Morgunblaðið - 15.08.1997, Side 44

Morgunblaðið - 15.08.1997, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Útivist Og messugjörð í Viðey HEFÐBUNDIN dagskrá verður í Viðey um helgina, gönguferð á laug- ardagseftirmiðdag, messa og staðar- skoðun heima fyrir eftir hádegi á sunnudag. Bátsferðir hefjast kl. 13 báða dagana og verða á klst. fresti til kl. 17 en í land aftur á hálfa tím- anum til kl. 17.30. Kl. 13.30 verður sérstök ferð með kirkjugesti. Gönguferðin á laugardag hefst við kirkjuna kl. 14.15 og verður gengið austur fyrir Viðeyjarstofu, upp með gamla túngarðinum þar og yfir á norðurströndina, sem síðan verður fylgt vestur á Eiði og að Nautahúsunum, en þar er steinn með athyglisverðri áletrun frá 1821 sem gæti geymt ástarsögu frá þeim tíma. Auk þess er margt annað að sjá bæði í eynni og næsta nágrenni hennar. Ferðin tekur um tvo tíma. Nauðsynlegt er að vera á góðum skóm og hafa annan búnað eftir veðri. Á sunnudag kl. 14 messar sr. Jakob Ág. Hjálmarsson, en eftir messu verður staðarskoðun. Hún er fróðleg og öllum auðveld því lítið þarf að ganga. Þá eru gömlu Viðeyj- arhúsin skoðuð, fornleifauppgröftur- inn og annað í næsta nágrenni. Ljósmyndasýningin í Viðeyjar- skóla er opin frá kl. 13.15-17.10 báða dagana. Hestaleigan í Laxnesi er að störfum. Einnig er þar reið- skóli á hennar vegum. Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er opið frá kl. 14. ------------------ MS settur 28. ágúst SKÓLASTARF í Menntaskólanum við Sund hefst í síðustu viku ágúst- mánaðar. Endurtektarpróf verða 25. og 26. ágúst, fyrir hádegi báða dagana. Nánari upplýsingar um próftíma fást í skólanum. Kynningarfundur fyrir nemendur 1. bekkjar er í skólanum miðviku- daginn 27. ágúst kl. 13.00. Þá fá þeir stundaskrár og önnur gögn. Skólasetning verður fimmtudag- inn 28. ágúst kl. 8.30. Þá fá eldri nemendur stundaskrár og hefst kennsla að því loknu. Bókalistar liggja frammi í skól- anum og er hægt að ná í þá milli kl. 10-16. FYRIR skömmu lagði Víkveiji leið sína upp í Hvalfjörð til að líta á þær tröllauknu fram- kvæmdir sem þar eru í gangi um þessar mundir. Má skipta þeim í þrennt, gangagerð undir Hvalfjörð, vegaframkvæmdir frá göngunum og loks byggingu nýs álvers á Grundartanga. Eins og við mátti búast var ekki heimilt að fara ofan í göngin til að skoða framkvæmdirnar þar en tilsýndar mátti sjá að þarna er um geysimikið mannvirki að ræða. Jafnframt mátti sjá stórvirkar vél- ar vinna að því að byggja upp nýjan Þjóðveg 1 frá gangamunn- anum norðanmegin Hvalíjarðar. Leiðin mun liggja beggja megin við Akrafjall og mun tíminn leiða í ljós hvora leiðina ökumenn velja fremur. Víkveiji er ekki í nokkrum vafa um að þegar búið verður að brúa Leirárós munu langflestir leggja leið sína eftir þjóðveginum framhjá Akranesi og yfir ósinn. Heyrst hefur að brú yfir Leirá- rós muni kosta 700 milljónir króna. Þegar Víkveiji skoðaði aðstæður þarna nýlega fannst honum sú tala með ólíkindum há. Það hlýtur að vera mögulegt að byggja þetta nauðsynlega samgöngumannvirki fyrir minni pening. xxx FRAMKVÆMDIR við bygg- ingu nýs álvers á Grundart- anga ganga vel. Er áætlað að 3-400 manns vinni við fram- kvæmdirnar þegar mest verður. Bygging álversins og starfsemin þar, þegar hún verður komin í gang, er mikil lyftistöng fyrir byggðirnar í kring. Þegar Víkveiji var staddur á verksmiðjusvæðinu og leit í allar áttir gat hann ekki annað en undr- ast þau kröftugu mótmæli sem höfð voru uppi gegn verksmiðj- unni. Næstu bæir eru í margra kílómetra fjarlægð svo hætta á mengun er alveg hverfandi ef þá nokkur. xxx ÍKVERJI lék hring á hinum nýja golfvelli við Korpúlfs- staði á mánudaginn í yndislegu veðri. Við ána Korpu voru menn við laxveiðar, hestar voru á beit við ána og á skeri úti fyrir strönd- inni lágu þrír selir og spókuðu sig í