Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 19 ERLEIMT Reuter JONNY Winters, Elviseftirherma frá Köln í Þýskalandi, stillir gítarinn fyrir utan skrifstofur Sun-hljómplötuútgáfunnar í Memphis, en þar í borg hóf hann ferilinn. Tuttugri ár liðin frá því Elvis Presley lést „Konungurinn er allur“ „ELVIS Presley, sem olli byltingu í bandarískri dægurtónlist með ófáguðum söngstíl og var hetja tveggja kynslóða rokktónlistar- unnenda, lést í gær í Memphis, Tennessee. Hann var 42 ára.“ Þannig hófst frétt í bandaríska blaðinu Washington Post fimmtu- daginn 17. ágúst 1977, eða íyrir réttum tuttugu árum. Þau tíðindi, er þarna var greint frá, að konungur rokksins væri allur, mörkuðu ákveðin þáttaskil í bandarískri sögu, því með hon- um var genginn einn kyndilbera nýrra viðhorfa til lífsins og tilver- unnar, sem hafði gefíð einni kyn- slóð tóninn, í eiginlegri og óeigin- legri merkingu, í uppreisn hennar gegn annarri. Lík Presleys fannst klukkan hálf þijú síðdegis að staðartíma í Memphis. Hann var á heimili sínu, óðalinu Graceland. Jerry Esposito, einn framkvæmdastjóra hans, fann hann . I frétt Washing- ton Post daginn eftir kom fram að dánarmein Presleys hafi verið sagt mjög óreglulegur hjartslátt- ur, sem teldist í rauninni hjarta- áfall. Þriggja klukkustunda krufning hefði ekki leitt í ljós merki um nein önnur mein. Engin merki fundust um ofnotkun lylja. Elvis Aaron Presley fæddist í Tupelo í Mississippi 8. janúar 1935. Tvíburabróðir hans, Jesse Garon, lést við fæðingu. Elvis var 18 ára þegar hann fór fyrst í upptökustúdíó í Memphis og reiddi fram fjóra dollara til að taka upp lögin „My happiness“ og „That’s when your heartaches begin“ til þess að gefa móður sinni. En hann hóf söngferilinn fyrr, söng sálma og gospellög með for- eldrum sínum, Vernon og Gladys. Þau gáfu drengnum gítar þegar hann var 11 ára, og þótt hann yrði ímynd uppreisnarseggsins sem gaf lítið fyrir gildi genginna kynslóða var hann ætíð nátengd- ur foreldrum sínum, ekki síst móður sinni, sem var honum kær- ari en flest annað. Plötur hans seldust í meira en 500 milljónum eintaka á meðan hann lifði og hann lék í 33 kvik- myndum. Þegar hann kom fram í sjónvarpsþætti Eds Sullivans 1956 æptu unglingar sig hása en kaþólskur prestur átaldi drenginn fyrir „siðbrot". Gagnrýnanda New York Times þótti lítið til koma, enda yrði varla greint að Presley þessi hefði söngrödd að ráði. Gagnrýnandi Washington Post sagði um eina af fyrstu kvikmynd- unum sem Presley Iék í, að vin- sældir hans væru til marks um „ungdómsdýrkun, ungdóms sem er hrár, óreyndur og óagaður, ungdóms sem dýrkar hinar frum- stæðustu hvatir og líkamlegan þokka, ungdóms sem á enga sam- leið með sér eldra fólki." Fyrsta maí 1967 giftist hann Pricillu Beaulieu og í febrúar 1968 fæddist þeim dóttir, Lisa Marie. Hjónabandinu lauk með skilnaði í október 1973. Skömmu eftir það fóru að berast fréttir af því að Presley ætti við heilsu- brest að stríða. Fregnin af láti hans barst um allan heim. í Santíagó í Chile var prentun dagblaða stöðvuð og út- varpsstöðvar breyttu dagskránni og greindu frá ævi „el Rey de Rock ’n’ RoIl.“ Evrópskar út- varpsstöðvar, þar á meðal Radio Luxembourg, hættu reglulegum útsendingum og hófu að spila tón- list konungisins. „Konungurinn er allur," sagði fyrrum Bítill, John Lennon. „En rokktónlistin mun aldrei deyja. Lengi lifi konungurinn." Ath! Við höfum opið lengur: Föstudag 9-20 - Laugardag 10-17 KEFLAVIK: Bílasala Reykjaness Hafnargötu 88 Sími 421 6560 BORGARNES: Bílasala Vesturlands Borgarbraut 58 Sími 437 1577 SELFOSS: Betri bílasalan Hrlsmýri 2a Sími 482 3100 REYÐARFJORÐUR: Lykill hf. Búðareyri 25 Sími 4741199 AKUREYRI: Bifreiöaverkstæöi Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 Sími 462 2520 Sunnudaginn 17. ágúst veröur einnig opiö kl.13-17 í Bílahúsinu LrÍL/LMÚ SÍ® (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöföa 2 • Reykjavík Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf 587 7605 Einnig ÚTSALA á ÚTILEIKFÖNGUM frá BJARKEY á fjölda notaöra bíla Nú er tækifærib! Vegna gífurlegrar sölu á nýjum bílum hjá Ingvari Helgasyni og Bílheimum seljum viö fjölda notaöra bíla meö alvöru afslætti. Frábær greiöslukjör: Engin útborgun og lán til allt ab 48 mánaða Fyrsta afborgun getur veriö eftir allt að 6 mánuði Visa/Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða Þú kemur og semur Rýmingarsala Frábær greiðslukjör: Engin útborgun og lán til allt að 48 mánaba Fyrsta afborgun getur verib eftir allt ab 6 mánuöi Visa/Euro rabgreibslur til allt ab 36 mánaða. á notuðum Þú kemur og semur dráttaruélum, Ath! Við höfum opið lengur: Föstudag 9-20 - Laugardag 10-17 - Sunnudag 13-17 gröfum og | | í! Helgason hf. Ueififínnutæklum Simi 525 8000 Beimi sími sölumanna 525 8070
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.