Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 39

Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 39 UNNUR JÓHANNESDÓTTIR + Unnur Jóhann- esdóttir var fædd í Reykjavík 16. apríl 1913. Hún andaðist á Land- spítalanum 1. ágúst siðastliðinn. Unnur var dóttir Margrét- ar Salómonsdóttur, f. 25. maí 1873 í Kirkjuvogi, Höfn- um, d. 10. apríl 1966 í Hafnarfirði. For.: Salómon Björnsson, bóndi, Kirkjuvogi, f. um 1833 í Marteinst- ungu, Rang., d. 25. nóv. 1893, og kona hans Sigurlaug Guð- mundsdóttir, f. 6. ágúst 1829 í Hrepphólasókn, Árn., d. 17. nóv 1893. Faðir hennar var Jóhann- es Jónsson, múrarameistari, f. 9. mars 1854 í Hömluholti, Eyjahr., Hnapp., d. 16. ágúst 1914. For.: Jón Sigurðsson, bóndi, f. um 1810, d. 1. janúar 1874 og kona hans Guðný Jóns- dóttir, f. um 1822, d. 22. maí 1866. Unnur var eina barn þeirra Jóhannesar og Margrét- ar, en hann átti eina fósturdóttur, Helgu Þorkelsdóttur, f. 30. desember 1894 í Reykjavík, d. 25. október 1977 í Kópavogi (dóttir Þorkels Þorkels- sonar, og Guðríðar Jónsdóttur, systur Jóhannesar), hús- freyju í Hafnar- firði. Eiginmaður, Einar Einarsson, klæðskeri, Hafnar- fírði. Unnur ólst upp hjá móður sinni á heimili Helgu og Einars á Austurgötu 6, Hafnarfirði. Unnur giftist aldr- ei en börn og barnabörn upp- eldissystkina hennar voru eins og hennar eigin börn. Uppeldis- systkini hennar, börn Helgu og Einars, voru: Guðríður (dáin), Jóhannes (dáinn), Guðbjörg, Gróa(dáin), Ellen, Anna, As- laug, Sigríður og Maria. Utför Unnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. út af svona smámunum, bandaði aðeins með hendinni þegar þær gerð- ust of ágengar. Annað skipti vorum við í fjallaferð og settumst niður til að drekka. Björn vildi leggja sig aðeins. Lagðist niður á milli þúfna- kolla og sofnaði í nokkrar mínútur. Vaknaði svo og við héldum áfram. Fyrir honum var það eðlilegasti hlut- ur í heimi að fá sér blund uppi í fjall- inu. Önnur og ólík mynd af Birni stendur mér einnig fyrir hugskots- sjónum. Það er Björn að lesa jólaguð- spjallið inni í stofu á aðfangadags- kvöld, uppáklæddur og með hárið greitt aftur. Glæsilegur og les svo fallega að maður getur ekki annað en fyllst Iotningu gagnvart honum. Loftið er andagtugt, næstum eins og í kirkju, en sem betur fer er lítil stelpa með í hópnum sem minnir á að við eigum eftir að taka upp jóla- gjafirnar. Nú þegar gamli höfðinginn er fallinn frá, er mér efst í huga þakk- læti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og njóta áhrifa hans um stund. En enginn fær stöðvað vél tímans. Elsku Þorbjörgu sem nú kveður lífsförunaut sinn hinsta sinni votta ég mína dýpstu samúð. Með hana sér við hlið varð líf hans ham- ingjuríkt og lífsstarfið fengsælt. Þorgerður Jónsdóttir. Látinn er afi minn Björn Stefáns- son frá Hóli á Stöðvarfirði. Hann var merkur maður að mörgu leyti en þó ber eitt af í minningum mínum um hann. Það var viðmót hans sem geislaði af góðvild og ást til mín og okkar allra og aldrei fór hann leynt með stolt sitt á okkur barnabörnun- um. Hann leyndi aldrei tilfinningum sínum og bar með sér vinskap og umhyggjusemi hvert sem hann fór. Ætíð er ég hitti hann lýsti hann því hve hann væri stoltur af mér auk þess sem hann gaf mér góð ráð, ráð sem hafa mótað mig og hjálpað mér að ná takmörkum mínum bæði í leik og starfi. Ég er stoitur af að hafa átt hann að sem afa og ánægður með hve vel ég náði að kynnast honum. Þó ég nái aðeins að tileinka mér hluta af þeirri hlýju og góð- mennsku sem honum fylgdi trúi ég því að það muni nýtast mér vel í lífinu. Hann var maðurinn sem kenndi mér að takast á við erfiðleika og að gefast aldrei upp. „Hertu þig,“ sagði hann alltaf við mig þegar ég var farinn að vola og brosti í kampinn svo ég gat ekki annað en haldið áfram. Hann kenndi mér að meta náttúruna og gekk með mig upp um fjöll og firnindi í leit að steinum, beijum eða bara friðsæld náttúrunn- ar. Hann fór með mig á sjó og kenndi mér að róa, stofnaði reikning í bank- anum fyrir mig og sagði mér að við værum samstarfsmenn á sjó. Þetta