Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 43
Helgi Olafsson
varði titilinn
skAk
Ríkissjón varpið:
LANDSBANKA-
VISA MÓTIÐ
Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar
Stefánsson þurftu að tefla sjö skák-
ir til að skera úr um það hvor
þeirra yrði íslandsmeistari í atskák
1997:
EINVÍGIÐ var teflt á þriðju-
daginn var, en sýnt í ríkissjón-
varpinu um hádegið á sunnudag-
inn. Það var vægast sagt æsi-
spennandi frá upp-
hafi til enda. Helgi
vann fyrstu skákina
nokkuð örugglega.
Þar með dugði hon-
um jafntefli í þeirri
næstu, en Hannes
var ekki af baki dott-
inn og tefldi mjög
glæfralega til vinn-
ings. Hann fórnaði
manni og Helgi fann
ekki bestu vörnina:
2. skákin:
Hvítt: Hannes Hlíf-
ar Stefánsson
Svart: Helgi Óiafs-
son
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. Rf3 -
d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - Rf6
5. Rc3 - a6 6. Be2 - e6 7. 0-0
- Be7 8. a4 - Rc6 9. Khl -
0-0 10. f4 - Dc7 11. Be3 - He8
12. Bf3 - Hb8 13. Dd2 - Bd7
14. Rb3 - b6 15. g4 - Bc8 16.
g5 - Rd7 17. Bg2 - Ra5 18.
Df2 - Rc4 19. Bcl - Bf8 20.
Rd4 - Ra5 21. Rce2!?
Hér hefur áður verið leikið 21.
f5 - Re5. Hannes fórnar síðan
peðinu á c2, en Helgi leggur ekki
í að taka það.
21. - e5 22. Rf5 - Bb7 23. Ha3
- g6
24. Hh3!? - gxf5 25. Dh4 -
Bg7??
Tapar strax. Nauðsynlegt var
25. - h6! 26. gxh6 - Kh8 og
eftir 27. Dg5 - Dc4 28. Hg3 -
f6 ætti svartur að geta varist at-
lögunni.
26. Dxh7+ - Kf8 27. Rg3 -
He6 28. Rxf5 - Hg6 29. Rh4 -
Dxc2 30. Rxg6+ - fxg6 31.
fxe5+ og svartur gafst upp.
Þá þurfti að framlengja og
tíminn styttur niður í sjö mínút-
ur. Hraðskákirnar urðu hvorki
meira né minna en fimm talsins,
því fyrstu fjórum lauk með jafn-
tefii. Þar gekk á ýmsu en Helgi
tefldi þær yfírleitt af meira ör-
yggi en gekk illa að innbyrða
vinningana. Úrslitin réðust svo í
þessari fimm mín-
útna skák:
Hvítt: Helgi Ólafs-
son
Svart: Hannes Hlíf-
ar Stefánsson
Enski leikurinn
I. c4 - e5 2. Rc3 -
Rf6 3. Rf3 - Rc6
4/e3 - Be7 5. d4 -
exd4 6. Rxd4 -
Rxd4 7. Dxd4 - 0-0
8. Be2 - d6 9. 0-0
- c6 10. b3 - Bf5
II. Bb2 - Da5 12.
Hadl - Hfe8 13.
Bd3 - Had8 14. b4!
- Dxb4 15. Bxf5 -
Dxb2 16. Hbl -
Da3 17. Hxb7 -
Da5 18. Dd3 - g6 19. Be4 -
Rxe4 20. Rxe4 - Dxa2 21. Dd4
- d5 22. Rf6+ - Bxf6 23. Dxf6
- Hf8 24. cxd5 - cxdð?! 25.
Hal - Dc4 26. Hbxa7 - De4??
27. Hxf7 - Hxf7 28. Dxd8+ Hf8
29. Db6 og Helgi vann örugglega
á umframpeðinu og tryggði sér
titilinn.
Jóhann á Bermuda
Það hefur gengið upp og ofan
hjá Jóhanni Hjartarsyni á alþjóð-
lega skákmótinu á Bermuda.
