Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Flutningar af landsbyggð hafa alvarlegar afleiðingar fyrir búsetu í landinu
Skammsýni ef stjómvöld
spyma ekki við fótum
NAUÐSYNLEGT er að mati Þor-
steins Gunnarssonar rektors Há-
skólans á Akureyri að skapa enn
sterkari valkost við fræðilega slag-
síðu háskólamenntunar hérlendis
og að jákvætt mótvægi verði skap-
að við þá miklu fjárfestingu sem
fyrirhuguð er á höfuðborgarsvæð-
inu, sem gæti hraðað búferlaflutn-
ingum með afdrifaríkum hætti frá
landsbyggð til höfuðborgar verði
ekkert að gert. Háskólinn á Akur-
eyri hefði ekki pólitískt umboð til
að undirbyggja slíkar aðgerðir, en
hann væri reiðubúinn að bjóða
stjórnvöldum fram sérfræðiþekk-
ingu sína og reynslu tii að hrinda
slíkum aðgerðum í framkvæmd.
Háskólarektor gerði byggða-
röskun síðustu tíu ára að umtals-
efni er hann setti opið hús Háskól-
ans á Akureyri um helgina, en tíu
ár verða næsta haust liðin frá því
háskólinn var fyrst settur.
Ónauðsynlegir fólksflutningar
Þrátt fyrir umtalsvert framboð
atvinnu hefur fólki fækkað í nær
öllum landsbyggðarkjördæmum
utan Norðurlands eystra sem
nokkurn veginn hefur haldið sín-
um hlut. Á sama tíma, eða síðustu
tíu árum, hefur fólki fjölgað um
26.500 á höfuðborgarsvæðinu.
„Brottflutningur ungs hæfileika-
fólks frá landinu er einnig vaxandi
áhyggjuefni. Almennt séð eru
þessir einhliða fólksflutningar
ónauðsynlegir og munu hafa al-
varlegar afleiðingar fyrir búsetu í
landinu ef stjórnvöld grípa ekki
til aðgerða til úrbóta. Lífvænlegt
mannlíf og atvinnulíf á lands-
byggðinni er ein af mikilvægustu
undirstöðum þess að hér á landi
verði rekið til frambúðar háþróað
nútímasamfélag og þess vegna
væri það mikil skammsýni ef
stjórnvöld spyrntu ekki við fótum
og settu fram raunhæfa valkosti
í byggðamálum," sagði Þorsteinn.
Tvennt skortir helst á lands-
byggðinni að hans mati, viðunandi
samgöngukerfi og beinan og skil-
virkan aðgang að háskólamenntun
og rannsóknarstarfi.
Mikil uppbygging orkufreks
iðnaðar er fyrirhuguð á suðvestur-
horni landsins en háskólarektor
sagði Ijóst að staðarval fyrir stór-
iðjuver væri ekki háð duttlungum
erlendra athafnamanna, heldur
væri það á ábyrgð íslenskra stjórn-
valda. Þau bæru einnig ábyrgð
gagnvart þeim íbúum sem ekki
nytu nálægðar við þessi umsvif,
því væri nauðsynlegt að stjórnvöld
byðu landsbyggðarbúum þær úr-
bætur að háskólamenntun og
rannsóknir í þágu atvinnulífs á
landsbyggðinni yrðu efldar. Til að
þessi kostur verði raunhæfur þurfi
auknar fjárveitingar frá opinber-
um stofnunum og atvinnulífi, til-
færslu og endurskipulagningu
stofnana og hagnýtingu upplýs-
ingatækni t.d. í þágu fjarkennslu.
„Að mínum dómi er ljóst að grípa
þarf til sérstakra aðgerða til að
skapa skilvirkan aðgang að há-
skólamenntun á þeim landsvæðum
sem nú eru í mestri fjarlægð frá
háskólastarfi, þ.e. Austurlandi og
Vestfjörðum."
Rottur um borð í
rússnesku skipi
Fær ekki
að leggj-
astað
bryggju
STAÐFEST hefur verið að
rottur eru um borð í rúss-
neska skipinu Opon sem fyr-
irhugað er að fari í umfangs-
miklar endurbætur hjá Slipp-
stöðinni. Skipið hefur legið á
Pollinum frá því um helgina.
