Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 9
FRÉTTIR
Ráðnir að
Samvinnu-
háskólanum
ÞORLÁKUR Björnsson hefur ver-
ið ráðinn aðstoðarrektor við Sam-
vinnuháskólann á Bifröst. Hann
lauk Cand merc
gráðu í Fjármála-
stjórnun frá Ála-
borgarháskóla
árið 1995 ogBS
gráðu frá sama
skóla þar á und-
an. Hann lagði
einnig stund á
nám við Sam-
vinnuháskólann á
árunum 1988-90. Þorlákur hefur
starfað við Samvinnuháskólann,
sem aðjúnkt og lektor, frá hausti
1995. Helstu kennslugreinar hans
eru í bókhaldi og áætlunargerð.
Sambýliskona Þorláks er Sigrún
Guðmundsdóttir sem starfar einn-
ig við kennslu í Samvinnuháskólan-
um. Þau eiga eitt barn.
Bjarni Jónsson hefur verið ráð-
inn lektor við
Samvinnuháskól-
ann á Bifröst.
Bjarni lauk MBA
prófi frá Univers-
ity of Strathec-
lyde árið 1991 og
BS prófi í líffræði
frá Háskóla ís-
lands árið 1982.
Bjarni er að vinna
að doktorsritgerð
sinni í rekstrarhagfræði við
Glasgow University samhliða starfi
sínu við Samvinnuháskólann. Á ár-
unum 1993-94 starfaði Bjarni sem
framkvæmdastjóri Marklands hf.
og 1991-93 hjá Byggðastofnun við
atvinnuráðgjöf og að atvinnumál-
um. Frá 1984 til 90 var hann fram-
kvæmdastjóri fiskeldistöðvarinnar
Vatnaræktar hf. Helstu kennslu-
greinar hans eru í stjórnun. Bjarni
er kvæntur Björgu Olafsdóttur
aðstoðarskólastjóra og eiga þau
þijú börn.
Charles F. Fromme Jr. er Full-
bright-kennari við
Samvinnuháskól-
ann á Bifröst í
haust. Fromme er
dósent í viðskipta-
fræðum við City
University of New
York. Hann lauk
MSIE gráðu frá
New York Uni-
versity 1973.
Hann kennir Upplýsingafræði við
Samvinnuháskólann.
Minnisvarði
um Hermann
afhjúpaður
MINNISVARÐI um Hermann
Jónasson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, var afhjúpaður á fæð-
ingarstað hans, að Syðri-Brekk-
um í Blönduhlíð, um helgina. Það
voru börn Hermanns, Steingrímur
og Pálína, sem afhjúpuðu minnis-
varðann.
Hermann fæddist að Syðri-
Brekkum 25. desember 1896, son-
ur hjónanna Jónasar Jónssonar
bónda og Pálínar Björnsdóttur
ljósmóður. Hann ólst upp á Syðri-
Brekkum og starfaði þar fram til
þess tíma er hann hóf nám í
menntaskóla. Hermann var lög-
reglustjóri í Reykjavík, alþingis-
maður og ráðherra í ýmsum ráðu-
neytum. Forsætisráðherra var
hann samfleytt frá árinu 1934 til
1942 og aftur frá 1956 til 1958.
Hermann var formaður Fram-
sóknarflokksins í áratugi.
Meðal þeirra sem voru við-
staddir afhjúpunina voru ættingj-
ar Hermanns, vinir og baráttufé-
lagar úr Framsóknarflokknum.
Ávörp fluttu Stefán Guðmundsson
alþingismaður, Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarfiokks-
ins, Þráinn Valdimarsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri flokksins,
og Steingrímur Hermannsson,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Morgunblaðið/Egill Heiðar Gíslason
BÖRN Hermanns, Steingrímur og Pálína, afhjúpuðu
minnisvarðann.
Breytúigar á fram-
kvæmd löggilding'-
ar mælitækja
LOGGILDINGARSTOFA, sem
hefur annast löggildingu mæli-
tækja í tæp 80 ár, hefur hætt
þeirri starfsemi samkvæmt nýjum
reglum sem gefnar hafa verið út
um löggildingu mælitækja. Lög-
gildingarstofa sinnir framvegis
yfirumsjón og stjórnsýsluhlutverki
á þessu sviði, en framkvæmd lög-
gildinga verður falin faggiltum
prófunarstofum sem fullnægja
ströngum skilyrðum um tækja-
búnað, hæfni og hlutleysi.
Um síðustu áramót var gerð sú
breyting að Löggildingarstofan og
Rafmagnseftirlit ríkisins voru sam-
einuð í Löggildingarstofu, og að
sögn Þórs J. Gunnarssonar hjá
Löggildingarstofu er með reglun-
um um löggildingu mælitækja að
koma fram einn hluti af þeirri
breytingu.
„Með þessu eru þessi tvö fyrir-
tæki, Löggildingarstofan og Raf-
magnseftirlit ríkisins, hætt þessu
eftirlitsstarfi sem var alláberandi í
störfum þeirra beggja. Það er
grundvallarbreyting á starfseminni,
og einnig það að með aðildinni að
EES hefur markaðseftirlit verið
tekið upp hjá Löggiidingarstofu, en
sú starfsemi var ekki til áður,“ sagði
Þór.
Möð löggildingu mælitækja, t.d.
verslunarvoga og bensíndælna, er
verið að tryggja hagsmuni neytenda,
og eru löggilt mælitæki auðkennd
með límmiða og eða innsigli. Bif-
reiðaskoðun hf. hefur að sögn Þórs
ein skoðunarstofa fengið starfsleyfi
til löggildingar mælitækja. „Þetta
er alveg sambærilegt við fram-
kvæmd bifreiðaskoðunar og þess
vegna kemur Bifreiðaskoðun inn í
þetta því það er svo auðvelt fyrir
hana að bæta þessu við sig,“ sagði
hann.
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
IÓðingata 1 • 101 • Reykjavík I
Sími 562 3220 « Fax 552 232p|
YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR
[ HÚSI SUNDLAUGAR SELTJARNARNESS
YOGA YOGA YOGA
Mánudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og 19:00
Leiðbeinandi: Anna Björnsdóttir, yogakennari
Innritun og upplýsingar í síma 561 0207
TÍSKUVERSLUNIN Sraort
GRÍMSBÆ V/BÚSTAÐAVEG
Nýjar yörur
Urval af peysum, fallegir litir.
Kragalaus vatteruð vesti, kóngablá, dökkblá, svört og brún.
15% aukaafsláttur af útsöluvörum út vikuna.
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-15 • Sími 588 8488
Ulpur, jakkar og kápur
Tískuskemman
Bankastræti 14
L-l
M
U A ÞVI
ÁSKRII
AÐ SPARA
Það fylgir því þægileg tilfinning að vita af traustum sjóði sem vex jafnt og örugglega og hægt
er að grípa til þegar rétta tækifærið kemur. Með því að byrja á lágri fjárhæð, sem þú ræður
auðveldlega við í hverjum mánuði, getur þú á agaðan og einfaldan hátt sparað reglulega með
áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs.
Til að gera sparnaðinn enn sjálfsagðari getur þú greitt
hann með greiðslukorti.
Láttu reyna á það að spara reglulega með áskrift að
spariskírteinum. Þú getur alltaf hætt, en flestir sem byrja
halda áfram og jafnvel auka fjárhæðina jafnt og þétt.
Byrjaðu að spara í dag og hringdu. Áskriftarsíminn er 562 6040
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæb, sími 562 6040
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT