Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 18

Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ljósmyndarar látnir lausir í París Opinber rannsókn fyrirskipuð Jafngildir ekki sjálfkrafa ákæru fyrir manndráp af gáleysi FRANSKUR dómari fyrir- skipaði i gær, að sjö ljós- myndarar sem eltu bifreið Díönu prinsessu er hún beið bana í París, skyldu sæta form- legri rannsókn fyrir meint mann- dráp, að sögn lögfræðinga þeirra. Rannsóknin er ígildi þess að ákveð- ið hafí verið að hefja sakamál á hendur þeim vegna dauða Díönu, Dodi Fayed ástmanns hennar og hótelbílstjórans Henri Paul, vegna alvarlegra meiðsla lífvarðarins Trevors Rees-Jones og fyrir að hafa látið hjá líða að veita hinum slösuðu aðstoð eða kalla til hjálp. Herve Stephan dómari lét sleppa ljósmyndurunum þegar hann hafði ákveðið að hefja formlega lögreglu- rannsókn á hendur þeim. Einn af öðrum voru þeir leiddir fyrir hann í handjárnum úr fangaklefum sín- um til þess að hlýða á niðurstöður frumrannsóknar á orsökum bíl- slyssins þar sem Díana prinsessa beið bana og rök lögfræðinga sinna gegn því að þeir yrðu bendlaðir við slysið. Voru þeir fölir og fáir eftir tveggja sólarhringa yfirheyrslur en gramir handtöku, héldu fram sak- leysi sínu og töldu sig ekki hafa gert neitt rangt. Hubert Henrotte, forstjóri Sygma-fréttamyndaþjónustunnar, vísaði því á bug að sinn ljósmynd- ari væri svonefndur „paparazzi", heldur hefði hann komið á slysstað sjö mínútum eftir óhappið og ein- ungis tekið myndir af björgunar- starfi er lögreglan handtók hann. Lögmenn allra ljósmyndaranna sögðu að þeir hefðu tekið myndir af brakinu og ættu því yfir höfði sér ákæru fyrir að láta hjá líða að aðstoða björgunarmenn. Ákæra fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að láta hjá líða að aðstoða fórn- arlömb slysa getur haft í för með sér allt að fimm ára fangelsi og 6 milljóna króna sekt. Einn lögmann- anna, William Bourdon, sagði að svo virtist sem ætlunin væri að gera ljósmyndarana að blóraböggl- um i þágu utanríkisráðuneytisins. Uppljóstranir þess efnis að bíl- stjóri Díönu og Dodi Fayeds hafi ekið á ofsahraða og áfengismagn í blóði hans verið langt yfir leyfileg- um mörkum þykir hafa bætt mál- stað ljósmyndaranna, en um heim allan hafa spjótin beinst að þeim og stéttbræðrum þeirra. Fengu þeir stuðning úr óvæntri átt í gær er franska leikkonan Catherine De- neuve sagði þá einungis peð í tafli óvandaðra fjölmiðlakónga, sem nær væri að hirta. Hraðamælir á núlli Franska lögreglan vísaði því á bug í gær að nálin á hraðamæli bifreiðarinnar, sem Díana og Dodi ERLENT Reuter Þúsundir Breta minnast Díönu prinsessu KONA í Lundúnum þerrar tárin fyrir framan því og hefur geysilegur fjöldi fólks komið þangað Kensington-höll, heimili Díönu prinsessu. Blóma- til að minnast prinsessunnar og votta henni virð- hafið út frá hallarhliðinu nær um 400 metra frá ingu sína. í Frakklandi þær skyldur á herðar, að hjálpa fórnarlömbum slysa og öðrum sem eiga um sárt að binda eða kalla eftir aðstoð, nema því aðeins að það leggi þá sjálfa í lífs- hættu. Þau banna mönnum einnig að hindra starf björgunarmanna. Spurningin er hvort ljósmyndararn- ir hafi brotið lögin með því að hindra björgunarstarf eða með því að hafa ekki kallað eftir hjálp. Lýsingum á hegðan ljósmyndara á slysstað rétt eftir slysið ber ekki saman, en því hefur m.a. verið lýst að þeir hafi troðist fram fyrir björg- unarmenn til þess að geta myndað Díönu þar sem hún engdist af sárs- auka í bílflakinu. Aðrar heimildir herma að þeir hafi hindrað hjúkrun- arstörf með því að leggja mótorhjól- um sínum á