Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Víetnam
GEGNVOTIR fánar skreyttir
hamri og sigð hanga þunglama-
lega í þrumuveðri yfir götum
Hanoi, höfuðborgar Víetnams,
þegar hraktir pílagrímar úr
sveitum landsins bíða í röð við
grafhýsi Ho Chi Minhs, bylting-
arleiðtogans fyrrverandi, sem
enn er í hávegum hafður meðal
stórs hluta almennings. Smurt lík
hans er varðveitt í grafhýsinu.
Víetnambúar fögnuðu því í gær,
að 52 ár voru liðin frá því Ho
Chi Minh lýsti yfir sjálfstæði
landsins og frelsi undan nýlendu-
yfirráðum Frakka.
Veðrið þótti að nokkru leyti
viðeigandi á þessum degi, þar
sem fáir voru í hátíðarhug. Efna-
hagsumbætur eru í járnum, leið-
togaskipti í ríkisstjórninni standa
fyrir dyrum og róstur krauma á
landsbyggðinni. Vo Van Kiet,
forsætisráðherra Víetnams, hét
því i ræðu að umbótum yrði hrað-
að. „Við munum hraða stöðugt
umbótaferlinu til þess að nýta til
fullnustu innlendar auðlindir og
erlenda fjárfestingu og aðstoð,“
sagði Kiet meðal annars. Hann
sagði víetnömsku þjóðina hafa
fært margar fórnir og barizt
heljulega undir „skýrri stjórn“
kommúnistaflokksins.
Danmörk
Samvinna
eftir
skilnað?
DÖNSK yfirvöld hyggjast nú
kanna hvort gripið verði til þess
ráðs að þvinga foreldra, sem
ekki ná samkomulagi um börn
sín við skilnað, til að vinna sam-
an.
Frank Jensen, dómsmálaráð-
herra Danmerkur, lýsti á mánu-
dag yfir því að hann væri reiðu-
búinn til að kanna þetta mál
eftir að norskir vísindamenn
lögðu fram niðurstöður af því
að beita slíkum kvöðum í Nor-
egi. Þar hafa foreldrar verið
knúnir til samráðs og samvinnu
þegar ágreiningur var um um-
ráðarétt yfir börnum þeirra.
Samkvæmt frétt í dagblaðinu
Jyllands-Posten hafa dönsk yfir-
völd Iegið undir ámæli fyrir að
taka lítið tillit til barna þegar
ákveðið er hvar þau verði niður-
komin eftir skilnað.
Reuter
Barátta Plavsics við serbneska harðlínumenn harðnar enn
Gæsluliðar NATO
beittu trékylfum
Udrigovo, Banja Luka. Reuter.
BANDARISKIR friðargæsluliðar í
Bosníu beittu í gær trékylfum
gegn herskáum Serbum er réðust
gegn gæsluliðunum sem stóðu
vörð um umdeildan sjónvarpss-
endi. Átökunum í gærmorgunn
lauk án þess að nokkur hlyti alvar-
leg sár, en Serbamir höfðu í hót-
unum um frekari aðför síðdegis.
Bandaríkjamennirnir bjuggu
sér til kylfur úr tijágreinum til
þess að forðast blóðsúthellingar,
að því er yfírmaður þeirra við sjón-
varpssendinn tjáði fréttamanni
Reuters. „Við lærðum okkar lexíu
á fimmtudaginn. Við viljum veija
hendur okkar án þess að meiða
neinn,“ sagði yfírmaðurinn og vís-
aði til þess er argir Serbar grýttu
gæsluliða í bænum Brcko í síðustu
viku.
Yfírráð yfír ljósvakamiðlum er
orðið helsti ásteytingarsteinninn í
valdabaráttu forseta serbneska
lýðveldisins, Biljönu Plavsic, er
nýtur stuðnings Vesturlandam, og
Radovans Karadzics, fyrrum for-
seta og ákærðs stríðsglæpamanns,
er harðlínumenn fylgja að málum.
Sjónvarps- og útvarpsstöðvar und-
ir stjórn þeirra síðarnefndu hafa
lýst gæsluliði Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, sem „hemámsliði“
og Plavsic sem svikara. Það eru
stuðningsmenn Karadzics sem
hafa sótt að gæsluliðunum.