Harin vann unga Bandaríkja-
manninn Josh Waitzkin, sem
margir muna eftir úr Hollywood
kvikmyndinni „Leitin að Bobby
Fischer" sem var sýnd á sínum
tíma í Háskólabíói. Myndin var
byggð á bók sem faðir Josh skrif-
aði.
Jóhann vann tvo aðra alþjóð-
lega meistara, þá Ashley frá
Bandaríkjunum og Maiwald,
Þýskalandi. Hann hefur hins veg-
ar tapað fyrir stórmeistarunum
Julian Hodgson, Englandi, og
Nick deFirmian, Bandaríkjunum.
Hodgson hefur byijað mjög vel
og hefur fimm og hálfan vinning,
en deFirmian er næstur með fjór-
an og hálfan. Jóhann hefur hlotið
þijá og hálfan. Eftir er að tefla
fjórar umferðir.
Skákþing Reykjavíkur
Fyrir síðustu umferðina á mið-
vikudagskvöldið eru allar líkur á
því að Þröstur Þórhallsson verði
skákmeistari Reykjavíkur. Hann
hefur hlotið níu vinninga af tíu
mögulegum, en næsti maður, Jón
Garðar Viðarsson, hefur sjö og
hálfan. Sá eini sem getur náð
Þresti að vinningum er Bragi
Þorfinnsson, 16 ára, einn af okkar
efnilegustu unglingum. Það eru
þó ýmis ljón í veginum fyrir
Braga. Fyrst verður hann að
vinna Stefán Kristjánsson í fre-
staðri skák úr tíundu umferð. Síð-
an þarf hann að vinna í síðustu
umferð, en Þröstur að tapa fýrir
Einari Hjalta Jenssyni. Ef þetta
allt nær fram að ganga þarf Bragi
svo að vinna Þröst í einvígi.
Það háir Braga að hann liggur
í rúminu með flensu og af þeim
ástæðum var skákinni við Stefán
frestað. Það er nærri því öruggt
að Bragi á eftir að verða Reykja-
víkurmeistari, ef hann heldur
áfram á sömu braut, en ekki víst
að það verði núna.
1. Þröstur Þórhallsson 9 v.
2. Jón Garðar Viðarsson 7 'U v.
3. Bragi Þorfínnsson 7 v. og frestuð
skák
4. -6. Bjöm Þorfinnsson, Einar Hjalti
Jensson og Sævar Bjamason 7 v.
7.-13. Páll Agnar Þórarinsson, Davíð
Kjartansson, Jón Viktor Gunnarsson,
Siguijón Sigurbjörnsson, Sverrir Norð-
fjörð, Bergsteinn Einarsson og Leifur
I. Vilmundarson 6 V2 v.
14.-16. Stefán Kristjánsson, Björgvin
Víglundsson og Tómas Bjömsson 6 v.
og frestuð skák o.s.frv.
Davíð unglingameistari
Davíð Kjaitansson varð ungl-
ingameistari Reykjavíkur 1997
eftir harða keppni við Stefán
Kristjánsson. Davíð vann sex
fyrstu skákir sínar en tapaði í
sjöundu umferð fyrir Stefáni sem
náði honum þar með að vinning-
um. Þeir urðu því að tefla til úr-
slita og Davíð sigraði 2-1, í
bráðabana. Röð efstu manna:
1. Davíð Kjartansson 6 v.
2. Stefán Kristjánsson 6 v.
3. -4. Sigurður Páll Steindórsson og
Sveinn Þór Wilhelmsson 5 v.
5. -7. Guðjón Heiðar Valgarðsson, Þór-
ir Júlíusson og Andri Kristinsson 4 '/2 v.
o.s.frv.
Margeir Pétursson
Helgi Ólafsson, at-
skákmeistari íslands.
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra, er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför bróður okkar, mágs og frænda,
ELLERTS LEIFS
THEÓDÓRSSONAR,
Sfðumúla 21,
sfðast búsettur
í Hátúni IOB.
