Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 51 X.
Ferða-
menn í
snjóflóða-
hættu
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
I og Slysavarnafélags íslands stend-
' ur fyrir opnum fræðslufundi um
mat á snjóflóðahættu fyrir ferða-
og fjallamenn í Reykjavík þriðju-
daginn 4. febrúar kl. 20. Fundurinn
verður haldinn í húsi Flugbjörgun-
arsveitarinnar í Reykjavík.
Markmið námskeiðsins er að
veita þátttakendum dýpri skilning
, á eðli snjóþekjunnar, breytingum á
henni og kynna mönnum rétt leið-
arval með tilliti til snjóflóðahættu.
| Einnig verður fjallað um notkun
' snjóflóðaýla.
Allir þeir sem ferðast mikið að
vetri til hvort sem er gangandi, á
vélsleðum eða á öðrum farartækjum
eru hvattir til að mæta.
Þátttökugjald er 1.000 kr. og er
fræðslurit um mat á snjóflóðahættu
innifalið í þátttökugjaldinu.
í ------------------------
I Námskeið um
samskipti hjóna
og sambandið
við Guð
BIBLÍU SKÓLINN við Holtaveg
. gengst fyrir námskeiðinu Samskipti
' hjóna og sambandið við Guð nk.
I laugardag 7. febrúar kl. 13-17.
^ „Á námskeiðinu verður fjallað
um hvernig hjón geta styrkt sam-
band sitt og stutt hvort annað og
eflingu hins trúarlega þáttar í
hjónabandinu. Umsjón með nám-
skeiðinu hafa þau Halla Jónsdóttir,
deildarstjóri á fræðsludeild Þjóð-
kirkjunnar, sr. Ólafur Jóhannsson,
sóknarprestur og Þóra Harðardótt-
ir, kennari. Námskeiðið er öllum
opið en námskeiðsgjald er 500 kr.
1 fýrir einstaklinga," segir í fréttatil-
{ kynningu.
fyrir WIND0WS
Á annað þúsund
notendur
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
1 Smiðjuvegi 2 .Kópavogi
1 Slmi 567 21 10
FRÉTTIR_________
Skorað á um-
hverfisráðherra
MENNINGAR- og friðarsamtök
kvenna hafa sent Guðmundi
Bjarnasyni umhverfisráðherra eft-
irfarandi áskorun:
„Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna skora á þig, hátt-
virtur ráðherra, að koma í veg fyr-
ir það umhverfisslys að endurreist
verði hér, á fögru landbúnaðar- og
ferðamannasvæði, álverksmiðja,
sem verið er að loka í Þýskalandi
vegna mengandi útblásturs.
Staðfest hefur verið af Hollustu-
vernd að mengunarvarnarbúnaður
Járnblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga hafi verið bilaður í 2 ár.
Þar fara því hundruð tonna af eitur-
efnum á ári út yfir nærliggjandi
byggðir gegnum óvirkan hreinsi-
búnað verksmiðjunnar. Engin við-
urlög eru hér á landi við því að
brjóta annars mjög rúmar reglur
gegn mengun enda eru mengunar-
mælingar í höndum þeirra sem
menga þ.e. verksmiðjueigenda.
Að fenginni reynslu má augljóst
vera að fleiri slík mengunarver eiga
ekkert erindi í viðkvæma náttúru
Hvalfjarðar. Því skorum við á þig,
háttvirti ráðherra, að leggja þitt lóð
á vogarskál lífs gegn landeyðingu,
svo að hér um slóðir megi áfram
verða til óspillt náttúra og önnur
störf bjóðist afkomendum okkar en
efnaverksmiðjuþrældómur á fyrir-
huguðu stóriðjusvæði íslands í
Hvalfirði. Almennir borgarar þessa
lands hafa fráleitt beðið um fleiri
slík atvinnuúrræði né heldur að enn
stærri svæðum á okkar dýrmæta
hálendi verði sökkt vegna orkuöfl-
unar handa þessum eiturverum."
EIGENDUR SPARISKlRTEINA
Sjóður 5: stærsti
eignarskattsfrjálsi sjóðurinn
Sjóður 5 fjárfestir í spariskírteinum og öðrum
ríkisverðbréfum. Þannig má fá hærri ávöxtun
en ef eingöngu er fjárfest í spariskírteinum.
Alltaf er hægt að innleysa sjóðsbréf án
þóknunar. Sjóður 5 hefur lægsta rekstrar-
kostnað eignarskattsfijálsra sjóða, og það eykur
ávöxtun hans.
* Egnarskattsfrelsi.
* Öryggi - 100% ábyrgð rikissjóðs.
* Lágur rekstrarkostnaður.
* Hægt að innleysa í hvaða fjárhæðum sem er.
4« Alltaf innleysanleg - enginn fastur gjalddagi.
* Stærsti eignarskattsfrjálsi sjóðurinn.
* 9,1% nafnávöxtun frá upphafi, sl. 5 ár.
Hlutabréfasjóðurinn hf.:
stærsti hlutabréfasjóðurinn
Hlutabréfasjóðurinn hf. á hlutabréf i fyrir-
tækjum í flestum greinum íslensks atvinnulífs.
Sjóðurinn þárfestir einnig í skuldabréfum til
að auka stöðugleika í ávöxtun. Hann hefur
lægsta rekstrarkostnað sem vitað er urn meðal
íslenskra hlutabréfasjóða, og það eykur
ávöxtun til hluthafa.
4« Elsti og stærsti hlutabréfasjóðurinn.
* Fjölmennastur hlutabréfasjóða.
4« Alltaf hægt að selja bréfin án þóknunar.
* Góð eignadreifing.
* Tekjuskattsfrádráttur.
* Lægsti rekstrarkostnaðurinn.
4« 17,3% nafnávöxtun frá upphafi
Núna er að birtast Jjöldi auglýsinga um það hvað þú getur
gert við spariféð þitt þegar spariskírteinin hafa verið innleyst.
Möguleikarnir skipta tugum. Við hjá VIB á Kirkjusandi og
verðhréfafulltmar í útibúum Islandsbanka munum með ánœgju
aðstoða þig við að komast að raun um hvað hentar þér best.
Verið velkomin í VÍB
VIB
I
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.
Y