Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 37 FINNUR HAFSTEINN GUÐMUNDSSON + Finnur Haf- steinn Guð- mundsson fæddist að Mýrum í Dýra- firði 20. júlí 1926. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Finns voru Guðmundur Bernharðsson bóndi og kennari, f. 10. nóvember 1899, d. 18. nóvem- ber 1989 og kona hans, Kristín Jóns- dóttir, f. 21. júní 1901, d. 23. nóvember 1969. Guðmundur og Kristín stofn- uðu nýbýlið Astún á Ingjalds- sandi 1930. Systkini Finns eru: Ásvaldur Ingi, f. 1930, Sigríður Kristín, f. 1932, Bernharður Marsellíus, f. 1936 og Þóra Al- berta, f. 1942. Finnur kvæntist 14. febrúar 1948. Kona hans var Sigríður (Sísí) Ingimundardóttir úr Hafn- arfirði, f. 24. júní 1926, d. 14. apríi 1987. Foreldrar Sig- riðar voru Marta Eiríksdóttir frá Bíldudal og Ingi- mundur Hjörleifs- son, skaftfellskrar ættar en búsettur á Álftanesi og í Hafn- arfirði alla tíð. Börn Sigríðar og Finns eru: Guðrún Hildur, f. 8.7. 1948, gift Gunnari Gunn- arssyni; þeirra son- ur er Dagur, f. 1967. Gunnar, f. 8.5. 1950, var kvæntur Sigríði Halldórsdótt- ur; dætur þeirra eru Eva Hlín f. 1976 og Marta f. 1985. Eirík- ur Brynjólfur, f. 27.1. 1957, kvæntur Hafdísi Þorvaldsdótt- ur; sonur þeirra er Finnur Freyr f. 11. 4. 1982. Útför Finns fer fram frá Bessastaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Ég sá tengdaföður minn fyrst 1966. Hann kom frá borði á Gull- fossi snemma sumars kominn heim frá námi og störfum í Þrándheimi. Ég þekkti hann af myndum, sá hann mjakast ofan landganginn, hægfara maður, lágvaxinn, þrek- inn og tók þétt í hönd þegar niður á bakkann kom. Hann var útlend- ingslegur í fasi, fannst mér, dökk- ur á brún og brá og varð jafnan svartur af sól á sumrin. Það gerir Baskablóðið, sögðu sumir sem þóttust þekkja vel til fyrir vestan þar sem franskar skútur og spænskar höfðu viðkomu hér fyrr- um. Þau voru óvenjulegt par, Finn- ur og Sísí, báru með sér sérkenni- legan þokka, bæði svipsterk með dökkt litaraft, geisluðu hér áður af forvitni og áhuga á umhverfinu. Hún meira drífandi, málglöð og kát, snör í hreyfingum, snögg upp á lagið, hann seinn til svars og velti vöngum og hafði aðdáunar- lega jákvæða afstöðu til manna og málefna. Kannski var það það sem í fyrstu vakti undrun mína sem átti löngum erfitt með að skilja þá sem ekki voru sjóðandi af inni- burgðum metnaði og barnalegu stolti. Finnur var í senn opinn maður og læstur. Hann gat vissu- lega talað eins og honum bjó í bijósti en ég hafði iðulega á tilfinn- ingunni að hann kysi að leggja ekki orð í belg vegna þess að hon- um fyndist ekki taka því eða hon- um fyndist aðrir eyða óþarflega miklu púðri á menn eða málefni sem í raun vægju ekki þungt og myndu skjótt gleymast. Sísí talaði fyrir þau bæði sögðu sumir og ég heyrði menn halda því fram að hún sæist ekki fyrir og talaði Finn í kaf. Það var alrangt. Hann kom sinni meiningu til skila á sinn ró- lega hátt og stóð við hana. Hann var traustur og tryggur og vék aldrei hársbreidd frá sinni konu eða sínu fólki. Þau voru glæsilegt par sem tek- ið var eftir í Hafnarfirði, sagði frænka mín ein, jafnaldra þeirra. Ollum var ljóst að eitthvað yrði úr þessu unga fólki. Hann orðinn húsasmíðameistari ungur að árum. Það var eftir þeim tekið. Hann virt- ist til margs líklegur. Hún haldin djúpri löngun til að lifa. Finnur og Sísí tóku virkan þátt í uppbyggingu eftirstríðsáranna, lögðu sín lóð á vogarskálar þjóðfé- lagsins sem þurfti að leysa hús- næðisvandann hratt. I fyrstu bjuggu þau hjá foreldrum hennar, Ingimundi verkstjóra Hjörleifssyni og Mörtu Eiríksdóttur í nánu