þótti mér mikilvægt því mér fannst hann vera að lýsa yfir með þessu að ég væri ekki bara barnið sem ég var heldur fulltíða maður. Þessi sam- vera okkar styrkti mig sem einstakl- ing_ og gaf mér trú á sjálfum mér. Ég var mörg ár í sveitinni hjá honum og ömmu. Allt vildi hann fyrir mig gera. Eitt árið gaf hann mér meira að segja kind og fór um alla sveitina með mig í leit að henni svo ég fengi að skoða hana. Alltaf hafði hann nægan tíma fyrir mig og ég vildi að ég hefði haft meiri tíma til að njóta samveru hans nú hin síðustu ár. Síðast er ég hitti hann kynnti ég hann fyrir stúlkunni sem ég elska. Ég heyrði hann segja við hana: „Vin- an, þetta er góður maður sem þú hefur kynnst og þú verður að reyna að fyrirgefa honum ef eitthvað bját- ar á því það skiptir miklu máli að halda í þá sem maður elskar". Mér þótti afskaplega vænt um þetta. Mikill maður manngæða og visku er látinn og munum við systkinin þrjú í Fannafold sakna hans mikið. En þó afí sé dáinn mun minning hans lifa. Hans Tómas. Þegar litið er yfir ævi manneskju er misjafnt sem safnast hefur á lífs- leiðinni. Sumir safna auði, völdum, viðurkenningum og eignum, en eiga engan að þegar kemur að leiðarlok- um. Unna frænka átti hvorki auð né eignir en hún átti marga að, stóra fjölskyldu sem var umhugað um hana og hennar velferð. Slíkum auði safna þeir sem gefið hafa af sjálfum sér á óeigingjaman hátt. Það var ekki hlutskipti Unnu í lífínu að eign- ast eiginmann eða sín eigin böm, en hún átti stóran bamahóp, sem vom systkinaböm hennar, böm og barnabörn þeirra. Hún tók mikinn þátt í uppeldi þessara bama og eiga þau öll hlýjar og fagrar minningar um Unnu. Aldrei fann maður fyrir því að Unna mismunaði þessum fóst- urbörnum sínum. Hún tók þeim öll- um eins og þau vom og einblíndi á það jákvæða í fari hvers og eins. Unna var eins konar sameining- artákn ættarinnar. Það var ekki nema þegar Unna átti afmæli, þá sérstaklega stórafmæli, að allur frændgarðurinn úr þessari stóm fjölskyldu kom saman. Eins var það yfírleitt hjá Unnu sem við fengum fréttir af fjölgun ættarinnar, og alltaf gat hún sýnt myndir af nýj- asta barnabarninu eða sagt frá öðru markverðu af ættingjunum. Unna var sannkristin kona og vitum við að hún bað alla tíð fyrir velferð okkar. Við systumar áttum því láni að fagna að alast upp öll okkar æsku- ár með Unnu. Fyrstu árin sem hei- magangar á heimili móðurforeldra okkar, þar sem Unna bjó stóran hluta ævi sinnar og síðar á heimili foreldra okkar þegar Unna fluttist þangað til að gæta bús og barna. Það að eiga einhvern að þegar kom- ið er heim úr skóla er ómetanlegt. Hversdagslegar minningar standa upp úr. Minningar, um okkur sem litlar telpur að ræða um daginn og + Uppeldissystir okkar, UNNUR JÓHANNESDÓTTIR frá Efra Hofi, Garði, áður til heimilis, á Austurgötu 6, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjaróarkirkju í dag, föstudaginn 15. ágúst, kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ellen Einarsdóttir, Júlíus Guðlaugsson. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, OTTÓS GUÐMUNDSSONAR frá Skálholti, Fáskrúðsfirði. Sveinbjörg Jóhannsdóttir, Guðni Ottósson, Jóhanna Ólafsdóttir, Björgvin Ottósson, Pétur Ottósson, Ólöf Haraldsdóttir, Sigurlaug Ottósdóttir, Einar Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. • Fleirí minning-argreinar um Björn Stefánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. veginn og ekki síður þegar farið var út í vangaveltur um framtíðina, eru dýrmætar og ljúfar. Unna í eld- húsinu að taka til matinn, en hafði samt endalausan tíma og þolinmæði til að ræða við okkur börnin eins og jafningja. Það var alltaf líflegt í kringum Unnu, hún átti svo auð- velt með að sjá skoplegu hliðarnar á lífinu og var gædd góðum frá- sagnarhæfileika og látbragði. Unna hafði sérstakt lag á að ná til barna, þau hændust að henni og öll töluðu þau um hana af virðingu og sóttust eftir samneyti við hana. Unna bjó síðustu ár ævi sinnar suður í Garði hjá uppeldissystur sinni og manni hennar. Ef leiðin lá suður með sjó var