Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 23
LISTIR
Að syngja af
lífi og sál
TÓNIIST
Gcrdarsafn
í Kópavogi
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Olafur Kjartan Sigurðarson og Tóm-
as Guðni Eggertsson fluttu söngverk
eftir Mozart, Finzi, Ravel, Wolf,
Massenet og sönglög eftir Sigfús
Einarsson, Arna Thorsteinsson, Jón
Leifs, Sigurð Rúnar Jónsson og Karl
O. Runólfsson. Mánudagurinn 1.
september 1997.
Oft hefur því verið haldið fram,
að söngvarar nútímans eigi margt
sameiginlegt með skáldum fornald-
ar sem fluttu konungum drápur sín-
ar og urðu frægir um lönd. Líklega
hefur flutningur skáldanna verið
með einhverjum hætti tónklæddur,
m.ö.o. kveðinn, enda var oftlega
tekið fram að flutningurinn hefði
hið besta verið framfærður. í dag
kveðja íslendingar sér hljóðs með
söng og hafa margir „þegar fengið
hljóð“. Ólafur Kjartan Sigurðarson
hefur vakið athygli fyrir söng sinn
og voru tónleikar hans í Gerðar-
safni sl. mánudag sannarlegur
hvellur. Þrátt fyrir að hann sé enn
í námi og eigi sjálfsagt eftir að ná
enn frekar valdi yfir rödd sinni er
eitt víst, varðandi alla uppfærslu
hans, músíkalska mótun og lifandi
söng, að „hann hefur það“, eins og
stundum er sagt.
Ólafur Kjartan hóf tónleikana
með „flagaralistanum" úr Don Gio-
vanni, eftir Mozart. Túlkun Ólafs
var ef til vill einum of grallarleg en
í þessu lagi hefði mátt leggja meiri
áherslu á ísmeygilegt háðið. Það
vakti þegar athygli að undirleikar-
inn, Tómas Guðni Eggertsson, sem
nýlega hefur hafið framhaldsnám
við tónlistaakademíuna í Glasgow,
sýndi sig að vera orðin glettilega
góður undirleikari.
í lagaflokknum Let us Garlands
Bring, eftir enska tónskáldið Gerald
Finzi (1901-1956), var flutningur
þeirra félaga mjög góður og ekki
síður í Söngvum Don Quixote eftir
Ravel. í miðlaginu Chanson épique
sýndi Ólafur að hann hefur „mikla
hæð“, sem enn á þó eftir að slíp-
ast. Þrjú ljóð við kvæði eftir Miche-
langelo voru sérlega fallega sungin.
Þessi dapurlegu söngvar eru ægi-
fögur tónlist og þar var samspil
félaganna einstaklega gott. Sér-
staklega bera að geta leiks Tómas-
ar og að hann er efni í góðan undir-
leikara.
íslensku lögin eru ávallt sérmæli-
kvarði á hæfni söngvara og söng
Ólafur Kjartan þau mjög vel og
með einstaklega góðum framburði.
Fyrstu tvö lögin, sem allir söngvar-
ar syngja, Draumalandið, eftir Sig-
fús Einarsson, og Fögur sem forð-
um, eftir Árna Thorsteinsson, voru
mjög vel flutt. Lag Jóns Leifs,
Máninn líður, hefur oftast verið
flutt með þungum hryn og sterkum
rómi, sem mörgum þykir hæfa tón-
máli Jóns. Það mætti allt eins flytja
þetta sérkennilega tónverk „sotto
voce“ , með veikum tóni og fljót-
andi „melisma", því það er ekki ógn
sem býr í þessu kvæði, heldur kyrrð,
hljóðir skuggar og draumur um
horfna gæfu. Vor og haust, nefnist
lag eftir Sigurð Rúnar Jónsson, við
kvæði eftir Pál J. Árdal og söng
Ólafur þetta ágæta lag mjög vel
við mjög góðar undirtektir áheyr-
enda. Hvellurinn var svo Útlaginn,
eftir Karl O. Runólfsson sem Olafi
tókst að túlka á mjög dramatískan
máta.
Tónleikunum luku þeir félagar
með aríu Heródesar, úr samnefndri
óperu eftir Massenet. Ólafur sýndi
á þessum tónleikum að honum feli-
ur vel að flytja „lieder" og í aríu
Heródesar var flutningur hans
glæsilegur og ljóst að hann á ekki
síður erindi upp á óperusviðið en
við „liederinn".
Raddlega á Ólafur enn eftir að
mótast og röddin að mýkjast en
ailt annað er honum leikur einn,
tónlistin, textaframburður, túlkunin
og hversu honum er eiginlegt að
voga öllu, gefa sig á vald viðfangs-
efninu, syngja „af lífi og sál“.
Jón Ásgeirsson
í málið. Skúlptúrinn sem ég vann
upphaflega í tré var settur upp á
þeim stað sem ég hafði fyrirhug-
að og ráðamönnum hefur líkað
ágætlega við hann, því þeir sýndu
áhuga á að verkið færi upp, þó
þannig að safna yrði fyrir því,
meiningin er að steypa það í brons
við hentugt tækifæri, þ.e. þegar
peningasjóðurinn sem á að standa
straum af kostnaðinum er orðinn
nógu digur til þess arna.“
Þetta hlýtur að hafa verið tölu-
verð hvatning fyrir þig.
