Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 21
Herferð aðskilnaðarsinna Baska
ETA hótar morði
Madríd. Reuter.
'BASKNESKIR aðskilnaðarsinnar á
Spáni hafa hótað að myrða bæjar-
stjóra í norðurhluta landsins, og virð-
ist hótunin liður í herferð gegn
stjómmálamönnum. Skammt er síð-
an baskneskur bæjarráðsmaður var
ráðinn af dögum.
Luis Valero, bæjarstjóri í Tafalla
í Navarrahéraði, greindi frá því í gær
að sér hefði borist hótunarbréf frá
skæruliðasamtökunum ETA (Heim-
kynni Baska og frelsi). í bréfinu
hefði sér verið sagt að hann ynni
héraðinu, þar sem ETA berst fyrir
sjálfstæðu ríki Baska, mikið tjón, og
var honum skipað að hafa sig á brott
innan mánaðar. „Ef ekki neyðumst
við til að grípa til aðgerða sem eng-
um hugnast, en hafa haft kvalafullar
afleiðingar nýverið,“ segir í bréfínu.
Bréfið, sem Valero barst, var
samhljóða bréfi sem sent var til
talsmanns helsta stjórnarandstöðu-
flokksins í Pamplona, höfuðstað
Navarrahéraðs, í síðasta mánuði.
Bæjarstjórinn í Tafalla kvaðst halda
að fleiri stjórnmálamönnum hefðu
borist hótanir en þeir hefðu ekki
gert uppskátt um þær.
ETA-samtökin rændu Miguel
Angel Blanco, sem var bæjarráðs-
maður í Baskalandi, 10. júlí og
myrtu hann tveim dögum síðar, er
stjórnvöld neituðu að verða við kröf-
um þeirra. Atburðurinn olli gífur-
legri reiði á Spáni, og milljónir
manna mótmæltu honum opinber-
lega.
Sænskir ráðherrar um EMU
Svíþjóð fylgi
Bretlandi í
myntbandalag
SÆNSKA ríkisstjórnin ætti að
byrja að róa að því að búa Svíþjóð
undir að gerast aðili að Efnahags-
og myntbandalagi Evrópu, EMU,
þrátt fyrir andstöðu meirihluta
almennings í landinu. Ef Bretar
gerast aðilar að EMU ætti sænska
stjórnin að íhuga EMU-aðild alvar-
lega. Þetta sagði Leif Pagrotsky,
viðskiptaráðherra Svíþjóðar, í við-
tali við Svenska Dagbladet.
Segir ráðherrann að vegna
efnahagslegra forsendna verði
Svíþjóð beinlínis nauðbeygð til að
taka þátt í myntbandalaginu, ef
það verður það stórt að umfangi
að það nái einnig til Bretlands.
Hverfi brezka pundið, sem hingað
til hefur að verulegu leyti verið
gengistengt Bandaríkjadollar, inn
í hinn nýja sameiginlega gjaldmið-
il Evrópu, evróið, verði til svo
öflugt svæði með einn gjaldmiðil
í Evrópu, að Svíþjóð ætti að sjá
sér margvíslegan hag í því, að
mati Pagrotskys, að taka fullan
þátt.
En áður en gengið yrði frá
EMU-aðild Svíþjóðar segir Pagrot-
sky að þjóðinni eigi að gefast færi
á að greiða atkvæði um málið,
annaðhvort með beinni þjóðarat-
kvæðagreiðslu eða þingkosning-
um.
En slíka þjóðaratkvæðagreiðslu
vill sænski forsætisráðherrann,
Göran Persson, ekki sjá. „Ég vil
ekki að Svíþjóð verði steypt i nýtt
tröllastríð um Evrópumál," segir
Persson í viðtali við Svenska Dag-
bladet. „Að kasta þjóðinni í slíkt
stríð væri heimskulegt. Ef við fær-
um samt út í það gæti niðurstaðan
orðið „nei“, sem gæti bundið hend-
ur okkar um langa framtíð. Þar
að auki myndum við gefa út þau
skilaboð til Evrópu að hér sé land
sem uppfylli aðildarskilyrðin en
íbúarnir séu þeirrar skoðunar að
verkefnið sé svo asnalegt að þeir
vilji frekar halda sér utan við.“
Segist Persson hafa haft nógu
góð kynni af leiðtogum Evrópu til
að vita að víða sé litið á EMU sem
fyrsta skrefið í átt að enn nánara
samstarfi ríkjanna innan ESB, að
„dýpra“ Evrópusambandi, sem
stefni í að snúast æ meir um sam-
ræmingu á stjórnun ríkisfjármála.