„Glæpamenn" frá Júgóslavíu
Plavsic sagði eftir fund með
bandaríska sendimanninum Ro-
bert Farrand á mánudag, að
„glæpamenn" frá • Júgóslavíu
hefðu staðið fyrir uppþotinu í
Brcko og hefðu verið fluttir þang-
að í langferðabílum. Plavsic, sem
nýtur stuðnings vestrænna ríkja,
berst um völdin í Serbneska lýð-
veldinu við harðlínumenn, sem
styðja Karadzic.
Farrand sagði einnig, að fólk,
sem ekki byggi í Brcko og jafnvel
ekki í Bosníu, hefði staðið fyrir
óeirðunum. Er Farrand eftirlits-
maður vestrænna ríkja í Brcko en
staða bæjarins er óráðin enn og
var ekki ákveðin með Dayton-
samningunum. Brcko er á mjórri
landræmu, sem tengir vesturhluta
serbneska Iýðveldisins þar sem
Plavsic nýtur mests stuðnings og
austurhlutann þar sem harðlínu-
menn ráða mestu.
Milosevic neitar að
styðja Plavsic
Erlend ríki og sérstaklega
Bandaríkin hafa lagt hart að
Slobodan Milosevic, forseta Júgó-
slavíu, að styðja Plavsic en hann
hefur neitað því hingað til.
Fylgismenn Karadzics beijast
fyrir yfírráðum yfir lögreglunni,
ríkissjónvarpinu og hernum og
vilja ekki sætta sig við, að vestræn
ríki hafi eftirlit með sveitar-
stjórnarkosningum eftir hálfan
mánuð. Aleksa Buha, leiðtogi
SDS, flokks harðlínumanna, sagði
í Brcko að flokkurinn myndi ekki
taka þátt í kosningunum nema
kosningareg’lunum yrði breytt.
Trúarleiðtogi úr
klóm skæruliða
Dushanbe. Reuter.
Reuter
TRUARLEIÐTOGI múslima í
Tadsjíkistan, sem skæruliðar
rændu í liðinni viku, var látinn
laus í gær ásamt bróður sínum,
samkvæmt upplýsingum háttsetts
embættismanns í ráðuneyti Imo-
malis Rakhmonovs, forseta. Sagði
embættismaðurinn í samtali við
Reuter að stjórninni hefði tekizt
ræðir lýtur stjórn Rizvon Sad-
irovs, sem er óháður stríðsherra
í borgarastríðinu í Tadsjíkistan.
Hann krefst þess að bróðir hans,
Bakhrom Sadirov, verði látinn
laus úr haldi, en hann var dæmd-
ur til fangelsisvistar fyrir þátt
sinn í að taka nokkra starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna og rússnesk-
Leyfa um-
ferð Palest-
ínumanna
að nýju
Jerúsalem, Túnis. Reuter.
ÍSRAELAR tilkynntu á mánudag að
þeir myndu leyfa takmörkuðum
fjölda palestínskra verkamanna, sem
búsettir eru á heimastjómarsvæðum
Palestínumanna, að halda til vinnu
í ísrael. Er þetta í fyrsta sinn sem
slíkt leyfi er veitt frá því ísraelar
lokuðu heimastjórnarsvæðunum á
Vesturbakkanum og Gaza í kjölfar
sprengjutilræðis á markaðstorgi í
Jerúsalem 30. júlí sl.
Aðstoðarmaður Benjamins Net-
anyahus, forsætisráðherra, sagði að
leyfið væri ekki veitt vegna fyrirhug-
aðrar heimsóknar Madeleine Al-
brights, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til Mið-Austurlanda, sem
hefst nk. þriðjudag. Eina ástæðan
fyrir leyfísveitingunni væri öryggis-
ráðstafanir.
Alls er um fjögur þúsund Palest-
BENJAMIN Netanyahu, for-
sætisráðherra Israels, skoðar
nýja ísraelska Tabor-riffla í
tækni- og þróunarmiðstöð
hersins í Tel Hashomer í gær.
ínumönnum heimilt að fara til ísra-
el. Eru það giftir menn og eldri en
35 ára. Alls voru um 51 þúsund
Palestínumenn í vinnu í ísrael áður
en ferðabann var sett í kjölfar sjálfs-
morðsárásar tveggja manna í Jerú-
salem í lok júlí.
að semja um lausn múftísins
Amunullos Nigmatzoda. Trúar-
leiðtogar múslima af sambærilegri
tign við biskupa hinnar kristnu
kirkju nefnast múftíar.
