Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 1 FRÉTTIR Starfsfólki Sjúkrahúss Reykjavíkur kynnt skýrsla um sameiningu sjúkrahúsa Gag-nrýnisraddir áberandi STARFSFÓLKI Sjúkrahúss Reykjavíkur var í gær kynnt skýrsla um framtíðarsýn sjúkra- húsanna á höfuðborgarsvæðinu. Þar er lagt til að sex sjúkrahús í Reykjavík og nágrenni verði sam- einuð í eitt stórt háskólasjúkrahús. Fundurinn var fjölmennur og voru gagnrýnisraddir áberandi þó að einnig væru ýmsir sem fögnuðu skýrslunni. Fundurinn hófst með því að Svanbjörn Thoroddsen og Katrín Olga Jóhannesdóttir, starfsmenn ráðgjafarfyrirtækisins VSÓ, sem unnu skýrsluna ásamt danska ráð- gjafarfyrirtækinu Ernst & Young, kynntu helstu niðurstöður skýrsl- unnar. Þau lögðu áherslu á að um áfangaskýrslu væri að ræða og að enn væri eftir að útfæra hugmynd- ina nánar, að því tilskildu að sam- staða næðist um meginniðurstöð- una. Talnalegar forsendur ekki að öllu leyti réttar Allmargir fundarmanna gerðu athugasemdir við skýrsluna. Þær helstu voru á þá leið að talnalegar forsendur væru ekki að öllu leyti réttar þar sem meinlegar villur hefðu slæðst inn. Fram kom sú skoðun, m.a. hjá Jóhannesi M. Gunnarssyni lækningaforstjóra, að Morgunblaðið/Þorkell STARFSMENN Sjúkrahúss Reykjavíkur fjölmenntu á kynning- arfundinn í gær. komast hefði mátt hjá þessum vill- um með faglegu samráði við starfs- menn sjúkrahússins. Gagnrýnt var að farið hefði verið með skýrsluna eins og hernaðarleyndarmál meðan hún var í vinnslu og að með því hefði stjórnendum sjúkrahússins jafnvel verið sýnt visst vantraust. Þá bentu nokkrir fundarmanna á að í skýrslunni væru nær ein- göngu raktir kostir sameiningar og ókostir þess að hafa sjúkrahúsin tvö. Magni Jónsson læknir sagði ennfremur að lítið væri gert úr þeirri verkaskiptingu sem þegar væri komin á milli stóru sjúkrahús- anna tveggja. Óljós árangur sameiningar Landakots og Borgarspítala Nokkrir starfsmannanna rifjuðu upp erfiða sameiningu Landakots og Borgarspítala og gekk Niels Christian Nielsen læknir svo langt að tala um sjö ára stríð í því sam- bandi. Sameiningin hefði verið erfið fyrir starfsfólkið og eyðilagt vinnu- andann innan veggja vinnustaðar- ins. Hans skoðun væri sú að enn væri ekki farið að reka þar heillegt sjúkrahús og að í raun væri ekkert ljóst ennþá um áþreifanlegan árangur af sameiningunni. Meðal fundarmanna kom fram sú skoðun að háskólaspítali gæti aldrei orðið ódýr og afkastamikill eins og stefnt er að. Slíkur spítali væri eðli málsins samkvæmt dýrari í rekstri en aðrir. Samvinna af hinu góða Þrátt fyrir umtalsverða gagnrýni á skýrsluna heyrðust einnig ánægjuraddir á fundinum. Ein þeirra sem fögnuðu skýrslunni var Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrun- arforstjóri. Hún sagði þar margt sem koma myndi að gagni í fram- tíðinni. Til dæmis væri mikilvægt að hafa nú einhvetjar tölur til sam- anburðar en þær þyrftu þó vissu- lega að vera samanburðarhæfar og réttar. Hún kvaðst almennt þeirrar skoðunar að samvinna væri af hinu góða og að henni bæri að stefna. Nauðsynlegt væri þó að vita hver raunverulegur pólitískur vilji yfir- valda væri í málinu. Björg hrynja niður áveg MILDI var að hvorki fólk né fénaður varð fyrir tveimur stór- um björgum sem hrundu úr fjallshlíðinni rétt vestan við bæinn Steina undir Eyjafjöllum skömmu fyrir klukkan átta í gærmorgun. Björgin stað- næmdust á miðjum veginum, hlið við hlið, og lokuðu honum fyrir umferð um tíma. Að sögn lögreglu á Hvolsvelli voru björgin það stór og þung að vinnuvélar réðu ekki við að fjarlægja þau fyrr en þau höfðu verið sprengd í tvígang. Starfs- menn Vegagerðarinnar gerðu braut til hliðar við veginn þann- ig að hægt væri að hleypa um- ferð framhjá meðan gijótið var fjarlægt og gert við veginn, sem skemmdist nokkuð þegar björg- in skullu á honum. Lögreglan beinir því til veg- farenda á þessum slóðum að líta vel í kringum sig, þar sem svona nokkuð geti gerst hvenær sem er. I dag er von á starfsmönnum frá snjóflóðadeild Veðurstof- unnar til að líta á ummerki. Yfirmenn þriggja framleiðsludeilda RÚV ráðnir ÚTVARPS STJÓRI hefur ráðið yfir- menn þriggja framleiðsiudeilda Rík- isútvarpsins. Margrét Oddsdóttir hef- ur verið ráðin yfirmaður menningar- mála, Óskar