Morgunblaðið - 15.08.1997, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
MINNINGAR
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
BERGDÍS
INGIMARSDÓTTIR
+ Bergdís Ingi-
marsdóttir var
fædd i Reykjavík 18.
janúar 1922. Hún
lést 6. ágúst síðast-
liðinn i Reykjavík.
Foreldrar hennar
voru Bóthildur Jóns-
dóttir, húsmóðir, f.
24. ágúst 1892 á
Hóli í Svínadal, d.
30. nóvember 1979,
og Ingimar Magnús-
son, húsasmíða-
meistari, f. 20. sept-
ember 1891 á Eyri í
Mjóafirði við ísa-
fjarðardjúp, d. 8.
ágúst 1978. Foreldrar Bóthildar
voru Guðbjörg Jóhannsdóttir frá
Grafardal og Jón Þorsteinsson
frá Þórustöðum, bæði af borg-
firskum ættum. Foreldrar Ingi-
mars voru Steinunn Magnúsdótt-
ir frá Borgum í Hrútafirði og
Magnús Brynjólfsson, ættaður
úr Dalasýslu.
Þau Bóthildur og Ingimar
bjuggu Iengst af á Akranesi.
Þeim varð sjö barna auðið. 1)
Steinunn, f. 1917, d. 1962, var
búsett á Akranesi, 2) Lilja, f.
1919, á heima á Akranesi. 3)
Magnús, f. 1920, d. 1984, var
síðast í Reykjavík, 4) Bergdís,
f. 1922, d. 1997, var búsett í
Kópavogi, 5) Guðjón Sigurgeir,
f. 1923, d. 1926, 6) Steinþór
Bjarni, f. 1926, býr á Miðhúsum
í Innri-Akraneshreppi, 7) Guðjón
Sigurgeir, f. 1929, búsettur í
Mosfellsbæ.
Bergdís ólst upp á Akranesi
þjá foreldrum sínum og átti þar
lengst af heima. Hún giftist 27.
september 1941 Friðþjófi Helga-
syni, bifvélavirlga. Hann var
seinna starfsmaður hjá Slökkvil-
iði Reykjavíkur. Foreldrar hans
voru Valgerður Bjarnadóttir,
síðar á Grund á Grímstaðar-
holti, og Helgi Vigfússon sjó-
maður. Friðþjófur
lést 5. júní 1988.
Bergdís og Frið-
þjófur byrjuðu sinn
búskap í Kópavogi,
voru þar árin 1941-
1946. Fluttust þá til
Akraness og bjuggu
þar til ársins 1958
að þau fluttust til
Reykjavíkur. Þau
eignuðust sex börn.
1) Valgeir, f. 11.
apríl 1942, búsettur
i Kópavogi. 2) Sól-
veig Auður, f. 21.
júní 1943. Maður
hennar er Eysteinn
Guðmundsson. Þau búa í Kópa-
vogi. Börn þeirra: Friðþjófur, f.
8. júlí 1965, kona hans er Lilja
Baldursdóttir. Þeirra börn: Sól-
veig Auður, f. 24. maí 1991, og
Ingibjörg, f. 14. júní 1995, Berg-
dis f. 11. janúar 1972. Maður
hennar er Haraldur Haraldsson.
3) Bóthildur, f. 8. júní 1944. Mað-
ur hennar er Finnbogi Þór Bald-
vinsson. Búsett í Reykjavík. Börn
þeirra: Þrúður, f.25. febrúar
1965. Maður hennar er Gunnar
Ólafur Kristleifsson. Þeirra börn:
Helga Rún, f. 12. febrúar, 1988
og Finnbogi Þór, f. 24. ágúst
1992, Bergdís, f. 8. janúar 1977.
4) Helgi, f. 25. júní 1948, búsettur
í Kópavogi, barn hans: Óli Daní-
el, f. 15. mars 1972. 5) Valgerð-
ur, f. 27. júlí 1952. Maður hennar
er Ólafur Jónsson, búsett í
Reykjavík. Böm þeirra: Frið-
bergur f. 21. október 1970, Jón
Sölvi, f. 9. júní 1972, Valgeir, f.
31. mars 1974, Ólafur Helgi, f.
2. desember 1981. 6) Fjóla, f. 17.
febrúar 1954, býr í Reykjavík.
Böm hennar: Jana Björk, f. 16.
apríl 1974, Valgeir, f. 24. nóv-
ember 1978.
Útför Bergdísar verður gerð
frá Fossvogskirkju i dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Kveðja til ömmu
í dag felldu blómin mín blöð sín
og húmið kom óvænt inn til mín,
ég hélt þó að enn væri sumar og sólskin.
