Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 41
<
4
4
4
(
4
(
<
4
<
<
BRÉF TIL BLAÐSINS
Verktakar og vinnuskilti
þeirra - Varúð
Frá Guðrúnu Jóhannsdóttur:
AÐ KVÖLDI 22. október sl. var
leiðindaveður, rok og rigningar-
mistur. Faðir minn ók Nissan
Micra-bfl sínum, AP-325, austur
Miklubraut og Vesturlandsveg að
frárein að Reykjanesbraut. Við
þessa hliðarakrein er lítil eyja og
höfðu framkvæmdir átt sér stað
af allmörgum verktökum á vegum
borgarinnar. Þar sem bíllinn kemur
akandi í áttina að fráreininni og
ætlar inn á Reykjanesbraut, lendir
„felga“ undir bflnum, lyftir honum
upp að framan og framdrifínn bíll-
inn lendir stjómlaus upp á áður-
nefnda eyju. Þegar að er gáð, kem-
ur í ljós að á felgunni er festur
rörbútur með áfestu skilti neðar-
lega á rörinu „þrenging til vinstri".
Þá lá þetta skilti á götunni með
merkið niður, þannig að engin
leið var að koma auga á það á
blautri götu í þessu skyggni. Það
skal tekið fram að bíllinn ók á
fullkomlega löglegum hraða.
Undirvagn bílsins skemmdist
töluvert og varð af þessu allmikið
tjón. Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu gatnamálastjóra var
um nokkuð marga verktaka að
ræða á þessu svæði, en viti menn!
- enginn vildi eiga skiltið. Og
ekki borgin heldur. En einhvertók
það samt til handargagns.
Það voru tvö vitni að þessum
atburði sem staðfestu skriflega
framburð ökumannsins um að-
stæður og sáu hvað gerðist en sáu
engin skilti heldur fyrr en allt var
um garð gengið. Þar sem enginn
veit, eða getur sannað skiltið á
eiganda sinn eða hvar það er nið-
urkomið núna, lendirtjónið á öku-
manni skv. úrskurði tryggingafé-
lagsins, sem reyndar er sama
tryggingafélag og Reykjavíkur-
borg notar. Borgin er ekki heldur
ábyrg fyrir verktökum sínum og
athöfnum þeirra að þessu leyti.
Sem sagt, það er alveg sama
hvernig umferðarskiltin eru stað-
sett úti í umferðinni, á götunni,
hvort hægt sé að koma auga á
þau yfirleitt á ferð eða ekki; skilt-
ið er alltaf í rétti, sérstaklega ef
enginn vill eiga það!
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR,
Hrafnhólum 6, Reykjavík.
GAUTLAND 9 Opið hús - Opið hús
Björt og falleg 2ja herb. í
íbúð í Fossvogi til sölu
jf&J og sýnis á sunnudag
milli kl. 14-17.
á Verið velkomin.
Ársalir ehf. - fasteignasaia Lágmúla 5, 108 Reykjavík, sími 533-4200, 892- 0667, 567-1325.
IMtrgamlblalíilr -kjarni málsins!
hefst á morgun
10-70% afsláttur
Franz Schu-
berts minnst
Frá Baldri Símonarsyni:
ÞEGAR þessar línur eru ritaðar,
31. janúar, eru liðnar tvær aldir
frá fæðingu Franz Schuberts. Fátt
hefur veitt mér unaðslegri ánægju-
stundir en að hlýða á tónlist hans,
og ég veit að ég er ekki einn um
slíka reynslu.
Ríkisútvarpið minnist afmælis-
ins með veglegum hætti alla þessa
viku í þættinum Tónstiganum, með
síðasta lagi fyrir fréttir, í síðdegis-
þættinum Víðsjá og víðar. Einka-
reknu stöðvarnar sem senda út
sígilda tónlist láta sitt ekki eftir
liggja. En hvað gerir áhrifamesti
fjölmiðillinn, íslenska sjónvarpið? Á
dagskrá þess í kvöld er Mynd-
bandaannáll 1996. Sveiattan! Vel
hefði verið unnt að senda út stutt-
an sjónvarpsþátt með tónlist Schu-
berts síðdegis nú á sunnudag, ef
vilji og áhugi væru fyrir hendi.