Yilmaz segir tolla-
bandalag við ESB í vanda
Ankara. Reuter.
MESUT Yilmaz, forsætisráð-
herra Tyrklands, sagði á mánu-
dag að tollabandalag Tyrklands
og Evrópusambandsins væri í
vanda statt vegna þess að ESB
stæði ekki við skuldbindingar
sínar,
„Þar sem sambandið hefur
ekki staðið við skuldbindingar
sínar er samningur okkar um
tollabandalag í alvarlegum
vanda,“ sagði Yilmaz við frétta-
menn stuttu áður en hann átti
fund með Jacques Poos, utanrík-
isráðherra Lúxemborgar, sem
nú situr í forsæti ráðherraráðs
ESB. Poos var í stuttri heimsókn
í Tyrklandi.
Yilmaz útskýrði ekki nánar
þau vandkvæði, sem tengdust
tollabandalaginu. Það hefur nú
verið í gildi í 20 mánuði og hef-
ur í för með sér að verzlun mdli
ESB og Tyrklands er frjáls, en
sameiginlegur ytri tollur gildir.
Minni fjárhagsaðstoð
en ætlað var
Fyrir stuttu var haft eftir
Bulent Ecevit, aðstoðarforsætis-
ráðherra, að tyrkneska stjórnin
vildi semja við ESB að nýju
vegna þess að tollabandalagið
hefði haft neikvæð áhrif á við-
skiptajöfnuð Tyrklands við sam-
bandið.
ESB hefur ekki veitt Tyrlq'um
jafnmikla fjárhagsaðstoð og upp-
haflega var ætlað til að styrkja
tyrknesk fyrirtæki í harðnandi
samkeppni. Astæðan er einkum
andstaða Grikkja, erkifjenda
Tyrkja, sem hafa neitunarvald í
ráðherraráði ESB.
FRAMTÍÐARBÖRN
G E F Ð U B A R N I N U Þ I N U
forskot
A F R A M T I Ð I N A
Framtíöarbörn er tölvuskóli fyrir börn og
unglinga á aldrinum 4-14 ára. í hverjum hóp eru
aðeins 4-8 nemendur sem gerir mögulegt að nýta
viðurkenndar og þróaðar kennsluaðferðir.
Nemendur ganga í gegnum að minnsta kosti 800
námsmarkmið yfir veturinn. Þessum námsmark-
miðum er skipt eftir tiu meginsviðum tölvutækn-
innar. Námið er byggt upp eftir aldri og þroska
nemenda og þeim skipt niður í fjóra hópa; 4-5
ára, 5-8 ára, 8-11 ára og 11-14 ára. Öll börn og ung-
lingar geta skráð sig í skólann. Það er ekki skilyrði
að eiga tölvu.
Námsefnið er þróað af fjölda sérfræðinga á sviði
kennslu og uppeldis- og tölvufræði og nýtt náms-
efni kemur frá Futurekids International á sjö
vikna fresti. Því hefur skólinn ávallt námsefni sem
enginn annar tölvuskóli getur boðið.
Kennslan fer þannig fram að nemendurnir upplifa
námið sem leik. í vetur er unnið eftir þema sem
er kallað „Fjölmiðlun Framtíðarbarnanna". Fjöl-
miðlun framtíðarbarnanna er ímyndað fyrirtæki
sem hefur sex fjölmiðla á sínum snærum og er
unniö við hvern miðil í sjö vikur. Mikil áhersla er
lögð á gæði kennslunnar og að nemendur læri í
gegnum uppgötvunarnám og eigin reynslu. Hver
einstaklingur fær að njóta sín en einnig er lögð
áhersla á samstarfshæfni í hópvinnu.
553 3322 er símanúmer Framtíöarbarna. Hringdu ef
þú vilt skrá barnið þitt í skólann eða til að fá nán-
ari upplýsingar. Síminn er líka opinn á kvöldin.
Þú getur einnig komið við á skrifstofu
Framtíðarbarna að Grensásvegi 13.
Gefðu barninu þínu tækifæri tn að
læra á heim tölvutækninnar. Gefðu
barninu þínu forskot á framtíðina.
Tíu meginsvið
tölvutækninnar
• Töflureiknir
• Ritvinnsla
• Myndvinnsla
• Gagnagrunnar
• Forritun
• Umbrot og útgáfa
• Jaðartæki tölvunnar
• Hagnýting tölvunnar
« Margmiðlun
« Tölvusamskipti
Fjölmiðlun
Framtíðarbarnanna
• Tímarit
• Dagblað
• Útvarpsstöð
• Sjónvarpsstöð
• Margmiðlun
• Internetið