Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 32

Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Þorkell Jónsson fæddist á Fitj- um í Hrófbergs- hreppi í Stranda- sýslu 21.7. 1898. Hann lést á Dvalar- heimilinu Grund 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Árnason bóndi á Filjum, f. 10.5. 1867, d. 2.5. 1945, og Helga Tómasdóttir, f. 12.6. 1872, d. 25.12. 1951. Systkini hans voru Helga Guð- Björg, f. 11.7. 1895, d. 1981. Arni Eyþór, f. 22.11. 1897, d. 1987. Hólmfríður, f. 6.1. 1901, d. 1993. Guðmundur Gísli, f. 9. 12. 1902, látinn, Sveinn, f. 27.2. 1905, dó ung^ur. Finnur, f. 15.9. 1907, d. 1982. Guðjón, f. 22.12. 1909, d. 1935. Guðrún Jenný, f. 3.4. 1914. d. 1997. Þorkell kvæntist Ingibjörgu Magnúsdóttur, f. 15.4. 1899 á Kleifum i Kaldbaksvík, d. 26.12. 1982. Börn þeirra Guðbjörg, f. 5.3. 1929. Dvelur í Ási í Hvera- gerði, Ragnar, f. 7.8. 1931, d. 18.1.1994. Maki Margrét Karls- Fimm ára gamall sá ég Kela ömmubróður minn fyrst. Hann hálf- hljóp hvert sem hann fór, enda kall- aður á sprettinum af samferðafólki sínu. Ég man vel ennþá að hann var einn af þeim sem ég hafði engan beig af, hálfumkomulaus sveinstauli frá Reykjavík að heimsækja ömmu á Nesinu sem var næsta hús við Dvölina, hús Kela frænda og Imbu konu hans á Hólmavík. í brjósti Kela hafði hið góða tekið sér varan- lega bólfestu. Jón Þorkell Jónsson, eins og hann hét fullu nafni, var tekinn ungur í fóstur af Finni Jóns- dóttir, f. 14.3. 1934, búsett í Flórida síð- ustu ár. Börn þeirra Ingibjörg, f. 17.11. 1954, maki Kashma Owen Mohamed, börn Kristine Mar- grét, f. 6.2. 1979. Kash, f. 27.5. 1986. Sigurbjörg, f. 18.12. 1955, maki Einar Emil Einarsson. Hennar barn Fann- ey Guðrún, f. 13.3. 1976, maki Már Harðarson. Þeirra barn óskírð dóttir, f. 25.7. 1997. Þorkell, f. 12.6. 1957. Maki 1. Helga Þormóðs- dóttir, skildu. Maki 2. Donna Mayday, skildu. Haraldur Rún- ar, f. 5.11. 1960. Helgi Már, f. 6.2. 1964. Barn hans Einir Freyr, f. 29.6.1983. Maki Jenni- fer Choen. Börn þeirra Stefán Ágúst, f. 24.4. 1997 og Vanessa Leigh, f. 24.4. 1997. Arnar, f. 25.7. 1966. Sonur Margrétar og fóstursonur Ragnars Kristján, f. 25.1. 1953. Útför Þorkels fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. syni bónda í Kálfanesi og konu hans Sólveigu Jónsdóttur. Þau voru ættuð frá Skriðnesenni og Víðidalsá. Um átta ára flytur Keli með þeim í Innri Fagradal í Saurbæ í Dalasýslu og er þar í 19 ár. Þar var gott að vera og þau voru mér ævinlega góð, sagði Keli mér. Eftir lát þeirra hjóna fór Keli fljótlega í kaupamennsku að Bæ í Reykhólasveit. Þar var vinnu- dagnrinn oft langur. Nokkrum árum seinna flutti Keli svo aftur til Hólma- víkur. Þar kynntist hann lífsförunaut sínum, Ingibjörgu Magnúsdóttur, sem var af flórða lið frá Páli Jóns- syni, forföður Pálsættar. Þau hófu búskap sinn eftir giftingu í gamla símstöðvarhúsinu og seinna fluttu þau á neðri hæð húss fósturbróður Kela, Benedikts Finnssonar, sem einnig var fluttur til Hólmavíkur. Keli gerðist nú daglaunamaður, réri til fiskjar út á fjörð. Þá voru ekki þeir fjötrar sem nú, að ekki mátti draga björg í bú í firði fullum af fiski. Keli helgaði kaupfélaginu starfskrafta sína og var lengi ullar- matsmaður og gegndi einnig því trúnaðarstarfi að vera í sláturtíðinni skotmaður. Þá var fé og stórgripir aflífað með kúluskotum og aðstæður í gamla sláturhúsinu ekki eins ör- uggar og nútíma kröfur segja til um. Eitt sinn er verið var að aflífa í skotklefanum göróttan grip að skot hljóp í gegn um bárujárnsvegginn og hafnaði í vegg í öðru húsi þar sem menn sátu og tefldu skák. Eng- an sakaði og sýndist fólki þetta enn eitt tákn um gæfu Kela. Vegna þess hve sporléttur hann var og bóngóður sá hann ekki eftir sér í sendiferðir þar sem trúnaðar þurfti við. Allir treystu Kela og hann treysti ævin- lega á hið góða í öllum sem hann umgekkst. Hann