Þegar eru hafnar aðgerðir til
að útrýma rottunum úr skip-
inu en sóttvarnarnefnd Akur-
eyrar kemur saman til fundar
í dag, þriðjudag, þar sem
staðan verður metin og vænt-
anlega ákveðið hvort skipið
fái Jeyfi til að koma að landi.
Ólafur H. Oddsson héraðs-
læknir fór ásamt meindýra-
eyðum og fulltrúa bæjarins
um borð í skipið um helgina
og var þá staðfest að rottur
væru um borð. Ólafur sagði
að aðgerðir til að útrýma
þeim hefðu þegar hafist og
fóru meindýraeyðar að nýju
út í skipið í gær.
Ólafur sagði að um væri
að ræða venjubundnar að-
ferðir í tilvikum sem þessu,
væri vitað um rottur um borð
í skipum ykist hætta á að þær
færu í land um leið og lagst
væri að bryggju. „Ástæðan
fyrir því að við erum að eyða
rottunum eru þær, að þær eru
taldar bera með sér sótt-
kveikjur. Þegar uppgötvast
að rottur eru í skipum er
þeim ævinlega eytt áður en
skipin fá að koma að landi,“
sagði Ólafur.
Forseti íslands heiðursgestur 1 Háskólanum á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
INGVAR Teitsson doktor við heilbrigðisdeild Háskólans á Akur-
eyri athugar blóðþrýsting forseta íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar á opnu húsi háskólans um helgina.
Mikil að-
sókn að
opnu húsi
MJÖG GÓÐ aðsókn var að opnu
húsi Háskólans á Akureyri um
helgina en heiðursgestur var
forseti íslands herra Ólafur
Ragnar Grímsson og eiginkona
hans frú Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir.
Deildir háskólans, heil-
brigðisdeild, sjávarútvegsdeild,
kennaradeild og rekstrardeild
kynntu starfsemi sína m.a. með
fyrirlestrum, tilraunum og sýn-
ingum. Nemendur kynntu verk-
efni sem unnin hafa verið við
deildirnar og þá var boðið upp
á veitingar.
Forsetinn ífínu formi
Forsetinn var einn þeirra
sem Iétu mæla hjá sér blóðsyk-
ur, blóðþrýsting, kólesteról og
þanþol lungnanna og segir dr.
Sigríður Halldórsdóttir for-
stöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri að mæl-
ingarnar hafi leitt í ljós að for-
setinn sé í góðu líkamlegu
formi. „Það er ólíku saman að
jafna, heilsufari forsetanna á
Islandi og Rússlandi, enda líf-
stíll þeirra um margt ólíkur,“
segir Sigríður. Útkomuna sagði
hún meðmæli með þeim lífsstíl
sem Ólafur Ragnar hefði til-
einkað sér, hófsemi í mat og
drykk og góðri hreyfingu.
„Það er jákvætt hversu
margir íslenskir stjórnmála-
menn hafa þekkt sinn viljunar-
tíma varðandi heilbrigðan lífs-
stíl, það er mikilvægt því þeir
sem eru tíðir gestir í fjölmiðlum
verða ósjálfrátt ákveðnar fyrir-
myndir.“
Hjálpræðisherinn safnar fötum til hjálparstarfs
Langt komið með
að fylla gáminn
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akur-
eyri er nú að ganga frá fatnaði
sem fer til hjálparstarfs erlendis.
Um er að ræða góðan fatnað sem
ekki hefur gengið út á fatamark-
aði hersins, því þó eftirspurnin
eftir notuðum fatnaði hafi stór-
aukist undanfarin misseri er fram-
boðið enn meira.
Fatnaðurinn mun í fyrstu fara
til Noregs, en þar rekur Hjálp-
ræðisherinn stórt fyrirtæki sem
hefur sérhæft sig í að flokka fatn-
að og senda til hjálparstarfs, aðal-
lega til Austur-Evrópu og Afríku.
Sá fatnaður sem ekki þykir hæfa
til hjálparstarfs er tættur niður
og notaður sem vatt í sængur sem
Hjálpræðisherinn framleiðir fyrir
Sameinuðu þjóðirnar og eru notað-
ar í flóttamannabúðum víða um
heim. Sængumar hafa fengið góða
útkomu í prófunum. I fyrstu verða
framleiddar um tvö hundruð þús-
und sængur á ári, en S.Þ. vonast
til að framleiðslan geti orðið enn
meiri eða um átta hundruð þúsund.