veginn og lokað þann- ig fyrir aðkomu lögreglu- og sjúkra- bifreiða. Enn aðrar heimildir segja að ljósmyndararnir hafi einungis verið að sinna starfi sinu og tekið myndir án þess að hindra eða hjálpa til við björgunarstörf. Franskir lögfræðingar sögðu í gær, að hugsanlega slyppi Mo- hammed A1 Fayed, faðir Dodi Fay- dóu í, hefði sýnt 196 km/klst hraða við áreksturinn. Hefði mælirinn staðið á núlli. Rannsókninni, sem ijósmyndur- unum er gert að sæta, er ætlað að skera úr um hvort eftirför þeirra hafi leitt til bílslyssins. í henni felst það þó ekki að þeir verði sjálfkrafa ákærðir og leiddir fyrir rétt. Bern- ard Dartevelle, lögmaður A1 Fayed- fjölskyldunnar sagðist myndu hefja skaðabótamál á hendur ljósmyndur- unum. Sagði hann sjónarvotta hafa séð mótorhjól aka í sveigum fyrir framan bifreiðina í þeim tilgangi að hægja á henni. Kveður lögmað- urinn ljósmyndarana bera ábyrgð á slysinu því eltingarleikur þeirra við Díönu og Dodi hafi komið öryggis- vörðum á Ritz-hótelinu í uppnám og leitt til þess að breytingar voru gerðar á síðustu stundu á fyrirhug- aðri akstursleið þeirra. Hefði bíl- stjórinn, Henri Paul, aðstoðaryfir- maður öryggismála á hótelinu, ver- ið kvaddur að heiman til að aka bifreið Díönu en ekill hennar ekið annari bifreið í þeim tilgangi að afvegaleiða ljósmyndarana. Lögmenn ljósmyndaranna sögðu hins vegar að meintur mótorhjóla- akstur fyrir framan bifreiðina á götum Parísar væri ekki nefndur í 350 síðna skýrslubunka franska saksóknaraembættisins. Framburð- ur lífvarðarins Rees-Jones mun því vega þungt en hann hefur enn ekki náð sér nógu vel af meiðslum til þess að vera yfirheyrður. Franska lögreglan hefur lagt hald á mótorhjól, myndavélar og filmur og gert húsleit í skrifstofum nokkurra frétta- og myndaþjónusta í þeim tilgangi að hafa uppi á ljós- myndum af slysstað. Jafnframt var leitað ljósmyndara sem hugsanlega hafa komist hjá handtöku. Læknir að nafni Frederic Maillez, sem kom fyrstur lækna á slysstað og veitti Díönu neyðarhjálp, sagðist hafa veitt því athygli að 10-15 ljósmynd- arar hefðu verið að mynda bílinn er hann kom á vettvang. Samverjalögin Að hafa iátið hjá líða að aðstoða á slysstað kann að eiga eftir að koma ljósmyndurunum í klandur. Svonefnd „samveija“-lög, sem eru einstök í sinni röð, leggja borgurum Skráargataáráttan sem söluvara Ný kjaftablöð hafa komið á markaðinn í Danmörku, samkeppnin harðnað og þá er keppt um að vera sem op- inskáastur. Því hefur danska konungsfjöl- skyldan fundið fyrir, eins o g Sigrún Davíðs- dóttir rekur hér. NÝ VIKURIT, sem sérhæfa sig í hræringum í kringum þekkta fólkið og þá kon- ungabornu hafa komið fram á sjón- arsviðið í Danmörku. Áfergjufullum útgefendum dugar ekkert minna en strætisvagnar undir auglýsingar sínar. En vikuritin keppa ekki að- eins sín á milli, heldur keppa þau líka við síðdegisblöðin, sem einnig róa á efnismarkað frægra og kon- ungborinna og um leið hefur kon- ungsfjölskyldan orðið æ eftirsóttara efni. Tilmæli hirðar virt að vettugi Auk þess sem nýju vikuritin kepptu um verð, eitt blaðið kostar undir tíu dönskum krónum, var uppistaðan í auglýsingunum sú að greinarnar væru nærgöngulli en keppinautanna. Sum blöðin stefna á að vera með jákvæðar fréttir, í anda fyrirmyndarinnar miklu, Hello, en önnur taka bara það sem á fjörur þeirra rekur. Myndir af Jóakim prins og Alex- öndru prinsessu konu hans hafa verið ofarlega á vinsældalistanum, með vangaveltum um hvort hún færi ekki að gildna undir belti. Nýlega birti eitt blaðanna myndir af prinsessunni, þar sem hún var að kaupa inn í fríhöfninni. Sú mynd var keypt