Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Lokaö mánudaginn 3. febrúar
Útsalan
hefst á þriðjudaginn
T
kl. 8.00
öppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 552 1212.
f
t
i
í
t
Sævangur - einb.
Nýkomin í einkasölu þessi stórglæsilega húseign með innb. tvöf.
bílskúr. Samtals 354 fm. Um er að ræða eitt allra glæsil. húsið í
Hafnarfirði. Arinn og kamína. Sólskáli. Útsýni. Frábær staðsetning
í hrauninu. Nánari uppl. gefur Helgi á skrifst. 46920.
Upplýsingar hjá
Hraunhamri, fasteignasölu,
sími 565 4511.
Heildar jóga
jóga fyrir alla
Heildarjóga (grunnnámskeið)
Kenndar verða hatha jógastöður, öndun,
slökun og hugleiðsla. Fjallað verður um
jógaheimspekina, mataræði o.fl.
Mán. og mið. kl. 20:00. Hefst 12. feb.
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga
í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar
verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið
frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking
á jóga nauðsynleg. Takmarkaður fjöldi.
Helgarnámskeið 14.,15. og 16. feb.
Anna Dóra
Ásmundur
Y06A#
STUDIO
Hagstætt verð
Hátúni 6a
Sími 511 3100
í sambandi vib neytendur
frá morgni tii kvölds!
- kjarni málsins!
SKAK
Hvítur mátar í 8. leik.
STAÐAN kom upp á
„Anibal Open“ í Linares
á Spáni í janúar. Króatinn
Bogdan Lalic (2.585) var
með hvítt og átti leik, en
Becerrra Rivero (2.510)
hafði svart.
23. Hxf7+! - Kxf7 24.
Dfl+ — Kg6 (Eina leiðin
til að fresta mátinu) 25.
Df6+ og svartur gafst
upp, því hann sá fram á
lokin 25. - Kh5 26. Be2+
- Bf3 27. Bxf3+ - Hg4
28. Bxg4+ — Kxg4 29.
h3+ — Kh5 30. g4 mát!
Stórmótið í Linares í
ár á að fara fram frá 3.
til 17. febrúar. Eftirtaldir
eru skráðir til leiks: Ka-
sparov (2.795), Karpov
(2.760), Anand (2.765),
Ivantsjúk, (2.740), Ni-
kolic (2.655), Adams
(2.660), Júdit Polgar
(2645), Drejev (2.650),
Gelfand (2.700), Topalov
(2.725), Kramnik (2.740),
Shirov (2.690). Karpov
hefur þó sagt að hann
hafi aldrei undirritað
neinn samning um þátt-
töku og ætli ekki að tefla.
Hann er í framboði í kosn-
ingum til rússnesku Dú-
munnar þann 9. febrúar.
Hraðmót Hellis
mánudagskvöld kl. 20 í
Þönglabakka 1 í Mjódd,
3. hæð (hjá Bridgesam-
bandinu).
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Spakir refir
óskast
VELVAKANDI sæll.
Hér er smáklausa sem
ég yrði þakklátur að fá
birta í blaðinu.
Tveir breskir kvik-
myndatökumenn eru
væntanlegir hingað til
lands nú í febrúar vegna
kvikmyndar sem BBC er
að gera um náttúru ís-
lands. Meðal efnis sem
ætlunin er að mynda eru
refír. Þegar hefur verið
tekið talsvert af efni um
refí að sumarlagi, en nú
er ætlunin að ná mynd-
um af þeim í íslensku
vetrarríki. Bretarnir hafa
óskað eftir upplýsingum
um staði þar sem refír
eru mannvanir, t.d ef
vera kynni að þeim væri
gefið, og hægt væri að
mynda þá. Allar upplýs-
ingar af þessu tagi eru
kærkomnar og má koma
á framfæri við:
Árna Einarsson,
Túngötu 34, Reykjavík
Skírn á
veitingastað
OFANRITUÐ fyrirsögn
var á lítilli fréttaklausu
myndskreyttri sem birt-
ist í Mbl. fímmtudaginn
30. janúar og fjallaði
um nafnbreytingu á
veitingastað. Hvemig
er málvitund blaða-
manna og prófarkales-
ara biaðsins? Hvemig
er komið fyrir blaði allra
landsmanna? Svar ósk-
ast?
Sigurður St.
Pálsson.
Tapað/fundið
Dúkkukerru-
poki fannst
DÚKKUKERRUPOKI
með blúndu, munstrað-
ur, fannst í Skipholti 30.
janúar sl. Upplýsingar
í síma 551-4164.
Dýrahald
Kettlingur fannst
KRAKKAR í Hagaskóla
fundu kettling sem villt-
ist inn í skólann. Hann
er svartur með hvítum
loppum. Hann er merkt-
ur með hálsól sem á
stendur Moli og síðustu
tölur í símanúmeri sem
eru 162. Upplýsingar í
síma 552-6219, hjá
Unni Völu.
