Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 20

Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Tveir úr áhöfn geimstöðvarinnar Mír lenda í Kasakstan Reuter VASSILÍ Tsiblyev, yfirmaður áhafnar geimstöðvarinnar Mír, veifar til jarðarbúa á meðan félagi hans Alexander Lazútkín styður við höfuð sér eftir lendingu jieirra í óbyggðum Kasakstans í gær. Sex mánaða erfið dvöl úti í geimnum að baki Dzhezkazgan í Kasakstan. Reuter. Arafat segir Isra- ela skorta friðarvilja Viðbragða Banda- ríkjanna beðið Ramallah, Jerúsalem. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, sagði í gær, að því miður væru stjórnvöld í Israel ekki reiðu- búin til að vinna að friði í Mið- austurlöndum. Er viðbragða Bandaríkja- stjómar beðið með eftirvænt- ingu en sendi- maður hennar, Dennis Ross, sneri heim á mið- vikudag eftir að hafa rætt við fulltrúa Israela og Palestínumanna. Arafat sagði á fundi í gær í Ra- mallah með ísraelskum friðarsinn- um og vinstrisinnuðum þingmönn- um, að ísraelsstjóm kærði sig því miður ekki um að vinna að friði í Miðausturlöndum. Sagði hann, að refsiaðgerðirnar gegn Palestínu- mönnum væm famar að hafa alvar- legar afleiðingar enda hefði Net- anyahu, forsætisráðherra Israels, talið það betri kost að berjast gegn Palestínumönnum en hryðjuverka- mönnum. Stjómvöld í ísrael segjast ekki munu aflétta banni við ferðum Pal- estínumanna til ísraels fyrr en Ara- fat hefur gengið á milli bols og höfuðs á hryðjuverkamönnum og hún hefur bannað, að fé, sem Palest- ínumenn eiga útistandandi í ísrael, verði greitt þeim. Beðið eftir Bandaríkj astj órn Talsmaður Arafats sagði í gær, að nú ættu Bandaríkjamenn leikinn en Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur boðað komu sína til Miðausturlanda síðar 5 mánuðinum hafi ísraelum og Pa- lestínumönnum orðið eitthvað ágengt í viðræðum sínum um örygg- ismál. Lltlar vonir virðast þó vera bundnar við, að henni takist að koma friðarsamningunum af stað aftur. TVEIR rússneskir geimfarar sneru heim til jarðar í gær, eftir mjög erf- iða hálfs árs langa dvöl í geimstöð- inni Mír. Geimfararnir, Vassilí Tsiblíjev og Alexander Lazútkín, svifu niður frá geimstöðinni í Soyuz- fari og lentu heilu á höldnu í hijós- trugri víðáttu Kasakstan-steppunn- ar um klukkan 12:20 að íslenzkum tíma. Tvímenningarnir, sem hafa mátt reyna margt á undanförnum mánuð- um, brostu breitt er þeir skriðu út úr málmhylkinu sem flutti þá í gegn um gufuhvolfíð. Tsiblíjev, sem virtist betur á sig kominn, sagði viðstödd- um að hann væri „feginn að vera kominn aftur til jarðar“. Strax að lokinni lendingunni voru geimfaramir drifnir í læknisskoðun. Menn höfðu haft nokkrar áhyggjur af heilsufari Tsiblíjevs; hann hafði átt við hjartsláttarvandamál að stríða um borð í geimstöðinni. Að læknis- skoðuninni lokinni vottuðu læknarnir að Tsiblíjev væri við góða heilsu. Að því loknu var flogið með tví- menningana í þyrlu til bæjarins Dzhezkazgan, þar sem þeir undir- gengust frekari rannsóknir, gáfu eiginhandaráritanir og heilsuðu heimamönnum. Styðja þurfti geim- farana, þar sem sex mánaða dvöl í þyngdarleysi hefur