Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 35
MINNINGAR
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Bjami, íris Ósk, Pálmi Þór,
ElíasÞór, Magiiús Viðar,
SteinþórAmi, Ami Jón og
Eva Mjöll.
Elsku amma. Nú ert þú búin að
kveðja þetta líf og við trúum því að
þú sért farin á einhvem góðan stað
I þar sem þér líður vel. Þú ert samt
| sem áður enn hér í huga okkar og
I við munum geyma allar þær góðu
' minningar sem við eigum um þig á
sérstökum stað í hjarta okkar.
Þau skipti sem við heimsóttum þig
og afa á Grundarstíginn munu alltaf
vera okkur ofarlega í huga. Þar var
alltaf tekið vel á móti okkur. Þið afi
sátuð oft í eldhúsinu og á stuttri
stundu var galdrað fram hlaðborð,
kaffi, kökur, brauð og oft ýmislegt
i sem gladdi hjörtu okkar systkinanna.
j Síðan var spjallað um daginn og veg-
■ inn. Amma, þú vildir alltaf vita hvem-
I ig gengi hjá okkur í vinnunni og
bara með lífið almennt. Alltaf gastu
gefið okkur góð ráð og varst alltaf
tilbúin að rétta fram hjálparhönd.
Margir gullmolar komu fram af þín-
um vöram, þessir gullmolar eru ómet-
anlegir og hafa oft á tíðum hjálpað
okkur og munu öragglega verða okk-
ur gagnlegir alla ævi.
j Það var alltaf svo gaman að
> spjalla við þig og þrátt fyrir veikindi
þín, sem þú barst svo vel, varst þú
I óspör á brosin. Glaðleikinn sem
fylgdi þér leiddi gott af sér og þú
gast oft látið okkur sjá hlutina öðra
ljósi.
Elsku amma Það verður svo tóm-
legt án þín en eins og þú kenndir þá
þroskumst við á því sem við tökum
okkur fyrir hendur á þessari lífsgöngu
okkar.
Loksins ert þú búin að fá þína lang-
, þráðu hvíld sem þú óskaðir eftir und-
* ir það síðasta. Við munum alltaf elska
I þig, sakna þín og vera þér ævinlega
þakklát fyrir allt það sem þú gafst
okkur.
Við biðjum algóðan Guð um að
styrkja þig, elsku afi í þinni miklu
sorg, en mundu, þú átt okkur alltaf að.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
A grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafn síns.
Jafnvei þótt ég fari um dimman dal óttast
ég ekkert illt,
því þú ert hjá mér.
Sproti þinn og stafur hugga mig.
(Úr Daviðssálmum)
Björgvin, Rósa,
Jón Þór og Pálína.
SuðurlandsbrautlO
108 Reykjavík * Sími 553 1099
fliÉBl
Wm&m
kvöld
. 22 - eínnig um
Skrcytingar fyrír öll tílcfní.
Gjafavörur.
+
Ástkær eiginkona mín,
KRISTÍN (GÓGÓ) MAGNÚSDÓTTIR,
Ránargrund 5,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í
Garðabæ miðvikudaginn 5. febrúar kl.
13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Hlynur Ingimarsson.
t
Eiginkona mín, móðir og dóttir,
HILDUR SÓLVEIG ARNOLDSDÓTTIR
(HILDE HENCKELL)
Háaleitisbraut 18,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum að morgni
27. janúar.
Útförin fer fram í Fossvogskirkju þriðju-
daginn 4. febrúar kl. 15.00.
Sigurjón Helgason,
Helga Guðrún Sigurjónsdóttir, Hjalti Sigurjónsson,
Marfa Henckell.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Hlíf 2,
ísafirði,
sem lést 19. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórð-
ungssjúkrahússins á ísafirði.
Páll Sigurðsson,
Karitas Pálsdóttir, Baldur Geirmundsson
Kristín Pálsdóttir, Sveinn Scheving,
Júliana Pálsdóttir, Kristján Finnsson,
Guðný Pálsdóttir, Sigurður Bessason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Skilafrestur
minningargreina '
Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í
miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf grein-
in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hef-
ur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
STEFANSBLDM
LESSTEIRAR
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
MOSAIK
Hamarshöfdi 4 - Reykjavik
simi: 587 1960 -fax: 587 1986
+
Þakka auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
PÁLÍNU ÞÓRUNNAR
MAGNÚSDÓTTUR,
Grundarstíg 3,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra-
húss Reykjavíkur deild A-6.
Jón Þórarinn Sigurjónsson,
Margrét Jónsdóttir, Páil V. Björgvinsson,
Valdís Jónsdóttir, Óiafur J. Sigurðsson,
Sigurjón Jónsson, Ásta Árnadóttir,
Elín Jónsdóttir, Karl K. Bjarnason,
Guðlaug Jónsdóttir, Jón S. Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við þeim
mörgu, sem stutt hafa okkur, sent
kveðjur og sýnt hlýhug við andlát og
útför
AÐALHEIÐAR HJARTARDÓTTUR
hjúkrunarfræðings,
Klyfjaseii 20,
Reykjavik.
Fyrir hönd barna okkar og annarra
vandamanna.
Vaigeir Ástráðsson.
+
Einlægar þakkir fyrir auðsýndan vinar-
hug og samúð við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar og tengdamóður,
HELGU GUÐRÚNAR
ÞÓRÐARDÓTTUR.
Þórður Þ. Kristjánsson,
Sigríður Þ. Kristjánsdóttir,
Guðfinna K. Kristjánsdóttir,
Eyrún Ó. Kristjánsdóttir,
Ásdís J. Kristjánsdóttir,
Unnur Haraldsdóttir,
Hilmar Leósson,
Einar Ólafsson,
Helgi J. Ólafsson,
Valdimar M. Pétursson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
ARNARS ÁGÚSTSSONAR
frá Varmahlíð,
Vestmannaeyjum,
Bjarnhólastíg 1,
Kópavogi.
Elm Aðalsteinsdóttir,
Guðrún Arnarsdóttir, Magnús Axelsson,
Pátina Arnarsdóttir, Kristján Níelsen,
Ester Arnarsdóttir, Sigurður Halldórsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
TÓMASAR SIGURÞÓRSSONAR,
Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
áðurtil heimilis
i Skipholti 26,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Verkamannafélags-
ins Dagsþrúnar og starfsfólks Kirkjuhvols, Hvolsvelli.
Guðjón Tómasson, Kristín ísleifsdóttir,
Sigurþór Tómasson, Ruth Ragnarsdóttir,
Tómas Tómasson, Guðrún Elín Kaaber,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur Granda Hf. verða lokaðar mánudaginn
3. febrúar frá kl. 13-15 vegna jarðarfarar
HAFDÍSAR INGVARSDÓTTUR.
Grandi hf.