góða veðrinu. Víkveiji veltir því fyrir sér hvort nokkur borg geti boðið uppá annan eins golfvöll? x x x EITT ísafjarðarblaðanna skýrði á dögunum frá björgunar- afreki Jóns Karls Snorrasonar flugstjóra á Fokker-flugvél Flugfé- lags Islands. Þegar Jón var að lenda vélinni á ísafirði sá hann önd sem var að labba yfir flugbrautina með ungahóp sinn. Jón lyfti vélinni yfir hópinn og lenti henni eins og ekkert hefði í skorist. Svona eiga flugstjórar að vera! Vinnmgaskrá 14. útdráttur 14. ágúst 1997. Kr. 2.000.000 íbúðavinningur __________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 21740 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 11945 T 26205 36166 56977 Ferðavinningur Kr. 50.000 18260 21840 31341 46635 57264 60696 19700 29826 33250 46736 59818 62210 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 236 7785 17665 32610 44708 52382 62705 76549 964 8649 20706 32845 45145 54406 63277 76856 2668 8890 21263 32908 45167 54437 64550 77502 2929 11377 22176 35460 46362 55275 65929 77847 3142 11923 22310 35523 46776 55294 66155 78289 4225 13819 23848 35594 47474 55390 67405 78609 5571 14078 24030 36986 47638 56161 68298 79063 6217 15050 26710 38499 47820 56814 68415 79423 6389 15151 27067 38543 48865 59271 72293 79624 6439 15375 27807 38816 49771 60552 73281 6937 15807 28131 43126 49781 60769 73903 6972 16227 28801 43192 50625 60789 74544 7292 16347 32416 43589 51604 62623 76042 Húsbúnaðarvinningur 498 11619 20316 32800 44068 52761 60351 71888 720 12304 21077 33305 44183 52776 61833 72722 2044 12524 21155 33348 44494 53143 62440 72897 2215 12937 21289 33492 45086 53196 62461 72969 2611 13019 21312 33573 45088 53269 62626 73295 2910 13398 21680 33617 45599 53536 62653 73608 3070 13551 21741 33887 45780 53825 62876 73691 3080 13627 22380 34224 45910 54383 63479 73870 4106 14038 22904 34674 46103 54578 63607 74570 4772 14866 23139 34984 46631 54761 63726 75350 4902 14988 23190 34991 46891 54913 64379 75745 5214 15043 23379 35371 47598 54988 64812 75911 5248 15049 23521 35650 47843 55354 65002 76700 5684 15209 24197 35764 48064 55756 65278 76788 5782 15650 248891 36540 48163 56076 65698 76899 6014 15691 25063 36869 48394 56174 66251 77025 6204 16079 25134 37532 49189 56236 66500 77209 6810 16240 25156 37542 49356 56342 67231 77240 8013 16869 25339 37546 49591 56379 67731 78177 8028 17040 25558 38498 49841 56428 67860 78201 8283 17103 25986 38530 49949 56715 68140 78358 8378 17722 26184 39198 50105 57179 68513 79587 8403 17880 26680 39657 50196 57448 68618 79868 8918 18127 29099 41209 50307 57854 69200 79889 9059 18411 29842 42070 51051 58493 69519 79939 9376 18436 30350 42349 51164 58996 70094 79985 9671 18488 31086 42638 51229 59116 70310 9808 18572 31262 43416 51707 59806 70919 10171 18817 31342 43464 51764 60000 71091 10462 19773 31685 43831 52274 60025 71158 10652 19945 31882 43864 52366 60253 71237 11409 20009 32211 43936 52568 60316 71329 Næsti útdráttur fer fram 21. ágúst 1997 Greiðsla vinninga hefst viku eftir útdrátt. Vinnings ber að vitja innan árs. I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Komum í veg fyrir samviskubit ÞAÐ ER hörmulegt að lesa „gefins-dálkinn" í DV á miðvikudögum. Undan- tekningarlítið er aðeins um að ræða kettlinga, full- orðnar kisur, hvolpa og hunda sem fólk vill losna við. Góða fólk, það er svo auðvelt að losna við áhyggjurnar og sársauk- ann sem fylgir því að gefa í misjafna umönnun eða þurfa að láta svæfa þessi Íitlu dýr. Það kostar að vísu smápening og reglu- semi að láta læður á pill- una. Líka er aðgerð lausn- in og er í raun ódýrari en pillan ef litið er til lengri tíma. Losnið við samvisku- bit og tárvot augu, en þetta vitið þið nú allt. Það er bara að framkvæma, hugsið um þetta í alvöru. Álfheiður Tapað/fundið með strætisvagni