Kveðjustundin er þungbær en
óumflýjanleg. Mér var mjög brugðið,
þegar mér bárust þær fréttir til
Ameríku að elsku amma væri látin.
Hún sem var mér svo kær. Fyrstu
ár ævi minnar bjó ég hjá ömmu og
afa, og þar lærðist mér að dyr á
heimili þeirra voru mér alltaf opnar
og ég gæti alltaf leitað til þeirra, og
á uppvaxtarárunum nýtti ég mér það
óspart og var ávallt velkominn. Þeg-
ar ég kvaddi hana fyrr í sumar á
leið minni til Ameríku áttum við langt
samtal þar sem hún tjáði mér að hún
væri alveg tilbúin að fara, hún hefði
lifað sínu lífí. Ég gat ekki hlustað á
þetta, ég gat ekki hugsað mér að
amma væri að tala um að fara þegar
hún var svona hress. En kannski
vissi hún betur, hún kveinkaði sér
aldrei og vildi ekki íþyngja öðrum
um veikindi eða annað sem á bjátaði.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tið.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku amma, þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gefíð og kennt mér og
ég mun aldrei gleyma þeim stundum
sem við áttum saman. Nú ertu farin
til afa, þar sem ég veit að þér mun
líða vel.
Friðþjófur, Lijja, Sólveig
Auður og Ingibjörg.
Elsku Dísa mín, mig langar til að
kveðja þig, þú og Friðþjófur eruð
mér kær í minningunni, þið og böm-
in ykkar sex. Ég var ekki há í loft-
inu þegar ég man eftir mér á Sanda-
braut 17 á Akranesi, það var ævin-
týri líkast að vera að leika á Langa-
sandi og í mógröfunum að veiða
brunnklukkur í sultukrukku. Þú
varst svo falleg, fínleg og nett kona
og alltaf í góðu skapi, það var aldrei
verið að æpa á bömin þó að stundum
væri hópurinn hávaðasamur. Þú bara
brostir þínu blíðasta og allir voru í
jafnvægi, það var gott að vera hjá
þér.
í einni heimsókninni hjá þér spurð-
ir þú mig hvernig mamma mín bak-
aði þessar frábæru skonsur og ég
var ekki sein að koma með einhverja
uppskrift sem ég vissi að þú notaðir
og dugði vel. Þannig voru hlutimir
hjá þér, Dísa mín, maður átti að
bjarga sér.
Við mamma vorum hjá þér ekki
fyrir löngu, það var góð kvöldstund
og skoðuðum við myndimar þínar
sem þú hefur verið að mála á síð-
ustu árum. Listrænir hæfileikar þínir
nutu sín í myndunum og ég veit að
bömin og bamabömin njóta þeirra.
Þú hugsaðir um alla sem þér til-
heyrðu og enginn var undanskilinn.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fenp
að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Guð geymi þig.
Katrin og fjölskylda.
Elsku amma, mig langar að skrifa
þér nokkrar línur. Þegar pabbi
hringdi í mig og sagði mér að þú
værir farin fann ég fyrir miklum
söknuði, en ég veit að þú ert komin
til afa og þið eruð saman á ný.
Mig og Halla langar að senda þér
og afa þetta ljóð eftir Gunnar Dal,
við ætlum að kveðja þig núna en ég
veit að við eigum eftir að hittast
aftur.
Þín nótt er með öðrum stjömum.
Um lognkyrra tjöm
laufvindur fer.
Kallað er á þig og komið
að kveðjustundinni er.
Sjálfstæðismatseðill á
Austur-Indíafélaginu
Úr lindunum djúpu leitar
ást Guðs til þín
yfir öll höf.
Hún feijar þig yfir fljótið,
og færir þér lífið að gjöf.
Ástarkveðja,
Bergdís og Haraldur.
Hún amma Dísa er látin. Okkur
systumar langar til að minnast henn-
ar, en það er erfítt að koma tilfínn-
ingum á blað enda geymast þær
best í hjörtum okkar og huga.
Við systumar og reyndar öll
frændsystkini okkar erum rík af því
að hafa átt hana fyrir ömmu, við
komum aldrei að tómum kofunum
hjá henni hvort sem var í ráðlegging-
um eða öðm. Yndislegri tíma er varla
hægt að finna en þegar við komum
öll saman hjá ömmu og afa á jólum
eða öðrum tyllidögum.
Hún var ekki stór kona hún amma
en stærri konu í hjarta er varla
hægt að fínna. Við munum aldrei
gleyma henni, og söknum hennar
sárt. En eins og hún sagði einu sinni
sjálf, þá er hún nú komin á betri
stað og þar er hún fallegust. Við
vitum einnig að hann afí okkar bíður
eftir henni og tekur vel á móti henni
og nú era þau ekki lengur aðskilin.