af farþega, sem átti leið um með myndavél og smellti af. Eftir það tók hirðin til máls og tals- maður hennar mæltist til að blöðin létu vera að birta myndir af kon- ungsfjölskyldunni við einkaaðstæð- ur og einkum að prinsunum yrði hlíft við ofurathygli. Þetta létu kjaftablaðaritstjórar sem vind um eyru þjóta og sögðu að fyrst Jóakim og Álexandra færu í frí í hópferð með venjulegu fólki gætu þau ekki búist við að vera alveg útaf fyrir sig. Sundlaugar- og nektarmyndir Kjaftablöðin fengu brátt tæki- færi til að standa við orð sín. Se og Her og Ekstrabladet brutu fyr- ir skömmu dönsk lög um friðhelgi einkalífsins og birtu myndir af Friðriki krónprinsi í sumarleyfi við sundlaug með vinkonu sinni, söng- konunni Marie Montell á vínsloti konungsfjölskyldunnar í Cahors, þar sem einhver ljósmyndari hafði lagst á gægjur og myndað þau þar sem þau létu vel hvort að öðru. Fyrir nokkrum árum voru birtar myndir af Jóakim prins á sama stað í fríi með danskri vinkonu sinni, fyrir kynnin af Alexöndru. í einu blaðanna eru reyndar einnig þessa dagana myndir af öðru ástföngnu pari á sundlaugarbarmi, sumsé „Spice Girls“-stúlkunni Mel með íslenskum unnusta sínum. í myndaseríunni af Friðrik voru líka myndir af honum, þar sem hann spígsporaði um öldungis fata- laus, en þá mynd birtu dönsku blöð- in ekki, því þau segja það hafa verið ákveðið fyrir löngu að birta ekki nektarmyndir af konungsfjöl- skyldunni. Slíka reglu hefur sænska Aftonbladet ekki og þar birtust myndir af nöktum krón- prinsinum. Samkvæmt dönskum lögum er bannað að birta myndir teknar af fólki við einkaaðstæður og án leyf- is. En samkvæmt lögunum er held- ur ekki hægt að fara í mál við kon- ungsfjölskylduna og um leið fer konungsfjölskyldan heldur ekki í mál við aðra. Tvíbent skref Ýmsir velta því fyrir sér hvort einhver breyting sé að verða á til- finningu Dana og danskra fjölmiðla á hvar eðlileg mörk liggi í umfjöllun um konungsfjölskylduna, en því hafna áðurnefnd blöð og vísa til fyrri mynda af Jóakim. Á kjafta- blöðunum eru hins vegar vangavelt- ur um hvort lesendur séu að verða þreyttir á konungsefninu, en spum- ingin er þá hvort það leiði til meira krassandi efnis, eða að fjölskyldan verði síður undir smásjá. Á móti má benda á að fjölskyldan hefur undanfarin ár sjálf ærið oft komið fram í fjölmiðlum og farið út á bókamarkaðinn með hálfop- inskáar frásagnir um eigið líf. Drottningin segir þetta aðferð til að fylgjast með tímanum, en spurn- ingin er hvort það er ekki hætta á að fjölmiðlar æði óboðnir inn á mitt gólf, ef gluggatjöldin eru á annað borð dregin aðeins til hliðar. Ýmsir velta þvi líka fyrir sér hver áhrif kjaftablaðanna séu. Út- gefendurnir bera því við að blöðin séu ekkert annað en stórborgarút- gáfa smábæjarslúðurs, þar sem blöðin séu í raun afar prúðmannleg miðað við það. Aðrir benda á að óeðlilegar glansmyndir af lífi hinna frægu og ríku ýti undir vanmetakennd, öfund og óánægju lesenda og komi óupp- byggilegum hugmyndum að í huga fólks og engu öðru. Lesendur verði sjúklega háðir þessum yfirborðs- kenndu frásögnum rétt eins og þeir verði háðir sjónvarpssápum. I dönskum kjaftablöðum ríkja enn ekki þær aðstæður sem Bretar búa við en þegar hart er barist gæti stefnt í þá átt. Það ríkja enn ekki danskar aðstæður á íslenska kjaftablaðamarkaðnum, en spurn- ingin er hvenær íslenskir blaðales- endur mega vænta nektarmynda af frægum Islendingum. Eiga blaðaútgefendur að setja sér vel- sæmismörk og virða einkalífið, eru lögin nóg - eða á fræga fólkið bara að passa að striplast ekki?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.