fé- lagi við Pál, bróður Ingimundar, og Sigríði konu hans. Svo byggði Finnur yfir fjölskylduna í Ásbúðar- tröðinni þar sem þau bjuggu með Ingimundi og Mörtu þar til þau Sísí fóru til Noregs og aftur eftir að þau komu heim. Finnur virti tengdaforeldra sína mikils og tal- aði ævinlega af hlýju og notalegri glettni um þau. Þau fylgdu honum og Sísí út á Álftanes þar sem Finn- ur byggði fallegt timburhús og þar bjuggu þau uns Sísí lést 1987. Eg spurði Finn einhvern tímann hvers vegna hann hefði gerst smið- ur en ekki bóndi eins og faðir hans. Hann svaraði fáu um smiðshlut- verk sitt en sagði að aldrei hefði komið til mála að hann legði fyrir sig búskap sem gengi út á að drepa lömb. Finnur var maður lífsins og gróðursins. Hann naut sumarsins en lét veturinn yfir sig ganga. Sísí og Finnur kunnu að taka því sem að höndum bar og þau gerðu sér aldrei rellu vegna smá- atriða. Þau voru gestrisin í besta skilningi þess orðs, hús þeirra var jafnan opið þeim sem þurftu að gista og eins þótt frændur og vin- ir þyrftu að búa hjá þeim vetrar- part eða jafnvel heilu misserin eins og undirritaður. Fyrir þessa fölskva- og gagnrýnislausu afstöðu þeirra til fólks og einlægu sam- kennd verður þeirra lengi minnst. Noregsdvöl Finns og Sísíar markaði þáttaskil í líf þeirra. Þau töluðu oft um þau ár og minntust góðra vina frá Þrándheimi, bæði íslenskra námsmanna sem voru þar samtíða þeim og eins fólks af öðru þjóðerni. Ég man eftir mynd- um og sögum af leiklistarfólki og lærdómsmönnum og þau rifjuðu upp skíðaferðir í Noregi eða bíl- ferðir um álfuna í fylgd vina sinna. Þau voru bæði eldri en algengast er um námsmenn þegar þau fóru utan. Kannski hafa þau þess vegna notið dvalarinnar betur. Ég fékk smjörþefinn af ferðagleði þeirra hjóna þegar við þijú, Hildur, Dag- ur og undirritaður, fengum að fljóta með í langa reisu til Spánar. Gamli Opelinn erfiðaði undir þungu hlassi og Finnur stýrði af öryggi jafnt um mjóa fjallvegi sem gegn- um umferðarhnúta stórborganna. Á stundum varð mér á að efast um að hann réði við vandann og fyndi leið gegnum örtröðina í Par- ís en þá beit hann á jaxlinn og sýndi að þótt hæglætismaður væri bjó hann yfir skapi og snerpu sem nægði til að skila honum inn á rétta leið. Það gerði hann einn og óstuddur og þegar vandinn var að baki létti okkur stórum og jafnvel laglaus maður eins og ég fór að raula af feginleik. Minningarnar eru margar, atvikin stór og smá. Seinni árin jókst þeirra mæða. Sísí átti árum saman við kvalafull veik- indi að stríða. Finnur reyndi að auka sér bijóstbirtu með því að bjóða Bakkusi upp í dans. Þegar hún lést var vissulega skarð fyrir skildi og enn er hennar sárt sakn- að. Nú trúum við því og treystum að hún taki á móti sínum manni. Við þökkum þeim samfylgdina og gjafirnar allar. Börn Finns og Sís- íar, Hildur, Gunnar og Eiríkur, og einnig þeirra börn minna okkur á þau um svo margt, hina glaðlyndu Sísí og hægláta Finn. Gunnar Gunnarsson. Elsku Finnur frændi. Ég mun sakna þín. Svo margar og góðar minningar á ég um þig. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hildur, Gunnar, Eiríkur og aðrir aðstandendur, dýpstu samúðar- kveðjur. Hafi Finnur hjartans þökk fyrir allt. Guð geymi hann. Þín bróðurdóttir, Kristín H. Bernharðsdóttir. Það var fyrir þrem vikum, að vinur minn Finnur kom í heimsókn til mín og þá sem oftar vildi hann leggja mér lið, og sagðist koma bráðum og hjálpa mér að slá garð- inn minn. Ég gerði mér þá grein fyrir því að viljinn var meiri en mátturinn, ég sá að kraftar hans voru þrotnir til allra átaka, því kom mér það ekki á óvart er systir