Gámurinn alveg að fyllast
Nú vantar aðeins herslumuninn
á að búið sé að fylla 20 feta gám
sem fer utan á morgun, miðviku-
dag. Erlingur Níelsson hjá Hjálp-
ræðishernum sagði að lítið vantaði
til að gámurinn færi troðfullur af
fötum burtu frá Akureyri. Eimskip
mun flytja gáminn utan án endur-
gjalds „og þann velvilja viljum við
nýta okkur til fullnustu með því
að senda gáminn fullan til Nor-
egs,“ sagði Erlingur. Hann vildi
því hvetja þá sem ættu heilleg föt
inni í skáp hjá sér, en eru hættir
að nota þau, að koma með þau í
húsakynni Hjálpræðishersins við
Hvannavelli 10 á Akureyri í dag,
þriðjudag fyrir kl. 17
Hnefarétt-
urinn lát-
inn ráða
í MÖRG horn hefur verið að
líta hjá lögreglunni á Akur-
eyri síðustu daga.
Fimm manns voru að-
stoðaðir við að komast á
slysadeild FSA, en þeir höfðu
ýmist meiðst í slagsmálum
eða við óhöpp í samkomuhús-
um. Höfð voru afskipti af all-
mörgum sem létu hnefarétt-
inn ráða í miðbænum um
helgina.
Einn var kærður fyrir að
kasta af sér vatni á gangstétt
í miðbænum, en lögreglu-
menn verða af og til varir við
slíkt athæfi. í framtíðinni er
fullvíst að menn verði í aukn-
um mæli kærðir fyrir slíkt,
enda með öllu óheimilt sam-
kvæmt lögreglusamþykkt og
algjörlega siðlaust að mati
lögreglu.
Þá má nefna að leitað var
liðsinnis lögreglu við að hafa
uppi á fjögurra ára snáða sem
var týndur. Nokkru síðar kom
í ljós að sá stutti hafði brugð-
ið sér í sturtu í Sundlaug
Akureyrar og var hinn bratt-
asti.
Bílar inn í
garð og á
grindverk
TILKYNNT hefur verið um
10 árekstra til lögreglu síð-
ustu daga, í einum þessara
árekstra slasaðist fólk. Mikil
hálka hefur verið á götum
bæjarins og ökumenn hafa
ekki allir fyllilega ráðið við
bíla sína, einn hafnaði inni í
húsagarði, annar á grindverki
og sá þriðji á umferðarmerki.
Númer hafa verið klippt af
34 bílum síðustu daga, aðal-
lega vegna vanrækslu um-
ráðamanna á því að flytja þá
til skoðunar. Þá voru 26 kærð-
ir fyrir að nota ekki öryggis-
belti, 6 fyrir að vera ekki með
ökuskírteini við aksturinn, 13
fyrir að aka of greitt, 5 fyrir
að virða ekki stöðvunarskyldu,
1 virti ekki biðskyldu, 2 höfðu
ekki bæði skráningarnúmerin
á bifreiðum sínum, 2 voru
kærðir fyrir að nota ekki
stefnumerki og 1 fyrir að nota
ekki lögboðin ljós. Loks voru
2 teknir grunaðir um að aka
undir áfengisáhrifum.
Kyrrðar-
stundir
BÆNAHÓPAR kvenna hafa
um nokkurt skeið verið starf-
andi við Glerárkirkju. Þeir
hafa orðið kveikjan að kyrrð-
arstundum sem eru fyrir alla
á þriðjudögum frá kl. 18.10
til 18.40. Áhersla er lögð á
stutta íhugun Guðs orðs og
að hvíla í hljóðri bæn frammi
fyrir Guði í helgidómi hans.
Állir eru velkomnir á þessar
kyrrlátu stundir þar sem
kertaljósið lýsir.
Móðurhlut-
verkið
ARNA Ýrr Sigurðardóttir guð-
fræðingur flytur fyrirlestur
um móðurhlutverkið á
mömmumorgni í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á
morgun, miðvikudaginn 5.
febrúar, en það stendur frá
kl. 10 til 12. Leikföng og bæk-
ur eru fyrir börnin. Gengið er
inn um kapelludyrnar.