„Jú, jú, því er ekki að neita,
það er ekki alltaf nóg að vinir
og kunningjar klappi manni á
bakið og hrósi manni. Það er
gaman að fá staðfestingu á því
að maður hafi valið rétta leið í
lífinu, ég ákvað að eyða mínum
peningum í skólagjöld og spýtur
í skúlptúrana mína frekar en
sófasett og eldhúsinnréttingar.“
Hjólið er þema sem virðist vera
þér hugleikið, er einhver sérstök
ástæða fyrir því?
„Það er kannski ekki nein sér-
stök eða ein ákveðin ástæða fyrir
því, en það er rétt, ég vinn mikið
með hringfqrmið, hjólið og hreyf-
ingu þess. Ég held að flestir lista-
menn vinni þannig að þeir kanni
ákveðin form í einu verki og þrói
þau síðan áfram í því næsta og
þannig koll af kolli. Ég hef unnið
dálítið með hugsanlega eða
ímyndaða hreyfingu í mínum
verkum, þ.e. láta áhorfandann
uppgötva og velta því fyrir sér
hvert og hvernig hjólið myndi
rúlla ef það losnaði af stallinum.
Eins og þetta síðasta sem ég var
með á sýningunni í Henley við
Thames þar sem ég stillti upp
hjóli sem var misbreitt efst og
neðst og setti það á braut eða
teina sem fylgdu formi hjólsins
ef það skyldi rúlla af stað.“
Hvernig var að taka þátt í sýn-
ingunni í Henley?
„Þetta er mjög fallegur staður,
ekki langt frá Oxford. Þetta var
frekar óvenjuleg listahátíð sem
fór öll fram úti undir berum
himni, þar sem flestar listgreinar
fengu að njóta sín í blíðskapar-
veðri. Þarna var tónlist af ýmsum
toga flutt á sviði sem flaut á
ánni, myndlist og skúlptúr voru
tii sýnis á afmörkuðum svæðum
og í tjöldum. Þessu lauk síðan
öllu með pomp og pragt eftir fjóra
daga með gríðarmikilli leysi-
geislasýningu á ánni. Það var
talið að sextán þúsund manns
hafi sótt hátíðina, það var mjög
gaman að fá að taka þátt í og
vera partur af svona veglegri
hátíð, þó hún væri dálítið snob-
buð.“
Ég þakkaði Guðrúnu fyrir
spjallið og hélt útí stórborgina,
mér fannst ég hafa fengið innsýn
í listform sem ég hafði ekki hugs-
að mikið um fram að þessu og
fór að taka eftir öllum listaverk-
unum sem ég hafði strunsað
framhjá áður. Það er augljóst að
Guðrún hefur svo mikla ástríðu
fyrir sínu listformi að það er
smitandi.
Ertu á Mé tíí
Reykjavikur?
Sértilboð í
KoktóbeiL-
lci"- 0.900 á dag fyrir 2
Innif: gisting, morgunverður, lOOkm, trygging og VSK.
Það borgar sig fyrir þig að kynna
þér Lykilhótel Cabin, nýtt hótel
miðsvœðis í borginni,
sem býður þér ódýra
og góða gistingu.
Budget
Cabin
Borgatúni 32,
105 Reykjavík,
Sími 511 6030
Golffatnaður
15% afslattur, 20% stgr.
HIPPO golfbolir, peysur og regnfatnaður
Regnblússa, áður kr. 5.700, nú 4.800, stgr. 4.560
Fleece windbreaker, nú kr. 6.230, stgr. 5.920
Vandadir regngallar frá David Sax, vatnsheldir úr
micro efni,
Goifskór, Hi-Tec, Rebook, Etonic,
ýmsar gerðir 10% afsláttur, 15% stgr.
Skólaúlpur
Allt að 35% afsláttur
Símar: 553 5320
568 8860
Ármúla 40
5% staðgreiðslt
i
Ein stærsta sportvöruverslun
Verslunini
'uafsláttur ■ ýlJU&VþlfWR
STÓRÚTSALA !
Reiðhjól
allt að 40% afsláttur
21 gíra DIAMOND EXPLOSIVE með
Shimano gírum, Grip-Shift, álgjörðum,
átaksbremsum, brúsa, standara, gír og
keðjuhlíf. Gott hjól á frábæru tilboði.
Kr. 19.900 stgr. 18.905 (áður kr. 27.300)
BRONCO Ultimate 21 gíra álhjól aðeins
kr. 33.300, stgr. 31.635, áður kr. 47.000
Frábær verð á vönduðum SCOTT 21 gíra fjallahjólum m/Alivio gírum frá 29.900,stgr.
28.405 áður 43.000. SCOTT 21 gíra STX frá 39.200, stgr. 37.240, áður 65.300
Barnahjól med fótbremsu og hjálpardekkjum, verð frá kr. 9.900, stgr. 9.450
20“ BMX verð aðeins kr. 11.400, stgr. 10.830
íþróttafatnaður
Æfingagallar
20-30% afsláttur
Bómullarfatnadur
20-30% afsláttur
Hjólabretti og
Línuskautar
20-50% afsláttur