Hví var þessi beður búinn,
bamið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: „Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert biessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(B. Halld).
Eslku amma, við þökkum þér fyr-
ir allar þær stundir sem við áttum
saman og biðjum góðan Guð að
geyma þig.
Þínar ömmusteipur,
Þrúður og Bergdís.
í dag kveðjum við elsku vinkonu
okkar, hana Dísu, hún fór svo snöggt
frá okkur. Við sem fórum saman í
bæinn fyrir nokkram dögum, þú
bauðst upp á kaffí og tertu, mikið
þurftum við að tala saman. Við höfð-
um ekki átt stund sem þessa í nokk-
urn tíma og nutum að geta fijálslega
ræðst við um heima og geima, liðna
tíð jafnt sem óliðna og ætluðum að
hittast aftur sem fyrst. Okkar sam-
verastundir vora mér svo dýrmætar.
Nokkram dögum síðar barst mér
fréttin um andlát Dísu. Hún hafði
kvatt þessa jarðvist sviplega. Ég get
illa lýst þeim tilfinningum sem börð-
ust í bijósti mér við þessa óvæntu
fregn, ég vildi ekki trúa því, féll sam-
an eins og hel hefði komið yfír mig,
lá þann daginn og hugur minn reik-
aði um liðna tíð.
Minningarnar hrannast upp eftir
bráðum 55 ára vináttu, ferðir okkar
Hemma og bamanna upp á Akra-
nes, heimsóknir ykkar Friðþjófs og
bamanna til Reykjavíkur og öll vor-
um við eins og ein stór Qölskylda
og margt skemmtilegt gert. Ég
minnist elsku ykkar Friðþjófs og
veit að nú heldur hann faðmi sínum
útbreiddum að taka á móti þér, Dísa
mín, og gengur með þér á annað til-
verastig.
Böm, tengdaböm, bamabörn og
langömmuböm, Guð gefi ykkur styrk
og huggun í sorg ykkar.
Helkalt og hart
harmafregnin óvænta góðvini snart.
Lifendur sorg hefur lostið,
lifsþráður brostið.
Sköpum er skipt,
skyldu og starfi á æðra sviði lyft.
Unnt er þó engum að skilja
örlaga-vilja.
Sorgin er sár,
syrgjandi ástvina hrynjandi tár,
andvörpin hrópa í hæðir,
hjörtunum blæðir.
Hver veitir fró?
Hver veitir sorgþjáðum friðsæld og ró,
huggar i harminum sefann,
hrifur burt efann?
Guðsneistinn einn,
geymdur í manninum, ósnortinn, hreinn,
trúin á takmarkiö dulda,
tilganginn hulda.
Ég vil þakka þér, vinkona mín,
fyrir samverana öll þessi ár. Megi
Guð blessa þig.
Þín vinkona,
Fjóla.
INDVERSKI veitingastaðurinn
Austur-Indíafélagið býður um helg-
ina upp á sérstakan matseðil í til-
efni af því að fímmtfu ár era liðin
frá því að Indland öðlaðist sjálf-
stæði.
Á sjálfstæðismatseðlinum verða
í boði 3 forréttir, 3 aðalréttir og
eftirréttur. Verð á forrétti verður í
kringum 600 krónur, verð á aðal-
rétti í kringum 1.900 krónur og
verð á eftirrétti 500 krónur.
Einungis verða í boði réttir er
ekki hafa áður verið á boðstólum
hjá Austur-Indíafélaginu og verða
OPNUÐ hefur verið blóma- og hand-
verksbúð á Suðurlandsbraut 52.
Hefur henni verið gefíð nafnið Sæl-
legir sprotar og kátlegir kvistir. Eig-
endur eru Linda _Sverrisdóttir og
Gfsli Jóhannesson. í Sællegum sprot-
um og kátlegum kvistum verður
Síðasta
skógargangan
TÓLFTA og síðasta skógarganga
skógræktarfélaganna, Ferðafélags
íslands og Búnaðarbankans um
„Græna trefilinn" hefst laugardag-
inn 16. ágúst. Mæting og rútuferð
verður frá Mörkinni 6, húsi Ferðafé-
lagsins, kl. 13.30 eða við hús rann-
sóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á
Mógilsá kl. 14.15.
