Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1997 25
FRÉTTIR
Morgunblaðið/V aldimar
ÁLFHEIÐUR Olafsdóttir og
rauða Ladan hennar, árgerð
1976, enn þrælspræk.
„Háöldrað
Lada í góð-
um gír“
Gaulverjabæ. Morgunblaðið.
HIN rússneska Lada hefur selst
vel hérlendis gegnum árin og hef-
ur reynst mörgum vel. Þó hefur
langlifi ekki þótt hennar aðals-
merki og reyndar þykir sumum
að gæðum hafi hrakað eftir kom-
múnisminn hrundi austantjalds.
Heldur hefur sala líka minnkað
síðustu ár.
Þær eru örugglega ekki margar
21 árs Lödurnar sem enn eru á
götunum og hvergi hlíft. Jú ekki
ber á öðru. L- 866 Árgerð 1976
stendur í skráningarvottorði og
eigandinn Álfheiður Ólafsdóttir
grafískur hönnuður lætur ljóm-
andi vel af gripnum. Hún eignað-
ist Löduna fyrir þrem árum en
hún hlaut væna meðferð fyrri
hluta ævinnar austur á Hvolsvelli
og í Fljótshlíðinni. Hefur bíllinn
verið í fjölskyldunni síðan 1980.
„Eg hélt nú að hún kynni alls
ekki við sig hér í erlinum í höfuð-
borginni og myndi strax gefast
upp,“ sagði Álfheiður.
En svo var nú ekki og sú rauða
hefur þjónað eigendum vel í hefð-
bundinni fjölskyldunotkun. Hús-
bóndinn Þrándur Arnþórsson
keyrir sig til dæmis í vinnuna á
hverjum degi ofan úr Efra-Breið-
holti og niður í bæ. Ladan hefur
lítið bilað og er mjög tillitsöm ef
slíkt gerist að sögn Álfheiðar," til
dæmis ef springur dekk, þá gerist
það í heimkeyrslunni og annað
eftir því.“ Ladan er nú keyrð
126.000 km og er enn í góðu formi
nema hvað salt jarðar er byrjað
að setja sitt mark á hana líkt og
marga aðra bíla á höfuðborgar-
svæðinu. Er það eina athugasemd-
in í skoðun til 1998.
KRISTJÁN Hafþórsson með
umslag aðalverðlaunahafanna,
Evu og Heiðu Bragadætra. Hjá
honum standa Agústa Jóns-
dóttir, Hreinn Hreinsson og
Jóhann Gísli Jóhannsson.
Unnu ferð
til Evrópu
4. TÖLUBLAÐ Æskunnar og abc
1997 er komið út. í því er sagt frá
úrslitum í áskriftargetraun blaðsins.
Það voru systur frá Burstafelli í
Vopnafirði, Eva og Heiða Braga-
dætur, sem hrepptu aðalvinninginn,
ferð til einhvers áfangastaðar Flug-
leiða í Evrópu - fyrir sig og foreldra
sína.
Aðrir vinningar voru hljómtækja-
samstæða af gerðinni Akai TX300,
sex Akai-ferðatæki, fjórir Russell
Athletic-íþróttagallar, fjórar Jan-
sport-íþróttatöskur, fjögur knatt-
spymuspil og tíu bókapakkar.
Sl'ZUKl
AFL OG
ÖRYGGI
Jafnvel þó vélin sé einstaklega kraftmikil, er hann ekki bensínhákur. *
Og hann er á verði sem aðrirjeppar eiga ekkert svar við. **
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50.
Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 3700.
*Við 90 km á klst. 8,2/8,5 lítrar á 100 km. **SUZUKI VITARA V6:2.390.000 kr.
SUZUKIIVTTARA V6
EÐALJEPPINN
krafturinn; getan og traustið
kemur innan frá
• Hann kemur þér þangað sem þú vilt komast,
með stíl. Sameinar þægindi, úthald og kraft.
• Hann eykur vellíðan þína. Veitir þér örugga stjórn
og aksturseiginleika þegar mest á reynir.
• í honum er gott pláss fyrir fylgihluti í útivist og
veiðitúrinn.
• Ekta jeppi að sjálfsögðu, með háu og lágu drifi
- upphækkanlegur, sterkbyggður á grind,
með feikilega stöðuga fjöðrun og gott veggrip.
• Verðgildið er í eðalklassa. Hann er byggður
til að endast.
4ra kambása 24 ventla
H20A vélin 6 strokka,
4 ventlar á strokk
með fjölinnsprautun.
136 hö.