Við eigum fjölmarga söngvara og
hljóðfæraleikara sem eru svo hand-
gengnir Schubert, að sómi er að
túlkun þeirra á verkum meistarans.
Reyndar þykir mér hér vera á
ferð einungis enn eitt einkenni
þess almenna og algera menning-
ar- og metnaðarleysis sem ein-
kennir íslenska dagskrárgerð í
sjónvarpi.
Það er óþarfi að líta á dagskrá
ruglstöðvanna, sem ég held að
Markús Örn Antonsson hafi kallað
myndbandaleigur með heimsend-
ingarþjónustu.
Forvitnilegt væri að fá skýringar
frá forsvarsmönnum íslenska sjón-
varpsins.
BALDUR SÍMONARSON,
lífefnafræðingur og tónlistarunnandi.
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrír WINDOWS
Sjáðu nýjan frábæran
hugbúnað:
W\ KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
,c/n 0r<u>eítScarulúumia/
Heimili
að heiman í
Kaupmannahöfn
„Nokkrar vikur lausar"
Enn eru nokkrar vikur lausar í vönduðum
ferðamannaíbúðum miðsvæðls í
Kaupmannahö/h. Allar íbúðimar eru með
sér baði 03 eldhúsi. Haföu samband við
ferðaskrifstofuna þína eða
In Travel Scandinavia
Fredriksberssade 34
1459 Kaupmannahöfn K
Slmi+45 3312 3330 • Telefax 3312 3103
Einkaumboð fyrir Siemens á íslandi
Nú á sérstöku kynningarverði:
_______39.900,- Itr- stgr.
Bjóðum fjölbreytt og vandað úrval símabúnaðar- símstöðvar,
símtæki, GSM-farsíma og þráðlausa síma fyrir einstaklinga,
heimili og fyrirtæki. Metnaðarfull þjónustudeild.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000
Nýjasti GSM-farsíminn frá Siemens, S6,
er einstaklega léttur (165 g), þunnur (16/22 mm)
og meðfæriiegur.
Hljómgæðin í S6 eru framúrskarandi.
SIEMENS
Nýjajsti GSM;
íarsiminn íra
Siemeps en
einn sa pilra
nettasti a
markaðnum.
textil line
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Faxafeni 12»Sími: 588 1160
Fasteignasalan Suðurveri ehf.
Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sími 581 2040 Fax 581 4755
Fersk fasteignasala
Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson,
Helgi Hákon Jónsson, viöskiptafr. og löggiltur fasteignasali.
Vantar atvinnuhúsnæði á söluskrá.
Vantar 2ja til 3ja herb. íbúðir.
Vantar sérhæðir á skrá.
Seltjarnarnes.
Ótrúlega vel viðhaldið parhús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr. Hvor hæð
er rúml. 100 fm og mætti hugsanlega skipta i tvær íbúðir.
Hafnarfjörður.
Verslunar- og iðnaðarhús samtals 377,6 fm. Skiptist í 4 sjálfstæða eignarhluta, sem
skiptast í tvö verslunarrými, iðnaðar- og geymslurými auk 40 fm bílageymslu. Húsnæðið
er allt í leigu og selst gjarnan í einu iagi. Ásett verð kr. 16 millj.
IBUÐ A EFRI HÆÐ
Ákveðið er að halda áfram verkefninu íbúð á
efri hæð. Tilgangurinn með verkefninu er að
breyta auðu og illa nýttu húsnæði í miðborg
Reykjavíkur í íbúðir.
--------• Miðað er við svæðið frá
Hlemmi að Aðalstræti - Grettisgötu að Skúlagötu.
Húseigendur sem áhuga hafa á þátttöku í
verkefninu sendi umsóknir til skrifstofu
Þróunarfélags Reykjavíkur, Kirkjutorgi 4, 101
Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 1997.
Þróunarfélag Reykjavíkur