{ skiptum fyrir múftíinn og
bróður hans, sem einnig var í haldi
mannræningjanna, lét stjóm
Rakhmonovs skæruliðunum í té
fjóra meðlimi skæruliðahópsins,
sem teknir voru höndum sl. sunnu-
dag.
Skæruliðahópurinn sem um
an fréttamann í gíslingu í febrúar
sl.
Synir trúarleiðtoga í haldi
Sadirov rændi tveimur sonum
múftísins í byijun síðasta mánað-
ar og hefur þá enn í haldi í bæki-
stöðvum sínum í fjöllunum upp
af Dushanbe.
Borgarastyrjöld hefur staðið
undanfarin fjögur ár í Tadjikist-
an, sem er fyrrum Sovétlýðveldi,
milli Kína og Afganistan.
Yilja hert-
ar reglur
BRESKA stjórnin lagði í gær
til að reglur um losun úrgangs
í sjó yrðu hertar til muna. Nái
tillögur Breta fram að ganga
myndi það m.a. þýða að ekki
yrði lengur heimilt að sökkva
úreltum olíuborpöllum í sjó,
nema í einstaka undantekn-
ingartilvikum. Michael Meach-
er, umhverfisráðherra Breta,
kynnti þessa stefnubreytingu
breskra stjórnvalda á fundi
aðildarríkja Ósló og Parísar-
samkomulagsins gegn meng-
un sjávar (OSPAR) í Brussel
í gær. Sagði ráðherra að lík-
lega væri þetta mikilvægasta
stefnubreyting Breta í málefn-
um hafsins í nokkra áratugi.
í tillögunum er einnig gert ráð
fyrir að dregið verði verulega
úr losun geislavirkra efna og
annars hættulegs úrgangs í
sjó.
Tvö ár eru nú liðin frá því
Shell-olíufyrirtækið varð að
láta af áformum um að sökkva
borpallinum Brent Sparr í Atl-
antshaf vegna mótmæla um-
hverfisvemdarsamtaka. Gaf
Meacher í skyn að ríkisstjórn
Verkamannaflokksins myndi
ekki geta fallist á að Brent
Sparr eða öðrum borpöllum
yrði sökkt í sjó nema í ein-
staka, sérstökum tilvikum.
Norskir embættismenn sögðu
þetta setja þrýsting á Norð-
menn að gera slíkt hið sama.
Sprengdi
mæli lög-
reglu
FINNSKT blað greindi frá því
í gær að áfengismagn í blóði
finnskrar ökukonu hefði mælst
4,5 prómill. Það vakti athygli
lögreglu er ökuferð hinnar fer-
tugu konu endaði í skurði í
vegarkanti skammt frá Rauma
í suðvesturhluta landsins. Er
mæla átti áfengismagn kom í
ljós að hinn hefðbundni mælir
lögreglunnar dugði ekki til því
hann sýndi hæst 3,0 prómill.
Varð því að færa konuna á
sjúkrahús og mæla áfengis-
magn í blóði til að fá endan-
lega niðurstöðu. Hæsta leyfi-
lega áfengismagn í blóði öku-
manna er 0,5 prómill í Finn-
landi.
„Dvergmorð-
inginn“
fyrir rétt
DÓMSTÓLL í Hong Kong
sýknaði í gær mann af morð-
ákæru, en hann hafði vegið
unnustu sína í kjölfar þess að
hún kallaði hann „bölvaðan
dverg“. Chan Wing-hong er
einungis 1,37 sm á hæð og
hafði um fimm vikna skeið átt
í ástarsambandi við vændis-
konuna Chow Mei-hing. Fyrir
rétti bar hann að hún hefði á
þessum vikum blóðmjólkað
hann peningalega og er allir
fjármunir hans voru uppurnir
uppnefnt hann með eftirfar-
andi hætti og lýst því yfir að
hún ætti sér annan ástmann.
Réðst hann þá að henni og
drap með hníf á hrottalegan
hátt. Chow var sýknaður af
morðákæru en lýsti sig sekan
um manndráp. Hefur dómari
fyrirskipað að hann verði send-
ur í geðrannsókn áður en refs-
ing hans verður ákveðin.