Morgunblaðið - 02.02.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
að þessi sáttmáli skuli gerður á þjóð-
hátíðardegi íslendinga því samkvæmt
skilgreiningu hans er eyðimerkur-
myndun á 40-50% af flatarmáli ís-
lands sem er hlutfallslega með því
mesta sem þekkist. í tengslum við
þennan sáttmála verður haldin al-
þjóðaráðstefna næsta haust á Kirkju-
bæjarklaustri um jarðvegseyðingu.
Er jafnvel talið að á íslandi verði í
náinni framtíð komið á fót alþjóð-
legri rannsóknastöð jarðvegseyðingar
og eyðimerkurmyndunar og frá þess-
ari rannsóknastöð verði skipulagðar
alþjoðlegar vemdaraðgerðir.
A ráðstefnuna á Kirkjubæjar-
klaustri mæta 60-90 jarðvegssér-
fræðingar hvaðanæva að úr heimin-
um. Þá munu íslenskir starfsbræður
þeirra geta kynnt þeim ráðabrugg
Landsvirkjunar viðvíkjandi Þjórsár-
verum og líklegar afleiðingar þess
fyrir jarðveg og gróður. Það verður
dapurleg kynning því þýðing Þjórs-
árvera fyrir náttúruauðlegð íslands
og alls heimsins var staðfest með
því að þau voru tekin á svokallaða
Ramsar-skrá yfír votlendi sem hafa
alþjóðlegt mikilvægi (Convention on
Wetlands of Intemational Import-
ance especially as Waterfowl Habit-
at). Hvernig skyldi útlendingunum
á ráðstefnunni verða við þegar þeir
frétta um fyrirhugaða atlögu að
þessari víðfrægu náttúruperlu?
Kall tímans
Væntanlega mætir Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra á
þessa mikilvægu ráðstefnu. En hann
sagði í viðtali í Morgunblaðinu 29.9.
1996: „Útlendingar koma hingað til
þess að njóta okkar sérstæðu nátt-
úru. Við verðum að gæta þess að
fórna ekki ómetanlegum verðmæt-
um. Þetta þurfum við að skoða
gaumgæfilega í sambandi við virkj-
unarmál. Stærstu draumarnir í virkj-
unarmálum, sem gætu þýtt flutning
á Jökulsá á fjöllum, koma ekki til
framkvæmda í minni tíð sem um-
hverfisráðherra, svo mikið er víst.
Ég er ekki tilbúinn til að fallast á
að Dettifoss verði gerður að „túrista-
fossi" sem eitthvert vatn yrði látið
renna í svo hægt væri að sýna foss-
inn að sumri til.“ Gott.
En hvað skyldi umhverfisráðherr-
ann segja um fyrirhugaða atlögu
Landsvirkjunar að Þjórsárverum og
háskalegt og smánarlegt framlag
þessa fyrirtækis til gróðureyðingar
og frekari eyðimerkurmyndunar sem
að líkindum fylgir með í atlögupakk-
anum?
Það er kominn tími til að íslensk-
ir stjórnmálamenn í öllum flokkum
svari kalli tímans, skilji að þeir og
Landsvirkjun eru að miklu leyti á
villigötum í stóriðju- og virkjana-
áætlunum, skilji að þau viðhorf sem
Jakob Björnsson, dr. Jóhannes Nor-
dal og samheijar þeirra hafa bitið
sig í eru viðhorf gærdagsins og drag-
bítur á framtíðina, skilji að fram-
kvæmdir í anda þessara úreltu við-
horfa gera landið í senn ófýsilegt til
heimsóknar og búsetu, skilji að það
eru að verða straumhvörf, nýir tímar
og ný viðhorf að fæðast sem að
endingu munu fela í sér bjargfastan
skilning á því að ægifögur og lítt
snortin náttúra landsins er mesta
auðlind okkar og hagkvæmustu
virkjunarkostir eru þeir sem valda
minnstum spjöllum á henni, skilji að
með því að svara þessu kalli tímans
verða þeir samferða þjóðinni inn í
dögun nýrrar aldar.
Að öðrum kosti munu þeir í senn
verða viðskila við tímann og þjóðina
og stjórna gegn henni og framtíð
hennar í landinu.
Það má ekki gerast.
Höfundur er rithöfundur.
i:Sgm
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAJR 1997 31
aaaiiftisas.
Viltu styrkja stöðu þína
vinnuumhvem
Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
hagnýta þekkingu á tölvunotkun og veita þeim
innsýn í notkunarmöguleika á útbreiddustu
ritvinnslu- og töflureikniforritum sem eru
á markaðinum í dag.
Námið er 120 kennslustundir og hentar þeim
sem vilja styrkja stöðu sína
á vinnumarkaðinum.
Boðið er upp á kvöldtíma tvisvar sinnum í viku
kl. 18:00-21:30.
Námið hefst 10. febrúár
Skráning og upplýsingar
ísíma 568 5010
i\
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
j
I
I
i
!
ÞAR SEM FASTEIGNIRNAR FLJÚGA ÚT!