Víkveiji skrifar...
A
ISLAND væri ekki byggilegt án
sjávarauðlindanna. Sjómenn,
sem sækja lífskjör landsmanna, eða
dijúgan hluta þeirra, í sjávardjúp,
mega gjarnan búa við betri kjör en
meðallandkrabbinn. Annað mál er,
að mati Víkveija, að allir landsmenn
eiga að hafa janfstöðu gagnvart
landslögum, skattalögum sem öðr-
um.
Fyrir skömmu svaraði fjármála-
ráðherra fyrirspum á Alþingi um
sjómannaafslátt við álagningu
skatta árið 1996. í svari ráðherrans
kom fram að sjómannaafsláttur til
tæplega níu þúsund einstaklinga
hafi numið hvorki meira né minna
en rúmum einum og hálfum millj-
arði króna. Dálaglegur afsláttur
það.
Víkveiji getur verið samþykkur
því að þessi sjómannaafsláttur, svo-
kallaður, sé hluti af kjörum sjó-
manna. Hins vegar vefst fyrir hon-
um réttmæti þess að almennir
skattgreiðendur séu látnir axla
hluta af launakostnaði kvótahafa,
sem stundum eru kallaðir sægreif-
ar. Nóg er nú samt undir þá mulið.
xxx
LANDBÚNAÐUR gegnir mikil-
vægu hlutverki í þjóðarbú-
skapnum og hefur gert í þúsund
ár. En margt hefur breytzt síðan
byggð var hér reist, eins og skáldið
kvað á sínum tíma. Meðaljónarnir,
sem bera skattabagga samfélags-
ins, horfa ár hvert á eftir nokkrum
milljörðum króna til landbúnaðar-
ins, í einni eða annarri mynd, ef
marka má fjárlög síðustu ára. Þurfa
ofan í kaupið að fara utan, segja
illkvittnir, til að kaupa ódýra bú-
vöru. Fjórðungur af verði nayðsynja
fólks er reyndar skattur í ríkishít-
ina.
Landbúnaðarráðherra svaraði í
vetur fyrirspurn á Alþingi um bein-
greiðslur, svokallaðar, til bænda,
greiddar á síðasta verðlagsári, eins
og það heitir á kerfiskarlamáli.
Þessar beingreiðslur námu tæpum
fjórum milljörðum króna það árið.
Sundurliðun eftir kjördæmum:
Reykjanes 45,9 m.kr., Vesturland
581,7 m.kr., Vestfirðir 239 m.kr.,
Norðurland vestra 653,7 m.kr.,
Norðurland eystra 895,1 m.kr.,
Austfirðir 383,8 m.kr., Suðurland
1.180 m.kr. - Samtals 3.980 m.kr.
Beingreiðslur þessar eru eins og
flest önnur mannanna verk umdeil-
anlegar. Þær eru þó að mati Vík-
veija skárra kostur en fyrri tíðar
fjárstreymi í „landbúnaðarmilliliði",
sem reyndist bæði bændum og neyt-
endum dýrt spaug.
xxx
ALÞINGI ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta fara
írám víðtæka úttekt á hávaða- og
hljóðmengun hérlendis og leggja
fyrir næsta þing niðurstöður henn-
ar og tillögur til úrbóta." Þannig
hljóðar tillaga til þingsályktunar
sem sex þingmenn úr öllum þing-
flokkum hafa lagt fram á þingi.
Þetta er þörf tillaga enda fer
hávaði og hljóðmengun mjög vax-
andi síðustu árin. í greinargerð
segir: „Hljóðmengun yfir ákveðn-
um mörkum getur verið heilsuspil-
landi, valdið skemmdum á heyrn,
auk truflunar og margvíslegra sál-
rænna áhrifa sem valdið geta and-
legri vanlíðan.“
í greinargerðinni segir og: „Tal-
ið er að allt að 1.700 íbúðir í
Reykjavík séu þannig staðsettar
að hávaði við húsvegg sé óleyfileg-
ur og dæmi eru um svo mikinn
hávaða í íbúðarhúsnæði að heilu
fjölskyldurnar sofa ekki á nóttunni
nema með því að taka sterkar
svefntöflur."
Víkveiji man ekki betur en R-
listaforkólfar hafi haft hátt [þótt
þeir hafi kannski ekki farið yfir
hávaðamörk] um hinn mannlega
þátt borgarsamfélagsins: nauðsyn
þess að ramminn um mannlífið sé
fagui', ljúfur og a.m.k. viðunandi.
Þar var á hinn bóginn hvergi ýjað
að þessháttar umhverfi, „að heilu
fjölskyldurnar sofi ekki á nóttunni
nema með því að taka sterkar
svefntöflur". En eitt er að lofa upp
í ermina á sér, annað að standa
við stóru orðin.