hans hringdi til mín og tjáði mér að hann væri allur og hefði kvatt þetta líf á heimili sínu daginn áður, en þannig held ég að hann hefði helst óskað sér sitt skapadægur, þá er heilsa og kraftar eru þrotnir, er hvíldin frá þessu lífi kærkomin. Við Finnur höfum þekkst frá barnæsku í Önundarfírði og alltaf haldið þeim kunningsskap, og í tvo vetur glímdum við við nám í Núps- skóla í Dýrafirði. Oft rifjuðum við upp minningar frá þeim árum og hlógum dátt að mörgu skemmti- legu er þar gerðist. Finni var eink- ar lagið að segja skemmtilega frá hlutunum og í skólanum brá hann fyrir sig að yrkja ljóð um félagana, og fékk ég þar minn skammt, þetta voru bernskubrek og björt í minn- ingunni. I Núpsskóla var stjórnun öll til fyrirmyndar og valinn maður i hveiju rúmi. Eiríkur, Kristín, Ólaf- ur, Solla, Björn, aðstoðarkennarar og þær sem sáu um matreiðsluna, allt var þetta mikið ágætis fólk, sem bar hag okkar nemendanna mjög fyrir bijósti, fyrirmynd, sem var okkur gott veganesti út í lífíð. Á Núpi kynntist Finnur ástinni sinni, henni Sísí, og áttu þau þar ljúfar stundir og bundu þau bönd er ei röknuðu meðan báðum entist aldur, byggðu sitt bú og börnin urðu þijú. Sísí lést fyrir u.þ.b. ell- efu árum eftir erfið veikindi og var Finnur aldrei samur eftir þann vin- ar missi, var ég þess mjög áskynja, þá er hann dvaldi í mínum húsum uny tíma, nokkru eftir lát Sísíar. Á þriðja ár hefír hann dvalið í Hátúni 10a, og var hann þar mjög ánægður. Ég kveð þennan gamla og góða vin, með vísum þeim, er hann skrifaði í minningarbækur mínar frá Núpi. Samveruna þakka ég þér, þökk fyrir góða kynning. Nú í huprheimi, ég ber hlýja endur minning. Tíminn vinnur aldrei á elstu kynningunni, ellin finnur ylinn frá æskuminningunni. Ég votta bömum og öðrum að- standendum samúð mína. Blessuð sé minning Finns Guðmundssonar. Eimý Sæmundsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, ÞORKELL SIGURJÓNSSON, Snorrabraut 56, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt fimmtudagsins 14. ágúst. Kristín Jóna Guðmundsdóttir, Sigurjón Þorkelsson, Hilmar Þorkelsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN ÓLAFSSON vélvirki, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis á Hringbraut 84, Reykjavík, sem lést mánudaginn 11. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. ágúst. Athöfnin hefst kl. 13.30. Stefán Á. Stefánsson, Lárus Stefánsson, Sturlaugur Stefánsson, Sigurður Stefánsson, Vilhjálmur K. Stefánsson, Oddný Bjarnadóttir, Ana Stefánsson, Jenný Bogadóttir, Margrét L. Guðmundsdóttir, Þórhalla Guðbjartsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t ÁRSÆLL JÚLÍUSSON, Mýrargötu 20, Neskaupstað, verður jarðsunginn laugardaginn 16. ágúst kl. 16.00. Fyrir hönd vandamanna, Þorsteinn Ársælsson, Bjarney Rfkarðsdóttir. t Bróðir minn, BJARNI GUNNARSSON bóndi, Auðbjargarstöðum, verður jarðsunginn frá Garðskirkju laugardaginn 16. ágúst. Athöfnin hefst kl. 13.00. Jarðsett verður í heimagrafreit að Fjöllum. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Karólína Gunnarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS HUGBERGS BJÖRNSSONAR garðyrkjumanns, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands Selfossi fyrir góða umönnun og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. María Konráðsdóttir, Guðný J. Kjartansdóttir, Ólafur H. Kornelfusson, Björn Guðjónsson, Ingibjörg S. Guðjónsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Margrét Guðjónsdóttir, Ásta Gunnlaugsdóttir, Óskar Elíasson, Ólöf Geirmundsdóttir, Ómar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.