Göngurnar um græna trefilinn
hófust í mai og hefur verið gengið
vikulega í sumar, allt frá Undirhlíð-
um í Hafnarfirði og nú síðast á
Mógilsá. Samstarf var tekið upp við
Ferðafélag íslands auk þess sem
Búnaðarbanki íslands og flest sveit-
arfélög á svæðinu hafa mep ýmsu
móti lagt þessu starfí lið. í hverri
göngu hafa skógræktarfélögin boðið
upp á leiðsögn og bryddað upp á
ýmsum uppákomum með ívafí af
fræðslu auk þess sem félagar úr
Ferðafélagi Islands hafa miðlað
fræðandi upplýsingum um sögu, ör-
nefni og jarðsögu.
í þessari lokagöngu um Trefílinn
gefst tækifæri til þess að kynnast
fjölbreyttu starfi rannsóknarstöðv-
arinnar á Mógilsá en stöðin er 30
ára um þessar mundir. Boðið verður
upp á fræðslu í nýskógrækt. Léttar
veitingar verða í boði og kveikt verð-
ur á bálkesti fyrir yngstu kynslóð-
ina. Staðkunnir leiðsögumenn verða
með í för og segja frá því áhugaverð-
asta sem fyrir ber.
Helga Kristrún
sýnir hjá
Sævari Karli
HELGA Kristrún opnar sýningu í
galleríi Sævars Karls laugardaginn
16. ágúst kl. 20.
Verkin á sýningunni eru unnin á
síðustu tveimur árum og eru þetta
málverk unnin með blandaðri tækni.
Helga Kristrún útskrifaðist frá
MHÍ árið 1995. Hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing hennar.
þeir að ýmsu leyti frábrugðnir því
sem gestir staðarins eiga að venjast.
í forrétt verður hægt að velja á
milli lambaréttarins Kiima Bonda,
Shish-Kebab-kjúklings og græn-
metisréttarins Eloo Bonda. í aðal-
rétt verður boðið upp á lambarétt,
Barra Kebab, kjúklingarétt, Casturi
Kebab, og grænmetisrétt er grillað-
ur verður í tandoori-ofni. Með rétt-
um verða t.d. borin fram krydduð
hrísgrjón, fylltar grillaðar paprikur,
naan-brauð og dal makhna-sósa.
Matseðillinn verður einungis í
boði föstudags- og laugardagskvöld.
áhersla lögð á afskorin blóm, skreyt-
ingar og ýmsa handverksmuni. Þar
eru t.d. til sölu trémunir frá Gallerí
í Gangi á Hvolsvelli og myndir og
munir eftir nemendur í MHÍ.
Verslunin er opin alla daga frá kl.
12-21.
Dönskjúðra-
sveit á Isafirði
TÓNLEIKAR verða haldnir sunnu-
daginn 17. ágúst kl. 20.30 í ísafjarð-
arkirkju þar sem fram kemur lúðra-
sveit frá Hróarskeldu, vinabæ ísa-
fjarðar í Danmörku og leikur fjöl-
breytta og skemmtilega efnisskrá.
Hljómsveitin ber nafnið Roskilde
Harmoniorkester og er skipuð 35
hþ'óðfæraleikurum á aldrinum
10-50 ára sem spila á bæði tré-
blásturs- og málmblásturshljóðfæri
auk slagverkshljóðfæra. Stjórnandi
sveitarinnar er Ulrik Bondo
Maclsen.
Á efnisskrá sveitarinnar má fínna
alvarleg kirkjuverk fyrir minni hópa
og fullskipaða sveit, sígilda tónlist
í ýmsum útsetningum og síðast en
ekki síst mjög fjölbreytt úrval af
léttari tónlist. Sem dæmi má nefna
verk eftir Handel og Vivaldi, Moz-
art, Carl Nielsen og Gabriel Fauré
og svo verk eftir Andrew Lloyd
Webber og Elton John. Þá munu
félagar úr sveitinni syngja einsöng
og leika einleik við undirleik Huldu
Bragadóttur, organista ísafjarðar-
kirkju.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Helgardagskrá-
in á Þingvöllum
LANDVERÐIR á Þingvöllum bjóða
upp á fræðsludagskrá fyrir börn og
fullorðna um helgar.
Á laugardag kl. 13 verður gengið
á Ármannsfell og kl. 15 verður
bamastund fyrir alla krakka í
Hvannagjá.
Á sunnudag kl. 13 verður gengið
að eyðibýlinu Hrauntúni og kl. 14
verður messað í Þingvallakirkju. Að
messu lokinni kl. 15.30 verður gest-
amóttaka í Skáldareit þar sem stað-
arhaldari ræðir um náttúru og sögu
Þingvatla.
Þátttaka í fræðsludagskrá þjóð-
garðsins er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Morgunblaðið/Arnaldur
FRÁ versluninni Sællegumr sprotum og kátlegum kvistum.
Ný blóma- og handverksbúð