu okkar til þess að tryggja yfírráð yfír auðlindinni við íslandsstrend- ur, sem brezkir og þýzkir togarar nýttu nánast til jafns við okkur, var eðlilegt og skiljanlegt, að þjóðin væri afar viðkvæm fyrir öllum umræðum um veiðar erlendra fiskiskipa innan okkar lögsögu. Sennilega hafa þessi sjónarmið eitthvað breytzt, fyrst og fremst vegna úthafsveiða okkar sjálfra. Við höfum sótt á íjarlæg mið, eins og Bretar og Þjóðveijar gerðu áður, þegar þeir fískuðu hér við land. Við geram kröfu til veiðiheimilda t.d. í Barents- hafí. Við eigum í flóknum samningavið- ræðum við aðrar þjóðir um gagnkvæmar veiðiheimildir vegna þess, að það hentar hagsmunum okkar sjálfra. Allt þetta gerir það að verkum, að hugsanlegar veiðiheim- ildir erlendra skipa innan okkar eigin lög- sögu era ekki jafn viðkvæmar og áður. Áformin um sameiginlegan gjaldmiðil ESB-ríkjanna valda því hins vegar, að við hljótum að líta á samskipti okkar við Evr- ópusambandsríkin í nýju ljósi. Eins og nú horfír era yfírgnæfandi líkur á, að evró verði að vemleika innan tveggja ára. Ekki liggur ljóst fyrir hversu mörg ríki verða aðilar að hinum sameiginlega gjaldmiðli í upphafí en líkur benda til, að þau verði fleiri en færri. Gera má ráð fyrir, að lítið sé að marka umræður um þetta mál í Bretlandi nú, svo skömmu fyrir kosning- ar. Líklegt má telja, að ný brezk ríkis- stjórn, hver sem hún verður horfist í augu við raunveruleikann, þegar þar að kemur. Hversu lengi getum við staðið utan við slíkan gjaldmiðil án þess að það valdi ís- lenzku atvinnulífi umtalsverðum erfíðleik- um? Það fylgir því töluverður aukakostnað- ur að standa utan við evró. Fyrirtæki okk- ar em í harðri samkeppni við fyrirtæki, sem starfa á evró-svæðinu. Hvenær kemur að því að þau segi við íslenzk stjórnvöld, að samkeppnisstaða þeirra sé óviðunandi? Landsmenn almennt ferðast mikið og munu kynnast því hagræði, sem fylgir sameiginlegum gjaldmiðli um alla Evrópu, auk þess sem samanburður á verðlagi verð- ur auðveldari og blasir við allra augum. Hvenær kemur að því, að hinn almenni borgari geri beinlínis kröfu til þess að njóta þess hagræðis, sem fylgir því að geta ferð- ast meira og minna um öll Evrópulönd með sama gjaldmiðil? Þetta eru sjónarmið, sem áður hafa verið reifuð hér í Reykjavíkurbréfi. En þær ábendingar, sem fram hafa komið frá er- lendum fjárfestum í Bretlandi valda því, að þriðji þátturinn bætist við. Hvenær kemur að því, að erlendir fjárfestar, sem við leitum samstarfs við segi, að því miður komi það ekki til greina vegna þess, að við stöndum fyrir utan evró-svæðið? Það er gagnslítið að loka augunum fyrir þessari þróun mála í næsta nágrenni við okkur. Fyrr eða síðar kemur að því að við komumst ekki undan því að svara spuming- um sem þessum. Við búum nú við mikið góðæri í _ efnahags- og atvinnulífí lands- manna. Á örfáum misseram hefur orðið undraverð breyting á því og sú framtíðar- sýn, sem Davíð Oddsson, forsætisráðherra, brá upp í viðtali við Morgunblaðið sl. sunnu- dag um möguleika á batnandi lífskjöram á næstu áram er raunsæ. Líkurnar á því að okkur famist vel á allmörgum næstu áram era yfírgnæfandi. Þorskstofninn er að rétta við og þorskveiðar em að aukast. Svo gæti hins vegar farið að þessi já- kvæða og hagstæða þróun stöðvist á miðri leið, ef við verðum ekki nógu fljótir að laga okkur að þeim breytingum, sem era að verða í helztu viðskiptalöndum okkar. Yfírlýsingar erlendu fjárfestanna í Bret- landi eru vísbending um, hvað að okkur gæti snúið í byijun nýrrar aldar. Þess vegna verðum við að heijast handa um að ræða og skoða þessi mál í víðu sam- hengi nú. „Ef og þegár Bretar standa frammi fyrir því, að erlendir fjár- festar leita til annarra Evrópu- ríkja vegna þess, að þeir standi ut- an evró munu renna tvær grím- ur á þá brezku stó órnmálamenn, sem nú berjast gegn þátttöku í evró fyrst og fremst af tilfinn- ingaástæðum. Við eigum eftir að standa í svipuðum sporum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.