Morgunblaðið - 15.08.1997, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einbýlishús skemmdist mikið í eldi
Eldtungnr stóðu
út um gluggana
EINBÝLISHÚS við Jórusel í
Reykjavík skemmdist mikið í eldi
í gærmorgun. Húsið var mannlaust
þegar eldurinn kom upp en á aðal-
hæð og í risi hússins bjó þriggja
manna fjölskylda og stúlka bjó í
leiguíbúð í kjallara.
Að sögn Friðriks Þorsteinssonar,
aðalvarðstjóra hjá slökkviliðinu í
Reykjavík, var tilkynnt um eldinn
skömmu fyrir klukkan hálfellefu.
Sjónarvottar sáu mikinn eld og
reyk í húsinu og sögðu að reyk-
sprenging hefði orðið skömmu áður
en slökkvilið kom á staðinn. Þá
stóðu eldtungur út um kvistglugga,
sem snýr í vestur, glugga á norður-
gafli og upp um glugga á mæni,
sem höfðu sprungið í reykspreng-
ingunni.
Erfitt að komast
að eldi í þaki
Friðrik segir að það hafi gert
það að verkum að ekki urðu telj-
andi skemmdir á aðalhæðinni,
reykurinn, eldurinn og hitinn hafi
komist út um gluggana. íbúðin í
kjallaranum er óskemmd.
Slökkvilið fékk nær strax stað-
festingu á að enginn væri í húsinu
og gat því ráðist á eldinn sem var
slökktur á um hálfri klukkustund.
Friðrik segir að nóg hafi verið af
vatni og slökkvistarf hafi gengið
vel. Slökkviliðsmenn hafi fljótt náð
tökum á eldinum en talsverð vinna
hafi verið að slökkva í bröttu þak-
inu, sem var kirfilega einangrað,
auk þess sem milliloft var að hluta
í húsinu og seinlegt að komast að
því. Húsið er steinsteypt en risið
timburklætt og skilrúm þar úr
timbri. Hús í nágrenninu voru ekki
í hættu.
Allt tiltækt lið beggja slökkvi-
stöðvanna í Reykjavík var á staðn-
um auk þess sem ein vakt var köll-
uð út til aðstoðar. Slökkvistarfí
lauk um eittleytið en tveir menn
voru hafðir á vakt fram eftir degi.
Morgunblaðið/Július
MIKILL eldur var í rishæð hússins þegar slökkvilið kom á vettvang i gær. Risið er mikið skemmt,
neðri hæð skemmdist lítið og íbúð i kjallara er óskemmd.
Viðræður Ólafs Jóhanns Ólafssonar við stjórnendur Apple-tölvurisans
Myndi ekki einblína á að
taka við forstj órastarfinu
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson segir að
allt geti gerst í framhaldi af viðræð-
um hans og Steves Jobs í fyrra-
kvöld í tengslum við fyrirhugaða
ráðningu nýs aðalforstjóra tölvuris-
ans Apple Computer Inc. Ólafur
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að hann teldi ekki eðli-
legt að hann greindi frá því hvað
hefði farið á milli hans og Jobs á
fundi þeirra í fyrrakvöld nema hvað
þeir hefðu rætt um böm sín. Hann
sagði að framhald yrði á viðræðum
þeirra og ýmislegt gæti gerst, en
til greina kæmi að hann kæmi að
endurreisn fyrirtækisins með ein-
hverjum öðrum hætti en að veita
því forstöðu.
„Það er margt sem kemur til
greina og ég myndi ekkert endilega
einblína á það að ég taki við for-
stjórastarfinu," sagði Ólafur.
„Ég hef sóst eftir því um nokk-
urt skeið að finna ákveðið jafnvægi
í mínu lífi þannig að ég geti sinnt
ýmsu því sem ég hef áhuga á og
mér fínnst nauðsynlegt til þess að
mér líði bærilega. Mér finnst ég
hafa fundið þetta jafnvægi undan-
farið ár, bæði við skriftir og við-
skiptastúss, auk þess sem ég vil
gjarnan sinna fjölskyldu minni.“
Apple ekki á
barmi glötunar
Ólafur sagði að Apple-fyrirtækið
væri stórmerkilegt að mörgu leyti
og fólk hugsaði og talaði um fá
fyrirtæki af jafn mikilli ástríðu.
Stofnendur þess hefðu verið frum-
kvöðlar í einkatölvubyltingunni en
markmið þeirra hefði verið að gera
tölvur að almenningseign. Þá mætti
nefna að Windows-stýrikerfið frá
Microsoft væri byggt á Apple Mac-
hintosh-kerfinu. Allt til 1995 hefði
fyrirtækið verið í reglulegum vexti,
en þá velti það 11,3 milljörðum
Bandaríkjadala. Síðan hefði hins
vegar allt verið niður á við í rekstr-
inum. Það væri hins vegar alls ekki
svo að fyrirtækið væri á barmi glöt-
unar, og t.d. væru 64% heimasíðna
á alnetinu smíðuð með Apple-tölv-
um, helmingur menntunarmarkað-
arins væri með Apple-tölvur og
einnig rúmlega helmingur markað-
arins í prentiðnaði og hönnun.
