Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 21
ÍMEYTEIMDUR
Neytendasamtökin
Krefjast lækkunar
á símagjöldum
NEYTENDASAMTÖKIN hafa sent
stjórnarformanni Pósts og síma bréf
þar sem ítrekuð eru mótmæli við
hækkun á símaþjónustu frá því í
desember síðastliðnum. Neytenda-
samtökin telja að engar skýringar
hafi komið fram frá Pósti og síma
sem réttlæti þessa hækkun en
hagnaður fyrirtækisins nam einum
milljarði árið 1995.
í fréttatilkynningu sem Neyt-
endasamtökin sendu fjölmiðlum
segir ennfremur að hækkunin hafi
numið allt að 32% og sé ekki í neinu
samræmi við kostnaðarhækkanir í
þjóðfélaginu. Ennfremur benda
Neytendasamtökin á að þessar
hækkanir séu i fullri andstöðu við
yfírlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar
um efnahagslegan stöðugleika. í
bréfi sínu krefjast samtökin skýr-
inga á hækkuninni.
Hrefna Ingólfsdóttir upplýsinga-
fulltrúi hjá Pósti og síma segir að
í tilefni þessara ummæla sé rétt að
upplýsa að verð fyrir símaþjónustu
hafi lækkað verulega að raungildi
undanfarin ár þó það sé mismun-
andi mikið. „Lækkunin er sennilega
meiri en íslenskir neytendur hafa
fengið að njóta á öðrum sviðum",
segir hún. Hrefna segir að með
gjaldskrárbreytingunni í desember
hafi fast gjald fyrir síma hækkað
og verð á símtölum innanbæjar, en
símtöl til útlanda lækkuðu. „Þessi
breyting er algerlega í samræmi
við það sem verið er að gera í flest-
um nágrannalöndum okkar, en á
síðasta áratug var það svigrúm sem
skapaðist til lækkana fyrst og
fremst nýtt til lækkunar á langlínu-
símtölum innanlands. Þetta var
gert þó að auknar tekjur af sim-
tölum til útlanda hafi átt verulegan
þátt í að skapa þetta svigrúm.
Undanfarin ár hefur verið unnið að
því að leiðrétta þetta misræmi með
því að lækka einnig útlandasímtöl."
Hrefna bendir á að Neytenda-
samtökin gagnrýni að símnotendur
greiði niður þjónustu póstsins og á
sú gagnrýni vissulega rétt á sér
segir hún og unnið að lagfæringum
á því. Hrefna segist vilja minna á
að Neytendasamtökin mótmæltu
kröftuglega í júní s.l. þegar verð á
langlínusímtölum og simtölum til
útlanda lækkaði en póstburðargjöld
hækkuðu."
Hvað varðar ósk Neytendasam-
takanna um að nefnd verði skipuð
til að hafa eftirlit með Pósti og síma
vegna einokunaraðstöðu fýrirtækis-
ins segir Hrefna að um næstu ára-
mót falli úr gildi öll einkaleyfi fýrir-
tæksisins á sviði fjarskipta. Þann
1. apríl næstkomandi tekur til starfa
Póst-, og fjarskiptastofnun sem sér
um eftirlit með fjarskiptarekstri og
að öllum leikreglum sé fylgt. Sam-
keppnisstofnun gegnir einnig
ákveðnu hlutverki í þessu sambandi
og Póstur og sími mun ekki stuðla
að stofnun slíkrar nefndar.
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla. 1
\ÆP Ðorgartúni Einar Farestveit & Co. hf. 28 « 562 2901 og 562 2900
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
Hugræktarnámskeið
Guðspekifélagsins
hefst þriðjudaginn
4. febrúar kl. 20.
Um er að ræða sjö vikna
námskeið í hugrækt fyrir
byrjendur, sem fram fer
í húsi félagsins í
Ingólfsstræti 22.
Námskeiðið er í umsjón Einars
Aðalsteinssonar og fjallar um
grundvallaratriði hugræktar og
hugleiðingar, einingarviðhorf
dulhyggjunnar, undir-
meðvitundina og völundarhús
hins ómeðvitaða, frumþætti
sálarlífsins, tilfinninga- og
langanaeðlið, viðhorf, vilja,
þekkingu, skilning, ást og
kærleika. Þá verður fjallað um
mannrækt, yoga, karma og
endurholdgun, fæðuval í
hugrækt, heilun, hina innri leit
og heimspeki andlegs þroska.
Yfir 500 manns hafa sótt þessi
námskeið undanfarin ár!
Skráning við innganginn.
Námskeiðið, sem ætlað er
almenningi, er ókeypis og
öllum opið meðan húsrúm
leyfir.
Námskeiðsgögn seld á
kostnaðarverði.
y
HEITUR og kaldur krani. Skrúfað er fyrir öryggiskrana H og
K og frá handlaugarkrönum H og K. Ekkert vatn á þá að renna.
Seljið lítramál undir annan kranann og skrúfið frá ör-
yggiskrananum uns rennslið er 1 lítri á 20 sekúndum. Gerið
slíkt hið sama við hinn kranann. Ef um blöndunartæki er að
ræða er sami háttur hafður á.
