Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 28

Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FURUGRUNDAR- MÁLIÐ - RANN- SÓKN ÓHJÁ- KVÆMILEG SVOKALLAÐ Furugrundarmál, sem fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík fullrannsakaði á árinu 1988, týndist í embættismannakerfinu og hefur ekki verið hreyft við því í 9 ár. Samkvæmt upplýsingum Arnars Jenssonar fór málið frá lögreglumönnunum með eðlilegum hætti, en síðan veit enginn hvað af því varð. Furugrundarmálið snerist um 130 g af hassi, sem Frank- lin Steiner játaði fyrir lögreglu að hafa átt, auk amfetam- íns. Málið fór frá fíkniefnadeild lögreglunnar og þá væntan- lega í hendur þess aðila innan embættis lögreglunnar í Reykjavík, sem tók ákvarðanir um afgreiðslu mála, svo sem um niðurfellingu eða framhaldsmeðferð til ákæruvalds eða dómstóla. Guðjón St. Marteinsson, fyrrverandi deildarlögfræðingur fíkniefnamála hjá lögreglustjóranum í Reykjavík og héraðs- dómari í Reykjavík, hefur sagt í samtali við Morgunblað- ið, að málið hafi komið upp í þann mund, sem hann hætti störfum hjá embætti lögreglustjóra eða um áramótin 1988 til 1989. Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur lögreglustjór- ans í Reykjavík, sem tók við af Guðjóni, segir að til sinna kasta hafi aldrei komið nein rannsókn er varðaði Franklin Steiner, hvorki Furugrundarmálið né önnur mál. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins barst Furu- grundarmálið aldrei til ríkissaksóknara, en við rannsókn Atla Gíslasonar, setts rannsóknarlögreglustjóra til að rann- saka samskipti fíkniefnalögreglu við Franklin Steiner, kom fram að frumrit rannsóknarskýrslna málsins væru týnd, en afrit af gögnunum reyndust vera til í fíkniefnadeild lögreglunnar. Hvað varð um frumrit rannsóknargagnanna? Á að láta staðar numið við svo búið? Rannsaka ber hvað varð um gögnin og hvers vegna þau skiluðu sér ekki til þeirra, sem áttu að fjalla um málið. Það er ekki við unandi að alvar- legt fíkniefnamál gufi upp innan kerfisins eins og ekkert sé. Það hefur verið efnt til rannsóknar af minna tilefni. „SIÐRÆN ÚRKYNJUN“ FLEST getum við verið sammála um það,“ segir Þor- steinn Jóhannesson, bæjarfulltrúi og yfirlæknir á ísafirði, í grein hér í blaðinu, „að fiskinn í hafinu umhverf- is landið, sameign þjóðarinnar, megi ekki veiða án stjórnun- ar . . . Margir hafa trú á því að hina miklu fiskgengd í fjörðum og flóum landsins, sem trillusjómenn skýra nú frá, megi þakka takmörkun á veiðum, sem núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi skipar fyrir um . . . Óánægju veldur hins vegar sú mikla mismunun, sem felst í því að fáum einstaklingum er veittur aðgangur að auðlindinni, sameign okkar allra, ekki aðeins að þeir megi nýta hana endur- gjaldslaust, heldur geta þeir verzlað með hana að eigin geðþótta.“ Greinarhöfundur telur að handhöfum kvótans hafi verið afhent ígildi um 300 milljarða króna. „Sýnist manni að nú keppist hver sem mest hann má,“ segir bæjarfulltrú- inn, „við að ná beinhörðum peningum út úr þessari s.k. sameign okkar. Þessum peningum er kippt út úr atvinnu- greininni. . . Afleiðing alls þessa er lítið atvinnuöryggi í þeim landshlutum, sem allt sitt hafa átt undir fiskveiðum og fiskvinnslu. Það leiðir til byggðaröskunar . . .