„Það er mörgu um að kenna að
reksturinn hefur farið niður á við,
en eins og vanalega þegar illa fer
fyrir fyrirtækjum er það stjórnunin
sem veldur. Fyrirtækið hefur verið
illa rekið síðastliðin ár og það virð-
ist hafa gleymt rótum sínum og
þeim hugsjónum sem leiddu til þess
að það var stofnað. Síðustu vikur
hefur það gerst að Steve Jobs, sem
stofnaði þetta fyrirtæki ásamt fé-
laga sínum, hefur komið þarna inn
á nýjan leik, en honum var í raun-
inni bolað út úr fyrirtækinu árið
1985. Þetta er því eins og faðir sem
hefur komið barni á legg en skilið
við það þegar það er komið á skóla-
aldur. Núna, þegar barnið er komið
á unglingsaldur og er komið í ein-
hveija vitleysu, kemur hann aftur
til að reyna að ala það sæmilega
upp og koma því á rétta braut.
Hann hefur hins vegar lýst því
yfir að hann muni ekki vilja stjórna
þessu fyrirtæki en ég tel að hann
sé best til þess fallinn. Hann er
byijaður að endurnýja stjórn fyrir-
tækisins og hefur samið við Micro-
soft um bandalag þessara gömlu
fjandfyrirtækja og hann er í mikilli
sveiflu að reyna að koma fyrirtæk-
inu á réttan kjöl. Ég held að flestir
vilji að þetta fyrirtæki komist á
réttan kjöl og það gangi vel, en það
eru fá vörumerki sem eru jafn sterk
í heiminum og Apple. Að mínum
dómi eru áætlanir Steves Jobs og
áform nákvæmlega þau sem fyrir-
tækið þarf á að halda, og hann
hefur bæði vit og þor til að hrinda
þeim í framkvæmd," sagði Ólafur.
Niðurstaðna ekki
að vænta á næstunni
Hann sagði að ekki væri niður-
staðna að vænta í viðræðum sínum
og Steves Jobs á næstunni þar sem
hlutir af þessu tagi tækju sinn tíma.
„Ég ætla að njóta helgarinnar
hér í New York og njóta þess að
vera á íslandi með fjölskyldu minni
í næstu viku. Allt svona tekur ein-
hvern tíma ef eitthvað úr því verð-
ur,“ sagði Ólafur.
Drengurinn
sem lést
LITLI drengurinn sem lést eftir að
hafa fallið af reiðhjóli í Heiðmörk
sl. þriðjudag hét Svavar Árnason til
heimilis að Jörfabakka 30 í Reykja-
vík. Hann hefði orðið sex ára í sept-
ember. Svavar var sonur Hildar Sig-
urðardóttur og Árna Sigurðssonar
og hann átti fjóra bræður, þar af
einn tvíburabróður.
------» ♦ ♦------
A slysadeild
eftir árekstra
ÞRÍR menn voru fluttir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir árekst-
ur tveggja bifreiða á Bústaðabrú á
sjötta tímanum í gær. Að sögn vakt-
hafandi læknis voru mennirnir ekki
álvarlega slasaðir.
Þá voru tveir ökumenn fluttir á
Sjúkrahús Reykjavíkur eftir árekst-
ur tveggja bifreiða á mótum Flóka-
götu og Lönguhlíðar um fjögurleytið
í gær. Þeir slösuðust ekki mikið, að
sögn læknis á vakt.
MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra
síðna auglýsingablað frá Þróunarfé-
lagi Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Líney
Kælitankar
dregnir til
Þórshafnar
Þórshöfn. Morgunblaðið.
NÝIR hráefnistankar fyrir uppsjávarfisk til
manneldis verða fljótlega teknir í notkun í loðnu-
verksmiðju Hraðfrystistöðvarinnar á Þórshöfn.
Þetta eru þrír tankar, smíðaðir í Vélsmiðjunni
Stáli á Seyðisfirði og taka samtals um 600 rúm-
metra af hráefni. Með tilkomu þessara tanka
verður hægt að kæla hráefnið strax og er það
mikil hagræðing í vinnslu, að sögn Rafns Jóns-
sonar verksmiðjustjóra. Hráefninu er dælt í
tankana beint úr bátunum og er síðan dælt áfram
beint inn í vinnslusal, þegar hentar. Kæling held-
ur hráefni fersku svo töf á vinnslu kemur ekki
niður á gæðum. Tankamir vom hífðir upp á
bryggjuna á Þórshöfn í vikunni en þeir voru
dregnir á sjó frá Seyðisfirði.
-
>
\
I
t
1
1
t
I
I
I
i
I
1i