var alls staðar aufúsugestur þar sem hann kom. Hann hafði yndi af samræðum við fólk, var glaðlyndur - græskulaus glettni og að leggja öllum gott til var hans stíll. Hann gladdist ævin- lega yfir velgengni annarra. Keli hafði mikið dálæti á tónlist, lék ungur maður á harmonikku og var gleðimaður, dansaði og söng með bræðrum sínum og einnig í kór. Um fertugt lagði Keli þetta af og gerðist bindindismaður vegna veikinda í lungum, sennilega bronk- ítis og dyggðum prýddur tókst hann á við lífið á nýjum nótum. Þetta lýsir persónustyrk hans vel. Keli elskaði fjölskylduna sína mikið. Allri bað hann henni guðs blessunar í hvert sinn sem hún barst í tal og spurt var frétta af fólkinu hans í Ameríku eða stúlkunum hans suður með sjó. Elsku Gugga, Maddí og öll börnin þín og Ragnars heitins. Megi góður ÞORKELL JÓNSSON ÁGÚST PÉTURSSON + Ágúst Pétursson fæddist á Skammbeinsstöðuin í Holtum 11. ágpist 1911. Hann Iést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 8. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Jónsson, f. 7.6. 1874 á Stokka- læk á Rangárvöll- um, d. 29.10. 1940, og Guðný Kristjáns- dóttir, f. 23.7. 1875 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, d. 1961. Systkini Ag- ústs voru níu: Jón Oskar, f. 22.5. 1900, d. 1975, Kristrún, f. 14.7. 1901, d. 1959, Guðjón, f. 26.4. 1903, d. 1979, Guðrún Sigríður, f. 7.2. 1906, Sigurður Helgi, f. 19.5. 1907, d. 1994, Kristján, f. 17.9. 1908, d. 1909, Kristján Karl, f. 27.11. 1909, d. 1989, Ármann, f. 25.11. 1913, d. 1984, Hejga, f. 14.2. 1917. Ágúst kvæntist 30.11. 1940 Sigurlaugu Jóns- dóttur, f. 21.7 1912, frá Húsagarði í Landsveit. Foreldr- ar hennar voru hjónin Jón Hannes- son, f. 30.10. 1874 í Haukadal á Rangár- völlum, d. 1937, og Steinunn Gunn- laugsdóttir, f. 3.2. 1873 á Læk í Holt- um; d. 1954. Ágúst og Sigur- laug eignuðust sex börn. Þau eru Jón Garðar, f. 1941, Sig- rún, f. 1942, Svava, f. 1943, Hörður Gunnar, f. 1945, Steingerður, f. 1948, Áslaug, f. 1950. Barnabörnin eru 16 og barnabarnabörnin 4. Ágúst lauk námi í húsgagna- smíði frá Iðnskólanum í Reykja- vík árið 1937 og rak eigið verk- stæði í fjölda ára. Útför Ágústs fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15:00. Hann elsku afi minn hefur nú feng- ið hvíldina sína. Á fallegu ágúst- kvöldi kvaddi hann þessa jarðvist, þremur dögum fyrir 86 ára afmælis- daginn sinn. í húsinu sem hann byggði við Nökkvavoginn er afaher- bergið tómt og hægindastóllinn í stof- unni auður en þrátt fyrir það mun áfram ríkja þar sú hlýja og um- hyggjusemi sem fylgt hefur heimilinu alla tíð. Afi átti því láni að fagna að hafa hana ömmu við hlið sér í gegnum árin. Hún var hans mesta gæfa í líf- inu og sterk stóðu þau saman í 60 ár. Allt til síðasta dags fékk afi not- ið ástar og einstakrar umhyggju ömmu. Þegar heilsu hans tók að hraka með árunum veitti hún honum alla þá aðhlynningu og hlýju sem hann þarfnaðist því hans vellíðan var hennar hamingja. Á heimili afa og ömmu var oft glatt á hjalla enda margt um mann- inn, bæði var barnahópurinn stór og svo sótti fólk til þeirra í glaðværðina og hlýjuna. Amma, af sinni tak- markalausu gjafmildi, tók öllum opn- um örmum og sá til þess að enginn færi nú svangur heim, afi var hægiát- ari en hafði gaman af þessu líflega heimilislífi og setti sitt mark á það með glettnum og skemmtilegum tils- vörum sem kættu mannskapinn. Og jafnvel þótt aldurinn væri farinn að segja til sín hin síðari ár gat hann enn fengið alla í kringum sig til að veltast um af hlátri með glettninni einni saman sem var honum svo eig- inleg. Afi var smiður af guðs náð og hafði einstaka haga hönd. I Nökkva- voginum er hans fallega handbragð hvert sem litið er, öll húsgögnin smíð- aði hann sjálfur og þessir hlutir eru nú orðnir okkur enn kærari og dýr- mætari en áður. Hann afi minn hefur nú lokið vel unnu dagsverki. Hægt og fallega var hann leystur undan þrautum þessa lífs og er nú kominn á betri og bjart- ari stað eilífs friðar. Ég veit að hon- um líður vel núna og yfir því gleðst ég. Hugur minn er hjá þér, elsku amma Lauga. Góður Guð veri með þér í sorginni og söknuðinum og gefi þér áfram styrk og trú. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Áslaug. Nú þegar komið er að leiðarlokum langar mig til að þakka tengdaföður mínum fyrir þau 30 ár sem við áttum samleið. Þegar ég fyrst kom inn á heimili þeirra Ágústs og Sigurlaugar í Nökkvavogi 23 var mér strax tekið opnum örmum og sýnd vinátta sem ætíð hefur haldist síðan. Mjög var gestkvæmt hjá þeim hjónum, oft mikið fjör og glatt á hjalla enda fjöl- skyldan stór. Má segja að oft á tíðum væri heimilið eins og umferðamiðstöð enda þau hjón ákaflega gestrisin og gott að koma til þeirra. Mér er sagt að Ágúst hafi verið mikill dugnaðarforkur meðan heilsan leyfði. Fór þar saman verkhyggni, lagni, vandvirkni, ósérhlífni og langur vinnutími. Hann var líka ákaflega lífsglaður, músíkalskur og hafði gam- an af lestri góðra bóka þegar tími gafst. Ósjaldan spilaði hann á píanó- ið í Nökkvavoginum og á sínum yngri árum spilaði hann á harmonikku. Á fimmtugsaldri veiktist Ágúst af mænuveiki og bar hann þess aldrei bætur. Hann var frekar dulur og flík- Guð vera með ykkur í minningum um góðan ættföður afkomenda ykk- ar allra. Megi stofnanir þær sem Þorkell og Ingibjörg um mörg ár dvöldu á, Ás í Hveragerði og Grund í Reykjavík, njóta guðs blessunar og þökk sé þeim er hlúðu að þeim þar. Sjálfur þakka ég þær stundir sem við áttum saman og tækifærið til að endurgjalda þér þá gæsku er þú sýndir mér fyrir vestan forðum. Trausti Hólm. í dag verður til moldar borinn Þorkell Jónsson, minn góði granni frá bemskuárunum á Hólmavík, en hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í næsta húsi við foreldra mína, í nyrsta húsinu í þorpinu. Hann lést á elliheimilinu Grund 5. ágúst sl. 99 ára að aldri, þá enn teinréttur í baki, höfðinglegur, með sitt hvíta mikla hár og við góða andlega heilsu. Þorkell var fæddur að Fitjum í Hrófbergshreppi 21. júlí 1898. For- eldrar hans voru Jón Árnason, húsa- smiður og kona hans Helga Tómas- dóttir frá Kambi. Eins og algengt var í þá daga ríkti fátækt á heimil- inu, sem var uppi á fjalli og slægjur að mestu á útengi. Sem ungbarni var honum komið í fóstur til langafa míns að Kálfanesi, sem er skammt frá. Þar ólst Þorkell upp og gerðist vinnumaður. Konuefni sitt, Ingi- björgu Magnúsdóttur frá Kleifum í Kaldbaksvík, hitti hann þar og bjuggu þau lengst af á Hólmavík og eignuðust þar börnin sín tvö, Ragnar, sem lengi bjó á Hólmavík, en fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna og andaðist þar fyrir fáum árum, og Guðbjörgu sem nú dvelur á Ási í Hveragerði. Ingibjörg andaðist fyrir allmörgum árum og er grafin í Gufuneskirkjugarði. A Hólmavík stundaði Þorkell ýmis störf, einkum hjá kaupfélaginu, enda var kaupfélagið nánast eini vinnuveitandinn „í plássinu", með fiskverkun, verslun og sláturhús fyr- ir nágrannabyggðirnar. Auk þessa var hann með lítils háttar fjárbú- skap. I frumbernsku minni vissi ég aði ekki tilfinningum sínum og hefði trúlega ekki kært sig um neina lof- ræðu. En þrátt fyrir það langar mig til að þakka honum og Sigurlaugu fyrir að veita okkur Garðari húsa- skjól með bömin okkar tvö þegar við vorum að bíða eftir eigin húsnæði og sem átti að vera í stuttan tíma en mánuðirnir urðu 8. Það hefur sjálftsagt oft tekið á þolinmæðina hjá þeim hjónum þennan tíma en aldrei létu þau okkur finna annað en að við værum velkomin, Að endingu vil ég votta Sigur- laugu tengdamóður minni, börnum og nánustu ættingjum mína dýpstu samúð. Ingimunda Loftsdóttir. Elsku afi. Okkur langar að kveðja þig með þessum orðum: Og hvað er það að hætta að draga andann annað en að fresla