“ Greinarhöfundur heldur því og fram að kerfið leiði til þess að „einstaklingar, sem vilja hasla sér völl innan grein- arinnar, séu fyrirfram dæmdir úr leik. Slík fyrirbrigði þekkjum við alltof mörg úr sögunni," segir hann, „og fyrr eða síðar mun þetta leiða til siðrænnar úrkynjunar og hruns atvinnugreinarinnar.“ Niðurstaða greinarhöfundar er sú að „aldrei frá því að ísland byggðist hafi nokkur stjórnvaldsaðgerð mismunað þegnum þessa lands jafn gríðarlega og samþykkt núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfis." - Tilvitnuð skrif eru dæmi- gerð fyrir vaxandi gagnrýni, ekki sízt á landsbyggðinni, á meinta vankanta gildandi stjórnkerfis fiskveiða og þá mismunun, sem það felur í sér. Skjólskógar nýtt umhverfísverkefni í Dý Bætir lífsskilyrði og þjónar búskaparháttum Sveitungar Sæmundar Kr. Þorvaldssonar, for- manns Skógræktarfélags Dýrafjarðar, kalla hann gjaman kraftaverkamann en honum hefur tekist með aðstoð Amlínar Óladóttur skógfræðings á Bakka í Bjamarfírði á Strönd- um að hrinda í framkvæmd nýju umhverfís- verkefni, Skjólskógum. Kristín Gunnarsdótt- ir fylgdist með þegar þau kynntu verkefnið á aðalfundi Skógræktarfélags Islands. ARNLÍN Óladóttir skógfræðingur og Sæmundur Kr. Þorvaldsson, fo fjarðar, en hann átti hugmyndina að Skjólsl MARKMIÐIÐ með Skjól- skógum er, eins og Sæ- mundur segir, að bæta lífsskilyrðin og þjóna þeim búskaparháttum sem fyrir eru við Önundarfjörð og í Dýrafirði. Gert er ráð fyrir að heildarkostnað- ur vegna verkefnisins verði rúmar 227 milljónir og að framkvæmdin taki 20 ár. Undirbúningur er þegar hafinn við Bakkabæina í Dýrafirði og við bæinn Tröð í Önundarfirði. „Eftir að ég fékk skógræktar- bakteríuna fyrir sjö árum fór ég að velta því fyrir mér hvort ekki mætta bæta lífsskilyrðin með skóg- rækt og eftir kynni mín af mönnum sem hafa ferðast um landið, ráðlagt um gróðursetningu og blásið á allar efasemdir en þess í stað stappað stálinu í menn, þá hef ég styrkst í trúnni á skógrækt,“ sagði Sæmund- ur. Hann segist hafa sett fyrstu hugmyndir að Skjólskógum á blað með hálfum huga fyrir tveimur árum. Síðan hafi tíma hans að mestu verið varið í að afla þekking- ar og safna upplýsingum um fyrri reynslu af ræktun í eldri skógarreit- um á svæðinu. Hann kynnti fagaðil- um hugmyndina og hvöttu þeir hann óspart til dáða, einkum þó starfsmenn Skógræktarfélags Is- lands. í ársbyijun 1996 var verk- efnið fyrst kynnt formlega meðal bænda í héraðinu og eru nú 34 bændur með 42 jarðeignir í Önund- ar- og Dýrafirði formlegir aðilar að Skjólskógum en það eru um 80% bænda á svæðinu auk Þingeyrar og Flateyrar. Breytilegar aðstæður Svæðið sem verkefnið Skjólskóg- ar nær yfir, en það er Önundarfjörð- ur, Dýrafjörður og tvær jarðir í Arnarfirði, býður ekki upp á bestu vaxtarskilyrði fyrir tijágróður og þó að firðirnir séu um margt líkir eru aðstæður afar breytilegar í jafn íjöllóttu og vogskornu landi. Nefndi Sæmundur sem dæmi að snjóþungt væri við norðanverðan