Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 23
LISTIR
KVIKA, 1997. Hlynur Helgasou.
HILLINGAR
MYNDLIST
K c 1 i 1 h ú s i ð ,
Gilfclagiö Akurcyri
BLÖNDUÐ TÆKNI
HLYNUR HELGASON
Opið daglega kl. 14-18 til
16. ágúst, aðgangur ókeypis.
í KETILHÚSI á Akureyri sýnir
Hlynur Helgason tvö rýmisverk.
Sýningin ber yfirskriftina „Hilling-
ar“ og notar Hlynur frumsamda
texta í verkum sínum. A bómullar-
efni þrykkir hann óræðar setningar
á víxl þannig að letrið rennur sam-
an og verður ógreinilegt. „Hvika“
er titill verksins og er gríðarstór
dúkur strekktur yfir hálfan salinn
í hallandi stöðu milli veggja. Hug-
iæg framsetning ræður efnistökum
verksins og birtast misskýrir text-
ar báðum megin efnisflatarins.
Setningar eins og til að mynda „ég
reisi mig upp og horfi" og „milli
vonar og ótta“ er tilfinning hug-
renningatengsla sem birtast á
grunninum.
í hinn helming salarins hefur
Hlynur unnið verk út frá söguleg-
um forsendum staðarins. Verkið
er í þremur einingum og hefur
heitið „í minningu ...“ Gamlar ljós-
myndir eru notaðar sem endur-
minning um hlutverk og hvers-
dagslega önn staðarins. Myndirnar
eru tölvuunnar og stækkaðar og
þeim komið fyrir í hringlaga snið-
um á veggi og gólf salarins. Hug-
læg úrvinnsla fyrirmyndanna er
hlaðin texta sem markar tvo sam-
fellda hringi umhverfis hveija
mynd. Með því að hlutgera staðinn
öðiast rýmið þannig merkingu.
Hlynur leitast við í verkum sín-
um að tengja saman innbyrðis
þætti með huglægri úrvinnslu á
áþreifanlegan hátt og áhorfandinn
verður þannig hluti af verkinu í
rýminu.
Listsýningar og
kvikmyndahátíð
á Seyðisfirði
LISTASUMARIÐ á Seyðisfirði
heldur áfram og í dag verður opn-
uð sýning listamannanna Kristjáns
Guðmundssonar og Sigurðar Guð-
mundssonar. Einnig hefst íslenzk
kvikmyndahátíð, þar sem sýndar
verða 16 kvikmyndir og tvær stutt-
myndir.
Kvikmyndirnar, sem sýndar
verða, eru: Á köldum klaka, Benj-
amín dúfa, Bíódagar, Börn náttúr-
unnar, Djöflaeyjan, Draumadísir,
Einkalíf, Ein stór íjölskylda,
Hringurinn, Hvítir mávar, Ingaló,
Kúrekar norðursins, Magnús,
Rokk í Reykjavík, Skytturnar og
Tár úr steini.
Sýning þeirra Kristjáns og Sig-
urðar verður í skólahúsinu og þar
var nýlega opnuð sýning á verkum
íslenzkra myndlistarkvenna, sem
búsettar eru í Englandi. Þar sýna
Ásta Kristinsdóttir, Berghildur
Anna Jónsdóttir, Guðrún Níelsen,
Helga Lára Haraldsdóttir, Karo-
lína Lárusdóttir, Nanna Dýrunn
Björnsdóttir, Skúlína Kjartans-
dóttir og íris Siguijónsdóttir.
í Pálshúsi við Austurveg sýna
Roni Horn, Páll Guðmundsson,
Ragna Róbertsdóttir, Hólmfríður
Rán Sigvaldadóttir og Sigrid Vait-
ingojer. Heimamenn sýna í Skafta-
felli; Ásgeir Jón Emilsson, Bjartm-
ar Guðlaugsson, Einar Emilssonj
María Gaskell og Louise Heite. I
upplýsingamiðstöðinni eru sýnd
verk Stefáns frá Möðrudal.
Kir sub e rj atré ð vex
LISTAKONURNAR í Kirsubeija-
trénu, Vesturgötu 4, íjölgar um
helgina þegar Fríða S. Kristins-
dóttir, vefari og mynd- og hand-
menntakennari við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, bætist í hópinn.
Kirsubeijatréð reka sjö listakon-
ur. Þær heita: Anna Þóra Karls-
dóttir, flóki, Arndís Jóhannsdóttir,
roðtöskur, Fríða S. Kristinsdóttir,
vefnaður, Hulda B. Ágústsdóttir,
skartgripir, Margrét Guðnadóttir,
körfur, Unnur Knudsen, textíll og
Valdís Harrýsdóttir, grísablöðrur.
Blöndunartæki,
hreinlætistæki,
stálvaskar, sturtuklefar,
heimilistæki, innihuröir, parket, Ijós, gólfdúkar,
flísar, baöinnréttingar, eldhúsinnréttingar,
fataskápar og margt, margt fleira meö
allt aö 40% afslætti.
Útsalan í Hólf & Gólf Breiddinni stendur
til 20. ágúst, og á sama tíma eru sértilboð
Hólf & Gólf í öðrum verslunum BYKO.
eru allar vörur á
í Hólf & Gólf.
útsölu
CD
<
u.
BYKO