úr Kópa- vogi að Kringlunni og gekk í gegnum Fossvoginn, en fór þaðan með leigubíl nið- ur í miðbæ Reykjavíkur. Umgjörð gleraugnanna er físlétt og lítil og er hún húðlituð. Gleraugun voru í hálfbrotnu gleraugnaboxi með svörtum grunni og marglitu skrauti á. Skilvís finnandi er vinsamiega beðinn að hafa samband síma 564-4810. Hjól í óskilum VÍNRAUTT og hvítt þriggja gíra hjól fannst upp við húsvegg í Garðabæ sl. mánudag. Eigandinn má vitja þess í síma 565-3479 fyrir kl. 15 á daginn. Úr fannst VANDAÐ unglingaúr fannst í ijörunni rétt hjá golfskálanum á Seltjarnar- nesi sl. þriðjudagskvöld. Upplýsingar í síma 551-4332. gefins á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 551-2481. Köttur fæst gefins EINS OG hálfs árs svartur og hvítur, geldur og kassa- vanur fressköttur fæst gefms á gott heimili vegna ofnæmis á núverandi heimili. Upplýsingar í síma 567-5542. Köttur tapaðist STÓR svartur fressköttur sem gegnir nafninu Skuggi var í pössun í Efstasundi 12 en strauk úr vistinni sl. sunnudag. Hann var ólar- laus, en eyrnamerktur. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann vinsam- lega beðinn að láta vita í síma 588-2326. Hver tók gráan hatt í misgripum? ELLIMÁLARÁÐ Þjóð- kirkjunnar var með sam- verustund í Laugarnes- kirkju miðvikudaginn 5. júní sl. Þá var grár hattur tekinn í misgripum og ann- ar mjög líkur, en minni, skilinn eftir. Viðkomandi er góðfúslega beðinn að athuga þetta og hringja í síma 568-5278, 588-9422 eða 554-0322. Gleraugu töpuðust GLERAUGU af gerðinni Air Titan, týndust um síð- ustu helgi. Eigandinn fór Gæludýr Týndur köttur ÞESSI köttur hefur gert sig heimakominn á Skúlagötu 56 í um mánaðartíma. Hann segist vera villtur og ekki rata heim. Hann er ógeltur fress, u.þ.b. árs gamall og er mjög blíður og húsvanur. Hann segist sakna afskap- lega eigenda sinna og þó honum líði vel hjá Vilmundi (s. 562-6447) vill hann helst komast heim sem fyrst. Ef einhver þekkir hann er hann beðinn að hafa samband. Læða í óskilum DÖKKBRÖNDÓTT full- vaxin læða, síamsblend- ingur, hefur verið í óskilum í töluverðan tíma í vest- urbæ Hafnarfjarðar. Hún er með blágræn augu og ljósgráa ól á hálsi. Eigand- inn er vinsamlega beðinn að vitja hennar í síma 555-0125. Köttur fæst gefins FIMM mánaða kolsvartur fresskettlingur, með ein- dæmum snyrtilegur, fæst Kormákur týndist í Meðalfellslandi KORMÁKUR, sem er svartur og hvítur tveggja ára fressköttur, fór í sum- arbústað með fjölskyldu sinni við Meðalfellsvatn 9. ágúst sl. Hann slapp út og síðan hefur ekkert til hans spurst. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 581-1315 eða hafa samband við Kattholt í síma 567-2909. SKAK llmsjón Margcir Pétursson STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti í Stokkhólmi sem nú stendur yfir. Rússinn Evgení Agrest (2.505), sem sestur er að í Svíþjóð, hafði hvítt og átti leik gegn John-Paul Wallace (2.350), Ástralíu. Með síðasta leik sínum, 29. - Dd7-d5?? gaf svartur höggstað á sér: HVÍTUR leikur og vinnur. 30. Rf6+! - gxf6 31. Bxh6 - Kh7 32. Dxf8 - Kg6 33. Dg7+ (33. g4 var mun einfald- ara) 33. - Kh5 34. Be3 - Rxe5 35. g4+! - Kxh4 36. Dxf6+ - Kxg4 37. Df4+ og svartur gafst upp því mátið blasir við. Staðan á mótinu er þannig, þegar tefldar hafa verið níu umferðir af ell- efu: 1.-2. Helgi Ólafsson og Michail Ryts- hagov, Eistlandi 7 v. af 9 mögulegum, 3.-4. Tarvo Seeman, Eistlandi og Evg- ení Agrest, Rússlandi 6'A v., 5.-6. Lars Karlsson og Ralf Ákesson 6 v., 7.-8. Peter Laveryd og Patrik Lyrberg 3'A v., 9. Mats Sjö- berg 3 v., 10. Thomas Engqvist 2'A v._, 11. John- Paul Wallace, Ástralíu 1 'U v., 12. Johan Hultin 1 v. Helgarskákmótið á Mjóafirði hefst í kvöld kl. 20. Upplýsingar hjá Tíma- ritinu Skák Víkveiji skrifar...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.