Morgunblaðið - 03.09.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 25
LISTIR
Kór Stykkishólms-
kirkju á leið til Noregs
Stykkishólmur. Morgunblaðið.
FELAGAR í kór Stykkishólms-
kirkju eru á förum til Drammen
í Noregi, fimmtudaginn 3. sept-
ember. Kórnum var boðið að taka
þátt í norrænu kórammóti sem
þar er haldið dagana 5.-7. sept-
ember. Hann er eini íslenski kór-
inn sem syngur á þessu móti.
Þarna syngja kórar frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Eystra-
saltsríkjum.
Það eru 36 kórfélagar sem taka
þátt i ferðini og auk þeirra eru
makar og eru alls 63 Hólmarar í
hópnum.
Það er búið að vera mikið að
gera hjá kórfélögum við að und-
irbúa ferðina, bæði æfing söng-
dagskrár og svo að afla fjár til
ferðarinnar. Kórinn hefur æft
undir stjórn Sigrúnar Jónsdóttur.
Tekið var hlé í júlí, en annars
æft af fuilum krafti fram að brott-
för. Ymsar fjáröflunarleiðir voru
reyndar, t.d. sala á kleinum, hald-
ið bingó og sungið við ýmis tæki-
færi á undanförnum mánuðum.
Á föstudagskvöldið 29. ágúst
hélt kórinn tónleika og bauð upp
á þá dagskrá sem hann hefur
verið að æfa fyrir Noregsferðina.
í farteskinu eru á milli 12-15 lög
og eru þau flest íslensk. Kom þar
í ljós að kórinn er í mjög góðri
þjálfun og var gaman að hlusta á
velæfða söngdaskrá.
Á þessum tónleikum kom fram
Elísa Vilbergsdóttir sópransöng-
kona. Hún er fædd og uppalin í
Stykkishólmi, en hefur undan-
farna vetur stundað söngnám í
Söngskólanum hjá Þuríði Páls-
dóttur. Var mjög ánægjulegt að
hlusta á söng Elísu. Hún hefur
allt til brunns að bera til að ná
langt á þessari braut. Hún hefur
fína rödd, kemur vel fyrir og
hefur mikla útgeislun. Hún hefur
stundað söngnámið af miklum
krafti og einnig hefur hún lært
píanóleik. Verður gaman að fylgj-
ast með Elísu á næstu árum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
KOR Stykkishólmskirkju ásamt stjórnanda, undirleikara og einsöngvara.
Nýjar hljóðbækur
TEIKNING Arthurs Flekar
af sr. Árna, 1930.
• ÚT er komið á hljóðsnældu fyrsta
bindi Ævisögv Árna prófasts Þór-
arinssonar, sem Þórbergur Þórðar-
son færði í letur, í upplestri Péturs
Péturssonar, fyrrverandi útvarps-
manns.
Ævisaga Árna prófasts kom út
á vegum Bókaútgáfunnar Helga-
fells í sex bindum á árunum 1945
til 1950.
Pétur las Fagurt mannlíf, fyrsta
bindi ævisögunnar, sem útvarps-
sögu í Ríkisútvarpinu í mars og
apríl 1988, alls 19 lestra.
Upptökur eru til hjá Ríkisútvarp-
inu af lestri Péturs á öllum bindum
ævisögunnar. Hefur lestur hans á
fjórum bindum verið fluttur og bíða
tvö bindi útsendingar.
Útgefandi er Pétur Pétursson.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
147 PR0NT0
154PREST0
316 REN0V0
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
✓
Okkur hjá Islenskri erfðagreiningu hefur tekist að
staðsetja erfðavísinn fyrir ættgengum skjálfta..
Við óskum eftir þátttöku fleiri einstaklinga með skjálfta,
til að geta haldið áfram leit okkar að lækningu.
Ert þú skjálfhent(ur)?
• Átt þú erfitt með að halda á fullum bolla án þess að hella niður?
• Átt þú erfitt með að skrifa, og hefur skrift þín farið versnandi?
• Finnur þú fyrir óeðlilegum handskjálfta þegar athyglin beinist að þér?
• Hefur þú fundið fyrir eða hefur verið nefnt við þig að þú hafir tif í höfði?
Ef eitt eða fleiri þessara einkenna eiga við þig, og sért þú
tilbúin(n) að taka þátt, þá biðjum við þig að hringja í
síma 570-1900
milli kl. 9:30 og 16:30
Þökkum frábœrar undirtektir þeirra fjölmörgu sem
þegar hafa liðsinnt okkur við rannsóknirnar.
Islensk erfðagreining ehf.