Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Áburðarverksmiðjan aug-
lýst um miðjan mánuðinn
Framleiðslugetan 65 þús. tonn af áburði á ári
Eftirlaunasjóður
Landsbanka
Atkvæða-
greiðslu
frestað
ATKVÆÐAGREIÐSLU um breyt-
ingu á reglugerð Eftirlaunasjóðs
Landsbanka og Seðlabanka var
frestað á sjóðfélagafundi fyrir
skömmu. Ákveðið var að skoða mál-
ið betur og boða til framhaldsfundar
síðar þegar upplýsingar um stöðu
hvers sjóðfélaga samkvæmt eldri
reglugerð annars vegar og breyting-
um á henni hins vegar lægju fyrir.
Breytingin á reglugerðinni hefur
það meðal annars í för með sér að
ríkisábyrgð á skuldbindingum fellur
niður gegn því að greiðslur í sjóðinn
aukast, auk þess sem sjóðfélögum
gefst kostur á að skipta þeim iðgjöld-
um sem þegar hafa verið greidd til
sjóðsins vegna þeirra sem og framtíð-
ariðgjöldum milli sameignar- og sér-
eignarsjóðs.
Sigrún Vilbergsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Landsbanka Ís-
lands, sagði að á fundinum hefðu
orðið miklar umræður um þessi mál.
Komið hefðu fram skiptar skoðanir
og ákveðið að boða til framhalds-
fundar þegar fyrir lægju upplýsingar
um stöðu hvers og eins sjóðfélaga
miðað við núgildandi reglugerð ann-
ars vegar og miðað við breytta reglu-
gerð hins vegar.
Tímafrekir útreikningar
Sigrún sagði að þessir útreikning-
ar tækju talsverðan tíma og því
væri ekki við því að búast að af fram-
haldsfundinum yrði fyrr en eftir ef
til vill tvo mánuði. Þar með væri
útséð með að reglugerðarbreytingin
tæki gildi frá og með síðustu áramót-
um eins og fyrirhugað hefði verið.
Þá sagði Sigrún að einnig hefði
komið til tals á fundinum að efnt
yrði til allsherjaratkvæðagreiðslu um
reglugerðarbreytinguna þannig að
sjóðfélagar um allt land hefðu jafna
aðstöðu til að neyta atkvæðisréttar
síns. Lífeyrismál væru mjög stór hluti
af kjörum fólks og því yrði að skoða
alla fleti vandlega áður en ráðist
yrði í breytingar.
----» ♦ ♦---
Hugbúnað-
arkynning
HUGBÚNAÐUR hf. stendur fyrir
kynningu á Autodesk WorkCenter
og WorkCenter fyrir alnetið á Hótel
Loftleiðum í dag, 4. febrúar kl. 13.
Windows forritið WorkCenter
sameinar stjómun vinnuferla og
skjalavistunar og er sérstaklega
hannað með tilliti til þarfa hönnuða,
framleiðenda og annarra er fást við
teikningar og tæknilegar upplýs-
ingar að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hugbúnaði hf.
Autodesk er fjórða stærsta hug-
búnaðarhús í heiminum og framleiðir
meðal annars AútoCAD og 3D Studio
MAX. Yfir 500 AutoCAD leyfi eru
á íslandi.
Fyrirlesari á kynningunni er
Stephan Nielsfelt frá Autodesk í
Svíþjóð. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku og er öllum opinn.
UNDIRBÚNIN GUR að sölu
Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi
á vegum framkvæmdanefndar um
einkavæðingu er langt kominn og
er stefnt að því að auglýsa eftir
tilboðum í allt hlutafé ríkisins í
fyrirtækinu upp úr miðjum mánuð-
inum. Leitað verður eftir tilboðum
í allt hlutaféð bæði hér á landi og
erlendis, en Áburðarverksmiðjan
er að öllu leyti í eigu ríkisins.
Skarphéðinn B. Steinarsson, rit-
ari framkvæmdanefndar um einka-
væðingu, segir að undirbúningur að
því að leita eftir tilboðum í Áburðar-
verksmiðjuna sé nokkuð langt kom-
inn. Verðbréfafyrirtækið Handsal
hafi unnið ítarlega úttekt á fyrir-
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson
hf. hafði yfirgnæfandi mesta hlut-
deild í bjórsölu í útsölum ÁTVR á
sl. ári. Fyrirtækið hafði um þriðjung
heildarsölunnar en Viking hf. á
Akureyri var með um fjórðungs
hlut, eins og sést á meðfylgjandi
yfirliti.
Hins vegar ber að undirstrika að
hér er ekki meðtalin sala þeirra
heildsala sem flytja inn bjór og selja
tækinu fyrir einkavæðingarnefnd í
haust. Síðan hafi verið unnið að
málinu og nú sé verið að ganga frá
sölulýsingu og stefnt sé að því að
auglýsa eftir tilboðum í fyrirtækið
upp úr miðjum mánuðinum.
Tapið 71 milljón króna
í Gufunesi er bæði að finna
ammoníaks- og vetnisverksmiðju
og aðra hluti sem þarf til áburðar-
sölu, auk hafnarsvæðis. Fram-
leiðslugeta verksmiðjunnar er 65
þúsund tonn af áburði á ári, en á
árinu 1995 framleiddi verksmiðjan
52 þúsund tonn.
beint til veitingahúsa. Eftir því sem
næst verður komist nam sala þeirra
um 2 milljónum lítra og nam heild-
arsala bjórs því um 9 milljónum lítra
á árinu 1996 hjá ÁTVR og innflytj-
endum.
