Morgunblaðið - 03.09.1997, Síða 13

Morgunblaðið - 03.09.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 13 AKUREYRI Þriðji bíllinn sem hafnar í garðinum að Bjarmastíg 10 Sendibif- reið lenti á tré og valt á toppinn LITLU munaði að illa færi er sendibíll frá Möl og sandi hf. hafnaði á tré í garði við húsið númer 10 við Bjarmastig á Akur- eyri og valt á toppinn. Garðurinn liggur um 3-4 metrum neðar en vegurinn og því var fallið nokk- urt, en tréð kom í veg fyrir að bíllinn færi áfram ofan í Skáta gilið. Okumaðurinn sem var einn í bílnum slasaðist en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg. Hann var fluttur á slysadeild FSA en fékk að fara heim að lokinni skoðun. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur og ekki síst eft- ir að hann var hífður upp úr garðinum með öflugum krana og honum snúið á hjólin. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglu stopp- aði ökumaðurinn bílinn í brekk- unni og ætlaði þar inn í hús. Hann taldi sig hafa drepið á biln- um en er hann kom út úr bílnum fór hann að renna af stað. Oku- maðurinn stökk þá upp í bílinn aftur og gerði tilraun til að stöðva hann en það gekk ekki. Baldur Ingimarsson, íbúi að Bjarmastíg 10 segir þetta í þriðja sinn sem bíll hafnar niðri i garð- inum hjá honum, en í fyrri skipt- Morgunblaðið/Kristján SENDIBILLINN hafnaði á tré í garðinum og valt svo á topp- inn. Eins og sést á myndinni er fallhæðin töluverð, eða 3-4 metrar. Uppi á vegi ræðir lögregla við sjónarvotta. HÍFA þurfti sendibílinn upp úr garðinum með öflugum krana. Bíllinn skemmdist töluvert við óhappið og hann fór ekki síður illa er verið var að koma honum á réttan kjöl uppi á vegi. in lentu bílar þar vegna hálku að vetrarlagi. Baldur segist hafa gert ítrekaðar tilraunir til að fá bæjaryfirvöld til að gera eitthvað til að koma í veg fyrir að slíkt gerist á þessu horni en segist hafa talað fyrir daufum eyrum. Ekki hafi orðið alvarleg slys í þessum óhöppum en kannski það sé það sem þurfi að gerast svo bæjaryfirvöld taki við sér. Skömmu áður en bílinn hafn- aði í garðinum hafði unglings- piltur, Sigvaldi Þór Loftsson, far- ið yfir götuna þar sem bílinn fór um. Sigvaldi taldi að bíllinn hefði ekki verið í gangi er óhappið varð og hann sagðist hafa séð bílstjórann kastasttil i bilnum i árekstrinum við tréð. Ospin sem bíllinn hafnaði á var hátt í 30 ára gömul og taldi Bald- ur hana um eða yfir 15 met’ra á hæð. Ospin skemmdist nokkuð og taldi Baldur ekki þýða annað en að fella hana vegna þessa. Guðmundur Arnason selur 15% hlut í Hótel Hörpu Páll Sigiirjónsson tekur við hótelstj órninni GUÐMUNDUR Árnason hótelstjóri á Hótel Hörpu hefur seit 15% hlut í hótelinu en núverandi hluthafar nýttu sér forkaupsrétt sinn að þeim hluta. Guðmundur mun áfram eiga 10% hlut í hótelinu. Hann lætur af starfi hótelstjóra um næstu áramót og heldur til náms í Frakklandi. Við starfi hans tekur Páll Sigur- jónsson en hann hefur rekið Hótel Egiisbúð í Neskaupstað síðastliðin ár. Páll er kominn til starfa á Hótel Hörpu en tekur við hótelstjórastarf- inu um áramót. Hótel Harpa hefur tekið upp sam- starf við Foss-hótel en þau eru í eigu Úrvals-Útsýnar, Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar, Safaríferða og Ómars Benediktssonar. Fosshótel reka hótel á sex stöðum á landinu, Hótel City og Hótel Lind í Reykja- vík, Bifröst í Borgarfirði, Áningu á Sauðárkróki, Hótel Hörpu og Hótel Kjarnalund á Akureyri, Foss-hótei Hallormsstað og Hótel Vatnajökul á Höfn í Hornafirði. Öll hótelin bjóða upp á herbergi með baði og er hug- myndin að baki þeim að sögn Guð- mundar að geta tekið á móti og þjón- að ferðahópum sem eru á hringferð um landið. Að sögn Guðmundar kom sumarið þokkalega vel út og varð nokkur veltuaukning á milli ára. „Þrátt fyr- ir lítilsháttar samdrátt almennt í ferðaþjónustu varð nokkur veltu- aukning hjá okkur. Þéttbýlisstaðir, eins og Akureyri hafa fengið tölu- vert af ráðstefnum og fundum til sín og það bætir samdráttinn upp,“ sagði Guðmundur. „Við erum líka Morgunblaðið/Margrét Þóra GUÐMUNDUR Árnason og Páll Siguijónsson við Hótel Hörpu. farin að sjá erlenda ferðamenn á jaðartímum, í apríl, maí og septem- ber og október, en þeir sáust ekki fyrir nokkrum árum.“ Guðmundur sagði að horfur fyrir næsta sumar væru góðar en þar kæmi m.a. til samstarf við þær ferðaskrifstofur sem ættu Fosshótel- in. „Við gerum ráð fyrir að þetta samstarf færi okkur aukin viðskipti og bókanir fyrir næsta sumar líta vel út,“ sagði Guðmundur, en vetur- inn sagði hann óskrifað blað líkt og vant væri. Við bjóðum nú vikuferð til Madrid. Þessi einstæða borg státar af stórfögrum byggingum frá tímum Mára, rómantískri stemningu, tískuverslunum og veitingastöðum á heimsmæli- kvarða. Kynnist Madrid með Kristni R. Ólafssyni. Gist verður á Hotel Opera sem er þriggja stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. * Á mann, miðað við tvo saman í tvíbýli. Innifalið: Flug til og frá Alicante, rútuferðir til og frá Madrid, gisting, islenskur fararstjóri, skattar og gjöld. Lágmarksþátttaka 20 manns. * Á mann, miðað við fjóra saman í íbúð. 14.900 kr. miðað við tvo saman í íbúð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.