sín áhrif á líkam- legan mátt og jafnvægisskyn. Júrí Glaskov, næstæðsti yfirmað- ur þjálfunarstöðvar geimfaranna, tjáði fréttamönnum að hann væri ánægður með ásigkomulag geimfar- anna. Aðspurður um öll þau alvar- legu vandamál, sem upp hafa komið í Mír á þeim tíma sem geimfararnir tveir dvöldu þar, sagði hann að þeir yrðu spurðir nánar út í það síðar. Yfirheyrslur framundan Viktor Blagov, aðstoðarleiðang- ursstjóri í stjórnstöð Mír, dró hins vegar enga dul á það að Tsiblíjev, sem var yfirmaður áhafnarinnar um borð í geimstöðinni, mætti búast við því að þurfa að svara erfiðum spurn- ingum í tengslum við árekstur Mír við birgðafar 25. júní sl., sem olli skemmdum á geimstöðinni sem ekki hefur enn tekizt að gera við. í síðustu viku gaf Boris Jeltsín Rússlandsforseti í skyn að ástæður óhappsins afdrifaríka mætti að lík- indum rekja til mannlegra mistaka. En í gær sendi hann geimförunum tveim þakkarskeyti, þar sem hann lofar „þol, hugrekki og hetjuskap, sem þeir sýndu í leiðangrinum". Arafat Þjóðveijar deila harkalega um nýjar réttritunarreglur þýzkrar tungu Akvörðun í hendur stj órnlagadómstóls FÁTT er um meira deilt þessa dagana í Þýzka- landi en nýjar reglur um réttritun þýzkrar tungu, sem ákveðnar voru í fyrra og eiga að ganga í gildi í skólum og opinberum stofnun- um þýzkumælandi landa 1. ágúst 1998. Bind- andi á þó nýja réttritunin ekki að verða á öllu þýzka málsvæðinu fyrr en árið 2005. Menntamálaráðherrar þýzku sambands- landanna sextán samþykktu nýju reglurnar ásamt fulltrúum menntamálayfirvalda Austur- ríkis, Sviss og þeirra Austur-Evrópulanda, þar sem enn Iifa þýzkumælandi minnihlutahópar. Þessi samþykkt átti sér langa forsögu, þar sem umræða um endurskoðun þýzku réttritun- arreglnanna hófst fáum árum eftir síðari heimsstyijöld. Þær reglur sem gilt hafa hing- að til hafa verið óbreyttar að grunni til í níu áratugi. En nú er babb komið í bátinn. Þótt nýju reglurnar hafi formlega enn ekki verið inn- leiddar í öllu Þýzkalandi hafa menntamálayfir- völd í nokkrum sambandslöndum þegar gefið út reglugerðir um þær og þar af leiðandi hafa barnaskólar á þessum svæðum þegar hafízt handa við að kenna börnum nýju stafsetning- arreglurnar. Þessu hafa margir foreldrar ekki viljað una. Dómstólar í fímm sambandslöndum hafa nú fjallað um kærur, sem foreldrar hafa lagt inn vegna óánægju með að þessum nýju reglum skuli vera haldið að börnum þeirra. Meginröksemdin lögfræðilega sem tínd er til fyrir því að óheimilt sé að kenna nýju reglurn- ar í skólum eins sambandslands áður en þær eru orðnar bindandi fyrir alla er sú, að breyt- ingin á reglunum snúist ekki einvörðungu um þær reglur sem kenndar eru í stafsetningar- tímum og notaðar eru á opinberum skjölum, heldur sé verið að breyta rithætti alls ritaðs máls. Nýjasti úrskurðurinn í slíku kærumáli féll í fyrradag, þegar æðri stjórnsýsludómstóll (Oberverwaltungsgericht) Slésvíkur-Holtseta- lands, vísaði frá kæru foreldra nokkurra frá Liibeck. Áður höfðu dómstólar á lægra dómstigi (Landesverwaltungsgericht)í Hessen og Neðra-Saxlandi fallizt á samsvarandi um- kvartanir foreldra. Þar með hafa dómstólarnir komið í veg fyrir að kennt verði eftir nýju reglunum í viðkomandi sambandslöndum. Dómstólar í Þyringjalandi og Rheinland-Pfalz höfðu hins vegar vísað hliðstæðum kærum frá og þannig „gefið grænt ljós“ á að nýju reglurn- ar séu kenndar strax í skólum þessara sam- bandslanda. En með því að dómstóll á æðra dómstigi hefur nú vísað kæru af þessu tagi frá, eins og gerðist í Slésvík-Holtsetalandi í fyrradag, geta viðkomandi foreldrar, sem lögðu inn kæruna, snúið sér til æðsta dómstóls Þýzka- lands, stjórnlagadómstóls sambandsríkisins (.Bundesverfassungsgericht) í Karlsruhe, og falið honum að skera úr um hvort með nýju reglunum sé verið að skerða grundvallarrétt- indi þeirra, sem tryggð eru í stjórnarskránni. Varðar meira en „skólaþýzku“ Að mati stjórnsýsludómstólsins í Slésvík er ekki um skerðingu á neinum grundvallarrétt- indum að ræða, þar sem „réttritun á þýzka málsvæðinu byggist ekki á löggjöf, heldur á málfræðilegum og þar með ekki lagalegum reglum". En dómstóllinn féllst þrátt fyrir það á, að nýju stafsetningarreglurnar varði ekki aðeins „skólaþýzku“, heldur rithátt þýzkrar tungu yfirleitt á öllu þýzka málsvæðinu. Þetta atriði er mikilvægt, því það stangast á við meginröksemd þá, sem menntamálaráð- herrar sambandslandanna hafa teflt fram í deilunni, en hún er sú að breyting stafsetning- arreglnanna sé ekki „veigamikil“ breyting á þýzku tungunni, þar sem nýju reglurnar séu einungis fyrir skólana og opinber skjöl. Þess vegna falli ákvörðunarvaldið yfir slíkri breyt- ingu fyllilega undir valdsvið ráðherranna, en varði ekki löggjafarþingin. Dómstólarnir í Hessen, Neðra-Saxlandi og Rheinland-Pfalz, sem fjallað höfðu hver um sig um málið, komust að þeirri niðurstöðu að heppilegast væri að nýjar stafsetningarreglur hlytu lagalegan grundvöll, en það myndi hafa í för með sér að öll þing sambandslandanna 16 auk Sambandsþingsins í Bonn og þjóðþinga Austurríkis og Sviss yrðu að samþykkja breyt- inguna. Með tilliti til þess, að skoðanakannan- ir í Þýzkalandi benda eindregið til að meiri- hluti almennings sé andsnúinn breytingunum, eins og samið var um þær í fyrra (Bild-Zeit- ung segir 92,5% Þjóðveija andvíga), má gera ráð fyrir að fáir þingmenn treysti sér til að taka afstöðu sem gengi þvert á meirihluta- vilja kjósenda. Frestun fram í hið óendanlega? Hvenær vænta má niðurstöðu í þessari sér- stæðu deilu er óljóst. „Stjórlagadómstóllinn mun leggja sig fram um að ná niðurstöðu fljótt," sagði talsmaður dómstólsins, Uta Förster. Að mati sérfróðra má gera ráð fyrir að dómstóllinn nái niðurstöðu fyrir lok þessa árs. En hvað ef niðurstaðan verður sú, að nýju reglurnar verði dregnar til baka, að ekkert verði úr öllu saman? Eitt er ljóst, að kostnaður- inn af því yrði mikill. Öll skóla- og orðabóka- forlögin, sem hafa prentað bækur í stórum upplögum með nýju stafsetningunni, munu fara fram á skaðabætur. Hin þýzkumælandi ríkin, sem samþykkt höfðu breytingarnar munu gera það einnig. Afleiðingin gæti orðið sú, að endurskoðun þýzkrar réttritunar frest- ist um ófyrirsjáanlegan tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.