Önundar- fjörð en nær snjólaust á vetrum við sunnanverðan Dýrafjörð. „Þegar við kynntum verkefnið fyrir íbúum á svæðinu gerðum við þeim grein fyrir að þetta væri mjög stórt verk- efni,“ sagði hann. „Um væri að ræða nýtt hugtak í landgræðslu og skógrækt. Til að tryggja okkur stuðning heimamanna og um leið okkar bakland lögðum við áherslu á að öll undirbúningsvinna færi fram á heimaslóðum og að heima- menn yrðu vel undirbúnir áður en við snerum okkur til annarra aðila eftir að- stoð. Um 30 ár eru síðan skógrækt lagðist nánast af í héraðinu enda hefur því löngum verið haldið fram að veðurfarsskilyrðin séu of erfið fyrir skógrækt. Ég komst að þeirri niður- stöðu í hugleiðingum mínum að í stað þess að sætta sig við erfiðleika yrði að vinna á þeim og nýta skóg- rækt og landgræðslu til að bæta búsetuskilyrðin rétt eins og Danir gerðu. Af hveiju að vera með kotbú- skap á ofbeittu lándi eins og gert var á Jótlandi á fyrri öld ef hægt er að koma á arðbærum búskap?" Sæmundur segir að Skjólskógar séu auk þess að vera stórt skóg- ræktarverkefni, byggðaverkefni fyrir landeigendur og landlausa á svæðinu. „Vestfjarðaaðstoð þekkja menn með um 300 milljónir í byggðaverkefni,“ sagði hann. „Þetta er ef til vill eitt slíkt en á öðru sviði en hingað til og miðar að því að gera héraðið byggilegra. Aðalatriðið er að allt sem gert er, er til viðbótar og aðstoðar við hefð- bundinn búskap á svæðinu. Við höfum náð skemmtilegum árangri í samskiptum við bændur, sem eru tilbúnir að horfa á verulega breytt skipulag á sínum búskap og sinni beit. Við vitum að mönnum líður betur í skjóli en á berangri en það hefur stundum reynst erfitt að sannfæra þá sem ekki þekkja annan skóg en siglutré um að þetta sé rétt.“ 20 ára verkefni Verkefni Skjólskóga beinist að ræktun skjólbelta, á bújörðum, í þorpum, við skóla, sumarbústaða- byggðir, á áningarstöðum ferða- manna og við opinberar byggingar í sveitum. Markmiðið er að auka arðsemi ræktunar í landbúnaði og gefa möguleika á nýjum fram- leiðslugreinum svo sem garðyrkju og úrvinnslu þess sem til fellur úr skóginum. Lækka hitunarkostnað, skýla íbúum, mannvirkjum, búfé og útivistarsvæðum. Stýra skafla- myndun við bústaði og samgöngu- æðar ásamt því að gefa gaum að möguleikum á einhvers konar að- stoð við snjóflóðavarnir með tijá- gróðri. Samkvæmt áætlun um Skjólskóga er gert ráð fyrir að heildarkostnaður verði rúmar 227,4 milljónir og að verkið verði unnið á 20 árum. Árlegur kostnaður yrði því rúmar 11 milljónir og er gert ráð fyrir að opinberir aðilar leggi til 97% eða 11 milljónir en landeig- endur 400 þús. á ári. Til þessa hefur verkefnið verið styrkt af heimamönnum, Framleiðnisjóði landbúnaðarins, Skeljungssjóði og Umhverfissjóði verslunarinnar. Að auki hefur skógrækt rfkisins lagt verkefninu !ið með ráðgjöf sérfræð- inga. Tvö tilraunasvæði Arnlín Óladóttir skógfræðingur hefur starfað að verkefninu um eins árs skeið og hefur hún mótað hug- myndir heimamanna og fært í læsi- legan búning. Unnið hefur verið að útfærslu tillögunnar á einstökum Aðstoðar við hefðbundinn búskap

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.