rennt við í Garðin- um og heilsað upp á Unnu. Móttök- urnar voru alltaf góðar og alltaf gaman að spjalla við Unnu sína, sem var manni alltaf svo kær. Þeg- ar litið er til baka voru þessar ferð- ir allt of fátíðar. Því lítill tími gafst til samvista við ættingja í þessu erilsama þjóðfélagi, sem við búum í. Unna var mjög glæsileg kona, sem hafði bæði fallega og tignar- lega framkomu. Hún var brosmild og hafði bjart yfírbragð, bar aldur- inn vel og var alltaf jafn ung í anda. Minningar um Unnu munum við eiga um ókomin ár og erum við þakklátar fyrir að hafa átt hana að. Guð blessi minningu Unnar Jó- hannesdóttur. Elín, Helga, Anna Margrét og Erla Huld. Nú er hún Unna mín ekki lengur á meðal okkar, en þó við söknum hennar sárt megum við minnast þess að hún er komin þangað sem henni líður betur en nokkru sinni fyrr. Við Unna deiidum herbergi í mörg ár og þægilegri og hjálpfús- ari herbergisfélaga getur nokkur varla hugsað sér. Ég var ung að árum og óreynd í móðurhlutverkinu, þegar mér fæddist sonur. Unna lét ekki grát sonarins um miðjar nætur angra sig heldur hjálpaði mér eftir föng- um, þar sem mér veitti ekki af allri aðstoð sem ég gat fengið. Unna var mjög barngóð og var vön að gæta barna á sinni löngu ævi. Hún var alltaf tilbúin að gefa góð ráð og var til staðar þegar þurfti með. Unna lét ekkert aftra sér í því að koma með foreldrum mínum í heimsókn, þegar ég flutti að heiman og fór að búa í sveit. Þá gisti Unna oft nokkra daga í senn þó heilsan væri ekki alltaf upp á það besta. Á góðum degi þegar ég var að æfa söng heima hjá mér og Unna var í heimsókn, þá var hún ekki feimin að taka undir og söng með mér með sinni fallegu og tæru sópr- anrödd. Ég var í söngnámi og það kom mér á óvart að heyra svo full- orðna konu syngja af slíku öryggi og með jafn fallega rödd. Já, hún Unna hefði sko ekki þurft langt söngnám til að ná árangri og vin- sældum, ef hún hefði verið ung á þessum árum og fengið tækifæri til að læra að syngja. Þó held ég að frægð og frami hefði ekki skipt hana öllu máli. Hún Unna mín dó eins og hún lifði, róleg og kyrrlát. Hún var Drottni sínum dyggur þjónn og ef- ast ég ekki um að hann hafí sveip- að hana örmum sínum og gæti hennar nú. Vertu bless Unna mín og þakka þér fyrir að gefa mér hlutdeild í lífi þínu. Guðríður Júlíusdóttir. Okkur systkinin langar að kveðja Unnu frænku okkar. Við erum sér- lega lánsöm að hafa átt hana að. Þegar við hugsum um Unnu koma aðeins góðar minningar upp í hug- ann. Unna var einstaklega barngóð og ljúf kona og var hún elskuð af öllum börnunum í fjölskyldunni. Það var alltaf gott að tala við Unnu því hún talaði við okkur sem jafningja sína. Hún sagði okkur sögur af líf- inu í gamla daga og af því þegar hún var ung stúlka í vist. Okkur fannst skrítið að hún skyldi ekki giftast, svona falleg og góð, við vorum viss um að vonbiðlarnir voru margir en við fengum engin svör við því. Þegar við urðum eldri var alltaf hægt að spyija Unnu frétta af ætt- ingjunum því hún var í góðum tengslum við alla meðlimi stóríjöl- skyldunnar, og þar sem Unna var mjög jákvæð kona voru fréttirnar hennar alltaf góðar því hún sá allt- af það besta í öllum. Minningamar sem við eigum um Unnu era margar og góðar og munum við oft eiga eftir að rifja þær upp hvert með öðru. Helga, Agnes, Ólafur og Þórunn. + Þökkum öllum innilega fyrir samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÖNNU MARÍU MARÍANUSDÓTTUR, Austurbrún 6, áður Nönnufelli 1, Reykjavík. sem lést þann 18. júlí sl. Jón Th. Friðþjófsson, Ingi E. Friðþjófsson, Svanlaug Friðþjófsdóttir, Hildur Friðþjófsdóttir, Bergljót Friðþjófsdóttir, Ólafur Friðþjófsson, Hörður Friðþjófsson, Guðrún Friðþjófsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað verður í dacj, föstudaginn 15. ágúst, vegna jarðarfarar INGÓLFS MAGNUSAR INGOLFSSONAR. Stíll, heildverslun, Malarhöfða 8. Lokað Skrifstofa Frama verður lokuð í dag frá kl. 13.30 vegna jarðarfarar INGÓLFS M. iNGÓLFSSONAR. Bifreiðastjórafélagið Frami.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.