Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997
Grettir
SJAOU til,
PAO ER
UTILL NA-
UH31 OFAH
( poTTiNUM..
Tommi og Jenni
Ferdinand
BREF
TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reybjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Aðstoðarmannasj óður
Háskóla Islands
Frá Einari Skúlasyni:
NÚ ER eitt ár liðið síðan fulltrú-
ar Röskvu í Háskólaráði lögðu
fram tillögu um fjárveitingu til
aðstoðarmanna-
kerfis í Háskóla
íslands. Tillag-
an var sam-
þykkt og veitti
þarmeð nem-
endum sem eru
langt komnir í
sínu námi tæki-
færi til að gerast
aðstoðarmenn
kennara í skól-
anum. í því get-
ur falist m.a. umsjón með verkleg-
um tímum og umræðuhópum, yfir-
ferð á prófum, aðstoð við rann-
sóknir og fleira í þeim dúr. Á þessu
ári sem er liðið hefur sjóðurinn
úthlutað styrkjum í tvígang. Alls
hafa 100 umsóknir hlotið styrki
og þarmeð veitt allt að 100 náms-
mönnum tækifæri til að vinna með
kennurum við rannsóknarstörf
og/eða kennslu. Laun hvers stúd-
ents eru 63.000 kr. fyrir 150
stunda vinnu yfir misserið og hefur
því alls verið úthlutað tæplega sex
milljónum í styrki gegnum aðstoð-
armannasjóðinn. Fyrirkomulagið
er einfalt og kemur bæði nemend-
um og kennurum til góða.
Nemandinn
Nemendur læra öguð vinnu-
brögð hinum megin borðsins, oftar
en ekki undir handleiðslu færustu
vísindamanna landsins á hveiju
sviði. Hvort heldur er við rannsókn-
ir, í einfaldri kennslu eða með
umsjón á framkvæmd verkefna
nemenda. Allt þetta gerir náms-
mönnum fært að nálgast viðfangs-
efnið frá annarri hlið en teljast
má hefðbundin og ýtir undir þroska
þeirra og skilning. Það er einnig
heiður fyrir stúdent að vera valinn
til að aðstoða kennara, getur m.a.
orðið honum til framdráttar við að
sækja um skóla erlendis.
Kennarinn
Kennarinn sparar tíma, að-
stoðarmaðurinn léttir undir með
kennaranum í einföldum verkefn-
um en kennarinn getur einbeitt sér
að flóknari hlutum, þannig nýtist
tími hans betur. Það má segja að
kennarar geti frekar einbeitt sér
að þeim störfum sem hæfir þeirra
menntun og aðstoðarmaðurinn
leysir einfaldari verkefni. Einnig
má segja að aðstoðarmannakerfið
sé þáttur í að bæta samband nem-
enda og kennara. Færi þá nær
hvorum öðrum, getur valdið bætt-
ari kennslu þar sem ábendingar
nemenda eiga greiðari leið til kenn-
ara, aðstoðarmaðurinn virkar sem
milliliður á milli kennara og ann-
arra nemenda.
Aðstoðarmannakerfið
Aðstoðarmannakerfið er komið
til að vera. Bæði nemendur og
kennarar sem fengið hafa styrk
úr sjóðnum hafa lýst yfir ánægju
sinni með hann og umsóknir eru
fleiri en hægt er að styrkja og um
mun hærri upphæðir en möguleik-
ar eru á að veita. í ljósi þess hafa
fulltrúar Röskvu í Háskólaráði
lagt fram tillögu um hækkaðar
fjárveitingar til sjóðsins á haust-
misseri og samkvæmt viðtökunum
sem sú tillaga fékk í háskólaráði
er fyllsta ástæða til að vera bjart-
sýn með framhaldið.
EINAR SKÚLASON
stjómmálafræðinemi í HÍ og fulltrúi
nemenda í stjóm aðstoðarmannasjóðs.
Einar
Skúlason
Starf fyrir syrgjendur í
Selljarnarneskirkju
Frá Solveigu Láru Guðmundsdóttur:
í ÁRSBYRJUN 1991 hófst á veg-
um Seltjarnarneskirkju starf fyrir
syrgjendur. Starfið er í því fólgið
að ár hvert í byijun febrúar er
boðið til opins umræðufundar um
sorg og trú. í framhaldi af fundin-
um gefst fólki tækifæri til að skrá
sig í umræðuhóp, sem takmarkast
af 10 manns og stendur starfið
yfir í 10 vikur. Stuðst er við bók
sr. Karls Sigurbjörnssonar „Til
þín, sem átt um sárt að binda“, en
í henni eru tíu kaflar, sem lagðir
eru til grundvallar umræðunum í
hópnum, sem þó einkennast af
persónulegri reynslu þeirra, sem í
hópnum eru.
Nú hafa sex hópar verið starf-
ræktir, en sjöundi hópurinn fer nú
af stað. Því er boðað til opins fund-
ar um sorg og trú í Seltjarnarnes-
kirkju miðvikudaginn 5. febrúar
kl. 20.30. Sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir sóknarprestur Sel-
tjamarneskirkju ræðir þar um
sorg og sorgarviðbrögð og um það
hvernig unnið er í sorgarhópnum.
Á eftir verður rætt um efnið auk
þess sem kona úr sorgarhópnum
frá í fyrra segir frá reynslu sinni
af starfinu. Að fundinum loknum
tekur sr. Solveig Lára á móti þeim,
sem hyggjast skrá sig í hópinn,
sem fundar á miðvikudagskvöld-
um í vetur og hefst hópstarfið 12.
febrúar. Seltjamarneskirkja vill
mæta þeim stóra hópi fólks, sem
um sárt á að binda, með þessu
starfi, sem er markvisst uppbygg-
ingarstarf til að lifa við þann missi,
sem syrgjendur hafa orðið fyrir í
lífínu.
SR. SOLVEIG LÁRA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
sóknarprestur á Seltjarnarnesi.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjóm 569 1329, fréttir 569 1181, fþrótt.ir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG:
MBL<a>CENTRUM.lS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.