Ingólfsson hefur verið ráðinn yfirmaður tónlistarmála og Þorgerður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður samfélags- og dæg- urmála. Kristín Ólafsdóttir hlaut fleiri atkvæði útvarpsráðs í stöðuna en Þorgerður. Utvarpsráð tók afstöðu til umsækj- endanna á fundi sínum i gær. í stöðu yfirmanns menningarmála hlaut Margrét Oddsdóttir 6 atkvæði og Jón Viðar Jónsson 1 atkvæði. Þriðji um- sækjandinn var Sólveig Pálsdóttir. í stöðu yfirmanns samfélags- og menningarmála hlaut Kristín Ólafs- dóttir 4 atkvæði og Þorgerður Gunn- arsdóttir 3 atkvæði. Aðrir umsækj- endur voru Gústaf Níelsson, Jón Ás- geir Sigurðsson og Óðinn Jónsson. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs, sagðist ekki gera athugasemd við ráðningu Þor- gerðar í stöðuna. „Engin launung er á því að stuðningur minn var hjá Þorgerði Gunnarsdóttur. Ég var eftir bestu samvisku að velja góðan stjórn- anda fyrir ríkisútvarpið," sagði Gunn- laugur og tók fram að útvarpsráð væri aðeins umsagnaraðili og mý- mörg dæmi væru um að svipuð staða kæmi upp. Nú síðast fyrir ári. í stöðu yfirmanns tónlistarmála hlaut Óskar Ingólfsson öll sjö at- kvæði útvarpsráðs. Aðrir umsækj- endur voru Bjarki Sveinbjörnsson, Guðmundur Emilsson, íris Erlings- dóttir, Már Magnússon, Trausti Þór Sverrisson og Þórarinn Stefánsson. Ljósrnynd/GJ STARFSMENN Vegagerðarinnar brugðu skjótt við og fjarlægðu björgin. Áður þurfti þó að sprengja þau, þar sem þau voru það þung að vinnuvélar réðu ekki við að fjarlægja þau í heilu lagi. \ ) ) i ) í \ > i > i Réttað í máli Sijsrurðar VE í Noregi Skipstjórinn neitar öllum sakargiftum Bodö. Morgunblaðið. RÉTTARHÖLD hófust í Bodö í Morgunblaðið/Nordlands Fremtid FRIÐRIK Arngrímsson, lögmaður útgerðar Sigurðar VE, og Krist- björn Árnason, skipstjóri, bera saman bækur sínar í réttinum í gær. Noregi í gær í svokölluðu Sigurðar- máli en norska strandgæslan stóð nótaveiðiskipið Sigurð VE 15 að meintum ólöglegum veiðum innan lögsögu Jan Mayen 7. júní síðast- liðinn. Skipstjóri neitaði öllum sakargiftum við vitnaleiðslur og kvaðst hafa fylgt öllum reglugerð- um af bestu vitund. Sigurður Ein- arsson var í réttinum ásamt skip- stjóra skipsins, stýrimanni og Jóni Ólafssyni rafeindavirkja. Sigurður segir að sjónarmið skipstjóra og útgerðar hafi komið vel fram í réttinum í dag, vel hafi tekist að skýra ástæður þess að skeytin bárust ekki. Lögð var fram ákæra á hendur skipstjóra og útgerð í þremur lið- um: Mánudaginn 26. maí 1997 hafí norsku fiskistofunni ekki bor- ist skeyti þess efnis að báturinn væri hættur veiðum á Jan Mayen- svæðinu og föstudaginn 6. júní hafði norsku fiskistofunni heldur ekki borist skeyti þess efnis að veiði, eða leit, væri hafin. Þriðji liðurinn varðaði ófullnægjandi út- fyllingu á veiðibók skipsins. Skeytin send Fyrsta vitnið sem kallað var fyr- ir var skipstjórinn, Kristbjörn Árnason, hann neitaði sakargiftum og sagði skeytin hafa verið send á réttum tíma og lýsti stuttlega að- draganda málsins. Kristbjörn sagði fyrir réttinum að yfirleitt sæi stýri- maðurinn um skeytasendingar en sendinguna 26. maí sendi hann þó sjálfur og staðfestinguna hefði hann lagt í símaskrána. Í landleg- unni eftir sjómannadag kom svo ný símaskrá um borð og þeirri , gömlu var fargað. Stýrimaðurinn, Andrés Þorsteinn Sigurðarsson, ’ vitnaði einnig og sagðist hafa gert i margítrekaðar tilraunir til að senda fyrsta skeytið í inmarsat-fjar- skiptatækinu sem var eina skeytið sem barst til Noregs. Síðan var rangt númer í veiðileyfi skipsins sett í minni tækisins, og því bár- ust seinni skeytin ekki en skipveij- ar áttuðu sig ekki á því. Fram kom í yfirheyrslum yfir stýrimönnum á norska strandgæsluskipinu sem tók Sigurð að vantað hefði afrit j af skeytunum og einnig hefði það komið mönnum mikið á óvart þeg- ar skipstjóri lét stöðva aðalvél skipsins eftir samskipti við íslenska utanríkisráðuneytið. Sækjandi eyddi miklum tíma í að spyrja hvers vegna engin gögn fyndust um sendingar tækisins fyrir 5. júní en það skýrist með , því að rafmagn var tekið af skipinu á sjómannadag. Vitnaleiðslum i verður haldið áfram í dag og bú- ) ast má við dómsniðurstöðu eftir nokkrar vikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.