Af einstökum tegundum hafði
Egils Gull mesta hlutdeild hjá
ÁTVR sem fyrr eða 18%, en þar á
eftir koma Tuborg grænn með
13,3% og Viking með 10,8%.
Ekki liggja fyrir tölur um af-
komu fyrirtækisins í fyrra en á
árinu 1995 námu heildarrekstrar-
tekjur fyrirtækisins 983 milljónum
króna. Þá varð tap á reglulegri
starfsemi fyrirtækisins sem nam
71 milljón króna. Hjá Áburðar-
verksmiðjunni starfa um 100
manns.
Einkaréttur Áburðarverksmiðj-
unnar á framleiðslu áburðar var
afnuminn á árinu 1995 og innflutn-
ingur gefinn fijáis. Það hefur þó
ekki orðið til þess að mikið hafi
verið flutt inn af áburði, því á árinu
1995 nam innflutningurinn 350
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðherra
hefur skipað nefnd sem falið er
að kanna með hvaða hætti stjórn-
völd geta stutt við atvinnurekstur
kvenna sérstaklega. Nefndin tekur
þegar til starfa og er ætlað að
skila ráðherra tillögum í haust.
í frétt frá iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytinu kemur fram að víða í
samkeppnislöndum íslands er lögð
mikil áhersla á að auka veg kvenna
í fyrirtækjarekstri og stjórnun.
Sérstaða „kvennafyrirtækja“ sé
almennt viðurkennd og algengt sé
að skipulagðar séu sérstakar
stuðningsaðgerðir sem taki mið af
þörfum kvenna.
Nefndin á að kynna sér með
hvaða hætti staðið er að stuðningi
stjórnvalda við atvinnurekstur
kvenna í nágrannalöndunum. Þá á
hún að leggja mat á þörf fyrir
sértækar aðgerðir á þessu sviði hér
á landi, m.a. með könnun á við-
horfi kvenna í fyrirtækjarekstri til
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands hefur aukið fram-
boð sitt á sviði markaðsnáms enn
frekar og í nýjum bæklingi EHÍ eru
kynnt átta námskeið á sviði mark-
aðs-, sölu- og þjónustumála.
Á námskeiðunum gefst þátttak-
endum kostur á að byggja upp al-
hliða þekkingu á markaðsmálum.
Nemendur fá 15% afslátt ef tekin
eru fleiri en eitt námskeið.
Námskeið á vorönn fjalla um
stefnumótun og stjórnun markaðs-
mála, markaðsrannsóknir, þróun
vöru og þjónustu, gerð markaðs-
tonnum og talið er að hann hafi
verið litlu meiri í fyrra.
Aðspurður hvert áætlað verð-
mæti verksmiðjunnar væri sagði
Skarphéðinn að ekki væri hægt að
gefa það upp að svo stöddu.
Fjórðungshlutur í
Sementsverksmiðjunni
Auk Áburðarverksmiðjunnar
stendur nú yfir sala á meirihluta
hlutabréfa í Skýrsluvélum ríkisins
og Reykjavíkurborgar á vegum
einkavæðingarnefndar. Þá er í fjár-
lögum í ár gefin heimild til þess að
selja fjórðungshlut í Sementsverk-
smiðjunni á Akranesi, en undirbún-
ingur þess er skammt á veg kominn.
þeirra. Loks á nefndin að skila
ráðherra áliti um hver þörfín sé
fyrir slíkar aðgerðir hér á landi og
skila tillögum um með hvaða hætti
standa skuli að slíkum aðgerðum
sé þeirra þörf.
Nefndin á að hafa samvinnu við
atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni,
atvinnu- og iðnþróunarfélög, Afl-
vaka Reykjavíkur og aðra þá aðila
sem að stuðningi við atvinnulífið
koma.
I nefndina hafa verið skipaðar:
Jónína Bjartmars lögfræðingur,
formaður, Ragnheiður Kristjáns-
dóttir deildarsérfræðingur, iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneyti, ritari,
Jónína Benediktsdóttir fram-
kvæmdastjóri, Herdís Sæmunds-
dóttir kennari, f.h. félagsmála-
ráðuneytis, Elísabet Benedikts-
dóttir, f.h. Byggðastofnunar, Vig-
dís Hauksdóttir verslunarmaður og
Brynhildur Bergþórsdóttir, f.h.
Iðntæknistofnunar.
áætlana og markaðssetningu, beina
markaðssetningu, auglýsingar,
markaðsfylgni og markaðsmál smá-
söluverslana.
Fyrsta námskeiðið hefst fimmtu-
daginn 6. febrúar og ijallar um
stefnumótun og stjórnun markaðs-
mála. Á námskeiðinu verður kynnt
hagnýt aðferðarfræði stefnumótun-
ar í markaðsmálum og farið yfir
meginþætti markaðsmála á heil-
steyptan hátt. Má þar nefna mark-
aðsgreiningu, mótun markaðs-
stefnu, markaðsáætlanir, markaðs-
setningu og árangursmat.
Bjórsala ÁTVR á síðastliðnu ári
Hlutdeild innlends
bjórs um 58%
Nefnd iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis
Atvinnurekstur
kvenna skoðaður
Aukið framboð mark-
aðsnáms hjá EHI
Framlengjum til 8. febrúar
*■ » » ' M V »
okkar fróbœra opnunartilboð —' - ~~
í nýrri og glcesilegri verslun SÍmtUi kúíqöqu
Fákafeni 9, sími 568 2866