Áslaug Theódórsdóttir,
Rebekka Theódórsdóttir, Halldór Aðalsteinsson,
Einar Theódórsson,
Maria Haukdal, Guðni Kárason,
Rut Skúladóttir,
Soffía Bjarnrún Theódórsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
SIGURVINS SNÆBJÖRNSSONAR
byggingameistara,
Laufvangi 6,
Hafnarfirði.
Svana Frímannsdóttir,
Guðný Sigurvinsdóttir, Kristinn Atlason,
Sif Sigurvinsdóttir, Jón L. Sigurðsson,
Ethel Brynja Sigurvinsdóttir, Daníel Sigurðsson,
Guðný Ó. Sigurvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
vottuðu okkur samúð við fráfall og jarð-
arför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
PÁLÍNU H. ÞORLEIFSDÓTTUR
frá Nýlendu
í Garði,
sem lést á dvalarheimilinu Garðvangi
föstudaginn 24. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar-
heimilinu Garðvangi fyrir frábæra umönnun.
Gestur Gestsson,
Þorleifur Gestsson, Diana Sjöfn Eiríksdóttir,
Július Gestsson, Rannveig Guðnadóttir,
Sigurður Gestsson, Ingveldur H. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
BRAGA BJÖRNSSONAR
lögfræðings,
Sigtúni 35.
Ragnheiður Bragadóttir,
Guðmundur Bragason, Auður Gróa Kristjánsdóttir,
Dagur Bragason,
Unnur Bragadóttir,
Guðrún Bragadóttir, Marc André Portal,
Gunnar Bragason
Sigriður Jóhannesdóttir,
Friða Björnsdóttir, Trausti Björnsson.
og barnabörn.
RADA UGL YSINGAR
Fundarboð - Ummannaq
Fundur veröur haldinn í Norræna húsinu í
kvöld, 4. febrúar 1997, kl. 20.30.
Jón Viðar Sigurðsson, jarðfræðingur, segir
frá ferð sinni til Grænlands.
Sýnd verður mynd frá Grænlandi.
Allir velkomnir.
Stjórn KALAK.
Aðalfundur
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík heldur
aðalfund fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20.00
stundvíslega í Höllubúð, Sóltúni 9.
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf.
• Þorramatur.
Mætið vel Stjórnin.
ÓSKASTKEYPT
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir,
málverk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
Ijósakrónur, bollastell, gömul póstkort,
íslensk spil og húsgögn, stór og smá.
Upplýsingar í síma 567 1989.
Geymið auglýsinguna.
□ HAMAR 5997020419 I 1
I.O.O.F. Rb. 4= 146248-L.h.
□ Fjölnir 5997020419 II 7 Frl.
«Hjálpræðis-
herinn
J) Kirkjustræli 2
Samkoma I kvöld kl. 20.30.
Daníel og Anne Gurine Óskars-
son taka þátt. Allir velkomnir.
□ Hlfn 5997020419 IV/V - 2 -
Frl.
AD KFUK
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Anna Sigurkarlsdóttir og
sr. Magnús Guðjónsson sjá um
fundinn.
Allar konur velkomnar.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi í dag kl. 15.00.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
fERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 ,
Þriðjudagskvöld 4. febrúar
kl. 20.00
Hressingarganga/opið hús í
Mörkinni 6
Sogamýri-Elliðaárdalur(1 klst.)
Ferðafélag (slands er 70 ára á
þessu ári og af því tilefni er fjöl-
breytni í ferðum meiri en oft
áður. Meðal nýjunga eru hress-
ingargöngur frá Mörkinni 6,
félagsheimili Ferðafélagsins, er
farnar verða annan hvern þriðju-
dag.
( boði verða þjóðlegir og hress-
andi drykkir, kaffi og fjalla-
grasate. Að lokinni göngu kl.
21-22 er opið hús í félagsheimil-
inu og verður þar hægt að fá
nýútkomna ferðaáætlun Ferða-
félagsins 1997.
Á myndakvöldi miðvikudags-
kvöldið 12. febrúar verða m.a.
kynntar ferðir í ferðaáætlun.
Þorra- og vættaferð í Öræfa-
sveit með þorrablóti f Freys-
nesi um næstu helgi 8.- 9. febr.
Biðlisti.