hann frá friðlausum öldum iífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn vold- uga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindin- um, þá fyrst munt þú hefja fjall- gönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn. (Almitra - Spámaðurinn.) Guð blessi minningu þína. Hildur Fjóla og Steinunn Svansdætur. Með þessum fáu orðum viljum við minnast afa okkar, Ágústs Péturs- sonar, sem lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur föstudaginn 8. ágúst sl. Áfi var mjög sterkur maður bæði á lík- ama og sál, þótt hann hafi átt við langvarandi veikindi að stríða. Þó teljum við að hann hafi verið hvíld- inni feginn þegar hann andaðist. Siguriaug amma er búin að vera hans stoð og stytta í gegnum súrt og sætt og vottum við henni dýpstu samúð okkar. Elsku afi, við kveðjum að við, mín fjölskylda, Keli, Imba og Gugga (Þorkell, Ingibjörg og Guðbjörg) og Guffí, Unnar og Þór- unn, bjuggum öll fyrir innan „pláss- ið“. Sama mátti reyndar segja um Júlla og Siggu, Ingimund og Maríu, sem alltaf var að gefa fuglunum, Láfa og Imbu hans, en þau voru eldri og eru látin fyrir áratugum síðan. Þegar maður er fímm ára hættir maður sér ekki langt og þá er næsta nágrenni og íbúar þess sá heimur sem lítill maður lifir í og þetta var fólkið sem þar bjó og reyndist unga „þorparanum“ vel á fyrstu könnunarferðum hans um veröldina. Þorkell var, eins og systkini hans, traustur maður og trúverðugur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, umtalsgóður um aðra menn og kom sér alls staðar vel. Þegar ég frétti lát hans datt mér strax í hug orðið „grandvar". Ég var ekki viss um nákvæma skýringu á orðinu og fletti því upp í íslensku orðabókinni, en þar segir; samviskusamur, siðprúð- ur, varkár, nákvæmur. Það átti eink- ar vel við um hann. Ég veit að Þorkell var farsæll maður og hún gleður mig, fullvissan um það að þessi „góði drengur“ hafi átt margar bjartar stundir á ströndinni okkar, - „á ströndinni við ysta haf“. Við feðgarnir sendum ættingjum, og þá einkum Guggu, samúðarkveðj- ur. Benedikt Andrésson. Sól rís sól hnígur blóm vallarins faila í næðingum haustsins, það er lögmál lífsins. Maðurinn tekst á við dauðann uns hann fellur sjálfur en upprís óforgengilegur í öðrum heimi fyrir trú á Guð. Eggert E. Laxdal. þig í hinsta sinn með þessu fallega ljóði sem lýsir þér svo vel. Hann tignar þau lög sem lífið með logandi eldi reit. Hann lærði af styrkleika stálsins að standa við öll sín heit. Hann lærði verk sín að vanda og verða engum til meins. Þá væri þjóðinni borgið ef þúsundir gerðu eins. (D.St.) Anna Fríða og Ágúst. Nú er hann Gústi afi dáinn og langar okkur að skrifa nokkur kveðjuorð til hans: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Við hófum búskap okkar í kjallar- anum hjá afa og ömmu í Nökkvavog- inum. Þar reyndist okkur gott að vera og var alltaf gott að koma upp og spjalla aðeins við afa og ömmu. Þar var alltaf stutt í hláturinn og var alltaf hægt að fá afa með í smá sprell, sem hann átti oftar én ekki upptökin að. Afi var duglegur að fara í göngu- ferðir og eru Hildi sérstaklega minn- isstæð þau skipti sem hún fór með, og var þá stundum komið við í sjopp- unni á Langholtsveginum og keypt súkkulaði til að maula á leiðinni. Hann afi talaði oft um það að honum þætti merkilegt hvað hann væri orðinn gamall og hann hefði sjálfur aldrei búist við að ná svona háum aldri. En við erum þess fullviss að ást og umhyggja ömmu Laugu og hið einstaka samband þeirra á milli hefur ráðið þar miklu um. Miss- ir hennar er mikill, en við vitum að hinn óbilandi kraftur hennar og létta lund mun auðvelda henni að takast á við það að afi sé horfinn á braut. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar og kveðjum þig með söknuði. Gunnar Haukur, Hildur Karen og Kristinn Gauti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.