Mest hætta á
að börn brenni
sig á vatni
í RANNSÓKN sem læknar á barn-
aspítala Hringsins vinna að á
brunaslysum á íslenskum börnum
kemur í ljós að heitt vatn og heitir
vökvar eru langalgengustu bruna-
valdar þegar ung börn eiga í hlut.
Að sögn Herdísar Storgaard brenn-
ir sig að meðaltali 21 barn á ári,
62% eru drengir og 38% stúlkur.
Tíðnin er hæst í hópi fjögurra ára
og yngri. Herdís segir að aukin tíðni
slysa sé í kringum hádegi og kvöld-
mat en þá er notkun heitra vökva
mest á heimilum og svo virðist sem
aðgæsla barna sé jafnvel minni þá
en á öðrum tímum dagsins. „Með
heitu vatni er átt við t.d. baðvatn,
sjóðandi vatn og vatn í heitum pott-
um“, segir hún.
- Er hægt að gera eitthvað til
að koma í veg fyrir hættu sem börn-
um stafar af heitu kranavatni
heima?
Herdís segir að maður að nafni
Jón Brynjólfsson hafi velt vandan-
um fyrir sér og fundið ágæta lausn.
í þeim tilfellum sem öryggiskranar
eru á vöskum er hægt að skrúfa
nægilega fyrir þá og mæla rennsl-
ið. Herdís segir að slíkt hafi verið
gert með góðum árangri á leikskól-
um. Jón bendir hinsvegar fólki á
að ef leiðslur koma beint útúr vegg
eru oft hjámiðjur á blöndunartæk-
inu. Hægt er að skipta um þær og
fá hjámiðjur með loka. Þá er hægt
að stilla lokann með skrúfjárni og
minnka gat niður í fjórðung af röri.“
Jón segir að ef engar hjámiðjur séu
megi setja þrengingar inn í rörið.
„Blöndunartækið er tekið frá,
þrengingu stungið inn og blöndun-
artækið sett aftur á.“ Þrengingar
hafa ekki verið fáanlegar hér á landi
en fást nú hjá Vatnsvirkjanum.
SVIPMYNDIR
Hverfisgötu 18, s. 552 2690
BUSETI
Búseturéttur til sölu
umsóknarfrestur til 10. febrúar
Endursala Búseti Reykjavík
2ja herb.
Berjarimi 1-7, Reykjavík
66m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 993.384
Búsetugjald kr. 35.120
Berjarimi 1-7, Reykjavík
66m2 íbúð Aimennt lán
Búseturéttur kr. 993.384
Búsetugjald kr. 51.700
3ja herb.
Garðhús 2, Reykjavík
80m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.308.890
Búsetugjald kr. 30.332
3ja herb.
Amarsmári 4, Kópavogur
80m2 íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 819.690
Búsetugjald kr. 48.659
Berjarimi 3, Reykjavík
78m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.314.146
Búsetugjald kr. 38.812
Berjarimi 5, Reykjavík
72m2 (búð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.208.362
Búsetugjald kr. 35.737
Nýj ar íbúðir
3ja herb.
Breiðavík 31-33 Reykjavík
77m? íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 814.684
Búsetugjald kr. 42.328
4ra herb.
Breiðavík 31-33 Reykjavík
90m2 íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 964.136
Búsetugjald kr. 49.634
Aðeins 3 íbúðir eftir í þessu 8
íbúða húsi. íbúðirnar eru til
afhendingar í desember n.k.
Endursala Búseti Akranes, upplýsingar hjá Búseta Reykjavík
3ja herh.
Lerkigrund 5
80m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 928.904
Búsetugjald kr. 33.563
4ra herb.
Lerkigrund 5
94m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.067.537
Búsetugjald kr. 38.135
4ra herh.
Lerkigrund 7
80m2 íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.067.537
Búsetugjald kr. 61.528
Umsóknarblöð liggja frammi á skrifstofu Búseta hsf. ásamt teikningum og nánari
upplýsingum. Skrifstofan er opin alla virka daga, nema miðvikudaga, frá kl. 9 til 15.
íbúðirnar eru til sýnis á umsóknartímanum til 10. febrúar. Með umsóknum þarf að
skila staðfestum skattframtölum síðustu þriggja ára ásamt fjölskylduvottorði.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 12. febrúar kl. 11 að Hávallagötu 24.
Endursala Búseti Mosfellsbæ - sími 566 6870
3ja herh.
3ja herb. 1 4ra herb. I
Miðholt 5, Mosfellsbæ
B3m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 887.666
Búsetugjald kr. 33.445
Miðholt 5-13,
94m2 íbúð
Búseturéttur
Búsetugjald
Mosfellsbæ
Félagslegt lán
kr. 945.526
kr. 35.467
Miðholt 1,
81 m2 íbúð
Búseturéttur
Búsetugjald
Mosfellsbæ
Almennt lán
kr. 748.571
kr.53.002
http://www.centrum.is/buseti
Búseti hsf., Hávallagötu 24, 101 Reykjavík,
sími 552 5788, myndsendir 552 5749
BUSETI