Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 23
ERLENT
150 manns
særast í átök-
11 m í Belgrad
Belgrad, París. Reuter.
UM 150 stjórnarandstæðingar voru
fluttir á sjúkrahús í Belgrad eftir
að serbneska lögreglan réðst á þús-
undir manna til að kveða niður frið-
samleg mótmæli í fyrrakvöld. Þetta
eru alvarlegustu átök sem blossað
hafa upp í serbnesku höfuðborginni
frá árinu 1991.
Um 20.000 manns tóku þátt í
mótmælagöngunni í fyrrakvöld og
flestir þeirra hörfuðu þegar lögregl-
an lét til skarar skríða. Lögreglan
beitti bareflum og dældi vatni á
fólkið og svo virðist sem táragasi
hafí einnig verið beitt. Nokkrir
stjórnarandstæðingar svöruðu árás-
inni með því að kasta gijóti, múr-
steinum og flöskum að lögreglu-
mönnunum. Nokkrir reyndu enn-
fremur að hindra lögregluna með
því að kveikja í hjólbörðum.
Serbneska ríkissjónvarpið sagði
að lögreglan hefði aðeins ráðist á
stjórnarandstæðingana vegna þess
að þeir hefðu stöðvað umferð um
brú yfir Sava-fljót þegar þeir gengu
að miðborginni. Sósíalistaflokkur-
inn setti bann við mótmælagöngum,
sem hindra bílaumferð, fyrir tveim-
ur vikum.
Serbneskir blaðamenn sögðu
þetta alvarlegustu átökin í Belgrad
frá árinu 1991 þegar Milosevic
sendi skriðdreka á götur borgarinn-
ar til að kveða niður mótmæli lýð-
ræðissinna. Læknar á tveimur
stærstu sjúkrahúsum borgarinnar
sögðu að 150 manns hefðu þurft
aðhlynningu, margir með beinbrot
eða brotnar tennur.
Frakkar mótmæla
Stjórnvöld í Þýskalandi . og
Frakklandi gagnrýndu aðgerðir lög-
reglunnar og franska stjómin bauð
stjómarandstöðuleiðtogunum
þremur í heimsókn til Parísar sem
fyrst. „Þetta boð felur í sér að
franska stjórnin hefur viðurkennt
leiðtoga stjómarandstöðunnar, sem
hefur sýnt pólitískan þroska síðustu
vikur,“ sagði Hervé de Charette,
utanríkisráðherra Frakklands.
Hann skoraði á Milosevic að virða
niðurstöðu fulltrúa Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, sem
fylgdust með sveitarstjórnakosn-
ingunum í nóvember og staðfestu
að Zajedno hefði sigrað í 14 borgum
og bæjum.
Toppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg
sími: 552 1212
Kvenkulda
skór
Verð: 2.995,
Áður:^jZ<49l5^
Tegund:2167
Stærðir: 37-41
Litir: Svartir
og brúnir
Loðfóðraðir
Reuter
• •
Orbirgð í
Albaníu
FATIME Mehmeti situr við tjald
sitt á öskuhaugum Tirana, sem
hún hefur hírzt í undanfarna þrjá
mánuði, eða frá því hún missti
aleigu sína í kjölfar hruns hinna
vafasömu „pýramídasjóða," sem
hétu fjárfestum hagnaði á sama
hátt og peningakeðjubréf. Hrun
sjóðanna olli gjaldþroti þúsunda
fjölskyldna í Albaníu, fátækasta
lands í Evrópu.
Jeltsín brattur á fundi með Chirac
Harður gegn
stækkun NATO
Moskvu. Reuter.
FUNDUR þeirra Borís Jeltsíns, for-
seta Rússlands, og Jacques Chiracs,
forseta Frakklands, um helgina
breytti engu um andstöðu Rússa
við stækkun Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, en virðist hins vegar
hafa dregið úr vangaveltum um
heilsu Jeltsíns eða heilsuleysi. Vinn-
ur hann nu að stefnuræðu stjórnar
sinnar og hefur frestað flestum
fundum í vikunni.
Þeir Jeltsín ræddust við í þrjár
klukkustundir í Moskvu á sunnudag
og sagði Chirac hann óðum vera
að ná sér eftir lungnabólguna.
Bæri hann þess vissulega merki að
hafa verið veikur en á fundinum
hefði hann verið í essinu sínu, „sá
sami Borís Níkolajevítsj og ég hef
alltaf þekkt“.
Chirac sagði, að Jeltsín hefði
verið mjög harður í andstöðu sinni
við stækkun NATO en hann kvaðst
telja, að unnt ætti að vera að ná
samkomulagi ef hvorirtveggju
legðu sig fram.
Engin stefnumörkun
Sumir fréttaskýrendur segja, að
svo virðist sem Rússar hafi ekki
neina stefnu nema andstöðuna eina
í deilunni um stækkun NATO.
„Ég get ekki komið auga á neina
Reuter
FORSETARNIR á tröppum
móttökuhúss Rússlandsfor-
seta fyrir utan Moskvu.
ákveðna stefnumótun í þessu máli,
þeir bara kvarta og kveina," sagði
Andrei Píontkovskí, pólitískur
fréttaskýrandi við rannsóknastofn-
un í Moskvu. „Tíminn er að renna
út og enginn veit hvað gera skal.
Neikvæð afstaða okkar hefur ýtt
okkur út í horn.“ Hvatti Pí-
ontkovskí rússnesk stjórnvöld til að
koma með ákveðnar tillögur varð-
andi öryggishagsmuni sína í stað
þess að rífa hár sitt yfir orðnum
hlut.
• HALTU MÉR FAST • ULLA JÓNS • K0MU ENGiN SKIP í DAG? • DRAUMAPRINSINN • BUÍS í G • EINBÚINN • K0MDU í PARTÝ
iaugardaginn 8. febrúar
Brunalidslög, Mannakornslög, og fleiri lög í flutningi þjóðkunnra söngvara!
- Hótd ís/and hddur upp á 10 ára afmazlið með
þessari einstöku sýningu, þeirri bestu hingað tiii
Tónlistarstjórn: Gunnar Pórðarson - ásamt stórhljómsveit sinni.
Leikstjóri: Egill Eðvarðsson.
*Wfi
Söngvarar:
Pálmi Gunnarsson,
Ellen Kristjánsdóttir,
íris Guðmundsdóttir,
Bjarni Arason.
Húsið opnar kl.19:00. Matargestir, vinsamlega mætið tímanlega. Sýningin hefst stundvíslega
kl. 22:00. Verð með kvöldverði kr. 4.900, verð án kvöifiverðar kr. 2.200. Verð á dansleik er kr. 1.000.
Miðasala og borðapanfanir daglega kl. 13-17 á Hótel Islandi.
, r/trfscfíi//
Xarrýlöguð austurlensk fiskisúpa.
Jíeilsteiktur lamhavóivi
meSfj’lltum jarSeplum, smjörsteiktti
qrœnmeti og Madeira piparsósu.
SúkklaSilijúpuS pera og sérrí-is.
HOTCT, [AU.AND
Sími 568-7111 - Fax 568-9934. MEÐ BJARNA ARASYNISÖNGVARA LEIKA FYRIR DANSI
NÆSTU SYNINGAR: 15. febrúar, 1. mars, 8. mars, 22. mars og 29. mars.
REYKJAVÍKURBLÚS • HIN EINA SANNA AST • EG ELSKA ÞIG ENN • HUDS0N BAY • GLEÐIBANKINN • LITLA SYSTIR •
Póstsendum samdægurs